Þjóðviljinn - 24.08.1963, Blaðsíða 1
*■ •::••• ••••'. v-
•ff.AjX', * s;
y } f V . ,
stærsta þjófnað hér á landi
Þá játaði pilturinn éinnig á
sig að hafa stolið tveim kvik-
myndatökuvélum úr glugga
Gevafoto við Lækjartorg, að
verðmæti um 100 þús. kr. og
loks að hafa stolið dýrum de-
mantshring úr sýningarglugga
Guðmundar Þorsteinssonar í
Bankastræti 11.
Pilturinn telur sig ekki hafa
fargað neinu' af þýfinu. Er
Framhald á 2. síðu.
„íslendingar hljóta að neita því að
verða fyrstu fórnarlömb kjarnorku-
styrjaldar fyrir tilstilli eigin stjórnar."
■ Miðnefnd Samtaka hemámsandstæðinga hef-
ur samþykkt öflug mótmæli gegn hinum fyrir-
hugaða samningi ríkisstjórnarinnar um aukið her-
nám landsins með því að leyfa Atlanzhafsbanda-
laginu að koma sér upp skipalagi fyrir herskip
og kjarnorkukafbáta í Hvalfirði.
■ Samtökin skora á þjóðina að rísa svo kröft-
uglega gegn þessum fyrirætlunum að afstýrt verði
þeirri geigvænlegu hættu, sem af slíkum fram-
kvæmdum myndu hljótast fyrir íslenzku' þjóðina.
Átján ára pilturjátará sig
Myndin er tekin við upphaf Hvalfjarðargöngunnar í fyrra.
18 ára gamall piltur til heimilis hér í Reykja-
vík játaði á sig í gær að hafa brotizt inn í Verzl-
un Jóns Sigmundssonar að Laugavegi 8 í byrjun
þessa mánaðar en þaðan var stolið úrum og $kart-
gripum fyrir á fjórða hundrað þúsund króna. Er
þetta mesti þjófnaður sem fraríiinn hefur verið í
innbroti hér á landi. Þá játaði sami piltur einnig
á sig tvö önnur innbrot svo og ávísanafals.
í gærmorgun játaði hann að
hafa sjálfur framið innbrotið og
benti á hvar þýfið væri geymt.
Var það falið undir trégólfi í
herbergi hans en línóleumdúkur
var ofan á gólfinu.
Nokkrum af notuðu úrunum
taldi pilturinn sig hafa kastað
í gjá austur á Þingvöllum. Vís-
aði hann á staðinn og fundust
þau þar. Reyndust þau 20 að
tölu.
Samþykkt Samtaka hernáms-
mdstæðinga var í gær send öll-
'im blöðum og útvarpi til birt-
ingar og fer hún hér á eftir:
„Tilkynning ríkisstjómarinnar
um, að hún hafi ákveðið að
heimila yfirherstjóm NATÓ að
hefja undirbúning að því að
sera Hvalfjörð að herskipalægi,
'■'lýtur að valda öllum fslending-
’m, sem hugsa um framtíð lands
7 þjóðar þungum áhyggjum.
"teynt að stinga þjóð-
ina svefnþomi
Þótt reynt sé að láta líta svo
jt, að fyrst og fremst sé um
að ræða stækkun olíustöðvarinn-
ar í firðinum, getur engum dul-
i7.t, að meira býr undir en
"íeymsla á eldsneyti fyrir her-
skipaílota NATÓ á norðurhöf-
im. Það sést bezt á yfirlýsingu
’tanríkisráðherra, að koma eigi
'yrir í firðinum legufærum fyrir
'iverskonar herskip. Ríkisstjórn-
;nni er sjálfri ljóst, hve alvar-
'egt skref hér er stigið, ella
reyndi hún ckki að róa fólk
með Því, að færanlegir hlutar
legufæranna verði geymdir *
landl og sérstakt leyfi íslenzkrs
stjórnarvalda þurfi til að nota
þá. Hvaða þörf er á slikum var-
úðarráðstöfuntun, ef allt er með
felldu?
Minnugir atburðarásarinnar
frá 1946, þegar allir stjórnmála-
flokkar hétu þjóðinni því, að her-
stöðvar yrðu aldrei leyfðar á ís-
lenzkri grund og staðið af festu
gegn hverskonar erlendri ásælni,
horfa íslendingar fram í tímann
með ugg og kvíða. Það er stað-
reynd, sem enginn mælir á móti,
að fyrst Bandaríkin og síðan
hernaðarbandalagið, sem þau
hafa forustu fyrir, hafa hvað
eftir annað leitað ákaft eftir að
fá að koma sér upp í Hvalfirði
flotastöð af öflugustu og um-
Framhald á 2. síðu.
Rannsóknarlögreglan skýrði
fréttamönnum í gær frá rann-
sók þessa máls og játningu pilts-
ins er sú frásögn hér á eftir.
I fyrradag síðdegis tók lögregl-
an fastan mann sem síðustu
daga hafði gefið út allmikið af
ávísunum á bankareikning sem
hann hafði opnað út á falskt
nafn með 2000 króna innstæðu
í Búnaðarbankanum. Hafði pilt-
urinn gengið í verzlanir síð-
ustu 2—3 daga og keypt sér
ýmislegt sem hann greiddi með
ávísunum á bankareikninginn,
en jafnan munu ávísanirnar
hafa hljóðað upp á hærri upp-
hæð en hann keypti fyrir, þann-
ig að hann fékk peninga til
baka.
Stúlka sem vinnur í einni
þessara verzlana þar sem pilt-
urinn hafði gert innkaupin
þekkti hann aftur á götu í
fyrradag og ungur maður sem
vinnur í sömu verzlun og stúlkan
greip piltinn og kom honum í
hendur lögreglunnar.
Við rannsókn á máli piltsins
í fyrradag kom fram atriði sem
gaf grun um að hann hefði ver-
ið viðriðinn innbrotið í verzlun
Jóns Sigmundssonar, en rann-
sóknarlögreglan hefur mikið
unnið í því máli undanfarið. Var
gerð húsleit heima hjá piltinum
og fundust þar 8 úr er reyndust
vera stolin úr verzluninni.
Við yfirheyrslur í fyrrakvöld
neitaði pilturinn að hafa framið
innbrotið en sagðist hafa keypt
úrin af óþekktum sjómanni, en
40 þús. kr. stolið
úr peningakassa
Milli kl. 3 ogf 4 síðdeg-
is í gær var um 40 þús-
und krónum í peningum
stolið úr peningakassa
er lá á afgreiðsluborði
gjaldkera Kveldúlfs. —
Hafði hann brugðið sér
ÞÝFIÐ
Hér sést megnið af
þýfinu, úr, skart-
gripir, kvikmynda-
tökuvélar o.fl. ___
Verðmæti þess sem
er á borðinu mun
vera á fjórða hundr-
að þúsund króna. —
(Ljm. Þjóðy. G.O.).
frá inn á aðalskrifstof-
una en dyr að gjaldkera-
herberginu sem liggja
fram á stigagang voru
ólæstar.
Gjaldkerinn segist hafa sett
peningana í kassann um kl. 3
en um kl. 4 uppgötvaði hann
að þeir voru horfnir. Segist
hann hafa orðið var við það
er hann kom aftur inn í gjald-
keraherbergið úr aðalskrifstof-
unni að maður sem hann þekkti
ekki var að hverfa út úr dyr-
unum fram á ganginn. Segist
hann hafa séð manninn svo ó-
glöggt að hann geti enga grein
gert sér fyrir útliti hans.
Kassinn sem peningarnir voru
í stóð á borði í skrifstofunni
og var hann ólæstur.
Frá herstöðinni f HvalfirðL — (Ljósm. Þjóðv. G. O.).
Laugardagur 24. ágúst 1963 — 28. árgangur — 179. tölublað.
Enn sæmileg veiði eystra
Samkvæmt upplýsingum síld- þeirra samtals rösklega 18 und mál og tunnur. Er síldar-
arleitarinnar í gær fengu all- þúsund tunnum. aflinn í sumar þá kominn yf-
margir bátar sæmilegan afla ir 1 millj. mál og tunnur og
á miðunum fyrir Austurlandi Síldaraflinn í vikunni var í hafa nálega tveir fimmtu
fyrra sólarhring. Nam afli gær orðinn samtals 146 bús- hlutar hans farið í salt
MIÐNEFND SAMTAKA HERNÁMSANDSTÆÐINGA
Oflug mátmæli gegn Hvalfjarðarsamningn-
um það eina sem getur afstýrt því versta
v;