Þjóðviljinn - 27.03.1963, Blaðsíða 8
g SÍÐA
ÞJÖÐVILIINN
Miðvilcudagur 27.
marz 1963
Nýjar bifreiðategundir
Nýlcga kom á markaðinn hjá Opel verksmiðjunni í Riisselheim í Vestur-Þýzkalandi ný gerð
af Opel Rekord 2ja dyra fólksbifreið. Bíll þessi, sem hefur notið geysimikilla vinsælda undan-
farin ár, er töluvert mikið breyttur í útliti. Hann er jafnlangur og áður eða 4.51 m en 6.4
em breiðari. Vélin hefur og stækkað úr 62 hestöflum í 67 hö. Hjólbarðar eru áfram 590x13. Há-
mark hraði er 138 km. og áætluð benzínnotkun 9—10 lítrar á 100 km. Fyrstu bílarnir af þessari
gerfi ;ru væntanlegir til landsins í aprílmánuði og eru þegar seldir.
Myndin er af SKODA OCTAVIA — bifreið þeirri, sem þátt tók í Monte Carlo kappakstrinum
fræga fyrir skömmu (bifreiðin er nr. 271) og varð fyrst í mark í flokknum 1000—1300 ccm.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem Octavia hefur unnið keppni þessa. Gjölberg frá Svíþjóð
ók bifreiðinni og var myndin tekin þegar honum var afhentur verðlaunabikarinn.
Er verri þjónusta hér á landi?
6000 í Neytendasam-
tukum á 10 ára áfmæli
Neytendasamtökin eru tíu ára
um þessar mxmdir og eru þetta
þriðju elztu samtökin í heim-
inum af þessari tegund, þó að
árafjöldinn sé ekki meiri.
Hreyfingu þessa vakti Sveinn
Ásgeirsson, hagfræðingur með
útvarpserindum haustið 1952
og var boðað til stofnfundar
namtakanna í marz 1953 af Jó-
hanni Sæmundssyni, prófessor,
Jónínu Guðmundsdóttur, hús-
frú og Sveini Ásgeirssyni, hag-
fræðingi.
Neytendasamtökin eru elztu
samtök sinnar tegundar á
Norðurlöndum og eru fyrstu
samtökin stofnuð í Bandaríkj-
unum 1936 og þau næstu í
Frakklandi 1952 og eru sam-
tökin á íslandi þau þriðju
í röðinni.
Þegar stofnað var til alþjóðsam-
taka neytendasamtaka í Haag
1960, þá var fulltrúa íslenzku
samtakanna sýndur sérstakur
heiðu • - skipað sæti við há-
borðið :rn reyndur og gamall
aðili 3 baráttunni.
Sérstaklega hefur komið í
ljós, að Neytendasamtökin hér
á landi hafa sýnt öðrum félög-
um meiri djörfung að gæta hag
neytenda og það mál, sem
hafa verið rekin á hinu réttar-
lega sviði og má þar nefna
Milvask þvottaefnið. Smart
Keystone peysumar og kart-
öflumálið.
Nú sem stendur er nýyfir-
staðið samkomulag við efna-
laugar og eiga þær tvo fulltrúa
í matsnefnd á móti Neytenda-
samtökunum með tvo fulltrúa
eða fjóra menn samtals í
nefndinni og er þar um að
ræða gagngerða endurskoðun á
þjónustu í fatapressun og
fleira. Tjón sem nemur kr.
1000,00 munu efnalaugar greiða
til helminga, ef ástæða þykir.
Tólf efnalaugar standa að
þessu samkomulagi hér í bæn-
um og er þetta það nýjasta að
frétta af samtökunum.
Aðalviðfangsefni samtakanna
er að gæta hagsmuna neytenda
gegn ýmsum vörutegundum og
hverskyns þjónustu og varð
viðgangur samtakanna þegar
mikill í upphafi og sýnir þörf-
ina að standa á varðbergi fyrir
vörugæðum og betri þjónustu
og er skrifstofa samtakanna
opin á hverjum degi frá kl. 5
til 7 og ber hitann og þungann
í erli dagsins Birgir Ásgeirsson
lögfræðingur og er hann fram-
kvæmdastjóri samtakanna.
1 fyrstu gengu/ 600 manns í
samtökin og nú er meðlima-
fjöldi 6000. Stjóm samtakanna
skipa nú eftirtaldir menn:
Sveinn Ásgeirsson, hagfræðing-
ur, Arinbjörn Kolbeinsson,
læknir, Knútur Halisson, lög-
fræðingur, Magnús Þórðarson,
blaðamaður, Þórir Einarsson
viðskiptafræðingur, Lárus Guð-
mundsson, stud. theol. og
Kristjana Steingrímsdóttir, hús-
mæðrakennari
Isfónzk skreii og lýsi á
vörusýningu í Nigeríu
Dagana 27. október til 18.
nóvember í haust var haldin í
Nigeriu alþjóðleg vörusýning
með þátttöku 40—50 þjóða viðs-
vegar að úr heiminum. Island
hafði þar frcmur litla en mjög
smekklega deild, sem Skarphéð-
inn Jóhannesson, arkitekt,
teiknaði en vörusýningarnefnd
skipulagði. Fimm ísl. fyrirtæki
------------------------<
Austurrískur
námsstyrkur
Austurrísk stjórnarvöld bjóða
fram styrk handa íslendingi
við háskóla í Austurrlíki náms-
árið 1963/64 Styrkimir miðast
við tímabilið 1. október — 30.
júní, og nemur hver þeirra
samtals 15300 austurrískum
schillingum, sem greiðast styrk-
þega með níu jöfnurn mánað-
afgreiðslum. Ef ætlazt til, að
styrkfj árhæðin nægi einum
manni til greiðslu á lífsviður-
væri og námskostnaði. Um
sækjendur skulu vera á aldrin-
um 20—35 ára og hafa stund-
að nám við háskóla a.m.k.
tveggja ára skeið Góð þýzku-
kunnátta er áskilin.
Sérstök eyðublöð fyrir um-
sóknir um styrkinn fást í
menntamálaráðuneytinu, Stjóm
arráðshúsinu við Lækjartorg.
Umsóknir ásamt tilskildum
fylgiskjölum skulu hafa borizt
ráðuneytinu fyrir 5. apríl n.k.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
Stjórn Félags
framreiÓslU'
manna
Aðalfundur Félags fram-
reiðslumanna var haldinn 6.
þ.m. Stjóm félagsins hafði áð-
ur verið kosin að viðhafðri alls-
herjaratkvæðagreiðslu og er
hún þannig skipuð:
Formaður: Jón Maríasson,
varaformaður: Guðmundur H.
Jónsson, ritari: Valur Jónsson,
gjaldkeri: Kristján Runólfsson,
aðstoðargjaldkeri: Haraldur
Tómasson. Varastjóm: Bjami
Bender, Janus Halldórsson og
Grétar Hafsteinsson.
Á fundinum flutti formaður
skýrslu um störf félagsins á
liðnu starfsári. Fjárhagur fé-
lagsins er mjög góður og inn-
an félagsins er starfandi öflug-
ur sjúkrasjóður.
Reikningsbók
fyrir byrjendur
Ríkisútgáfa námsbóka hefur
nýlega gefið út bókina „Ég
rcikna og Iita“, reikningsbók
fyrir byrjendur, eftir Jónas B.
Jónsson fræðslustjóra.
Allt efni bókarinnar er í
myndum og á hverri blaðsíðu
eru skýringartextar, sem gefa
bendingar um hvemig á að
vinna á síðuna.
Bókin er ætluð til að æfa
börn í að skynja stærðar- og
lengdarmismun, gildi talna,
telja myndir og lita þær. Og
ennfremur til að læra að
þekkja tölustafi og skrifa þá.
Henni er ætlað að undirbúa
yngstu bömin, áður en þau
fara að reikna með tölustöfum.
Halldór Pétursson, listmálari.
teiknaði allar myndir í bókina
og skrifaði skýringartextana.
Prentun annaðist Litbrá h.f.
stóðu að sýningunni: Bemhard
Petersen h.f., G. Helgason &
Melsted, Lýsi h.f., Samband ísl.
samvinnufélaga og Samlag
skreiðarframleiðenda
Af framleiðsluvörum sýndu
þessi fyrirtæki skreið og lýsi,
en Islendingar selja sem kunn-
ugt er mikið af skreið sinni til
Nigeriu. Auk þess var tæki-
færið notað til kynningar á
landi og þjóð, en Afríkumenn
hafa að sjálfsögðu ákaflega ó-
ljósar hugmyndir um Island.
Voru í deildinni stórar litmynd-
ir og svarthvítar ljósmyndir úr
íslenzkri náttúru og af atvinnu-
vegum og áletranir til upp-
lýsinga. auk þess sem kjmning-
arbæklingi var dreift.
Starfsfólk deildarinnar hafði
meðferðis nýja kvikmynd, sem
Skreiðarsamlagið hafði látið
gera sérstaklega fyrir þetta
tækifæri, og var hún sýnd 6
sinnum, þar af einu sinni fyrir
boðsgesti. Rögnvaldur Johnsen
gerði þessa mynd og óf þar
saman nokkurri kynningu á
landinu og fræðslu um fisk-
veiðar og skreiðarverkun á
Islandi. Islenzkur námsmaður,
í London Halldór Haraldsson
samdi tónlist við myndina og
Brian Holt las enskan texta.
Var filman skilin eftir til
sýningar í sjónvarpi, en auglýs-
ingastarisemi var haldið uppi
í sambandi við íslenzku deild-
Framhald af 7. síðu.
hjá því komizt að reisa leigu-
íbúðir til þess að útrýma brögg-
unum. Hann óskaði nánari upp-
lýsinga um fjárhagsgrundvöll
þessara byggingaframkvæmda
og taldi nauðsynlegt, að það
væri tekið fram hvenær þeim
ætti að vera lokið. Flutti hann
viðaukatillögu við samþykkt
borgarráðs þar sem lagt var til.
að framkvæmdum skyldi lokið
fyrir árslok 1964.
Soffía Ingvarsdóttir lýsti
einnig samþykki sínu við tillög-
ur borgarráðs og kvað betra
seint en aldrei að hafizt yrði
handa um byggingu leiguíbúða.
Lagði hún til, að öldruðu fólki
yrði gefinn kostur á að fá eitt-
hvað af þessum íbúðum.
Alfreð Gíslason minnti á, sð
áætlunina frá 1957 hefði átt að
framkvæma á 4—5 árum en
hún hefði ekki staðizt og aldrei
ina í blöðum og útvarpi. Veitti
Elín Pálmadóttir blaðam. þess-
ari upplýsinga- og kynningar-
starfsemi forstöðu með mikl-
um myndarbrag.
Um 1.200.000 mann sóttu
vörusýninguna og má gera ráð
fyrir að flestir þeirra hafi
a.m.k. gengið um íslenzku
deildina, sem var staðsett í
húsi með þremur öðrum þjóð-
um rétt við aðalinnganginn. í
þeim hópi var bæði fólk sem
aðeins kom til að skoða, þeirra
á meðal heilir skólabekkir með
kennurum sínum, er sumir
höfðu ekið dagleið í trukkum
í brennandi hita, og einnig
kom mikið af verzlunarmönn-
um víðsvegar að úr landinu
og ræddu þeir við þá fulltrúa
ísl. fyrirtækjanna er þar voru,
þá Einar Farestveit, fram-
kvæmdastjóra og Birgi Hall-
dórsson.
Nigeríumenn, sem eru yfir 40
millj. talsins, eru nú að koma
sjálfir inn á heimsmarkaðinn,
éftir að þeir hafa fengið stjóm
landsins í sínar hendur, en áð-
ur fór öll þeirra verzlun, bæði
innflutningur og útflutningur,
gegnum stóru Evrópufyrirtæk-
in. Og stóra vörusýningin á
Victoriueyju í Lagos í haust,
fyrsta almenna vörusýningin
sem haldin er í Afríku, vakti
mikla athygli í álfunni og dró
að viðskiptamenn úr öllum
hinum heimsálfunum. (Frá Vsn).
verið lokið. Einnig minnti hahn
á, að hann hefði í 7 ár flutt til-
lögur um byggingu íbúða fyrir
gamalt fölk en þær aldrei feng-
izt samþykktar.
Gísli Halldórsson gaf stutt
yfirlit um fjárhagsgrundvöll
byggingaráætlunarinnar og upp-
lýsti, að ætlunin væri að ljúka
þessum framkvæmdum á tveim
árum. Kvaðst Einar Ágústsson
fús að breyta tillögu sinni í
samræmi við það, þannig að
verkinu skyldi lokið í marzlok
1965,
Borgarstjóri kvað tillögu Ein-
ars hreina vantrauststillögu á
þá aðila sem með framkvæmd
áætlunarinnar ættu að fara og
lagði til, að henni yrði vísað
frá. Var sú tillaga hans sam-
þykkt með 9 atkvæðum gegn 5
og tillaga borgarráðs síðan sam-
þykkt samhljóða.
Guðm. Daníelsson
í góðum félagsskap
1 4. hefti tímaritsins Nordisk
kontakt er sagt frá hver rit
frá fimm Norðurlöndum komu
til greina þegar dómnefndin
sem úthlutar norrænu bók-
menntaverðlaununum kom sam-
an 30. janúar sl. í Kaupmanna-
höfn til að kveða upp úrskurð
sinn. Voru þau þessi:
Frá Danmörku:
Thorkild Hansen: Det lykkelige
Arabien.
Paul örum: Natten í vente-
salen.
Frá Finnlandi:
Vainö Linna: Sörmer av ett
folk. Oscar Parland: Tjurens ár.
Frá Islandi:
Guðm. Daníelsson: Sverdet
og harpen (Sonur minn Sin-
fjötli).
Frá Noregi:
Aksel Sandemose: Felicias
bryllup. Reiss-Andersen: Ar pá
en strand.
Frá Svíþjóð:
Gunnar Ekelöf: En natt í
Otocac. Sivar Arnér: Finnas
tiH.
Eins og kunnugt er af fréttum
hlaut finnski rithöfundurinn
Vainö Linna bókmenntaverð-
launin í ár.
Gunðniundur Daníelsson
Stefna Alþýðubandalagsins