Þjóðviljinn - 24.03.1963, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 24.03.1963, Blaðsíða 5
Sunnuda^ur 24. marz 1963 ÞIÓÐVILIINN -------- Akureyiingar haía koniiö upp glæsilegu skiðahótcli í Hlíðarfjalli. Myndin sýnir hluta af einu hinna vistlegu gistiherbergja. skíðafargjöld ugfélags Islands Flugfélag íslands hefur nú ákveðið að stuðla að því að Sunnlendingar geti bætt sér upp snjó- leysið, sem löngum hefur háð skíðaiðkunum og hollu útilífi hér syðra. Flug'„lagið tekur upp sérstök „skíðafargjöld“ fyrir þá sem vilja fara til skíðaiðkana á Akureyri og ísafirði, þar sem aldrei þrýtur snjó á vetrum, og einnig til Egils- staða. Skíðafargjöldin eru 25% lægri en venju- leg fargjöld. leiðir ásamt gistingu og fæði í eina viku. Ennfremur ferðin frá Akureyrarf'ugvelli upp að skál- anum. Þessar ferðir verða aðeins seldar í söluskrifstofu Flugfélags Islands í Lækjargötu 2, og kosta kr. 2.500.00 sé dvalið í gistiher- bergjum, kr. 2.300.00 dvelji við- komandi í Ijtlu fjögurra manna svefnpokaherbergi og kr. 2.100.00 sé dvaljð í svefnpokarýminu. 1 undirbúningi er að koma upp skíðalyftu í grennd við skál- ann, og leiga á skíðum verður starfrækt þar síðar. Skíðafargjöld Skíðafargjöldin til Isafjarðar og Akureyrar gilda frá 1. apríl til 1. júní. Til Egilsstaða gilda þau frá 1.—20. apríl, og eru mið- uð við Landsmót skíðamanna, sem fyrirhugað er að halda í Neskaúpstað á þessu tímabili. Skíðáfargjöldin eru 25% lægri en venjuleg fargjöld milli fram- angreindra staða, miðað við ein- miðagjald. Nýja skíðahótelið í Hlíðarfjalli. <*>• Reykjavík — Akureyri'— Rjeykjæ-- vík kosta fyrir þá sem ekkl kaupa um leið gistingu í Skíða- skálanum, kr. 828.00. Á skíðum í Seljalandsdal: ísfirðingar eiga þvi láni að fagna, að eiga éitt bezta .skíða- land hér á landi aðeins stein- snar frá bænum, í Seljalandsdal. Skíðafargjald Flugfélags íslands Reykjavík — ísafjörður — Reykjavík kostar kr. 825.00. Þar sem skíðalandið er svo nálægt bænum, mun margt skíðafólk gista á heimilum á ísa- firði, en þaðan er aðeins 10 mín. 1 akstur að skálanum í Seljalands- dal. I Um sölu „skíðafargjaldanna“ gilda eftirfarandi sérr'--' '-: Gildistími farseðils er 7 dagar og miðast við brottför frá Reykjavík. (Undantekningar eru skíðafarseðlar Reykjavík — Égilsstaðir, sem gilda allt tíma- bilið 1.—20 apríl). SkLðafargjöld- in eru aðeins til sölu í Reykja- vík. Skíðafargjöldin má aðeins nota í eftirtöldum fkugferðum: Til Isafjarðar FI-40 á mánu- dögum, miðvikudögum og föstu- dögum. Til Akureyrar FI-20 á mánu- dögum og föstudögum og FI-22 á miðvikudögum. Til Egilsstaða gilda skiðafargjöldin í öllum ferðum á tímabilinu frá L apríl til 20. apríl. Afsláttur sá er skíðafargjaldið veitir, er háður því skilyrði. að keyptur sé tvi- miði og hann notaður báðar leið- ir. 1 Seljalandsdal er mjög góður skíðaskáli, sem að undanförnu hefur tekið gesti til dvalar og skíðaiðkana. Skálinn, sem er hinn vistlegasti, vel hitaður og rúmgóður, er í 300 m. hæð yfir sjávarmál og fjóra km. frá ísa- firði. Þama eru rúm fyrir 28 dvalargesti í herbergjum og þar að auki svefnpokarými fyrir all- margt fólk. Dýnur eru í rúmum og þurfa gestir að hafa með sér svefnpoka eða sængur. 1 skálan- um er matsalur, böð, rúmgóð snyrtiherbergi og skiðageymsla. Haukur Sigurðsson skíðakennari annast skíðakennslu. Matur og veitingar eru fram- reiddar í skálanum, fyrir dvalar- gesti og aðra. Dvöl í skiðaskál- anum í Seljalandsdal kostar kr. 160,00 á sólarhring. Körfuknattleiksmót Islands Armann og iR keppa í dag Á skíðum í Hlíðarfjalli: Svo sem kunnugt er, hafa Ak- ureyringar unnið að byggingu skíðaskála í Hlíðarfj. að undan- förnu. Byggingu ,og innréttingu skálans er að mestu lokið og er hann allur hinn glæsilegasti. 1 kjallara eru 5 gistiherbergi, gufuböð og steypuböð rúmgóð snyrtiherbergi fyrir skíðafólkið og geymslur. Á miðhæð eru tveir véitingasalir, sem rúma um 100 manns. lesstofa, eldhús, skrif- stofa og snyrting. Á millhæð er skíðageymsla. Á í-ishæð eru 6 gistjherbergj 2—3 m. Þar eru einnig fjögur lítil herbergi með fjórum rúmum hvert og svefn- pokarými fyrir 40—50 manns. Þá er stór „almenningur“. Alls munu um 100 manns geta gist í skálanum. sem er hitaður með rafmagni frá Laxárvirkjun. Skíðaskálinn i Hlíðarfjalli er í 500 metra hæð yfir sjávarmáli. SkíðalanÖ í fjallinu er með ein- dæmum gott og. mjög fjölbreytt, þannig að þar munu allir finna brekkur við sitt hæfi. Iþrótta- ráð Akureyrar, sem er skipað af bæjarstjórn, rekur hótelið. en framkvæmdastjóri hótelsins verð- ur hinn kunni skíðamaður Magn- ús Guðmundsson frá Akureyri. I páskavikunni verður efnt til sérstakrar dagskrár i Skíðaskál- anum í Hlíðarfjalli. Skíðakennsla verður á daginn og farið vei-ður í lengri og skemmri gönguferðir á skíðum. Á hverju kvöldi verða kvöldvökur í skálanum með fjöl- breyttu skemmtiefni. I sambandi við skíðafargjöld Flugfélags Islands, verða seldar í einu lagi ferðir frá Reykja- vík ásamt viku dvöl í Skíða- skálanum í Hlíðarfjalli og er þá innifalið í verðjnu ferðir báðar Nú um helgina verður haldið áfram Meistaramóti íslands í handknattlcik. í gær voru háðir að Ilálogalandi tveir af leikjum mótsins. Þar mættust Ánnann og íþróttfél. stúdenta í meistarafl. karla og KR (a-Iið) og ÍR í II. flokki. Leikur KR og IR í 2. fl. er hreinn úrslitaleikur. Bæði liðin hafa unnið alla leiki sína á mótinu til þessa. Þess má geta, að í liðum þessum eru 11 af 12 unglingalandsliðsmönnum okkar í körfuknattleik. Siðari leikur kvöldsins var milli Ármenninga og Iþrótta- félags stúdenta í meistaraflokki ! karla, en ekki milli ÍR og Ár- manns, eins og áður hefur sést í blöðum. Ármann og IR í m. fl. I kvöld verður aftur leik- I ið að Hálogalandi á sama tíma. I Fyrst verður leikið í 1. flokki, I og mætast þar Ármann og Hér- aðssambandið Skarphéðinn. Þetta er síðasti leikurinn í þessum flokki. Ármann hefur unnið alla leiki sína til þessa, en Skarp- héðinn tapaði með litlum mun fyrir ÍR. Búast má við að Ár- nesingar veiti Ármenningum harða keppni. Síðari leikur kvöldsins er milli Ármanns og ÍR í meistaraflokki karla, og má búast við skemmti- legum leik, þar sem ÍR var eina liðið sem sigraði Armenn- inga í fyrri umferð mótsins. Körfuknattleiksmót skólanna hófst í fyrrad. og urðu úrslit sem hér segir: Kvennaflokkur : Hagaskóli — Kennaraskóli 36:6. 2. fl. karla: Menntask. Rvík — Lang- holtsskóli 53:16, Verknámsk. — Gagnfr. sk. Vonarstræti 14:10, Verzl.skóli — Hagaskóli 33:11, Vogaskóli — Gagnfr.sk. Austurb. 71:12. 1 gær voru þessir leikir: Kvennaflokkur: Kl. 13 Menntask. Rvík — Flensborgarskóli. 2. fl. karla: Kl. 15.55 Verknámsskóli — Vogaskóli, kl. 16.30 Verzlunarsk. — Laugarnesskóli. 1. fl. karla: Kl. 13.40 Menntask. Rvík (b) — Verzlunarsk., kl. 1425 Mennta- sk. Laugarvatni — Kennarask., kl. 15.10 Menntask. Rvík (a) — Iðnskólinn Rvík., kl. 17.05 Há- skólinn (A) — Samvinnuskól- inn, Bifröst. Þau tíðindi gerðust í fyrrad. að Gagnfræðaskóli Vesturbæjar varð að gefa leikinn við Laug- arnesskólann í 2. flokki, sökum þess að skólastjórinn neitaði keppniliði skólans um leyfi frá kennslu til að keppa fyrir hönd skólans. .........___ . Skíðamót Islands! t t á Sigluíirði Það mun nú afráðið að skíðalandsmótið í ár verði haldlð á Siglufirði en ekki í Neskaupstað. Ekki eru nema 3 vik- ur þar til mótið á að hefjast, og á Norðfirði er ekki nægi- Iegur snjór til aðmótið geti farið fram þar. Á Siglufirði hefur verið snjólétt í vetur, en þó nægi- legur snjór til skíðaiðkana, enda hafa Siglfirðingar haft skíðakeppni vikulega síðan um áramót. Nú stendur yfir Skíðamót Siglufjarðar, og verður göngukcppnin á morgun. Siglfirskir skíðamenn munu vera reijubúnir að taka að sér að undirbúa landsmótið og sjá um framkvæmd þess, enda þótt fyrirvari sé stuttur. Snjór er nægur víðast hvar í firðinum, og verður keppnin látin fara fram, þar sem aðstæður verða beztar. Skíðalandsmót var siðast haldið á Sigluf'rði árið 1960, i ~l»Tll SÍÐÁ g Á glímuæfingu hjá Ármanni Margir knálegir strákar. æfa glímu hjá Glímufélaginu Armannl, og ýmsir eru býsna brögðóttir þrátt fyrir ungan aldur. Mynd þessa tók ljósm. Þjóðviljans, Ari Kárason, á glímuæfingu hjá Ár- manni fyrir skömmu, og sýnir hún að strákarnir kunna einnig að beita hábrögðum með talsverðum tilþrifum. Stjórn glimudeild- ar Ármanns biöur eldri og yngri félaga sína að fjölmenna á glimuæfingu n.k. miðvikud. kl. 7—9 í íþróttahúsi Jóns Þorsteinss. Á æfingunni verður sérstaklega undírbúin þátttaka glímumanna i íþróttahátið Ármanns, sem haldin verður að Hálogalandi uns aðra helgl. ★ Sonny Liston, heimsmeist- ari í þungavigt. hefur nú enn beðið um frestun á keppninni við Floyd Patterson. Ákveðið hafði verið, að keppnin skyldi fara fram 10. apríl n.k. Lækn- isrannsókn hefur farið fram á hnémeiðslum Listons, og telja læknar óhjákvæmilegt að gera uppskurð á hné hans. þar sem laust brjósk mun vera í liðnum. Telja læknar að hann verði að gera hlé á æfingum á 6 mánuði. Hnefa- leikastjórinn í Miami Beach hefur nú ákveðið, að keppn- inni skuli frestað um óákveð- in tíma. ★ Talið er að hinn frægi sænski hlaupari Dan Waern komist bráðlega í náðina hjá sænska frjálsíþróttasamband- inu. 1 fyrra var hann úr- skurðaður atvinnumaður, og nýlega fékk hann 25.000 sænkra króna sekt fyrir að hafa leynt „tekjum af íþrótta- keppni“. Matts Carlgren, stjómarmaður frjálsiþrótta- sambandsins, sagði fyrir skömmu, að Waem yrði leyft að taka þátt í mótum innan- lands, en ekki í alþjóðlegum mótum eða landskeppni, enda hefur Alþjóða-frjálsíþrótta- sambandið lagt bann við þvi. Dan Waem hefur stöðugt haldið áfram æfingum, þrátt fyrir bannfæringuna. Sjálfur segist hann ekki vera ánægð- ur með að fá aðeins að keppa innanlands. Sig sárlangi þó til að fara aftur að keppa, og muni því vera með á mótum í Svíþjóð þegar hann fær leyfið. utan úr heimi

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.