Þjóðviljinn - 24.03.1963, Side 1
Sunnudagur 24. marz 1963 — 28. árgangur — 70. tölublað.
ÆFR
Æskulýðsfyltóngin í Reykjavík
efnir til kvöldvöku í Tjarnargötu
20 í kvöld og hefst hún kl. 20.
Ölafur Hannibalsson flytur frá-
söguþátt af Bandaríkjadvöl, sýnd
verður tékknesk brúðukvikmynd,
kaffidrykkja, almennur söngur.
ÆFR.
Kaupmenn fjölluðu um
tollskrána vikum saman
„Öfl utan AIþingis“ virðast hafa tekið af-
greiðslu tollskrárinnar í sínar hendur með
fullu samþykki ríkisstjórnarinnar. — Kaup-
menn hafa fjallað um málið vikum saman og
hagað innkaupum sínum í samræmi við það.
— Síðan á að keyra málið í gegnum Alþingi
á nokkrum dögum. — Vinnubrögð ríkisstjórn-
arinnar eru reginhneyksli
Eins og kunnugt er boðaði rík-
isstjórnin það í haust er þing
kom saman, að eitt stærsta mál
þingsins yrði endurskoðun toli-
skrárinnar. Vitað er að nú, ið
þessari endurskoðun er lokið fyr-
ir mörgum vikum, en samt sem
áður hefur Alþingi ekki ennþá
fengið neitt að vita um fyrir-
hu''r>’'ar breytingar á tollskránni.
Á hinn bóginn hafa samtök
kaupmanna og heildsala haft
hina nýju tollskrá undir höndum
síðustu mánuði. Hefur þar verið
togaít á um ýmis atriði hennar
og iafnframt hafa kaupmenn
fært sér dyggilega í nyt. þann
trúnað. sem ríkisstjórnin hefur
sýnt beim með því. að láta þá
fjalla um tollskrána á þennan
hátt á undan Albingi. enda vafa-
laust til þess ætlazt. Hafa kaup-
menn lagt mikið kapp á það und-
anfarið að losa sig vi'ð vðfuteg-
undir, sem beir hafa bannig kom-
izt á snoðir um að lækka eigi í
tolli og jafnframt hafa þeir hag-
að öllum innkaupum sínum í
samræmi við nýju tollskrána.
Bíða kaupmenn þess nú í ófváeni
að ríkisstjórnin keyri tollskrána
sem þeir hafa haft undir hönd-
um vikum saman, í gegnum Al-
þingi á nokkrum dögum, svo að
þeir geti rutt hinum nýju vörum
út í búðir sínar.
Það er ekki úr vegi að minna
á hina miklu hneykslun íhalds-
ins, þegar vinstri stjórnin hafði
samráð við verkalýðssamtökin
um lausn mikilvægra þátta efna-
hagsmálanna á sínum síma. Dag
eftir dag tönnlaðist Mogginn á
því, að „öfl utan Alþingis" réðu
orðið málum þingsins og Bjami
Ben. hélt ekki svo ræðu, að hann
verði ekki löngum tíma í að út-
mála slíka ósvinnu!
Af meðferð tollskrárinnar verð-
ur hins vegar ljóst, hvaða „öfl
Nýiasti leikur barn-
anna er teygjutvisf!
h|ú
l iv
Pr r
Ölafsvík, 22/3. — Hér ríkir
sama afla æ’djn hiá Ólafsvíkur-
bát.um og bárust á land i gær
260 tonn af netaþorski, og tók
Kirkiusandut h.f. á móti 150
tonnum og Hraðfrvstihús Ólafs-
víkur h-f- á móti 110 tonnum.
Meða’.afli á bát er 32 tonn og
er mikið að gera í frvstihúsun-
unum Aflahæái báturinn í gær
var .lón Jónsson með 50 tonn í
róðri.
!
I
utan alþingis“ eiga að ráða þar
málum að dómi viðreisnarherr-
anna. Kaupmannasamtökin telja
Sig hafa þurft margar vikur til
þess að togast á um tollskrána,
en hins vegar er sýnilegt, að
ekki á að ætla þingmönnum
nema nokkra daga, — í hæsta
lagi tvær vikur til þess að
kynna sér þetta mái. — Slík
málsmeðferð er vitanlega regin-
hneyksli og sízt til þess fallin að
auka veg Alþingis í augum al-
mennings, þegar það er gert að
auðsveipu vcrkfæri í höndum
kaupahéðna og braskara.
I
Viðreisn að verki:
alverð á matvælum
hefurh
1. marz s.l. var vísitala
fynr matvörur komin
upp í 150 stig. Verðlag á
brvnustu lífsnauðsynj-
um — sjálfum matvæl-
unum — hafa semsé
hækkað ' 0% að
meðalt^íi ^engið
ar íækivúj i aiabyrjun
u m 50%
1960. Þetta eru margfalt
neiri verðhækkanir en
’æmi eru um í nokkru
Iru Evrópulandi áþessu
’mabili, og til þess að
inna hliðstæða óðaverð-
ólgu mun helzt þurfa
ið leita til einhverra
t bandarískra hálfný-
lendna í Suður-Ameríku.
Vísitalan fyrir matvörur hækk-
aði um tvö stig 1 febrúarmánuði
1 þeim mánuði hækkaði vísitalan
fyrir „fatnað og álnavöru" einnig
um tvö stig og er nú komin
upp í 138 stig.
Vísitalan fyrir „hita, rafmagn
o.fl.“ hélzt óbreytt í 137 stigum.
Einnig var vísitalan fyrir „ýmsa
vöru og þjónustu” óbroytt, 153
stig, og hefur sá liður hækkað
Framhald á 2. síðu.
Það er vor í lofti og krakk-
arnir byrjuðu í boltaleik og
parís. En það er líka kominn
nýr leikur fram á sjónarsvið-
ið: teygjutvist eða júmbó eins
og hann er einnig kallaður,
og þessa mynd tók ijósm.
Þjóðv. Ari Kárason á Fram-
nesveginum af stelpum i
teygjutvisti.
titskýringu á leiknum feng-
um við á þessa leið: fyrst < r
h’oppað þrisvar inn í, svo er
annað bandið tekið upp með
hægri og hoppað þrisvar yfir
hitt, svo er hoppað afturábak
með bandið, svo er hoppað
upp á fremra, svo er stigið
á bæði og hoppað .... Ja, það
láir enginn þeim sem ekki
skilur! Allavega er hver um-
ferð enduð á að fara í kross
eins og sést á myndinm
Smám saman er bandið hækk-
að og verður þá æ erfiðara að
hoppa yfir í því.
Annars sagði 11 ára sendili
hér á blaðinu, að þetta væri
nú bara stelpuleikur og mesta
vitleysa og langmest gaman að
að klippa skyndilega á bandið
hjá þeim svo það smylli í fæt-
uma! — Ljósm. Þjóðv. A.K.
Askorun Sósíalistaflokksins
til íslenzkrar alþýðu um:
Myndun allsherjar
styrktarmanna-
kerfís Þjóðviljans
um iand allt
Rúmlega fimm mánuðir eru liðnir síðan I>]óð-
viljinn var stækkaður. Stækkun þessi vakti al-
menna ánægju meðal lesenda Þjóðviljans. Hún var
eingöngu framkvæmanleg vegna sameiginlegs átaks
mikils fjölda stuðningsmanna blaðsins, sem Sósíai-
istaflokkurinn þakkar enn á ný.
En stækkun Þjóðviljans byggðist þó eigi aðeins
á miklum stofnkostnaði vegna vélakaupa, breyt-
inga á húsnæði o.fl. Hún hafði einnig óhjákvæmi-
lega í för með sér mjög aukinn reksturskostnað.
Þjóðviljinn er því nú rekinn með miklum halla,
þrátt fyrir margvíslegar tilraunir til þess að lækka
reksturskostnað hans og auka útbreiðslu bans.
Það er ófrávíkjanlegt stefnumál Sósíalistaflokks-
ins að ná því marki, að Þjóðviljinn beri sig fjár-
hagslega. í því skyni hefur undanfarið m.a. verið
lögð mikil áherzla á aukna útbreiðslu hans og þeg-
ar náðst árangur. Þessu starfi þarf að halda áfram
af fullum krafti.
Eigi að síður er fyrirsjáanlegt, að rekstuxsh'alE
þessa árs verður mjög hár. Þar við bætast niðtrr-
greiðslur á skuldum vegna stækkunarinnar svo og
niðurgreiðslur á eldri rekstursskuldum.
Þessi vandamál eru svo alvarlegs eðlis og svo
brýn úrlausnar, að Sósíalistaflokkurinn hefur tal-
ið óumflýjanlegt að snúa sér til alþýðu manna með
áskorun um að mynda dlmennt og öflugt styrktar-
mannakerfi Þjóðviljans um land allt. Til þess að
tryggja öruggan rekstur Þjóðviljans er nauðsynlegt
að þetta styrktarmannakerfi sjái Þjóðviljanum fyr-
ir þremur milljónum króna á þessu ári.
Sósíalistaflokknum er ljóst, að þetta er stórt á-
tak. En hann hefur kosið að skýra alþýðu manna
hispurslaust frá þessu vandamáli.
Framkvæmd styrktarmannakerfis þessa er þegar
hafin. Forystumenn Sósíalistaflokksins og margir
aðrir hafa riðið á vaðið, þannig að nú þegar hefur
meir en hálf milljón króna safnast í greiðsluloforð-
um og verulegur hluti þessarar upphæðar þegar
verið greiddur. Þessi ágæta byrjun hefur létt mjög
undir daglegum rekstri Þjóðviljans. Hún gefur til
kynna, að með almennum samtökum megi ná þvi
marki, er að ofan greinir.
í þessu styrktarmannakerfi eru allar upphæðir
þegnar með þakklæti. Þeir, sem þegar hafa til-
kynnt þátttöku sína, hafa ákveðið að leggja fram
allt frá 1200 krónum upp í 12.000 krónur (og nokkr-
ir þar yfir) á árinu.
Menn geta valið um greiðsluhætti og verður við-
urkenningarskírteini afhent við hverja greiðslu.
Bækistöð styrktarmannakerfisins er að Þórsgötu
1, sími 17514. Starfsmaður verður Kjartan Helga-
son. Að öðru leyti geta menn snúið sér til sósíal-
istafélaganna um land allt, skrifstofu Sósíalista-
flokksins, Tjarnargötu 20, eða til Þjóðviljans, Skóla-
vörðustíg 19, Reykjavík.
Þjóðviljinn hefur ætíð verið borinn uppi af stór-
hug og skilningi íslenzkrar alþýðu. Hann hefur líka
verið henni ómetanleg stoð í lífsbaráttu hennar fyr-
ir betri kjörum og betri heimi.
Einnig nú treystir Sósíalistaflokkurinn á stórhug
og skilning alþýðunnar til skjótra og öflugra við-
bragða.
Sósíalistaflokkurinn hvetur eindregið alla flokks-
menn, alla unga sósíalista og alla stuðningsmenn
Þjóðviljans hvar sem er á landinu til að taka hönd-
um saman um að byggja upp öflugt, almennt og
fljótvirkt styrktarmannakerfi fyrir Þjóðviljann —
og vinna kappsamlega að settu marki.
Miðstjórn Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins.
\
I
i
i