Þjóðviljinn - 11.07.1963, Blaðsíða 2
SlÐA
MðÐVILJINN
Fimmtudagur 11. júlí 1963
Dr.Richard Beck
iætur af störfum
I vestur-íslenzka vikublaðinu
Lögbergi-Heimskringlu var ný-
lega skýrt frá því, að dr. Ric-
hard Beck, prófessor í Norður-
landamálum og bókmenntum
við Ríkisháskólann í Norður-
Dakota í Grand Forks, hafi
við lok þessa skólaárs látið af
embætti fyrir aldurssakir sem
forseti hinnar erlendu tungu-
máladeildar skólans. Sam-
kvæmt ákvörðun nefndar
þeirrar, sem yfirumsjón hefur
með æðri menntastofnunum í
ríkinu, verða deildarforsetar og
yfirmenn sérskóla innan há-
skólans að láta af embætti þeg-
ar þeir ná 65 ára aldri, en dr. i
Richard Beck varð 66 ára 9.
júní s.l. Hann heldur hinsvegar
áfram háskólakennslunni í
Norðurlandamálum og bók-
menntum, en því starfi hefur
hann gegnt um 34 ára skeið,
eða síðan haustið 1929. Geta
háskólakennarar þar vestra
gegnt kennslustörfum til sjö-
tugsaldurs.
Dr. Richard Beck, segir í
Lögbergi-Heimskringlu, hafði
skipað forsetaembættið í
tungumáladeildinni samfleytt
síðastliðin 10 ár, og hefur
deildin verið í örum og stöð-
ugum vexti á því tímabili. Tala
kennara og nemendafjöldi hef-
ur tvöfaldazt og voru kennarar
í deildinni 16 sl. skólaár og
stúdentar milli 1500 og 1600 tals-
ins. En innan deildarinnar fer
fram öll kennsla í háskólanum
í erlendum tungumálum og
bókmenntum. Þessi mál eru
kennd þar: Gríska, latína,
þýzka, franska, spænska, rúss-
neska, norska og íslenzka.
Stjóm slíkrar háskóladeildar er
því bæði umfangs- og ábyrgð-
armikið starf, enda gengur hún
næst enskudeildinni að kenn-
ara- og stúdentafjölda.
í þakkarbréfi til dr. Richards
Beck fóru forseti og varafor-
seti Ríkisháskólans í Norður-
Dakota lofsyrðum um deildar-
forsetastarf hans og bentu sér-
staklega á það, að samhliða
embætti þessu og mikilli
kennslu, hefði honum unnizt
tími til að halda áfram ritstörf-
um sínum og fræðiiðkunum.
Létu þeir í ljósi ánægju sína
yfir því, að nú gæfist dr. Ric-
hard Beck meiri tími til slíkra
fræðistarfa.
Alþjóðaþing CI0S
í New York í haust
XIII. Alþjóðaþing CIOS (Al-
þjóðanefndar vísindalegra stjóm-
unarmála) verður haldið í New
York dagana 16.—20. september
næstkomandi.
Á undan og eftir sjálfu þing-
inu verður efnt til sérstakrar
fræðslustarfsemi, heimsókna og
kynnisferða, þar sem þátttak-
endum gefst tækifæri til þess
að kynnast i reynd ýmsum
greinum stjórnunar 1 bandarísk-
um iðnaði og viðskiptum.
CIOS (Comité International de
l’Organisation Scientifique) er,
sem kunnugt er, alþjóðafélags-
skapur stjómunarfélaga. Megin-
tilgangur er að halda á lofti
á alþjóðavettvangi grundvallar-
reglum og aðferðum vísindalegr-
ar stjómunar, til þess að stuðla
að bættum lífskjörum þjóða með
betri nýtingu mannafla, tækja
og auðlinda, CIOS lætur sig
varða alla þætti efnahagslífs-
ins svo og þá starfsemi, er sam-
kvæmt eðli viðkemur vísinda-
legri stjómun.
Stjómunarfélag islands gerð-
ist, skömmu eftir stofnun árið
1961, aðili að CIOS. Er nú svo
komið, að félagsskapur þessi er
myndaður af stjómarfélögum
eða landsnefndum 38 þjóða. Þær
eru nú: Argentína, Ástralía,
Austurríki, Belgía, Brasilía, Kan-
ada, Chile, Columbía, Finnland,
Frakkland, Vestur-Þýzkaland,
Bretland, Grikkland, Guatemala,
Hong Kong, ísland, Indland, Ir-
land, ísrael, Italía, Japan, Líban-
on, Mexíkó, Holland, Nýja-Sjá-
land, Noregur.-.Berú,- .Filipseyjar,.
Suður-Afríka Suður-Kórea,
Singapore, Suður-Rhodesia,
Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tyrkland,
Bandaríki N-'AirreríkU og Vene-
zuela.
Á þinginu verða bæði flutt
ávörp og erindi af færustu
mönnum víðs vegar að. Gefst
þátttakendum kostur á að fræð-
ast um helztu viðhorf og nýj-
ungar í stjómun, og verður eink-
um lögð áherzla á, að þar veit-
ist mönnum hagnýtar upplýs-
ingar, sem þeir geta svo aðlagað
hinni daglegu starfsemi sinni.
Auk almennra funda starfa mis-
munandi stórir umræðuhópar.
En rík áherzla verður lögð á af
hálfu framkvæmdanefndar, að
stuðla að persónulegum kynn-
um þátttakenda.
Aðalstöðvar þingsins og funda-
staðir verða í hinu nýja New
York Hilton Hotel, svo og
Waldorf Astoria Hotel.
Þinggjald er 100$ fyrir þátt-
takanda, 50$ fyrir eiginkonur
þeirra. En sérstök dagskrá er
ætluð konum þátttakenda með-
an þeir eru að þingstörfum.
Þeir, sem hug hefðu á að
sækja XIII. Alþjóðaþing CIOS
og fá nánari upplýsingar þar
um, hafi sem fyrst samband
við Stjórnunarfélag Islands.
og sól
í Hallar-
garðinum
Jafnt ungir sem aldnir
hafa óspart notað sér sumar-
b'íðuna undanfama daga og
verið sem mest úti við í sól-
inni. — Þessar myndir eru
teknar í Hallargarðinum; það
er verið í bílaleik í þurrum
gosbrunninum og svo em á-
horfendur sem fylgjast með
af athygli! — (Ljósm. Þjóð-
viljans A.K.).
SVEFNSÚFAR
- SÓFASETT
HN0TAN, húsgagnaverzlun
Þórsgöfu 1
Ú Þant á ítalíu
• ROM 10/7 " O Þant, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, kom fyrri hluta dags í
heimsókn til Róm. Hann mun
ræða við ' helztu stjórnmála-
menn Itala, og einnig mun hann
ganga fyrir Pál páfa VI. tJ Þant
kom til Rómar frá Genf, en þar
sat hann fundi í því ráði Sam-
einuðu þjóðanna, er hefur með
höndum fjárhagsleg og félags-
leg málefni. Einnig mun fram-
kvæmdastjórinn heimsækja Pisa,
Flórens, Torino og Milano. Frá
ítalíu fer Ú Þant aftur til að-
alstöðva Sameinuðu þjóðanna í
New York.
Styrkir Hugvísindasjóis
bifreiðcleigan HJÓL
Hverfisgðtu 82
6fml 16-370
50 þús. kr. styrk hlutu:
Fræðslumálaskrifstofa Reykja-
víkur — Sálfræðideild skóla. —
Til rannsóknar á skólaþroska
og námsárangri 6—8 ára barna
og stöðlunar á þroskaprófi (gegn
jafnmiklu framlagi frá Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur).
Gísli Blöndal cand oecon. —
Til að rannsaka orsakir vaxtar
ríkisútgjalda á íslandi.
Guðmundur Magnússon fil
kand. — Til að vinna að licenti-
at-rjtgerð um efnið Framlelðsla
Við óviss skilyrði.
Hörður Ágústsson listmálari.
— Til að kanna íslenzka húsa-
gerð til sjávar og sveita á síðari
öldum.
Jón P. Emils cand. jur. — Til
að rannsaka réttarreglur um fé-
bótaábyrgð hins opinbera og
ljúka ritgerð um það efni.
Ölafur Halldórsson cand. mag.
— Til að vinna að rannsóknum
vegna inngangs að textaútgáfu
af Ólafs sögu Tryggvasonar
hinni mestu.
Sr. Sveinn Víkingur fyrrv.
biskupsritari. — Til að semja rit
um kirkjur og bænhús á Islandi
frá nrmhafi til vnrra daSa.
40 þús kr. styrk hlaut:
Landsbókasafn Islands. — Til
stuðnings við kaup á hinni
miklu bókaskrá General Cata-
Iougc of Printed Books, sem gef-
in er út af British Museum (gegn
a.m.k. jafnháu framlagi annars
staðar frá).
30 þús. kr. styrk hlutu
Sr. Jónas Gíslason sóknarprest-
ur. — Til að rannsaka sögu siða-
skiptanna á Islandi.
Kristján Árnason B.A. — Til
að vinna að ritgerð um exstenti-
alheimspeki nútímans og áhrif
Sören Kierkegaards á hana.
Nanna Ölafsdóttir mag art. —
Til að rannsaka erlend áhrif á
þjóðfrelsisstarf Islendinga á
fyrri hluta 19. aldar á sviði
stjómmála, mennta og atvinnu-
hátta.
Dr. Sveinn Bergsveinsson próf-
essor. — Til greiðslu ferða- og
dvalarkostnaðar vegna Islands-
farar til að rannsaka 1) þróun
önghljóða í íslenzku, 2) form í
dróttkvæðum hætti.
25 þús. kr. styrk hlaut:
Listasafn Islands. — Til stuðn-
ings við kaup á ritverkinu
Allgemeines Lexikor. der bild-
end en Kunstler.
20 þús kr. styrk hlutu:
Geöverndardeild barna. — Til
kaupa á bókum og tækjum vegna
geðheilbrigðisrannsókna á böm-
um.
Gunnar Sveinsson mag. art. —
Til að kanna rit sr. Gunnars
Pálssonar, einkum skáldskap
hans og fomkvæðaskýringar, og
aðrar heimildir um ævi hans,
rita ævisögu hans og búa kvæð-
in til prentunar.
Kristmundur Bjarnason fræði-
maður. — Til að rita ævisögu
Gríms amtmanns Jónssonar.
Sveinn Einarsson fil. kand. —
Til að Ijúka rannsókn á dönsk-
um áhrifum á íslenzka leiklist,
einkum á árunum 1890-1910.
10 þús. kr. hlutu:
Dr. Björn Ií. Þórólfsson fyrrv.
skjalavörður. — Til að rannsaka
sögu Þingvallafunda, sem haldn-
ir voru vegna deilunnar við
Dani um sjálfstæðismálið á tíma-
bilinu 1848-1907.
Páll V. G. Kolka fyrrv. héraðs-
læknir. — Til að rannsaka is-
lenzka læknisfræðisögu.
Formaður Hugvísindadeildar er
dr. Jóhannes Nordal bankastjóri.
Aðrir í stjóminni eru: dr. Hall-
LAUGAVEGI 18®- SIMI 1 9113
Höfum kaupenduí
með miklar útborg-
anir að: Húsi í ná-
grenni Revkjavíkur
með góðri lóð,
2— 3 herbergja í-
búðum
4— 5 herb. íbúSum
5— 6 herb íhúðum
5—6 herb hæðum
með allft sér
Parhúsum. einhvlis-
húsum.
HÖFUM KAUPANDA AÐ
3— 4 herbergja húsi ( ná-
grenni Revkjavíkur með
stórri lóð. Góð útborgun.
TIL SÖLU
2 herb. ný íbúð við Aust-
urbrún.
2 herb. íbúð í Selási (smíð-
um.
2 herb. góð íbúð í Vogun-
um. 1, veðréttur laus. Ot-
borgun 120 þúsund.
Lítii íþúð f Gerðunum með
sárinngangi. Stofa, eld-
hús og snyrtiherbergi.
Otborgun 80 þúsund.
3 herb. íbúð við Sogaveg
Otb. 100 bús..
3 herb. hæð og 2 herb. I
risi við Kárastíg. Sérinn-
gangur. sér hiti. Otb.
175 þúsund.
3 herb efri hæð við Óð-
insgötu, sér inngangur.
3 herb. ný og glæsileg íbúð
í Laugamesi.
3 herb. eóð íbúð á efri hæð
í Gerðunum ásamt stofu
og eldhúsi á fvrstu hæð.
1 veðr. laus
3 herb. hæðir 90 ferm. I
timburhúsi við Engjaveg.
Góð kjör.
3 herb. stór kjallaraíbúð
Langholtsveg. Sérinn-
gangur.
3— 4 herb. glæsileg fbúð við
Safamýri. næstum full-
gerð.
4 herb. hæð með allt sér
við Óðinsgötu. Verkstæð-
ispláss á jarðhæð.
Raðhús í enda við Skeiðar-
vog með fallegum garði.
Vandað timburhús við
Heiðargerði. Falleg, frá-
gengin lóð.
Timburhús 105m2 við Hverf-
isgötu á 400m2 eignarlóð.
Hæð, ris og kjallari.
Hentugt fyrir verzlun,
skrifstofur eða félags-
heimili.
I SMlÐUM:
4— 6 herb. glæsilegar íbúðir
í borginni.
f KÓPAVOGI:
Efri hæðir i tvíbýlishúsum
í smíðum. Allt sér.
Parhús í smíðum við Birki-
hvamm. Arkitekt Sigvaldi
Thordarson.
3 herb íbúð. 100 ferrn,, i
smiðum við RevnihVamm:
Allt sér.
3 herb. hæð i timburhúsi
við Nýbýlaveg l veðr
laus. Góð kjör
3 herb. hæð við Lindar-
veg. Sérinngangur. F.inn-
ig góð byggingarlóð á-
samt teikningu.
f smíðum f Garðahreppi
alæsilegt einbýlishús.
Hafið samband vjð
okkur ef pið þurfið
að kaupa eða selja
fasteignir.
dór Halldórsson prófessor, dr.
Kristján Eldjám þjóðminjavörð-
ur, Ólafur Bjömsson prófessor
og Stefán Pétursson þjóðskjala-
vörður. Ritari deildarinnar er
Bjami Vilhjálmsson skjalavörð-