Þjóðviljinn - 08.10.1963, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 8. október 1963
WÓÐVILimN
SÍÐA
Verður borgarastríði forðað?
Fjandmenn Ben Bella hafa
öflugan her í Kabylíuf jöllum
ALGEIRSBORG 7/10 — Það virðist nú ljóst að andstæð-
Ingar Ben Bella í Kabylíu, sem lúta forustu þeirra Ait
Ahmed og E1 Hadj ofursta, hafa mikið lið undir vopn-
um. Þeir hafa flutt þúsundir hermanna upp í hin tor-
sóttu fjöll héraðsins og munu ætla að búast þar til varn-
ar, ef Ben Bella fæst ekki til að fallast á kröfur þeirra.
Er talið álitamál hvort hægt verði að forða borgarastríði,
enda þótt Ben Bella virðist staðráðinn í að beita ekki
vopnavaldi að fyrrabragði.
Ekki ber fréttum saman um
hve fjölmennt lið fylgir þeim
Aluned og E1 Hadj, í sumum
segir 7.000 manns, í öðrum
'15.000. Uppreisnarmenn hafa
komið fyrir tálmunum á öllum
vegum sem liggja til héraðsins
og virðast reiðubúnir að berj-
aist, ef hersveitir stjómar Ben
Bella gera sig líklegar til að
ryðja þeim úr vegi. Menn gera
sér vonir um að borgarastríði
verði forðað; uppreisnarmenn
eiga óhægt með að fara úr
stöðvum þeim í Kabylíufjöllum
þar sem þeir hafa búið um sig,
en erfitt myndi fyrir stjómar-
herinn að hrekja þá úr þeim.
Hver herbíllinn af öðram,
fullur af hermönnum, fór í dag
Enn ernn búddamunkur brennir sig
Bandaríkin draga mjög úr
efnahagsaðstoi við Diem
um Tizi Ouzou, höfuðborg Kab-
ylíu, Qg stefndi til fjalla.
Ait Ahmed ræddi í gær við
fréttamenn í setuliðsbænum
Micihelet hátt uppi í Kabylíu-
fjöllum. Hann sagði að upp-
reisnarmenn væru vel vopnum
búnir, hefðu líka stórskotalið,
og þeir myndu snúast til vam-
ar ef Ben Bella sendi her mans
til Kabylíu.
Hafnar tilboði
Ahmed ítrekaðl að hann hafn-
aði algerlega því boði Ben Bella
að haldið yrði þing Þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar (FLN) til að
ræða deilumálin og reyna að
finna sáttarlausn. Hann kvaðst
ekki reiðubúinn til samninga,
nema aflétt yrði banninu við
starfseoni samtaka hans FFS
(Fylking hinna sósialistísku
afla); og að látnir yrðu lausir
þeir samstarfsmenn og skoðana-
bræður hans sem handteknir
,hafa verið.
Ben Bella til Kabylíu_____
1 kvöld var tilkynnt í Algeirs-
borg að Ben Bélla myndi fara
til Kabylíu á morgun, þriðjudag.
Hann myndi leggja af stað ár-
degis og koma aftur til höfuð-
borgarinnar um kvöldið. Einn
ráðherra hans, Boumaza efna-
hagsmálaráðherra, ætlar einnig
til Tizi Ouzou á morgun og hef-
ur boðið fréttamönnum að verða
með í förinni.
Áður hafði verið skýrt frá því
í Algeirsborg að Ben Bella
myndi fara til New York að
sitja allsherjarfnng SÞ og þótti
það gefa tQ kynna að hann teldi
fullvíst að náðið yrði niðurlögum
uppreisnarinnar í Kabylíu.
Skipzt á skotum
Fréttamaður AFP segir að á
laugardagskvöld hafi verið
skipzt á skotum i Port Guedon
fyrir norðan Michelet og hafi
einn uppreisnarmaður særzt í
þeirri viðureign, en sex stjóm-
arhermenn verið teknir höndum.
SAIGON og WASHINGTON 7/10 — Enn einn búdda-
munkur brenndi sig lifandi á aðaltorginu í Saigon á
laugardag til að mótmæla ofsóknum stjórnar Diems á
hendur búddamönnum í Suður-Vietnam. Var þetta sjötti
munkurinn sem það gerir. Fréttaritari Reuters segir að
mjög hafi dregið úr efnahagsaðstoð Bandaríkjanna við
Diem upp á síðkastið og muni það gert í þeim tilgangi
að neyða hann til undirgefni.
Fréttameimimir segja að svo
virðist sem alveg hafi tekið fyr-
ir vöraflutriiTiga frá Bandaríkj-
uiium til Suður-Vietnams fyrir
bandarískt láns- og gjafafé.
Bandarískir emhættismenn í
Saigon kunna enga skýririgu að
gefa á þessu, segjast aðeins
hafa fengið að vita að verið sé
Þing IATA
horfið í Róm
RÓM 7/10 — AlþjóðafLugmála-
stofnynin (IATA) hóf í dag árs-
þing sitt í Róm. Þingið sitja 250
fulltrúar frá 92 flugfélögum í 70
löndum. Mörg mál era á dag-
skrá þingsins. en helzt þeirra
era verðlagningarmál og einnjg
má búast við að mikið verði
rætt um fyrirætlanir um smíði
nýrra hraðfleygra þotna, sem
fara eiga með tvö- eða þreföld-
um hraða hljóðsins.
að endurskoða alla efnahagsað-
stoðina við landið. f Washing-
ton er sagt að stjóm Diems hafi
þegar notað allt það fé sem
henmi stóð til ráðstöfunar í
Bandaríkjunum og hafi einnig
eytt þeim varasjóðum sem hún
gat leitað til þegar sérstaklega
stóð á.
Kunnugir telja engan vafa á
að Bandaríkjastjóm hafi ein-
mitt nú ákveðið að „endur-
skoða“ aðstoðina við Diem í
því skyni að neyða hann til að
láta að fyrirmælum hennar um
að hætta ofsóknunum á hend-
ur búddamönnum, sem eru í
miklum meirihluta í landinu.
Hún er orðin vondauf um að
riokkru sinni takist að vinna
sigur á skæruliðum Vietcongs,
meðan efnt er til illinda við
allan þorra þjóðarinnar.
Sendiherra Bandaríkjanna í
Saigon, Cabot Lodge, hefur
annars borið fram hörð mót-
mæli við stjóm Diems, vegna
þess að þremur bandarískum
blaðamönnum sem viðstaddir
voru þegar munkurinn brenndi
sig í Saigon á laugardag, var
misþyrmt af vietnömskum lög-
reglumönnum. Einn þeirra fékk
svo mikil sár að leggja varð
hann á spítala.
Rætt á allsherjarþingi
í kvöld áttu að hefjast um-
ræður á allsherjanþingi SÞ um
ástandið í Suður-Vietnam, en
það mál er tekið á dagskrá
þingsins samkvæmt kröfu full-
trúa frá sextán löndum i Asíu,
Afríku og rómönstou Ameriku.
Hin alræmda mágkona Di-
emis, frú Nhu, er nú stödd í
New York og ætlar að hlýða á
umræðumar. Hún neitaði því
í sjónvarpsviðtali í gær að
nokkur fótur væri fyrir fregn-
um af ofsóknum á hendur
búddamönnum, sem hún nefndi
óaldarmenn í þjónustu komm-
únista.
Ait Ahmed, myndin tekin um helgina í Michelet.
WASHINGTON 7/10 — Kenne-
dy Bandaríkjaforseti undirritaði
í dag Moskvusáttmálann um
takmarkað bann við kjama-
sprengingum.
Kínverji biður
um griðastað í
sovétsendiráði
TOKlO 7/10 — Fulltrúi í kin-
verskri iðnaðarsendinefnd sem
nú er stödd í Japan kom í sov-
ézka sendiráðið í Tokio í dag og
baðst þar hælis sem pólitískur
flóttamaður.
Þetta er 44 ára gamall vís-
indamaður að nafni Sjú Kang-
sjing. Hann hvarf í gær af
hótelherbergi sínu í Tokio.
Meðnefndarmenn hans spurðust
fyrir um hann í japanska utan-
rikisráðuneytinu í dag og var
þá skýrt frá því hvar hann væri
niður kominn.
Hundruð manna hafa farizt, uppskera eyðilögð
Fellibylurinn Flóra hefur valdið
gífurlegu tjóni á eyjum Karíbahafs
HAVANA 7/10 — Fellibylurinn Flóra sem geisað hefur
á Karíbahafi undanfarna daga hefur valdið gífurlegu
tjóni þar, hundruð manna hafa látið lífið, tugþúsundir
hafa misst heimili sín og t'jón á mannvirkjum og jarð-
argróðri verður vart metið. Mest hefur tjónið orðið á
Kúbu og Haiti.
Fellibylurinn gekk í dag f
þriðja sinn yfir austurhluta
Kúbu, en hafði þá í nokkrar
klukkustundir verið yfir Kar-
íbahafi.
40.000 fluttir brott
Frá Victoria de las Tunas á
Austur-Kúbu hafa þegar verið
flutt á brott 40.000 manns.
Hætta er talin á að flóðbylgjur
muni fylgja í kjölfar fellibyls-
ins. Birgðir matvæla og lyfja
era send með þyrlum og bátum
til staða sem einangraðir eru
vegna flóða af völdum látlausra
úrhellisrigninga í tvo sólar-
hringa.
Mlkið tjón á jarðargróðri
í austurhéruðum Kúbu hefur
fellihvlurinn valdið gífurlegu
tjóni bæði á mannvirkjum og
jarðargróðri. Formaður landbún-
aðarstofnunar Kúbu, Rodriguez,
sagði í dag að hætta væri á að
nær allar kaffi- og kakóekrur
hefðu eyðilagzt þar sem fellibyl-
urinn hefði farið yfir. Mikið
tjón hefði einnig orðið á hris-,
sykur-, banana og baðmull-
arekram.
Enda þótt fellibylurinn hafi
ekki gengið sjálfur yfir Jamaica
hafa rigningar þær sem honum
fylgdu valdið tjóni sem talið er
nema milljónum sterlingspunda.
Þar hefur nú mælzt mesta úr-
koma á þessari öld, 28 sentí-
metrar á 30 tímum. Svo mikill
vöxtur hefur hlaupið í fljót eyj-
arinnar að þau hafa skolað
burt húsum og öðrum mann-
Sinfóníuhljómsveit íslands,
Ríkisútvarpið
TÓNLBKAR
í Samkomusal háskólans, fimmtud. 10. okt. kl. 21.
Stjórnandi: Proinnsías O’Duinn
Einleikari: Ketill Ingólfsson
Einsöngvari: Guðmundur Guðjónsson.
EFNISSKRÁ:
Beethoven: Leonoru forleikur nr. 3
Páll ísólfsson; 5 sönglög
Weber: Konzertstuck fyrir píanó og hljómsveit,
op. 79
Dvorák: Sinfónía nr. 4, g-dúr, op. 88.
Aðgöngumiðar fást í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar, Austurstræti, og Bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri.
virkjum. Flætt hefur yfir víð-
lenda akra.
Það tókst að forða manntjóni
að mestu á Kúbu, en á Haiti er
talið að 400 manns a.m.k. hati
látið lífið í óveðrinu. Flóra gekk
yfir höfuðborgina Port-au-Prínce
og geisaði fárviðrið þar og í
bæjunum Jacmel og Petit Goave
í heilan sólarhring.
Vindhraðinn mældist allt að
50 sekúndumetrar, en „orkan“
nefnist á máli veðurfræðinnar
þegar hann er kominn upp í 29
sekúndumetra.
Parket
ir ■
Höfum ávallt fyrirliggjandi ýmsar gerðir af
viðarparketi
úr eik og beyki.
Nánari upplýsingar og sýnishorn á skrifstofu
okkar.
EGILL ÁRNASON
Slippfélagshúsinu — Símar 14310 og 20275.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS 10. fl. 1 á 200.000 kr. 1 á 100.000 kr. 36 á 10.000 kr. ... 200.000 kr. ... 100.000 kr. ... 360.000 kr.
Á fimmtudag verður dregið í 10. flokki. 130 á 5.000 kr. ... 650.000 kr.
1.250 vinningar að fjárhæð 2.410,000 krónur. Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja. 1.080 á 1.000 kr. Aukavinningar: 2 á 10.000 kr. .... 1.080.000 kr. .... 20.000 kr.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS 1.250 2.410.000 kr.
f