Þjóðviljinn - 23.08.1963, Page 3
Föstudagur 23. ágúst 1963
HðÐVIUIHN
SI0A *
fj
Ofsóknir magnast í Suður-Víetnam
Einræíisstjórnin mun draga
húddistana fyrir herrétt
SAIGON 22/8 — Ríkisstjómin í Suður-Vietnam
birti í dag yfirlýsingu þar sem segir að munkar
þeir og nunnur úr hópi búddatrúarmanna sem
tekið hafi þátt í samsæri gegn öryggi ríkisins
verði dregin fyrir herrétt. Herma fréttir að utan-
ríkisráðherra landsins, Vu Van Mau, hafi sagt af
sér til þess að mótmæla trúarbragðaofsóknunum.
Sendiherra Suður-Víetnam í
Washington, Tran Van Chuong,
sagði í dag af sér stöðu siinni.
Hann sagði blaðamönum að
hann vildi ekki lengur vera full-
trúi stjórnar sem ekki tæki til-
lit til ráðlegginga hans. Hann
lagðii áherzlu á að hann væri
andvígur stefnu stjórnar Diems
einræðisherra í trúmálum. Tran
Van Choung er faðir frú Ngo
Dính Nhu, mágkona einræðis-
herrans, en margir telja að hún
sé potturinn og pannan í trú-
arofsóknum valdhafanna.
1000 handteknir
Fregnir herma að herinn í
Suður-Víetnaim hafi í nótt hand-
tekið fjölmarga stjómmálamenn,
menntamenn og menn sem hlið-
hollir eru taldir búddistum. 1
gær lýsti Diem yfir herlög-
um í landinu.
Ferðamaður sem í dag kom
til Hongkong frá Saigon full-
yrðir að fjórir munkar hafi ver-
ið drepnir og 16 særðir þegar
herinn réðist á Xa Loi-hofið í
gær. í árásinni á aðalhofið í
borginni Hue særðust 25 menn
þar á meðal fimm stjómarher-
menn. Meira en 1000 menn voru
handteknir.
Frú Ngo Dinh Nhu, hin hataða
mágkona Diems einræðisherra,
„Valdarán“
Bróðir Diems einræðisherra,
Ngo Dinh Nhu, sakaði í dag
búddatrúarmennina um að hafa
ráðgert að hrifsa völdin í land-
inu. Sagði hann að ríkisstjórnin
hefði sýnt þeim mikinn velvilja
en þeir launað með því að gera
hofin að miðstövum fyrir sam-
særi og áróður gegn stjórninni.
Sagði Nhu að búddistar hefði
safnað saiman vopnum í hofun-
um og skráð þar liðsmenn til
þess að hrifsa völdin
Fundur í Bankok
Forsætisráðherra Thailands,
Sharit Tanarat, gat um það í
dag að bráðlega myndu full-
trúar frá öllum búddatrúar-
löndum koma saman í Bank-
ok til þess að ræða um ástand-
ið í Suður-Vietnam. Banda-
ríkjamenn sem starfamdi eru
í landinu munu nú mjög ugg-
andi vegna trúarbragðaofsókna
Diems o.g telja að hætt sé við
því að með þeim fari skjól-
stæðingur þeirra sér að voða.
Yfirlýsing frá Róm
Málgagn páfastólsins' í Róm,
Observatore Romano, sagði í
dag að rómversk-kaþólska kirkj-
an harmaði og fordæmdi allar
ofbeldisaðgerðir, hver svo sem
fremdi þær. Hélt blaffiið því
fram að atburðirnir í Suður-
Vietnam væru pólitísks eðlis en
ekki trúarlegs. Blaðið sagði að
kirkjan hefði gert og myndi
gera tilraun til að miðla mál-
um.
Til þessa hefur Diem einræðisherra látið sér nægja að murka lífið úr skæruliðum þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar og hafa Bandarikjamenn stutt hann við þá iðju af ráðum og dáð. Nú hefur Diem
einnig snúið sinum bandarísku vopnum gegn Búddatrúarmönnum og kannski bíða einhverra
svipuð örlög og skæruliðanna á myndinni.
T
Lestarránið mikSa
al um heim allan
LONDON 22/8 — Aðeins þrem-
ur klukkustundum eftir að Scot-
land Yard lýsti eftir’ þremur
mönnum sem grunaðir eru um
að vera viðriðnir lestarránið
mikla við Cheddington var einn
þeirra færður á lögrcglustöð í
London og teklinn til yfirheyrslu.
Maður þessi er bóksali að at-
vinnu og heitir Charles Wilson
og fannst í London. Lögreglan
hefur sent myndir og lýsingar af
mönnunum þremur til allra
landa heims og var það gert
skömmu eftir að handtekin
Öll vinna viS
Álaborgarhöfn
liggur niBri
ÁLABORG 22/8 — Öll vinna við
höfnina í Alaborg hefur legið
niðri frá því um hádegi í dag
vegna deilu varðandi sænska
skipið Hallaren sem liggur I
höfninni með farm af suður-
afrískum varningi.
Hafnarstjórnin fór í morgun
'ram á að 15 menn yrðu valdir
il að afferma skipið. Verka-
nennirnir neituðu. Var þá hafn-
.rskrifstofunum lokað en verka-
mennimir svöruðu með bví að
eggja niður alla vinnu.
Búizt er við því að fulltrúar
danskra vinnuveitenda og al-
býðusambandsins muni ræða
hafði verið „dularfull ljóshærð
stúlka", Mary Manson að nafni
Henni er gefið að sök að hún
hefði tekið á móti og notað 835
pund (um 100 þús. ísl. krónur)
af hinu stolna fé. Það var ung-
frú Manson sem hafði keypt
Austin Healy-bílinn sem fannst
í nánd við flugvöllinn í Lond-
on á sunnudaginn. Hún hafði
greitt bflinn með fimm punda
seðlum. Ungfrú Manson verður
dregin fyrir rétt á laugardag.
Lögreglan í London skýrði frá
því í dag að fundizt hefði tals-
vert af fimm punda seðlum í
ferðatösku á Marylebon-jám-
brautarstöðinni. Gert er ráð fyr-
ir að taskan tilheyri manni sem
fannst dauður á jámbrautartein-
unum í nánd við Stratford-on-
Avon í gær. Telur lögreglan að
maður þessi hafi fallið úr lest-
inni fyrir slysni og að seðlarnir
í töslcunni sóu hluti af þýfinu.
Póstlestin frá Vestur-Englandi
kom í dag til London og voru
15 lögreglumenn um borð. Ein-
hvér hafði hringt til lögreglunn-
ar án þess að segja til nafns
og tilkynnt að ráðist yrði á lest-
ina. Ekkert gerðist þó á leið-
inni.
Öryggisráðið
munræða um
deilu Ssraels
« og Sýrlands
NEW YORK og TEL AVIV 22/8
— Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur verið kallað saman
á fund annað kvöld fil þess að
ræða landamæradeilu Israels og
Sýrlands. Er gert ráð fyrir að
þá muni fulltrúar beggja rik,i-
anna leggja fram gögn mál sínu
til stuðnings. •
1 Tel Aviv hefur verið skýrt
frá því að Levi Eskol forsætis-
ráðherra muni á mánudaginn
halda ræðu um deilumar á auka-
þingfundi.
Málsvari Sameinuðu þjóðanna
í Jerúsalem hefur skýrt frá því
að verið sé að semja skýrslu um
árekstrana við landamæri Sýr-
lands og Israels og yrði hún send
öryggisráðinu. Yfirmaður vopna-
hlésnefndar Sameinuðu þjóðanna
í Mið-Austurlöndum, Bull hers-
höfðingi, ræddi í dag við fulltrúa
Israelsstjómar en í gær átti hann
viðræður um ástandið við sýr-
lenzka forsætisráðherrann Salah
Bitar í Damaskus.
Síðastliðin sólarhring hefur
verið tiltölulega rólegt við landa-
vinnustöðvunina
"i'.ndl á morgun.
í Álaborg á
Vilja alþjóilegan
grióasáttmála
GENF 22/8. — Fulltrúar Italíu
og Brasilíu á afvopnunarráð-
stefnunnl í Genf mæltu í dag
eindregið með því að gerður yrði
alþjóðlegur griðasáttmálii sem
ekld yrði takmarkaður eingöngu
við NATÓ og Varsjárbandalágs-
ríkin.
Áð undanfömu hafa Sovétrík-
in komið fram með tillögu um
griðasáttmála milii NATÓ-ríkj-
anna annarsvegar og Varsjár-
bandalagsins hinsvegar en vest-
urveldin hafa ekki fengist. til
að ræða þá hugmynd, að því
að talið er vegna þess að Aust-
ur-Þýzkaland er aðili að Var-
sjárbandalaginu.
ítalski fulltrúinn í Genf,
Francesco Cavaletti, sagði í
ræðu sinni að ófriðarhættan
væri ekki einungis til staðar í
Evrópu heldur einnig meðal
landa sem ekki væru aðilar að
hann að Sameinuðu þjóðimar
ættu að hafa á héndi forgöngu
um alþjþðlegan griðasáttmála.
Cavaletti kvaðst ennfremur á-
líta að erfitt myndi reynast
austur- og vesturveldunum að
••x •••'.. - • ' • •• .' ' '■■•
komast að samkomulagi um
fjölda eftiriitsstöðva á hvors
annars yfirráðasvæði.
Fulitrúi Brasilíu, Josue de
Castro, tók í sama streng og
sagði að alþjóðlegur griðasátt-
máli sem öll ríki heims gætu
gerzt aðilar að myndi draga
verulega úr stríðshættunni.
Sænski fulitrúinn, frú Alfa
Myrdal, sagði að afvopnunarráð-
stefnan ætti að taka tii með-
ferðar ársgamla tillögu frá Bret-
um um að rannsaka á hvern
hátt væri unnt að takmarka
framleiðslu á hráefnum sem
notuð eru við smíði kjarna-
vopna og hafa eftirlit með þeim
Einbeittir
verkfallsmenn
á Spáni
OVIEDO 22/8 — Spænska stjórn-
in fyrirskipaði í gær að fjórum
kolanámum í Asturias-héraði
skyldi lokað aftur þar sem aðeins
lítill hluti námumannanna hafði
snúið aftur til vinnu. Námumar
voru opnaðar á máudaginn eftir
12 daga vinnustöðvun. Frétta-
mönnum í Oviedo ber saman um
að þetta sé áfall fyrir stefnu
stjórnarinnar og að talsverðar
líkur séu til þess að verkfall
námumannanna breiðist enn f erk-
ar út í héraðinu.
neinu hemaðarbandalagi. Sagði birgðum sem nú eru til staðar.
Síldarsöltun
Framhald af 1. síðn.
meira en nokkru sinni fyrr og
samningar stærri.
Eins og kunnugt er hefur Seyð-
isfjörður nú tekið forystuna, sem
síldarbær bæði hvað söltun og
bræðslu snertir og yfirleitt má
segja að í sumar hafi allstaðar
verið nóg síld — nema fyrir
norðan!
100 metra í
jorðu mðri
HAZLETON, Pennsylvaníu 22/8
— I dag reyndu björgunarmenn
í þriðja sinn að bora göng niður
til þriggja námumanna sem lok-
aðir cru inni í göngum 100
metra niðri í jörðinni I námu
einni í Hazleton í Pennsylvaníu.
Hinar borholurnar tvær, sem eru
30 sentimetra í þvermál, hittu
ekki á göngin.
Einn námumannanna er í hlið-
argöngum um sjö metra frá hin-
um tveimur og eru göngin á milli
þeirra lokuð. Frá honum hefur
ekki heyrzt síðan á þriðjudags-
kvöld og er þvi óvíst hvemig á-
statt er fyrir honum.
Hinir tveir eru hughraustir enn
sem fyrr. 1 nótt hrópuðu þeir upp
til björgunarmannanna: Gefið
ykkur nægan tíma. Við höfum
verið hér niðri í nokkra daga og
fáeinar klukkustundir til eða frá
skipta ekki ináli.
Krústjoff í Belgrad:
Næsta strfð yrði
síðasta stríðið
BELGRAD 22/8 — Nikita Krú-
stjoff, forsætisráðhcrra Sovétrikj-
anna. er nú staddur í opinberri
heimsókn í Júgóslavíu. 1 dag
hélt hann ræðu í Belgrad og
sagði meðal annars að Sovétríkin
og Júgóslavía hefðu orðið fyrir
miklum þjáningum í styrjöldum
og ynnu því bæði ríkin eindregið
og markvisst að því að tryggja
friðinn. Til þess hefðu þau full-
tingi allra hugsandi manna.
Ef hinsvegar heimsvaldaáinnar
legðu út í nýja styrjöld yrði það
síðasta stríðið sem þeir fengju
tækifæri til að koma af stað
þar sem allar friðelskandi þjóðir
með Sovétríkin í broddi fylkingar
myndu taka á móti.
Aðvörun
Fréttamönnum í Belgrad ber
saman um að þessi ræða hafi
verið ný aðvörun til allra þjóða
um að forðast kjamorikustríð
jafnfeamt því sem Krústjoff tók
skýrt fram að í=wétríkin myndu
+ú slíks
Vantraust á
Nehru fellt
NEW DELHI 22/8 — Neðri d,eild
indverska þingsins felldi í dag
með yfirgnæfandi meirihluta, 346
atkvæðum gegn 61, vantraust-
tillöguna á stjórn Nehrus. AUir
stjórnarandstöðuflokkamir nema
kommúnistar stóðu að tillögunni.
Einn af elztu leiðtogum ind-
verska sósíalistaflokksins1, sem
raunar er afturhaldsflokkur, Ram
Monahar Lohia, sagði í umræð-
unum í gær að stjóm Nehrus
væri þjóðarskömm og krafðist
þess að forsætisráðherrann segði
af sér. Mun Nehru aldrei hafa
orðið fyrir svo hörðum árásum
og þeim sem fram komu í ræðu
Lohias.
stríðs kæmi.
Tító forseti sagði í svarræðu
sinni að stórveldin ættu að kom-
ast að samkomulagi um að eyða
öllum sínum kjamavopnum og
banna frekari framleiðslu slíkra
gjöreyðingatækja, ekki sízt vegna
þess að einstakur brjálaður mað-
ur gæti fundið upp á að beita
þeim og þar með hrynt veröld-
inni fram af hengifluginu. Tító
gat um deilumar milli Kína og
Sovétríkjanna og sagði að Júgó-
slavía myndi ekki láta undan
þeim öflum sem reyndu cð
sundra alþjóðlegu verkalýðs-
hreyfingunni í eiginhagsmuna-
skyni.
Heimsóttu Skoplje
Krústjoff og Tító heimsóttu í
dag jarðskjálftaborgina Skoplje í
Makedoníu og vom ákaft hylltir
af íbúum þeim sem eftir eru
í barginni. Krústjoff og Tító
ræddu við sovézka verkfræðinga
sem taka þátt í björgunarstarf-
tntí og yfirvöWin í Makedoníu.
„Krústioff
bandamaður
Nehrus"
PEKING 28/8 — Alþýðudagblað-
ið, málgagn kínverska kommún-
istaflokksins. heldur í dag upp-
teknum hætti og fer hörðum
orðum um Krústjoff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna. Blaðið seg-
ir að síðastliðin fjögur ár hafi
Krústjoff ævinlega stutt Indverja
í landamæradeilum þcirra viö
Kínvcrja.
Blaðið segir að með hemaðar-
aðstoð sinni við Indverja hafi
Sovétríkin svarizt í fóstbræðra-
lag með heimsvaldasinnum til
höfuðs Kína ,og fullyrðir að í fyrra
haust hafi indverski herinn beitt
sovézkum.vopnum gegn Kínverj-
um.
I
1