Þjóðviljinn - 18.08.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 18.08.1963, Side 1
/ Guðrún Bjarnadóttir kjörin „Ungfrú Alheimur 1963" í fyrrakvöld var Guðrún Bjarnadóttir, feg- urðardrottning íslands 1962, kjörin „Ungfrú alheimur 1963“ í fegurðarsamkeppninni á Langasandi í Bandaríkjunum. Er þetta 1 fyrsta sinn sem íslenzk stúlka hlýtur slíkí sæmdar- heiti en Sigríður Geirs varð nr. 3 í keppni þessari á sínum tíma og Sigrún Ragnars nr. 6, Anna Geirs varð önnur í Miami. Keppendur í fegrurðarsam keppninni að Langasandi voru að þessu sinni 86 og voru 15 þeirra valdar j ur- slitakeppnina og þar sigrað5 Guðrún með glæsibrag að þv er fréttir að vestan herma Austurrísk stúlka hrenp4' hins vegar annað sætið. Að launum fyrir sigurim hlaut Guðrún Bjarnádóttir 1(’ þúsund dollara í reiðufé <>• ýmsa góða gripi en auk þess munu henni nú standa marg-* ar leiðir opnar til frekari ''rama. óskar Þjóðviljinn •uðrúo'i *il hamingju með igurinn. Guðrún er aðeins tvítug að ’’dri en hún er dóttir Bjarna ’inai'ssonar skipasm*ðameist 'ra í Njarðvikum og konu 'iíític Cfo^nsflAttlir Á 12. síðu blaðsins í dag er \ æviferill Guðrúnar Bjarna- dóttur rakinn í stórum dráttum Þar er einnig birt stutt viðtal ví^ föður hennar, Bjarna Einars«'” skipasmíða- meistara. í gær gerðust þau fíðindi að ríkisstjórnin gaf út bráðabirgðalög þar sem ákveðin er skipun gerðardóms til þess að ákveð^a kaup og kjör verk- fræðinga sem starfa hjá öðrum en ríkinu og eru verkföll verkfræðinga sem staðið hafa yfir að undanförnu jafnframt bönnuð með lögum þess- um. Hefur ríkisstjórnin þar með enn einu sinni gerzt sek um þá óhæfu að hindra eðlilega samninga launþega og atvinnurekenda um kaup og kjör með gerðardómseinræði. Þjóðviljanum barst fréttatil- kynning frá atvinnumálaráðu- neytinu um lagasetningu þessa í gærmorgun og snéri hann sér þegar til framkvæmdastjóra Stéttarfél. verkfræðinga, Hinr- iks Guðmundssonar, til þess að leita álits hans á þessu atferli ríkisstjórnarinnar. Hafði félag- inu þá engin tilkynning borizt um gerðardóminn og frétti Hinr- ik fyrst af honum hjá Þjóðvilj- anum. Fréttatilkynningin var síðan lesin i hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þegar Þjóðviljinn átti aftur tal við Hinrik Guðmundsson síðdegis i gær hafði verkfræð- ingafélaginu enn engin tilkynn- ing borizt frá ríkisstjóminni og kvaðst hann því ékki reiðubú- inn á þessu stigi málsins til þess að láta í ljós fyrir hönd fé- lagsins neitt álit eða umsögn um lagasetninguna. Verður það að teljast furðulegt af ríkis- stjórninni að hún skyldi ekki tilkynna Stéttarfélagi verkfræð- inga um gerðardóminn á sama hátt og blöðum og útvarpi. Fréttatilkynning atvinnumála- ráðuneytisins um gerðardóms- skipunina fer hér ó eftir orð- rétt: „Forseti fslands hefur í dag, samkvæmt tillögu ríkisstjómar- innar, sett svofeJld bráðabirigða- lög um lausn kjaradeilu verk- fræðinga: FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Ríkisstjómin hefur tjáð mér, að algert verkfall hafi staðið yfir hjá meðlimum Stétt- arfélags verkfræðinga, frá 27. júní sl. Frá 1. júlí þ.á. hafi 'tekið gildi nýtt Iaunakerfi op- inberra starfsmanna samkvæmt kjaradómsúrskurði, en launa- kröfur Stéttarfélags verkfræð- inga, sem fédagið hafi haldið fast séu almennt vemle; en laun sambærilegra starfs- manna, samkvæmt kjardómi. Þannig sé öllu samræmi launa- kerfis rikisins, sem komið var á með lögum um kjarasamn- inga opinberra starfsmanna, nr. 55/1962, við laun fyrir sambæri- leg störf hjá öðmm en ríkinu, stefnt í hættu og þannig unnið gegn efnahagskerfi landsins og hagsmunum almennings. Beri því brýna nauðsyn til að gera rúðstafanir til að koma í veg rir slíka þróun mála. Fyrir því em hér með sett bráðabirgðalög, samkvæmt 28. gr. stjómarskrárinnar, á þessa leið: 1. gr. Hæstiréttur tilnefnir þrjá menn í gerðardóm, sem ákveði kjör verkfræðinga, sem starfa hjá öðmm aðilum en ríkinu. Dómurinn skal einnig setja gjaldskrá fyrir verkfræðistörf, sem unnin em í ákvæðisvinnu eða tímavinnu. Hæstiréttur kveður á um, hver hinna þriggja gerðardóms- vera formaður Gerðardómurinn setur sér starfsreglur. Hann aflar sér af sjálfsdáðum nauðsynlegra gagna og er rétt að krefjast skýrslna, munnlegra og skriflegra, af ein- stökum mönnum og embættis- mönnum. 2. gr. Gerðardómurinn skal við á- kvörðun mánaðarlauna, vinnu- tíma og launa fyrir yfirvinnu, hafa hliðsjón af því, hver séu kjör verkfræðinga og annarra sambærilegra starfsmanna hjá ríkinu, samkvæmt launakerfi Framhald á 9. síðu. Tveir andfasistar á Spáni voru kyrktir mel járnum MADRID 17/8. — í dag lét fas- istastjórnin taka tvo stjóriunála- andstæðinga sína af lífi. Var jámum bmgðið um háls þeirra og þeir kyrkíJir. Menn þessir hétu Franeisco Granados Gata og Joaquin Delgado Martinez. Þeir vom báðir þrítugir að aldri. Fasistastjómin hefur lýst því yfir að Gata og Martinez séu stjórnleysingjar og hafi framið hermdarverk á Spáni. Sérstök áherzla er lögð á það að þeir séu báðir synir spænskra stjóm- leysingja sem flúið hafi til Frakklands í lok borgarastyrjald- arinnar á Spáni og séu enn á lífi. Herréttur í Madrid kvað upp dauðadóminn á þriðjudaginn var. Voru þeir dæmdir fyrir að hafa gengizt fyrir sprengjuárás á að- alstöðvar öryggislögreglunnar og skrifstofur „verkalýðssambands- ir.s“, sem falangistar ráða, i Madrid. Báðir neituðu þeir þess- um ákærum en samkvæmt op- inberum tilkynningum frá her- réttinum viðurkenndu þeir að hafa ílutt plastsprengjur og annað þess háttar frá Frakklandi til Spánar. Ennfremur viður- kenndu þeir að þeir væru með- limir í Frelsishreyfingu æsk- unnar (Juventudes Libertarias) sem bækistöðvar hefur í Frakk- landi. Þeir félagar munu hafa játað á sig eprengjuárásir er þeir voru handteknir ■ en lýst því^síðan yfir í réttinum að sú iátning væri uppspuni. Kváðust þeir hafa játað til að bjarga lífi annarra manna. Sér ekki á svörtu I gær var spænska ríkisstjóm- in kölluð saman til aukafundar til þess að ræða málið, en stjórn- in verður að staðfesta dauða- dóma sem herrétturinn kveður upp. Vitað er að nokkur ágrein- ingur var í stjóminni vegna morðsins á Julian Garcia Grim- au, nokkrir hinna yngri falang- ista voru því mótfallnir að hann yrði drepinn. í þetta sinn sem endranær höfðu þó þeir sitt mál fram sem telja að fasista- stjómina muni ekki um nokkra blóðbletti til viðbótar og gera sér grein fyrir því að það sér ekki á svörtu Sunnudagur 18. ágúst 1963 — 28. árgangur — 174. tölublað. Grein um doktorsrít Bjarna Guðnasonar Á 7. síðu blaðsins í dag ritar Gunnar Benediktsson rithöfund- ur um doktorsrit próf. Bjama Guðnasonar: Um Skjöldungasögu. Hvað kostar að iifr á íslandi í dag ? Fróðleg grein um það efni er birt á 3. síðu blaðsins í dag og ættu lesendur ekki -að láta hana framhjá sér fara. Enn beitir ríkisstjórnin gerðardómi í k jaradeilu! » / * í

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.