Þjóðviljinn - 24.03.1963, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 24.03.1963, Blaðsíða 7
 Sunnudagur 24. marz 1963 MÖDVIUINN m&mm 4 V <, „Starfa með unglingum svo lengi sem þrek endist 91 Sisurðiir Greipsson með sonarson sinn, Sigurð Greipsson yngrL Sigurður Greipsson hefur hoft skóla ð Haukadal í 35 ór „Já, ég hef gaman af að umgangast þessa unglinga. Mér finnst ég halda betur við starfsþrá, starfsþreki og lífsgleði minni í félagsskap þeirra. Ég ætla mér að halda þessum félagsskap áfram við unglingana meðan mér endist þrek. — Ég hef viljað innræta þeim trú og ást á landi og þjóð, traust á þjóðinni, virðingu fyrir þjóðlegum vérðmætum, og vekja hjá þeim sjálfstraust. Það hefur verið skóli í Haukadal í Biskupstungum í saisfleytt í 35 ár. Þessi skóli og rekstur hans er fyrst og fremst verk eins manns: Sig- urðar Greipssonar. Mun slíkt hol með eindæmum. Sigurður er nú 65 ára — en það er síður en svo bilbug á honum að finna. Hann segir: Ég ætla að halda þessum félagsskap við unglingana áfram meðan mcr endist þrek Haukadalur er talinn elzta skólasetur landsins, en um hinn forna sköla verður ekki fjallað hér. Haukadalsskólinn nú er allt annarrar tegundar, i honum er engin latína né önnur klerkleg fræði. Nú er skólinn líka við Geysi, um 2 km frá hinum törna Haukada). t Haukadal stendur kirkjan ein eftir — og Bergþórsleiði. Veggjábrot genginna kynslóða i Haukadal eru nú þakin græn- unf feldi. Forfeður Sígurðar Greipsson- ar bíúggu i Haukadal mann fram af( manni. Um afa hans. Sigurð Pálsson, segir Hannes Þofs.téinsson (sem alinn var iipp • á' næsta bæ við Hauka- dal) svo í ævisögu sinni: ..Bjó þar í þann tíð gamall og fróð- ur þulur, Sigurður Pálsson . . . var kðrl sá fornmannlegur í ásýnd og húttum, kunni frá mörgu að segja. stálminnug- ur og ættfróður. Er mér ævin- lega hugðnæmt að minnast þessa margfróða ramíslenzka og einkennilega rnanns". Vafalaust hefur Sigurður Greipsson margt erft frá for- feðrum sínum, en enginn mun teljá * hann einkennilegan i háttúm. Það er komið kvöld þegár’.hann hefur loks tíma til að ræða við okkur i skóla sínúrh að Haukadal. — Ertu ekki orðinn þreytt- ur. Sigurður, hefur þetta skóla- hald ekki stundum verið nokk- uð erfitt? — Jú, þetta hefur oft ver- ið hafður róður. Verst hvað maður er orðinn gamall. Það er mikill munur eða þegar maður var ungur og gat lagt saman nótt og dag — og fann ekki fyrir því! Nú dugi ég ekki nema stutta stund til erfiðis- vinnu. — Þú ert fæddur hér í Haukadal? — Já, fæddúr og uppalinn hér í Haukadal, hef vaxið úr mo-ldinni hér. Forfeður mínir bjuggu hér, langafi minn bjó hér. — Hvað var- það sem vakti íþróttaáhuga þinn hér efst í Biskupstungum? — Það var mikil hreyfing og íþróttaáhugi upp úraldamót- unum. Ungmennafélögin voru að rísa á legg. Glímt var á Þingvöllum við konungskomuna 1907. Þá var farið að æfa glímu hér um slóðir og félags- sameiginlega íþróttamótið að Þjórsártúni var undirbúið og ákveðið á fulltrúafundi anna 1909. — Hvenær — Ég fór sameiginlegúm ungmennafélag- fórstu á skóla? í Flensborg 1916. — En svo fórstu utan í glímuferðir? — Já, x glímuferð til Noregs 1925 og Danmerkur 1926. Þá komst ég í kynni við Nihls Buch og var á Ollcrup 1927 — og einsetti mér þá að byggja hér heima eitthvað í þessa átt- ina. — Og hvernig gekk þér svo að byggja íþróttaskóla á Is- landi? — Þegar heim kom leitaði ég til „fjármálamanna" um lán, en þegar þeir heyrðu að ég ætlaði að byggja íþróttaskóla hristu þeir bara höfuðið. En afsvör breyttu engu, þetta knúði svo sterkt á inig, mér fannst ég verða að gera þetta. — Og einhvemveginn tókst það. — Ja. Ég hugsaði mér að vera í Hveragerði. Gunnlaugur Einarsson átti stóran sumar- bústað þar og ætlaði að leigja mér hann yfir veturinn en af því gat ekki orðið. Svo komst ég á þá skoðun að ég gæti alveg eins haft skóla heima i Haukadal. Mér datt þá í hug að fara til Jón- hannesar Reykdals í Hafnar- firði, en honum varð ég sam- skipa til Noregs 1919, ég var að fara til Voss en hann að kaupa timbur. Ég fer svo til hans og ber upp ei’indið. Hann svaraði: Það er svo, Sigurður rninn, að ég var emu sinni ungur og hugsaði mikið um framkvæmdir, og þá fór ég til bankastjóra og lagði fyrir hann það væri kraparigning .wAvW.w.-Aw-;:vm^«^®ííjs^ rokið ætlaði að feykja þcim af laugarbarmlnum vlrtust strákarnir blátt áfram njóta þess. lífið var fjörugt. Ungmenna- félagið var stofnað um það bil. Þá var mikil vakningar- og iþi-óttaalda. — Hvenær var ungmenna- félagið hér stofnað? — Það var stofnað ó sum- ardaginn fyrsta 1908. Maður sá þessa ungu menn vera að glírna, og ég var þá íarinn að sprikla sjálfur, þótt ég gæti ekki mikið. Þetta var ákaflega merki- Ieg hrifningar- og hugsjóna- alda sem þá gckk yfir. Það voru ákaflega skemmtilegir tímar þá. — Var það hin foma frægð sem hreif ykkur? — Að sjálfsögðu. En þá var líka efst á baugi stjórnfrelsi landsins og margskonar fram- farir, sem æskan vildi vera virkur þátttakandi í. Það þótti ákaflega merkileg heitstrenging sem þeir gerðu á Akureyri 1907: Lárus Rist að synda yfir Eyjafjörð og Jó- hannes Jósefsson að leggja alla képpinauta sína í glímu. Og þegar strákar hittust var sjálf- sagt að slá í eina bröndótta! — Hvenær stofnuðuð þið ungmennasambandið? — Ungmennasambandið hér í Ámesssýslu, Skarphéðinn, var stofnað 9. okt. 1910, en fyrsta Þá var mikið glímt í Flens- borg, Bjarni Bjax-nason kenndi þá glímu tvisvar í viku og þá fórum við allaf í sjóinn eftir glímumar. . . já, fram af bakk- anum við Flensborgarskólann, . . . já, hvemig sem viðraði. Við vorum þeir einu sem ekki fengum kvef. — Hvenær kepptirðu fyrst í glímu? — Fvrsta aðalkeppnin sem ég gh'mdi í var á Þjórsármóti 1916, Þá var ég 18 ára. Ég fékk fegurðarglímuverðlaunin á því móti. — Hve oft varstu glímukóng- ur íslands? — Það var ég árin 1922—1926 eða í 5 ár. — Varstu ekki einhverntím- ann að læra að verða bóndi? — Jú, ég var á Hólum 1917, en svo var ég á flökti hingað og þangað til vors 1919. Vet- urinn eftir var ég á Voss í Noregi. Kynni mín af Lars Eskeland, starfseminni þar, og hinni sterku þjóðrækni þeirra manna hafði mikil áhrif á mig. Ég var um ár í Noregi og síðan 2 mánuði í Danmöi'ku. Eftir heimkomuna ferðaðist ég um og hélt námskeið á vegum ungmennafélaganna. hugmyndir mínar — og fékk það svar að mér yrði hjálp- að. Nú vil ég minnast þessa — og hjálpa þér. Reykdal bauöst svo til þess að Iána mcr timbur, rissa upp skálateikningu, telgja grindina, flytja efnið á vcgarenda — og lána mér svo mann til að koma skálanum upp. — Vegur var þá ekki kominn lengra en að Torfastöðum, þaðan varð að flytja á hestum, en skálinn komst upp um sumarid — og skólinn byrjaði haustið 1927. Skálinn var 15 m langur og 9 m breiður. 1 honum var leik- fimisalur, eldhús og 6 herbergi með kojum. Sund var ákveðið sem námsgrein — en sundlaug var engin. Hlóð ég því sund- laugarveggi úr torfi og var hún 25x8 m. Hún dugði til að byrja með, en síðar byggði ég aðra laug, stóra og steinsteypta. Árið 1945 reisti ég svo nýtt hús 31x8 m. Þegar maður lítur til baka skilur maður ekki í því hvernig þetta komst áfram, en það var eitthvað í manni sem rak mann áfram; þetta skyldi á- fram. — Og þú fékkststraxaðsókn? — Fyrsta veturinn komu 12 hraustir piltar og harðgerðir. Fyrstu órin komu yfirleitt þroskaðir piltar, um tvítugt. — Og námsgreinamar? — Auk íþróttanna, leikfimi og sunds voru þær í upphafi heilsufræði, reikningur, ís- lenzka, íþróttasaga og danska og síðar einnig þjóðfélags- fræði og bókmenntasaga. Kenn- arar hafa JTnsir verið með mér, nú er það sr. Guðmundur Ól. Ólason. — Hve margir eru nemend- umir orðnir á þessum 36 ár- um? — Flestir nemendur á vetri hafa oröið um 30, en samtals eru þeir orðnir um 800. Nú er ég farinn að fá syni þeirra sem voru hjá mér fyrst! Á árssamkomu hjá mér komu til mín- feðgar úr Borgarfirði er báðir höfðu verið hér á skól- anum. — Aðaláherzluna heíur þú lagt á íþróttir og líkamsþroska? — Ég held ég hafi ekki síð- ur lagt áherzlu á annað en skrokkinn. Markmiðið hefur verið að vek ja drcngina til hugsunar og al- varlegs starfs, kenna þeim að meta þjóð sína, unna hcnni og virða og reynast nýtir þegnar hennar. Ég hef viljað leggja á- herzlu á að þessir piltar yrðu nýtir æskulýðsfélögum heim- kynna sinna og legðu þar fram lið sitt. Margir aí þeim hafa líka reynzt bað. — Margir af beztu glimu- mönnunum hafa lært hjá þér? — Já, margir af þeim hafa fengið æfingu hjá mér, eins og Guðmundur Ágústsson, Kjartan Bergmann, Kristmund- ur Sigurðsson, Skúli Þorleifs- son, Guðmundur Guðmunds- son og Rúnar Guðmundsson. (Hér eru aðeins nokkrir nefnd- ir af löngum lista). — Einu sinn var það brand- ari í Reykjavík að það væri nóg að segjast hafa lært glímu hjá þér til þess að vera ráð- inn í lögregluna í Reykjavík. — Já, þeir eru vist nokkuð margir lögregluþjónamir sem hafa verið í skóla hjá mér. — Hvemig stráka færðu yf- irleitt? — Ég fæ yngri nemendur nú en áður, og ekki eins þrosk- aða. En ég get fengið þá til starfa þótt þeir séu daufir í Sigurður Greápsson og Þorgeir Jónsson í Varmadal sýna ís- lenzka glímu í Danmörku árið 1926. dálkinn til að byrja með. Þú heyrir t.d. núna! (leikfimisal- urinn dunaði af stökkum og sprikli þótt komið væri að háttatíma). Þegar fer að líða á þjálfunartímabilið fara þeir að hafa gaman af æfingunum og þola mikið — og njóta þess. — Færðu ekki stundum erf- iða nemendur? — Jú, stundum hef ég feng- ið dálítid erfiða nemendur. Margir halda að allt sé leikur og því eigi engar reglur né agi að gilda. — Ertu ekki farinn að þreyt- ast? — Verst að vera orðinn svona gamall. Annars hefur hlutur konu minnar Sigrúnar Bjamadóttur, verið sízt minni í þessu starfi Hennar hlutverk hefur verið bæði stórt og erf- itt — Þið voruð hugsjónamenn, þú og aðrir á svipuðum aldri. Ég er ekki viss um að öllum sé ljóst nú orðið hvað átt er við með hugsjón — og enn síður þeirri hugsjón er hreif ykkur „aldamótamennina". 1 hverju var sú hugsjón fólgin? Hvað vakti fyrir ykkur? Framhald á 10. síðu. Sigurður Greipsson (til vinstri) með piltunum sem hann kenndi í veíur. Til he^gri cr Þórir, ur Sigurðar, en hann kcnnir elnnig íþróttir við skólar.n. i x i i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.