Þjóðviljinn - 25.01.1963, Blaðsíða 2
SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 25. janúar 1963
" Ctvegsbankahúsinu við Lækjartorg eins og það mun Iíta
eítir að byggt hefur veriö ofan á gamla húsið.
r
ggt oían á Utvegs-
k ika á Lækjartorgi
f gær skýrðu forráðamenn Út-|
vegsbanka fslands fréttamönnum
frá fyrirhugaðri stækkun á húsi
bankans við Lækjartorg en vax-
andi starfsemi bankans á síðari
árum hefur leitt til þess að
þröngt er orðið um hann í
gamla húsinu.
Gamla bankahúsið var reist
árið 1905 en það var teiknað
af dönskum húsameistara. Árið
1938 var bankahúsið tengt við
húsið Lækjartorg 1 sem bank-
inn hafði keypt af Páli Stefáns-
syni frá Þverá og teiknaði Sig-
urður Guðmundsson húsameist
ari þaer breytingar er nauðsyn-
legt var að gera á húsinu.
Eftir 1959 kom til tals að
byggja ofan á gamla bankahús-
ið en af því varð þó ekki að
sinni. 1959 var svo hafizt handa
að nýju og hafa þeir Eiríkur
Einarsson húsameistari og Hörð-
ur Björnsson byggingafræðingur
gert teikningar að fyrirhugaðri
byggingu ofan á gamla húsið og
hafa þær nú verið samþykktar.
Er ákveðið að bjóða verkið út
í næsta mánuði og að þvi stefnt
að hefja byggingarframkvæmdir
í apríl n.k.
Meginatriðip í hinni fyrirhug-
uðu nýbyggingu eru eftirfarandi:
Byggðar yrðu 4 hæðir ofan á
gamla bankahúsið sú efsta inn-
dregin. Eru hæðirnar að flatar-
r
nyrfiskolinn
óskar eftir húsnæði til leigu fyrir starfsemi sína. -
Til greina kemur rúmgóð 2ja herb. íbúð. Sími 36399.
Ræða Eðvarðs Sigurðssonar
á Dagsbrúnarfundinum
máli 420 fermetrar hver, nema
efsta hæðin, sem er 370 fermetr-
dr',
Útveggir eru steyptir og gólf
úr strengjasteypu. Þungi bygg-
ingarinnar hvílir á útveggjum
gamla bankahússins, sem stend-
ur þar af leiðandi áfram sem
undirstaða nýbyggingarinnar.
Til þess að skapa heildarsam-
ræmi verða veggir nýbygging-
arinnar klæddir Ijósum granít-
plötum. líkt og granitið i súlum
við aðalinngang og bogum kring-
um glugga gamla hússins. Efsta
hæðin. inndregna. verður þó
léttbyggð.
Afgreiðslusalir bankans á
neðstu hæð verða stækkaðir með
viðbyggingu um rúma 100 fer-
metra. Byggt nýtt stigahús út í
Kolasund með starfsmannainn-
gangi að norðan og inngangi frá
Austurstrætj og lyftu á hæðirn-
ar. Kjallari er undir viðbygg-
ingu með snyrtiherbergjum og
fatageymslu fyrir starfsfólk. Ný-
byggingin öll er um 7000 rúm-
metrar eða nálega jafnstór og
"'úverandi bankahús
Sú breyting verður gerð á
húsinu Lækjartorgi 1. að þakinu
verður lyft torgmegin, þannig
að myndast inndregin hæð með
'Tirbyggðum svölum. Er ráð-
gert, að Þa-r verði mötuneyti
fyrir starfsfólk bankans.
Framhald af 1. síðu.
okkar er að stytta vinnuvikuna
með óskertu kaupi. I næsta á-
fanga verðum við að leggja á-
herzlu á eftirfarandi:
1. Stytting vinnuvikunnar
með óskertu kaupi.
2. Verðtrygging á kaup.
3. Tilfærsla milli taxta.
4. Almenn hækkun á kaupi
vegna starfsaldurs.
Okkur hefur verið sagt að
þjóðarbúið þoli ekki hærra kaup
verkamanna. Hver er sannleikur-
inn. Við skulum nefna örfáar
staðreyndir.
Aukning sjávaraflans 1961
frá árinu áður var 23,6%. Á
árinu 1962 hefur sennilega
orðið enn meiri aukning frá
árinu áður.
Samkvæmt söluskýrslum
var verðmæti aflans 1961 388
millj. kr. meira en árið 1960.
Það er ekki ósennilegt að
Úrskurður
Félagsdéms
Um hvað
talar hann?
Alþýðublaðið leggur að von-
um kapp á að uppfræða les-
endur sína um heimsmálin,
og síðustu dagana hefur blað-
einbejtt sér að því að skýra
stefnu de Gaulle Frakklands-
forseta. í forustugrein i íyrra.
dag komst blaðið svo að orði:
,,Stefna de Gaulle Frakklands-
forseta vekur bæði ugg og
umtal. Hafa vaknað þær
grunsemdir á meginlandinu,
að hann kunni að ætla sér að
gera bandalag við Sovétrík-
in og endurreisa hinn gamla
Moskvu-París öxul. Hann tal-
ar alltaf um Rússland — aldr-
ei Sovátríkin, og virðist líta
á alþjóðamálin • í anda löngu
liðinna daga“
I gær hnykkir blaðið enn
betur á og birtir langa grein
i opnu með risafyrirsögnum:
,Er þetta það sem koma skal?
Öxullinn: París-Moskva“, Hef-
ur það á takteinum alveg nýja
sönnun um þær fyrirætlanir
Frakklandsforseta „að undir-
búa öxulinn de Gaulle-
Moskva", semsé þessa: „Menn
hafa veitt þv; athygli, að de
Gaulle hefur upp á síðkastið
aldrei talað um „Rússland“
heldur ávalit Sovétríkin“.
Mikið hlýtur það að vera
ánægjulegt fyrir lesendur Al-
þýðublaðsins að njóta svona
öruggrar leiðsagnar um myrk-
viði alþjóðlegra stjórnmála.
Framhald af 5. síðu.
skipti félagsmanna Verkalýðs-
og sjómannafélags Miðnes-
hrepps og stefnda, Landssam-
bands isl. útvegsmanna. Sam-
kvæmt þeirri niðurstöðu og
með tilliti til þess. að kjara-
samningur aðila bessa máis
frá 14. febrúar 1961, var j gildi
að því er síldveiðamar sl. sum-
ar varðar. ber að miða reikn-
ingsskil við stýrimann og vél-
stjóra m/b Hrannar II. við há-
setahlut. eins og hann varð
samkvæmt kaup- og kjaraá-
kvæðum framangreindra há-
setasamninga. Verður þessi
krafg stefnanda samkvæmt því
tekin til grejna “
Félagsdómur tók hins vegar
ekki tii greina sektarkröfu
FFSÍ
Dómsorð í málinu urðu á
bessa leið:
,.l Stefndi, Landssamband
íslcnzkra útvegsmanna á að
vera sýkn af sektarkröfu stefn-
anda, Farmanna- og fjski-
mannasambands íslands í máli
þessu.
2. Reikningsski! við stýri-
mann og báða vélstjóra á m/b
Hrönn II. G.K. 241 á sildveið-
um sumarið 1962, skulu mið-
ast við skiptagrundvöll háseta
samkvæmt áðurgreind.um kjara-
samningum frá 13. júní 1958 og
15. mai 1959.
.Málskostnaður fellur niður.“
Ekki
þakkarvert
Morgunblaðið segir í gær
að sú 5% kauphækkun sem
verkamenn hafa nú fengið sé
„auðvitað viðreisninni að
þakk.a“. 1, júní í fyrra gerðu
verkamenn nýja samninga
sem voru yfirleitt taldir jafn-
gilda 9% k.auphækkun Á
þeim tíma sem síðan er liðinn
hafa komið fil framkvæmda
verðhækkanir sem nem,a 9,5%
samkvæmt hinnj opinberu
vísitölu framleiðslukostnaðar.
Á þennan hátt hefur verið
tekin aftur öll sú kauphækk-
un sem samið var um í fyrra
og ve] það. Enda þótt nú sé
greidd 5% hækkun á kaup.
vantar 4,5% upp á það að
verkamenn standi í sömu
sporum og þeir stóðu fyrir
tæpum átta mánuðum. Þann-
ig er bróunin jafnframt því
sem þjóðartekjurnar verða I
miklu meiri en nokkru sinni
fyrr í sögu þjóðarinnar.
Víst er þetta glöggt dæmi .
um áhrif viðreisnarinnar En |
er ekki hæpið að nota sögn- .
ina ,.að þakka“ í þessu sam- |
bandi? — Austri. >
aukning aflaverðmætisins ’62
nemi um 500-600 millj. kr.
Það lætur því nærri að verð-
mætisaukning sjávaraflans
nemi á þessum tveimur árum
1000 millj. kr.
Og svo er okkur sagt að
kaup verkamanna geti ekki
hækkað!!
Á árinu 1961 var gengið lækk-
að um rösk 13% til þess eins að
gera kauphækkun verkamanna
að engu. Og höfðu þó verkamenn
beðið frá 1959 með kauphækkun
til að vega upp á móti kaup-
lækkuninni er bá var gerð.
Kauphækkuninni er náðist s.l.
vor hefur einnig verið drekkt
með verðhækkunum.
En þrátt fyrir framansagða
verðmætisaukningu sjávaraflans
skal verkafólkið í frystihúsunum,
fólkið sem skapar þessi verð-
mæti, vinna á lægsta kaupi. —
Slík er framkvæmdin á talinu
um að verkafólk eigi að fá kaup
efíir framleiðslunni.
Þá vék Eðvarð að B-listanum
og aðstandendum hans, og mál-
flutningi þeirra, en þeir hrópa
nú mjög um hve kjör Dagsbrún-
armanna séu léleg. En hverjir
eiga sök á því?
Frá 1958 hefur kaup Dagsbrún-
armanna ekki hækkað nema um
4%. Á sama tíma hcfur vfsitala
verðlags hækkað um 41%. Er
betta sök Dagsbrúnar? Nei.
það eru húsbændur B-lisiamann-
anna sem þessari þróun valda.
Þá vék hann að lygaþvættingi
B-listablaðsins um að Dags-
brúnarstjómin hefð!i haft stórfé
-ða um hálfa millj. kr. af sjúkra-
sjóði Dagsbrúnar með því að
svíkjast um álagningu og inn-
heimtu fjárins.
Hver er sannleikurinn?
Það er búið að leggja á gjald-
ið fyrir árið 1961. Það nam ekki
hálfri millj. heldur um heilli
millj. og þar af er búið að inn-
heimta 800 þús. eða 300 þús.
kr. meira cn B-listamenn töldu
okkur hafa haft af Dagsbrún!
sagði Eðvarð.
Slíkar lygar sýna betur en
flest annað málefnafátækt B-
listamanna.
Máli sínu lauk Eðvarð á þessa
leið:
Dagsbrúnarmenn! Treystum
um helgina fylkingar okkar
til nýrra sóknar i kjaramál-
unum. Afléttum vinnuþræl-
dómnum. Heimtum réttari
hlutdeild verkamanna í þjóð-
artekjunum.
Látum B-Iistamennina fá
makleg málagjöld. Kjósum A-
listann!
Björn Jónsson frá Mannskaða.
hóli, formannsefnj B-listans, tók
næstur fil máls. Kvaðst hann
fyrst vjlja þakka stjóm Dags-
brúnar fyrir þann árangur. sem
náðst hefði í kjarabaráttunni, en
þó væri þetta líklega mest rík-
isstjórninni að þakka. þv; að hún
hefði sagt. að það gæti verið,
að kaup verkamanna mætfi
hækkaH Þá eyddj Björn al’mjklu
máli í það að saka önnur verka-
lýðsfélög. einkum þó iðnaðar-
mannafélögin um of miklar kaup-
hækkanir á síðasta ári, og hefði
það orðið orsök alrar dýrtíðar-
innar. sem launþegar hafa orð-
í dag byrjar veitingahúsið
Nausit sitt árlega Þorrablót.
Verður gestum boriinn þorra-
maturinn í trogum siem fyrr,
en á trogunum verða 15 teg-
undir hnossgætis, súrsað, reykt
og kæst. M.a. má nefna hinn
sígilda skyrhákarl, hrútspunga,
svið, sviðasultu. súrhval. sels-
hreyfa, slátur og lifrarpylsu.
Naust mun hafa orðið einna
fyrst til þess af íslenzkum veit-
íngahúsum, að hafa þorramat
á borðum fyrir gesti sína. Ný-
breytni þessi mælist sva vel
fyrir að nú munu öll þau veit-
ingahús, sem sielja mat og vín,
hafa tekið hann upp.
Na.ust hefur nú tekiið að sér
að sjá Þorrablóturum í Banda-
ríkjunum og Þýzkalandi fyrir
þorramat, en eftirspurn efUr
honum er þegar orðin svo mik-
il að veitingahúsið getur ekki
annað henni.
í fyrstu efndi veitingahúsið
til verðlaunaáts. þar sem oinn
maður fékk 2 klst. til að ryðja
eitt stórt trog. Verðlaunin voru
fríar veitingar og brennivíns-
flaska að auki. Þessu varð að
hætta vegna naggs í slúður-
dálkum sumra blaða. En sem
sagt: Þorrinn er byrjaður í
Nausto.
ið að þoia. — Hjtt skjpfi svo
miklu máli, að nú væri íslenzka
krónan skráð þannig, að þeir
sem færu til útlanda þyrftu ekki
að skammast sín fyrir hana,
eins og verið hefði áður! — Að
ýmsu fleiru vék Björn á ekki
ósvipaðan hátt, og lauk hann
máli sínu á þvi að biðja menn
um að ger.a hlut B-listans nú
ekki verri í þessum kosningum,
en hann hefði verið síðast!
Að loknum framsöguræðum
þeirra Eðvarðs og Björns hófust
almennar umræður og höfðu eft-
irtaldir menn tekið til máls
síðast er blaðið frétti: Steindór
Jónsson, Jóhann Sigurðsson
(verkfallsbrjótur), Guðmundur
J. Guðmundsson, Ingólfur Stef-
ánsson, Halldór Brjem og Björn
Sigurbjörnsson. Nánar verður
sagt frá fundinum og umræðum
á honum í blaðinu á morgun.
son
Pioiiemi
LAUGAVEGI 18E?. SÍMI 19113
TIL SÖLU M.A.:
2- herb.
ný íbúð við Austurbrún i
skiptum fyrir 3—4 herb.
íbúð,
Einbýlishús
i Smáíbúðahverfi,
5 herb.
ný íbúð við Laugarásveg
5 herb.
góð íbúð í Hlíðunum.
3 herb.
íbúð á I. hæð í Kópavogi.
Lífil útborgun.
2, 4 og 5 herb.
íbúðir tilbúnar undir tré-
verk á árinu.
J árnsmíða verkstæði
200 ferm í fullum rekstri
með öllum vélum óg áhöld-
um á mjög góðutn stað.
Verkefnj geta fyl-gt.
Iðnaðarhúsnæði
ca. 220 ferm. á einum bezta
stað borgarinnar og margt
fleira.
HÖFUM KAUP-
ENDUR AÐ.
2—3 herb.
íbúðum, mikil útborgun
5—6 herb.
íbúð eða raðhúsi. mjög
mikil útborgun.
Einnig kaupendur að:
Húsnæði
fyrir vélaverkstæði-
Húsnæði
fyrir rakarastofu á góðum
stað
Verzlunar- og iðnað-
arhúsnæði
við Laugaveg eða í mið-
borginni. o.m.fl.
Hafið samband við
okkur ef þið þurfið
að selja eða kaupa
fasteignir.
* Skattaframtöí
* Innheimtur
* Lögfræðistöri
* Fasteignasala
Hermann G. Jónsson hdl.
lögf ræði s k ri f stofa.
íkjólbraut l Kópavogi,
Sími 1003 i <1. 2—7.
Heima 51245.