Þjóðviljinn - 22.01.1964, Side 3

Þjóðviljinn - 22.01.1964, Side 3
MiCvikuda"ur 22. janúar 1964 mwmnm SÍÐA 3 Strætisvagnar handa Kúhu Vinir Bandaríkjaima eru orðnir þeim harla óþægir og ekki lengur fúsir að láta þá segja sér fyrir verkum. De Gaulle fer sínu fram í afstöðunni til Kína og brezka stjórnin þverneitar að skipta sér af viðskiptum brezkra fyrirtækja við Kúbu, hvað sem líður viðskiptabanni Bandarikjanna. Nú síðast hefur það vakið mikla óánægju I Washington, svo að ekki sé meira sagt, að brezka fyrirtækið Beyiand Motors hefur samið við Kúbustjóm um sölu 400 almenningsvagna. Forstjóri fyrirtækis- ins hlær að ásökunum Bandaríkjamanna að með þessu séu Bretar aö stofna öryggi Bandaríkjanna Viðurkenning Frakka á Alþýðu-Kína Frðnsk og brezk blöð fagna ákvðriun de Gaulle forseta PARÍS 21/1 — Ákvörðun de Gaulle forseta að viður- kenna alþýðustjórnina í Peking og taka upp stjómmála- samband við hana hefur að sjálfsögðu hlotið misjafnar undirtektir. í Bandaríkjunum sætir de Gaulle harðri gagn- rýni, hins vegar eru frönsk og brezk blöð yfirleitt sam- mála um að fagna ákvörðun forsetans. Frönsku blöðin segja að hún sé „rökrétt" og ,,raunsæisleg“ og þau brezku eru á sama máli. „Le Figaro" bendir á að önn- ur ríki Atlanzbandalagsins hafi viðurkennt Kína og haft við það stjómmálasamband lengi án þess að Bandaríkin teldu ástæðu til að amast við því. Þessi ríki eru Bretland, Holland, Danmörk og Noregur. Bandaríkjastjóm hafi því enga ástæðu til að setja út á ákvörðun frönsku stjómarinn- ar að gera slíkt hið sama. „Cornbat" tekur mjög í sama streng og segir að viðurkenning Pekingstjómarinnar sé í fullu samræmi við alla utanrikis- stefnu Frakka og hún sé gerð að vel athuguðu máli. Jafnvel „l’Aurore“, málgagn kaþólska flokksins sem gagnrýnt hefur ákvörðun forsetans, viður- kennir að „ekki sé hægt að virða að vettugi 700 milljón manna þjóð og lifa í þeirri blekkingu að stjóm Kína hafi aðsetur á Formósu". „Bandaríkin einangrast" Viðtal við Faure Edgar Faure, fyrrverandi for- sætisráðherra, sem mestan þátt hefur átt í þessari ákvörðun frönsku stjómarinnar, hefur rætt um hana við fréttamann Lúx- emborgarútvarpsins. Hann komst þá m.a. svo að orði: „Frakkland hefur sögulegu hlutverki að gegna í heiminum og ber ábyrgð á gangi heims- mála. Af þeim sökum verða Frakkar að breyta afstöðu sinni gagnvart Kína. Frakkland á ekki lengur neinar nýlendur í Asíu, en Frakkar þekkja Asíu öðrum betur. Vegna þessa sögu- lega hlutverks, vegna þess ætl- unarverks sem Frakka bíður í Asíu, ber þeim að opna Kína þjóðum vesturlanda". „Ekkert þeirra þriggja megin- viðíangsefna sem framtíð okkar allra er komin undir“, hélt hann áfram, „hvorki friðsamleg sam- búð, afvopnun né aðstoð við þróunarlöndin, verður leyst ef 700 milljón manna þjóð er virt að vettugi. Mér er þannig spum, hvort til er nokkur viti borinn maður í heiminum sem ímyndar sér að hægt sé að gera sátt- mála um afvopnun án Kína“. Gerðir samningar Blaðið „France Soir“ skýrir svo frá að ákvörðunin um viður- kenningu Kina hafi verið tekin á ráðuneytisfundi í Paris 8. jan- únar sl. og þá um leið ákveðið að de Gaulle myndi tilkyrma þetta á blaðamannafundinum 31. janúar. Einnig hafi þá verið á- kveðið að gera viðskiptasamning milli ríkjanna og einnig samning um menningar- og tæknisam- vinnu. Minni fjárveiting til vígbúnaðarins í bráða hættu og segir að varla farl Kúbumenn til innrásar í Bandaríkin í strætisvögnum. — Myndin sýnir strætisvagna Kúbumanna í smíðum hjá Leyland. Sovétríkin munu veita Kúbu enn aukna efnahagsa&stoð MOSKVU 21/1 — Stjórnir Sovétríkjanna og Kúbu hafa gert með sér samning sem tryggja mun efnabag Kúbu fyrir verðsveiflum á sykurmarkaðinum. Samningurinn mun emnig gera kleifa uppbyggingu atvinnulífsins á Kúbu til frambúðar. þeir Krústjoff og Castro til Kíeff en þar í nágrenninu ætla þeir á veiðar nasstu daga. Málgagn brezka Verkamanna- flokksins „Daily Herald“ er sömu skoðunar. Það segir m.a.: „De Gaulle lætur ekki blekkjast af þeirri bamalegu tálvon að hið kommúnistíska Kína muni með einhverjum hætti líða undir lok. ef menn láta aðeins sem það sé ekki til. Bandaríkin eru að einangrast. tJ ti lok unarstefna þeirra gagnvart Kína er mark- leysa ein. Því fyrr sem öll vest- urlönd viðurkenna Kina og landið er tekið í SÞ, þvf betra“. „Daily Express" segir: „Á- kvörðun frönsku stjómarinnar miðar að því að koma samskipt- um Kína og annarra ríkja heims í samt lag. Því ber að fagna.“ WASHINGTON 21/1 Johnson for- setl hefur sent Bandaríkjaþingi fjárlagafrumvarp sitt fyrir fjár- hagsárið 1964—65 og er í því gert ráð fyrir að útgjöld tii hemaðar verði minnkuð um 1,3 milljarða frá því sem var á síð- asta árL Niðurstöðutölur fjárlaganna eru 97,9 milljarðar dollara, eða heidur lægri en í síðustu fjár- lögum Kennedys forseta. Gert er ráð fyrir að verja einum milljarði dollára vegna sérstakra ráðstafana gegn fá- tækt o.g örbirgð í Bandaríkjun- um. Lofað er auknum spamaði í opinberum rekstri og gert ráð Kröstjoff forsætisráðherra skýröi frá þessu í hófi sem Fidel Gastro var haldið í Kreml í dag. Hann nefndi ekki einstök atriði samningsins, en talið er víst að hann feli 1 sér enn aukna efna- hagsaðstoð Sovétríkjanna við Kúbu til að vega upp á móti því mikla tjóni sem viðskipta- barm Bandaríkjanna veldur Kúbumönnum. Rffleg aðstoð Aðstoð Sovétríkjanna við Kúbu er þegar mjög rífleg og talið að hún nemi sem næst einni milljón dollara á dag. Liklegt má telja að meginatriði samningsins sé að Sovétríkin kaupi framvegis sykur af Kúbu á föstu verði, hvað sem líður sveiflum á heims- markaðnum, en þær hafa verið mjög miklar síðustu árin. Sykur- verð er þannig óvenju hátt um þessar mundir þó að það hafi aftur lækkað nokkuð frá þvi í haust. Hin miklu sykurkaup Sov- étríkjanna frá Kúbu voru hins DAR—ES—SALAAM 21/1 — Julius Nyerere hélt útvarpsræðu 1 dag og kvað uppreisnina hafa verið bælda niður. vegar gerð áður en verðið hækk- aði. Þega Batista einvaldsherra var við völd á Kúbu og sykurekr- urnar voru að verulegu leyti í eigu bandarískra auðfélaga keyptu Bandaríkin sykurinn af Kúbu á föstu verði sem var all- miklu hærra en heimsmarkaðs- verðið. Castro ánægður Castro mætti til fagnaðarins í Kreml í óbreyttum kakifötum, en hafði þó hnýtt á sig hálsbindi til hátíðábrigða. Hann kvaðst vera mjög ánægður með niður- stöðumar af viðræðum hans við Krústjoff síðan hann kom til Moskvu 13. janúar. — Heims- valdasinnum líður illa. Þróunin er á móti þeim, en okkur í vil, sagði hann. Horfur á alþjóða- vettvangi hafa batnað og bylt- ingin á Kúbu er nú tryggari en nokkru sinni fyrr. í fimm ár höfum við staðið vörð um bylt- inguna, en í ár ríður á mestu að tryggja efnahaginn. Á veiðar Viðræðunum í Moskvu mun nú vera lokið, en að afloknu hófinu í Kreml í kvöld héldu Johnson forseti sendir boðskap til Genfar Vonir um að árangur verði af afvopnunarviðræðunum fyrir að greiðsluhallinn á fjár- lögunum verði minnkaður tim nær helming frá því sem nú er. GENF 21/1 — Fyrsti ftmdur afvopnunarráðstéfmi SÞ í þessari lotu var haldinn í Genf í gær og hafði ráð- eipnig gert tillögu um þær. Hitt kann að reynast erfiðara að , - ,, _ . _ i semja um framkvæmd þeirrar stefnunm þa borizt boðskapur fra Johnson Bandarík]a-| tillögu, eins og t.d. hvar koma forseta sem lýsir þeirri von sinni að mikilsverður árang- ur náist í viðræðunum, svo að jafnvel megi búast við að þær marki þáttaskil í sögunni. UTBOÐ Tillboð óskast í að bygg'ja 6 vinnuskúra. gagna skal vitja í skrifstofu vora gegn skilatryggingu. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR. — Útboðs- 500 króna Forsetmn segir að það gefii fyr- irheit um árangur af ráðstefn- unni að bæði Sovétríkin og Bandaríkin hafi ákveðið að minnka fjárveitingar sínar til vígbúnaðar. í boðskapnum eru einnig tillögur Bandaríkjanna í fimm liðum: 1) Johnson tekur undir þá til- lögu Krústjoffe í áramótáboð- skap hans að öll ríki heijris skuldbindi sig til að leita frið- samlegrar lausnar á landamæra- deilum, en bætir við að einnig skuli banna undirróður og ó- löglega vopnaflutninga. 2) Dregið verði úr almennum vígbúnaði undir alþjóðlegu eft- irliti. 3) Míkilsvert væri ef takast mætti að banna frekari fram- leiðslu á kjamakleyfu efni til hemaðar. 4) Bandaríkin eru reiðubúin hefja vife-æður i því skyni að koma í veg fyrir að stríð hefjist fyrir slysni eða misgán- ing og einnig hindra skyndi- árásir. 5) Hindrað verði að fleiri ríki komist yfir kjamavopn en hafa þau nú, samvinna tekin upp um friðsamlega hagnýtingu kjam- orkunnar og síðan gerður alþjóða- sáttmáli um algert bann við kjamavopnum. Eftirlitsstöðvar 1 boðskap forsetans er ekki minnzt á þá tillögu sem talið er víst að bandaríski fulltrúinn á ráðstefhunni, William G. Fost- er, hafi í pokahominu, að komið verði upp eftirlitsstöðvum á mörkum þeirra landssvæða sem hemaðarbandalög stórveldanna ráða yfir. Það er talið einna Mklegast að samkomulag geti teldzt um slíkar eftMitsstöðvar, þar sem sovétstjómin hefur skuli upp slikum stöðvum, hve margar þær skuli verða og hverjir skuli manna þær. Butler og Gromiko til Genfor Það er nefnt til marks um það hve miklar vonir menn binda við afvopnunarráðstefnuna að þessu sinni að víst er talið að þeir Gromiko og Butler, ut- anríkisráðherrar Sovétríkjanna og Bretlands, muni væntanlegir til Genfar áður en langt líður. Skagaström/ Framhald af 1. síðu. tillögu sinni í atvinnumálum Norðurlandskjördæmis vestra, en þar er víða mikið atvirmu- leysi. Auk framsögumanna tóku til máls Þorfinnur Bjarnason, oddviti, og Jóhannes Hinriks- son. Fundarstjóri var Sigmar Hróbjartsson. í lok fundarins var einróma samþykkt eftiríar- andi tillaga frá Friðjóni Guð- mundssyni og Pálma Sigurðs- syni: „Aimennur fundur haidinn á Skagaströnd 9. janúar 1964 bendir á hið aivarlega ástand, sem verið hefur í atvinnumái- um staðarins nú um nokknrt skeið. Tugir manna standa uppi atvinnulausir nokkurn tíma á hverju ár og verðmætt vinnuafi fer í súginn. Fundurinn telur það sjáif- sagða skyidu ríkisvaldsins að gera sérstakar ráðstafanir, þeg- ar svo stendur á, að sveitarfé- Iagið fær ekki að gert, og telur því sjálfsagt, að reist verði á Skagaströnd cinhver þau fram- Ieiðslu- cða iðnaðarfyrirtæki, sem þörf er á að reisa og heppi- Iegt er talið að staðsetja á Skagaströnd. Bendir fundurinn sérstaklega á niðurlagningar- verksmiðju, dráttarbraut, tunnu- verksmiðju eða Iýsisherzlu. Fundurinn skorar á Alþingi og ríkisstjórn að láta þegar fara fi-am skipulega rannsókn á þvi, hvaða ráðstafanir séu heppilegastar til að tryggja at- vinnuástand á Skagaströnd". IIIIII | lllllll liiTi Dóttir okkar og systir SIGRÚN JÓNASDÓTTIR andaðist að heimili okkar Hofteigi 40, aðfaranótt þúðju- dagsins 21. þessa mánaðar. Ingibjörg Björnsdóttir Björn Jónassoa Jónas Guðjónssoi Ragnar Jónasson.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.