Þjóðviljinn - 23.08.1963, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 23.08.1963, Blaðsíða 10
^prenging í miðstöðvarkatli A tólfta tímanum í gærmorgun varð ketil- sprenging í miðstöðvar- katli í sambýlishúsi í Ljósheimum 8—12 A. Sprengingin var ekki mikil, en þó þeyttist lok miðstöðvarketilsins fram á gólf en lítill elduiWarð af sprengingunni. Slök'kviliði var þegar kvatt á vettvang og réð það þegar nið- urlögum eldsins. Miðstöðin í húsi þessu er sjálf- virk og slekkúr hún á sér, þeg- ar komið er á visst hitastig, en kveikir aftur, þegar hitinn fer niður fyrir visst lágmark. Taiið er að sprengingin hafi orð- ið með þeim hætti að óhreinindi hafi safnazt í ketilinn og því íiafi ekki lokazt nægilega fyrir olíurennsli, meðan ketillinn var ekki í gangi. Hafi af þeim sök- um myndazt gas í katlinum og sprenging orðið þegar hann kveikti svo á sér aftur. Skemmdir urðu litlar af sprengingu þessari. Tvö innbrot í gærmorgun I gærmorgun voru framin tvö minhiháttar innbrot hér í borg. Brotizt var inn í kjallaraíbúð á Víðimel 36 og stolið þaðan um 1000 krónum í peningum. I>á var einnig framið innbrot í félagsheimili KR við Kapla- skjólsveg og hafði þjófurinn á brott með sér sælgætú að and- virði um 1000 krónur. Myndin er tckin síðdeglis í gær við sambýlishús ið Ljósheima 8—12. Neglt hefur verið fyrir glugg- ann, þar sem ketilsprengingitt varð, en rúðurnar brotnuðu við sprenginguna. (Ljósm. Þjóð G. O.). Norræna sundkeppnin Akureyringar hæstir innan- lands með um 18% jiátttcku Norrænu sundkeppn-1 ember næst komandi. inni lýkur eins og kunn- Þátttaka hefur verið ugt er hinn 15. sept- j nokkuð góð í stærstu I ur vöitum fótum Sannorð lýsing Vísis á afleiðingum gengis- fellinga viðreisnarstjórnarinnar. f fyrradag skrifaði fjár- málaráðherra Gunnar Thor- oddsen grein í einkamálgagn sitt Vísi, og lýsir hann þar þungum áhyggjum vegna á- standsins á efnahagsmálun- um. Segir ráðherrann að fyr- irsjáanlegur sé óhagstæður viðskiptajöfnuður við útlönd á þessu ári, og verði þvi sýni- lega að leita nýrra úrræða til þess að halda „viðreisn- inni“ gangandi. Er því sýni- legt að ekkert minna en stöð- ugt góðæri nægir til þess að hindra, að þetta marglofaða kerfi stjórnarflokkanna koll- sigli sig. Ekki getur fjármálæ ráðherra þess til hvaða ráða ríkisstjórnin hyggst nú grípa, en tekur þó fram að nú verði umfram allt að forðast nýja gengisfellingu. Ber vissulega að fagna þeirri yfirlýsingu frá þessum methafa í gengis- fellingu islenzku krónunnar. Vísir tekur síðan í gær undir kveinstafi húsbónda síns, og er einkum umhug- að að uppmála þá skelfilegu ráðstöfun, sem gengisfelling nefnist. Eftir að hafa lýst þvi rækilega fyrir lesendum sínum, hvílíkt böl það sé að íþyngja mönnum æeð nýjum sköttum og öðru slíku farg- ani til þess „að halda at- vinnuvegunum gangandi". snýr leiðarahöfundur blaðs- ins sér að því að lýsa bv’ sem eerist begar genvi unnar k^rnst SVO að Or*?* Wítt ooyílnri'ir ræðið °r Af nv' höfum við fslendingar sára reynsfu, verri en nokkur önn- ur þjóð Evrópu. Gengisfell- ing er að vísu ekki annað en viðurkenning á þeim vand- kvæðum, sem þegar hafa skapazt. En það er mann- dómsverk að hindra að út í slikar ógöngur þurfi nokkurn höfum búið við frá því að viðreisnin hófst. Allar efna- hagsaðgerðir ríkisstjórnarinn- ar hafa byggzt á gengisfell- ingum og auknu dýrtíðarflóði. Það er því engu líkara en rit- stjóri Vísis sé að hirta hús- bónda sinn, ekki sízt, þegar hann undir lok íeiðarans herðir enn á og segir: „bf lengi hafa kjarabæturnar fuðrað upp í eldi nýrrar verðbólgu, eldi nýrrar geng- islækkunar“ Niðurstöðurnar sem dregn- ar verða af leiðara Vísis í gær eru því í stuttu máli þessar: Núverandi ríkisstjórn hefur tvívegis fellt gengi is- lenzku krónunnar (e.t.v. af manndómsleysi!), og hafa fs- lendingar vissulega fengið af því sárari reynslu en „nokk- ur önnur Evrópuþjóð“. Þess- ar ráðstafanir ríkisstjórnar- innar hafa eytt sparifé þjóð- arinnar, þær hafa eytt lífeyri gamla fólksins, þær hafa ,,heiðrað“ skuldunautana os þær hafa rýrt fjármálaálit þjóðarinnar. Og loks hefur ríkisstjórnin með þessum að- gerðum jafnan eyðilagt kjarabætur vinnandi stétta á „eldi nýrrar gengislækkun- ar“. Föstudagur 23. ágúst 1963 28. árgangur — 178. tölublad. Hlaut slæma byltu og meiddist á fæti Á miðvikudagskvöldið varð það slys við höfnina í Reykjavík, að maður féll af dráttarvagni og hlaut hann allmikil meiðsli. kaupstöðum landsins, samkvæmt upplýsing- um, sem framkvæmda- nefnd keppninnar hér á landi hefur sent frá sér. Eru Akureyringar hlut- skarpastir og hefur tæp- lega fimmti hver bæjar- búi á Akureyri nú lokið sundinu. Eins og áður eru það þrír íjölmennjistu staðimir á landinu, Reyk’javík, Akureyri og Hafnar- fjörður, sem berjast um foryst- una innbyrðis og er þátttakan á þessum stöðum sem hér segir: Akureyri 1,684 eða 18% (2.094) Hafnarfjörður 1.270 eða 17% (1.445) Reykjavík 9.790 eða 13% (12.778) Tölumar í svigum sýna þátt- töku viðkomandi staða í síð- ustu keppni. Sala sundmerkis- ins hefur gengið vel og ættu þátttakendur ekki að draga að kaupa merkið, þar sem upplag þess er takmarkað, en allur hagnaður af sölu þess rennur til stýrktar Sundsambands Is- Framhald á 2. síðu. Samkvæmt upplýsingum, sem Þjóðviljinn aflaði sér hjá lög- reglunni í gær vom atvik slyss- ins þau, að maður þessi, Jón- mundur Einarsson, var að ganga frá steypustyrktarjámi á drátt- arvagn. Var hann aftast á vagn- inum og skreið járnið til og út af vagninum. Við það missti Jónmundur fótanna og féll af vagninum en um leið klemmd- ist ánnar fótur hans milli jáms- ins og dráttarvagnsins. Jónmundur var fluttur á Slysavarðstofuna og voru meiðsli hans rannsökuð þar en hann mun hafa laskazt nokkuð á fæti. Læknar telja þó að ekki sé um brot að ræða, en hins vegar hafi kvamazt úr beini. SamiS um smíði sex gerfihnatta WASHINGTON 22/8 — Um þessar mundir er bandaríska geimrannsóknastjórnin að semja við General Electric Company um smíði sex gerfihnatta. Verða þeir smíðaðir með það fyrir aug- um að hafa um borð plöntur, apa og önnur dýr, Ætlunin er að þeir verði á lofti í allt að mánaðartíma. Bolivía yfir- gefur OAS WASHINGTON 22/8 — Bolivía hefur ákveðið að hætta allri þátttöku í starfi Sambauds Ameríkuríkja (OAS) og hefur kallað heim alla fulltrúa sína í hinum ýmsu stofnunum sam- bandsins. Frá þessu skýrði fram- kvæmdastjóri sambandsins í dag. Fulltrúar Bolivíu gengu af fundi OAS-ráðsins í júnímánuði síðastliðnum og lýstu því yfir að sambandið hefði brugðizt skyldu sinni varðandi lausn á deilu Boli- víu og Chile um réttindi ríkjanna á Lauce-fljóti. Eftir brottför Boliviu eru sam- bandsríkin aðeins 19 að tölu og hafa þau ekki verið færri frá því sambandið var stofnað árið 1948. Maðurinn liggur enn á Slysa- varðstofunni, og er líðan hans eftir atvikum. Skégræktar- menn þinga á Akureyri Skógræktarmenn landsins sátu fyrir nokkru á þingi á Akureyri, en þár var háður aðalfundur Skógræktarfélags Islands að þessu sinni. Á 7. síðu blaðs- ins i dag er birt grein nm þingið eftir Sigurð Blöndal skðgarvörð á Hallormsstað. Myndin hér að ofan er frá þinginu, og er hún. af Katli Indriðasyni, bónda á Aðalbóli. Ská/aferð Farið verður í skála ÆFR á morgun, laugardag. Lagt verður af stað ldukkan 4 e.h. frá Tjarnargötu 20. Kvöldvaka kvöldið. Þátttaka skrifstofuna, verður um tilkynnist i sími 17513. Yfirvofandi verkföll far- .... eyðir sparifé þjóðarinnar .... eyðir lífeyri gamla fólksins .... rýrir álit þjóðarinnar út á við tíma að fara. Gengisfelling eyðir ekki einungis sparifé þjóðarinnar og lífeyri gamals fólks og heiðrar skuldunaut- ana, heldur rýrir hún fjár- málaálit þjóðarinnar mjög út á við“. Þaninig hrekkur loks upp úr Vísi viðurkenning á því, hvers konar stjórnarfar við Nú eru þetta að vísu sany- indi, sem hverju mannsbarni í landlnu eru löngu kunn. En málgögn stjórnarinnar hafa hins vegar jafnan haldið fram hinu öndverða. Leiðari Vísis ber þess hins vegar glöggt vitni, að ritstjórar stjórnarblaðanna vita betur, enda kemur aukin dýrtíð að sjálfsögðu niður á þeim eins og öðrum. Leiðarahöfundur Vísis gleymir því einungis. að i hinum ágæta leiðara sín- um í gær um afleiðingar genglsfelllnga fyrir þjóðina. er hann að lýsa þeim verk- um, sem verið bafa ær og kýr núverandi ríkisstjórnar. ; manna og á togaraflotanum Um mánaðamótin næstkomandi hefst verkfall yfirmanna á togur- um og yfirmanna og undirmanna á farskipum, hafi samninuar ekki tekizt fyrir þann tíma. Það eru Sjómannafélag Revkiavíkur og Farmanna- og Fiskimannasamband fslands, sem verkfallið boða. Þjóðviljinn átti í gær stutt samtal við Guðmund Jensson, hjá Farmanna- og Fiskimannasambandi lslands Sagðist honum svo frá, að ef ekki náist samningar hefjist verkfall yfirmanna á togurum 28. þ.m. klukkan 24, en verkfall yfirmanna og undirmanna á far- skipum hinn 31. Ekki vildi hann láta uppi, hverjar væru hnlztu kaupkröfur farmanna. Sáttafundur var haldinn í gærkvöld kl. Sálf níu. Annar fundur verður ^-»ih*s»ðílnrn r <!Rmp tím.R í kvöld. Sáttafundinum var ekki lokið í gær, þegar blaðið fór í prentun. 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.