Þjóðviljinn - 11.07.1963, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 11.07.1963, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 11. júlí 1963 ÞJðÐVILJINN SlÐA 2 Fjörugt íþróttalíf á Vestfjörð- Akranes vann Keflavík 4:2, Ríkarður ekki með Á laugardaginn léku Skaga- menn við Keflvíkinga á Akra- nesi, og var nokkur eftirvaent- ing um það hvort Keflvíking- um tækist að krækja sér í stig þar uppfrá, því að hvert stig er þeim dýrmætt vegna fall- hættunnar. Það lyfti þó heldur undir að Ríkharður var ekki með, og kom Þórður á vissan hátt í hans stað. Ríkharður var slæmur í fæti. Til að byrja með var sem Keflvíkingar næðu sér ekki upp og tækist aldrei að samein- ast, enda fór það svo að Akra- nes skoraði 3 mörk í fyrri hálf- leik en Keflavík ekkert. Virtist sem Þórður Þórðarson vekti mikinn ótta í vöm Kefl- vikinga, enda var hann frískur, og notaði útherjana óspart. Fyrsta markið skoraði Ingvar með skalla mjög laglega eftir homspymu frá Jóhannesi. Næsta mark skorar Þórður Þórðarson, og verður það skrif- að á reikning varnarinnar sem hopaði langt og lengi inn að marki svo að Þórður þurfti ekki annað en að leggja hann rólega inn í markið, innan á stöngina. 4:0 fyrir Akranes Þriðja markið skoraði Skúli Hákonarson úr vítaspyrnu, en Þórði Þórðarsyni hafði verið bmgðið á vítateig. Þegar mjög tók að líða á fyrri hálfleik virtist sem Kefl- víkingar væru að átta sig á þvi að þeir væru búnir að fá 3 mörk og áttu þeir nú oft ágæt- ar sóknarlotur; bjargaði bak- vörður eitt sinn á línu, og í annað skipti var Högni kominn innfyrir alla. en sparkaði him- inhátt yfir. Það vakti undrun áhorf- enda á nýafstaðinni heims- meistarakeppni, þegar eitt spil leiddi í ljós, að bæði bandarísku og frönsku spilar- amir treystu ekki sögnum makkera sinna og komu í „björgunarsveitina" á fimm- sagnstiginu. Andstæðingar þeirra virtust samt vera meira undrandi, þvi þeir dobluðu ekki, og misstu þar með af tækifæri til þess að auka hagnað sinn verulega. Austur gaf og allir voru á hættu. 1 byrjun síðari hálfleiks komst Ingvar innfyrir vöm Keflvíkinga og skoraftí aVerj- andi, 4:0! Keflvíkingar í sókn Eftir þetta má segja að Kefl- víkingar hafi haft algjöra yfir- hönd í leiknum, en það er erf- itt að vinna upp 4:0. Þeir sköp- uðu sér tækifæri hvað eftir annað en þeir gátu ekki skorað. Þar kom þó að Magnús Torfa- son skoraði með lausu skoti, sem Helgi hafði þó nærri varið, og rétt fyrir leikslok skorar Högni annað mark Keflavíkur. Ef framlfna Keflavíkur gæti skotið meira hefði leikur þessi eins getað enda með jafntefli. Ingvar átti þó bezta leikinn á sumrinu. Þórður sýndi að hann getur sannarlega ógnað enn. Jón Leós átti einnig góðan leik. Sveinn Teitsson lék með að þessu sinni og var liðinu mikils virði. Heldur er leitt að hlusta á órðræður einstakra leikmanná í garð dómara og ættu þeir að leggja þær alveg niður, þær gera aldrei annað en að skaða þá sjálfa og lið þeirra. Dómari var Guðmundur Guð- mundsson og dæmi yfirleitt vel. Mr-X. STAÐAN i I. DEILD L U T J St. M. Akranes 7 4 2 1 9 17:12 KR 6 3 2 1 7 10:10 Fram 6 3 2 1 7 7:9 Akureyri 6 2 2 2 6 13:13 Valur 5 2 2 1 5 10:8 Keflavík 6 1 5 0 2 9:14 Norður A D-8-2 V Á-K-D-10-9-8-6-4 ♦ 6-2 4» ekkert Vestur Austur A 9-7-6 A Á-K-G-10-3 V G-7-3 V 5 ♦ Á-D-8-7-3 ♦ K-10-5-4 A 4-2 4> D-10-3 Suður A 5-4 V 2 ♦ G-9 Á-K-G-9-8-7-6-5 A BOKÐI 1 VORU SAGNIR EFTIRFARANDI: Austur Suður Vestur Norður Robinson Ghestm Jordan Bacherich 1 spaði 3 spaðar pass 4 hjörtu pass 5 lauf pass 5 hjörtu A HINU BORÐINU: Austur Suður Vestur Norður Stettin Jacoby Tintner Nail 1 spaði 4 lauf pass 4 hjörtu pass 5 lauf Þriggja spaða sögn Chestem var yfirfærslusögn, sem skyldaði makker hans til að segja 4 lauf. Þegar Bacherich sagði 4 hjörtu eftir langa um- hugsun, þá þýddu 5 lauf hjá Chestem litur, sem ekki þarfnaðist stuðnings. En Bach- erich lét ekki segjast og sagði fimm hjörtu. Austur spilaði út spaðakóng, vestur lét sexið og norður áttuna. Austur var ekki viss um hver ætti tvistinn og hann spilaði spaðaás. Síðan tóku þeir tvo slagi á tígul. Á hinu borðinu spilaði vest- ur út spaðasjö og a—v tóku tvo slagi á spaða og tvo á tígul og fengu síðan tromp- slag að auki, þrir niður. um i sumar Iþróttalíf hefur verið ákaf- lega fjörugt á Vestfjörðum það sem af er sumri. Þrjú íþrótta- mót hafa verið háð þar og svo hið árlega íþróttanámskeið sem ■ nú var haldið í fimmta sinn. 1. júní var innanhússmót á Núpi. Þar var keppt í há- stökki, langstökki og þrístökki. Þá var þar og fyrsta körfu- knattleiksmótið sem verið hef- ur vestra. Ungmennafélag Mýr- arhrepps vann körfuknattleik kvenna en íþróttafélagið Grettir á Flateyri sigraði í karlafl. Dagana 29. og 30. júní hélt Héraðssamband Vestur-lsfirð- inga héraðsmót að Núpsskóla. Veður var mjög gott báða dag- ana og mótið fjölsótt. Fjögur félög tóku þátt í mótinu og hlutu þau þessa stigatölu: Stefnir 88 stig Höfrungur 82 stig Grettir 78 stig U.M.F.M. 23 stig. 1 einstökum greinum urðu sigurvegarar sem hér segir. 1 karlaflokki. 1500 m hlaup Birgir Friðbertsson S. 5.02,2 Kúluvarp Emil Hjartarson G 13.20 Langstökk Haraldur Stefánsson H 5.40 Stangarstökk Páll Bjamason S 3.25 100 m hlaup Jónas Matthíasson H 12.0 4x100 m boðhlaup A-sveit Stefnis 50.8 400 m hlaup Sigurjón Gunnlaugsson H 59.8 Hástökk Emil Hjartarson G 1.73 Þrístökk Emil Hjartarson G 12.93 Spjótkast Emil Hjartarsson G 45.43 Kringlukast Leifur Bjömsson G 33.79 Sigurvagarar í kvennaflokki: Kúluvarp Ölöf Jónsdóttir M 8.32 Langstökk Arnfríður Ingólfsdóttir S 4.11 Framhald á 6. síðu. 2. deildar keppnin Þróttur sigraði Siglufjörð 5:2 Þróttur mættj Siglfirðing- um á Melavellinum á sunnu- dagskvöldið og varð það nokk- uð skemmtilegur leikur á að horfa. Oft var hann vel leik- inn, sérstaklega af hálfu Þrótt- ara sem eftir nokkurt hlé sýndu nú góða knattspyrnu. Fyrri hálfleikur 2:1 fyrir Siglufjörð Fyrri hálfleikur var fremur jafn, en Þróttarar misnotuðu mjög upplögð tækifæri og höfðu því Siglfirðingar for- ustu í leikh'.éi. Þróttarar fengu snemma i leiknum vítaspyrnu sem Hauk- ur Þorvaldsson framkvæmdi afar laust og varði markvörð- Ur Siglfirðinga, Ásgrímur Ing- ólfsson næstum auðveldlega. Ekki varð þetta feilskot til að örva Þróttarana heldur ein- kenndist leikur þeirra fremur af taugaspennu fyrst í stað. Siglfirðingarnir settu fyrsta markið á 18. mín. og var þar að verki hinn kunni skíðamað- ur Bogi Nílssqn, sem spyrnti jarðarskoti af stuttu færi. 1:0. Ásgeir Gunnarsson setti annað markið á 25. mín. með glæsi- legu skoti af vitateig efst i markhomið. 2,0 Eina mark Þróttar i fyrri hálfleik setti Haukur Þor- vaidsson á 36. min af stuttu færi 2:1 Siðarti hálfleikur 4:0 ^ fyrir Þrótt Þróttarar tóku síðari hálf- leikinn í sínar hendur strax í byrjun og var nú leikur þeirra oft mjög jákvæður enda rjgndi skotunum að marki Siglfirð- inganna til leiksloka. Heldur var farið að draga af Siglfirð- ingunum og undir lokin voru þeirsvotjl hættir að veita mót spyrnu, Haukur Þorvaldsson jafn- aði leikinn á 3. mín með skallaskoti eftir fyrirgjöf frá hægrj og skoraði Haukur af stuttu færi. 2:2 Þriðja markið setti Ómar WASHTSTWEAR 65% TERYLENE 35%COTTON Magnússon en það var Jéns Karlsson sem sendi fyrír markið og tvívegis „kiksuðu“ varnarmenn Siglfirðinga og Ómar skoraði af stuttu færí i autt markið. 3:2. Fjórða markið setti Haukur á 23. mín. en hann fylgdi vel eftir skoti frá Jens sem mark- vörður missti og Haukur var vel á verði og skoraði auð- veldlega, 4:2. Axel Axelsson setti fimmta markið á síðustu min. leiksins. fékk hann sendingu fram völl- inn, hljóp síðan alla af sér og skoraði óverjandi, 5:2. Siglfirðingar áttu aðeins tvö skot að marki sem talandi er um og bjargaði Guttormur léttilega þeim báðum. Liðin Eins og áður segir áttu Þróttarar góðan leik og hafa ekki í langan tíma sýnt betri leik. En gallinn við Þróttarlið- ið er sá að nú getur næsti leik- ur orðið eins lélegur og þessi var góður Siglfirðingarnir gerðu ýmis- legt mjög laglega af nýliðum að vera °g með meiri leik- reynslu og æfingu ættu þeir að geta staðið jafnfætis góðum Hðum. Hreiðar Ársælsson dæmdi leikinn yfirleitt vel. — h. Frjálsíþrótta- námskeið á vegum KR Frjálsiþróttadeild KR gengst fyrir námskeiði i frjálsum f- þróttum fyrir pilta og stúlkur. Námskeiðið fer fram á Mela- vellinum á fimmtudögum og þriðjudögum og hefst á morg- un klukkan 20.00. Kennari verður Benedikt Jakobsson. i ölluni helztu fataverzlumm landsins I STOCKHOIM, G.A.B. Hinar vinsælu stálvörur frá £ A. B. L S. ’feknar upp í dag. „Party“ sett Vínkönnur Kaffikönnur Steikarföt Bamadiskar ’Rarnamál Ávaxtaföt o.fl. Gefið gjafir frá G.B. Silfurbúðinni. G.B. Silfurbúðin Laugavegr » ' -Migavcgi 55 4 >

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.