Þjóðviljinn - 29.06.1963, Side 3

Þjóðviljinn - 29.06.1963, Side 3
Laugardagur 29. júní 1963 HðÐVIUINN SlB A 13 Njósnarinn Wennerström leiddur fyrir rétt í Stokkhólmi í gær Sænska stjérnin á í vök að verjast, deilt hart á landvarnaráðherrann STOKKHÓLMI 28/6 — Réttarhöld í máli sænska ofurst- ans Stig Wennerström, sem ákærður er fyrir stórfelld- ustu njósnir sem upp hefur komizt um í Svíþjóð í seinni tíð, hófust í Stokkhólmi f dag, en þau verða fyrir luktum dyrum. Hörð hríð er gerð í blöðum að landvarnaráðherr- anum Sven Andersson og á stjórnin í vök að verjast. Það eru að sjálfsögðu einkum blöð stjórnarandstöðunnar sem deila á ríkisstjórnina og Anders- son ráðherra. „Dagens N.yheter" segir að ljóst sé orðið að njósna- málið ætli að verða enn meira hneyksli en menn óraði fyr- ir í fyrstu. Landvarnaróðherr- anum hafi í ein tvö ár verið kunnugt um þann grun sem lá á Wennerström, en sá grunur hafi verið svo sterkur, að ástæða hafi þótt til að neita honum um ákveðna stöðu. Ráðherrann hafi þó látið undir höfuð leggjast að skýra réttum aðilum frá þessum grun og hafi því orðið þess vald- andi að Wennerström var ráðinn sérstakur ráðunautur utanríkis- ráðherrans um afvopnunarmál. Þetta bendir til þess að mjög skorti á nægilega samheldni inn- an ríkisstjórnarinnar, segir blað- ið. Ekki kosið / Danmörku KAUPMANNAHÖFN 28/6 — Stjómarflokkarnir dönsku og stjórnarandstaðan, að undan- teknum Sósíalistíska alþýðu- flokknum, hafa orðið sammála um að taka jarðnæðislöggjöf stjórnarinnar sem felld var við þjóðaratkvæðið aftur upp til endurskoðunar þegar reglulegt þing kemur saman í október. Það er þannig víst að nýjar þingkosningar gætu ekki farið fram fyrr en í nóvember, en nú er talið að ekkert verði úr kosninaum á þessu ári. Kjör- tímabilinu lýkur annað haust. Ríkisstjórnin hefur fram að þessu lítið látið hafa eftir sér um njósnamálið, en talið er ó- hugsandi að Erlander forsætis- ráðherra komist hjá að gefa yfir- lýsingu um málið einhve'rn næstu daga. Ráðuneytisfundur var um mál- ið í dag og einnig mun stjómin hafa rætt, hvort málið breyti nokkru um þá fyrirætlun að Krústjoff, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, komi í heimsókn sína til Svíþjóðar, sem ákveðin er næsta vor. Sænski yfirhershöfðinginn Thor- sten Rapp segir að njósnamálið sé mjög ílókið og rannsókn þess muni kosta mikla vinnu og fé og taka langan tíma. Hann sagði að sænski herinn væri sem þrumu lostinn eftir afhjúpun njósnarans. Wennerström cfursti var í dag leiddur fyrir rétt í Stokkhólmi. | Hann gekk í salinn beinn í baki j og virtist ekkert hafa látið á sjá eftir andvökunæturnar und- anfarið. Hann bar sig vel og ingum dómarans. Þær voru allar um formsatriði, og að þeim lokn- um féllst rétturinn á kröfu sak- sóknarans um að öllum óviðkom- andi yrði vísað úr réttarsalnum og málinu haldið áfram fyrir luktum dyrum. Kennedy til London í dag DUBLIN seti hélt 28/6 dag Kennedy for- ræðu á írska Kvennaþingið í Moskvu svaraði skýrt og skorinort spum- | þinginu og lofaði m.a. að Banda. j ríkin Fulltrúar Indlands og Kína deila hart MOSKVU 28/6 — Enn í dag sló í hart milli fulltrúa frá Kína og Indlandi á heimsþingi kvenna, en þingið hefur verið allróstu- samt. Það bar við á þingfundin- um í dag að formanni kínversku nefndarinnar var ncitað um orð- ið þegar hún ætlaði að svara ásökunum indversku fulltrúanna í garð Kínverja. Deilur kínversku og indversku fulltrúanna eru um landamæra- erjumar á síðasta ári og það sem af þeim hefur hlotizt í sam- búð ríkjanna. Á nefndarfundi í dag fengu kínversku fulltrúarnir að segja álit sitt á málinu. Þeir sökuðu indversku konurnar um að hafa að ástæðulausu farið að ræða landamæradeiluna á þinginu og blásið þannig að glæðum fjand- skapar milli þjóðanna. Þinginu væri hins vegar ætlað að efla samhug kvenna í öllum löndum. Brezka sendinefndin á þinginu Deilur kommúnistaflokkanna Margir leiðtogar hittast í A-Berlín BERLÍN 28/6 — Krústjoff, for- sætisráðhcrra Sovétríkjanna, kom i dag tll Austur-Berlínar og þangað eru væntanlegir fyrir ielgina fleiri Ieiðtogar ríkja Austur-Evrópu. Látið er í veðri raka að þeir komi þangað vegna sjiitugsafmælis Ulbrichts. forseta Vustur-Þýzkaiands, en enginn vafi er talinn á að meira sé á teyði en afmælisfagnaður. Auk Krústjoffs er búizt við peim Kadar frá Ungverjalandi, Movotny frá Tékkóslóvakíu og öomulka frá Póllandi. Einnig er búizt við leiðtogum frá Búlg- aríu og Rúmeníu. Talið er víst að á fundi þeirra í Berlín verði fjallað um deilu- mál kommúnistaflokka Sovétrikj- anna og Kína, en viðræður full- trúa þeirra flokka í því skyni að reyna að jafna ágreininginn eiga að hefjast í Moskvu á föstudag- inn kemur. Búizt er við að Krústjoff, sem Ulbrieht tók á móti á flugvellin- um, muni dveljast i Austur- Þýzkalandi í upp undir viku. Uppboð Húseignin Vallargata 11 í Sandgerði, þinglesin eign Skúla Kriotjánssonar, verður eftir kröfu Guðjóns Stein- grímssonar hrl. o.fl. boðin upp og seld á opinberu upp- boði, sem fram fer á eigninni sjálfri þriðjudaginn 2. júlí kl. 14. Uppboð þetta var auglýst í 18. 25. og 28. tbl. Lög- birtingablaðsins. SÝSLUMAÐURINN í GULLBRINGU- OG KJÓSARSÍSLU. ræddi í dag lengi við kínversku fulltrúana í því skyni að fá þá til að fallast á sjónarmið sovét- stjómarinnar um friðsamlega sambúð ríkja með ólík stjórn- kerfi. Ekki er getið um árang- ur af þeim fundi. myndu gera allt sem þeirra valdi stæði til að koma í veg fyrir að fleiri ríki eign- uðust kjarnavopn en nú hafa þau og ennfremur að koma á banni við kjamasprengingum. Kennedy fer á morgun til London þar sem hann mun ræða við Macmillan forsætis. ráðherra. LONDON 28/6 — Maemillan for- sætisráðherra Bretlands, sagði í kvöld í sjónvarpsviðtali að hann ætlaði sér að hafa for- ystu fyrir íhaldsflokknum í næstu þingkosningum, svo fremi sem honum entist heilsa og kraftar. Ungfrú Christine Keeler Réttarhöld hafin gegn Ward fyrir vændismiðlun Ungfrú Keeler skýrir frá sambandi sínu við Profumo og aðra fyrirmenn „Dr.” Stephen Ward LONDON 28/6 — Profumohneykslið komst enn á dagskrá í dag, þegar ungfrú Christine Keeler, hin unga og fallega vinkona ráðherrans sem varð honum að falli og talin er munu valda fylgishruni Ihaldsflokksins í næstu kosning- um, mætti fyrir rétti sem vitni ákæruvaldsins í málinu sem höfðað hefur verið á hendur öðrum vini hennar, „dr.“ Stephen Ward, en hann er ákærður fyrir vændismiðlun. Réttarsalurjnn var troðfullur af blaðamönnum og forvitnum áheyrendum. Ungfrú Keeler lá lágt rómur. svo að varla heyrð- ist til hennar, þegar hún svar- aði nærgöngulum spurningum sakgóknarans, Marvyn Griffith- Jones. Játar sambandið við Profumo Ungfrú Keeler játaði að hún hefði átt vingott við Profumo ráðherra og einnig ívanoff, flotafulltrúann við sovézka sendiráðið í London. Hún kvaðst hafa þegið fé af Profumo, en það hefði ekki verið sér ætlað, heldur móður sinni. Ekki var þess getið hvort ívanoff þurfti einnig að greiða fyrir blíðu hennar. Átta ákæruatriði Saksóknarinn gerði sér mikið far um að fá ungfrú Keller til að játa að hún hefði selt blíðu sína og Ward hefði þegið af henni fé Ákæruatriðin á hend- ur honum eru átta. þrjú þeirra heyra undir lög um kynferðis- afbrot en hin undir almenn hegningarlög. Hann er ákærður fyrir að hafa þegið fé af vænd- iskonum. misnotað stúlkur und- ir lögaldri (21 árs) og fyrir að hafa áft hlut að fóstureyðing- um. Sextán ára til London Keeler sagðist hafa búið hjá foreldrum sínum skammt frá London fram til sextán ára ald- urs. Þá hefði hún flutzt til borg- arinnar og tekið á leigu íbúð ásamt einni vinkonu sinni. Hún kynntist Ward í næturklúbb þar sem hún dansaði fáklædd. Ward hefði boðið henni út og tekið hana heim í sumarbústað sinn. en þau hefðu aldrei haft nein mök saman. Hún hafði bú- ið heima hjá Ward tíma og tíma. þannig á tímabilinu frá í júní 1961 til febrúar 1962. en það var á þeim tíma sem hún átti vingott ■'dð þá Profumo og ívanoff. Hún játaði ag hún hefði út- vegað Ward margar stúlkur, því að hann hefði verið mikið upp á kvenhöndina, en sambandið á milli þeirra hefði híns vegar verið eins og milli systkina. Þegar hún hefði búið hjá Ward í íbúð hans i Wimpole Mews hefði hún aldrei haft nema einn ,,vin“ í einu. Útvegaði Ward fé Saksóknarinn lét sér ekki nægja þessa skýringu og tókst honum að neyða ungfrú Keeler til að játa að hún hefði þegið fé af „vinum“ sínum og oft lát- ið Ward fá peninga þegar hann var í kröggum. Hann hafði líka einu sinni þegar hún var illa stæð bent henni á mann sem væri fús til að greiða fyrir blíðu hennar. Hún hefði stund- um heimsótt mann að nafni Jim Evlan þegar hana eða Ward hefði skort fé og hefði fengið nnkkur hundruð sterlingspund hiá honum. Astor lávarður greiddj húsaleiguna Saksóknarinn innti hana eftir því hvernig hún hefði haft ráð á því að þúa í rándýrri íbúð í West End sem hún hafði á leigu ásamt vinkonu sinni. Eftir nokkurt þóf skýrði hún frá því að hluti af húsaleigunni hefði verið greiddur af Astor lávarði. Vinkona ungfrúarinnar. Mari- lynn Rice-Davies, sem ekki var orðin fullra sextán ára þegar hún komst í kynni við Ward, bar einnig vitni í réttinum og kom ■ framburður hennar að flestu leyti heim við það sem Keeler hafði sagt. Hún kvaðst hafa sofið bæði hjá Ward og Astor lávarði. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ,Johan Hjort": Lítil sí/d framan af vertíðinni | BERGEN 28/6 — Fiskifræð- : ingar af rannsóknaskipinu ■ „Johan Hjort“ sem nýkomið er ■ heim frá síldarrannsóknum við ; Island segja að búast megi við : lítilli síldveiði framan af ver- ■ tiðinni í sumar. Bæði hinir ■ yngri árgangar norsku síldar- ■ innar og íslenzka vorgotssíldin | hafi brugðizt. Þeir segja að | ísinn iiggi nú nær Norðvest- j urlandi en hann hefur verið ■ í mörg ár og sjávarhitinn er ; einnig yfirleitt minni en und- ■ anfarin ár. Þeir telja að : meginmagnið af gömlu síld- : inni sé komið á miðin, cn ís- ■ lcnzka vorgotssíldin hafi ■ brugðizt. «

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.