Þjóðviljinn - 22.01.1964, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 22. janúar 1964
MðÐVILIINN
SlÐA 7
Líkan af fyrirhuguðu ráðhúsi við norðurenda Tjarnarinnar ognæstu byggingum: Alþingishúsinu,
húsinu.
Þegar stórar ákvarðanir eru
teknar um staðsetningu og
byggingu stórhýsa sem standa
eeiga um aldir ag eru sam-
eign þjóðarinnar. er ekki nema
sjálfsagt, að um það sé rætt
opinberlega svo misjöfn sjón-
armið komi fram. Því það er
eins og þar stendur: „Það skal
vel vanda sem lengi á að
standa”. Það er almennt við-
urkennt og ekki síður af þeim,
sem hafa ráöið þessari borg,
að mest ailt skipulag hennar
er hreinasta hörmung, margir
fegurstu staðir hennar eru
gjöreyðilagðir, vil ég þar
minna á nokkra staði: örfiris-
ey var eitt sinn tilvaldasta
svæði fyrir skemmtigarð, sjó-
minjasafn. Það var siður bæj-
arbúa áður fyrr að sumrinu
að fara þangað kvöld- eða
morgungöngu og á sunnudög-
um var þar krökt af fólki. Á
þessum fagra stað er nú verk-
smiðjuhrúgald og olíugeymar.
Hin fagra strandlengja frá
IngólfSstræti inn fyrir Laug-
ames er gjöreyðilögð. Þar æg-
ir ölTu saman, sláturhús, jám-
smiðjur, vöruskemmur og
frystihús. Það er dapurlegt fyr-
ir Esjuna okkar að horfa upp
á framferði Reykvíkinga. I
Rauðarárholtinu dansar allt
hvað innan um annað: íbúðir.
verksmiðjur, danshús og kirkj-
ur. Við Elliðárvog er ö'llu
hrært saman, og á hinum fagra
Ártúnshöfða speglar Sorpeyð-
ingarstöðin sig í sundum og
vogum.
„Til þess eru vítin að varast
þau”. Við höfum blátt áfram
ekki efni á að eyðileggja meira
í þessari borg. Stórar fram-
kvæmdir, sem eru mjög um-
deildar á ekki að reka áfram
með meirihlutavaldi í borgar-
stjóm
Ráðhúsmálið hefur ekkert
verið á dagskrá, svo heitið
geti, síðan 1955, þegar það
skeði, að allir þeir 15, sem þá
vora bæjarfulltrúar lentu í
Tjörninni á einni nóttu. Strax
þá myndaðist svo sterk and-
staða gegn því að byggja Ráð-
hús niðri í Tjöminni, að málið
varð nokkurs konar feimnis-
mál bæjarstjómarmeirihlutans.
Þóttust þá flestir þess full-
vissir, að hugmyndin fengi
hægt andlát og Tjöminni væri
bjargað. Flestar þjóðir myndu
fagija því að eiga fagra tjörn
með fuglalífi í hjarta höfuð-
borgarinnar, og viða erlendis
era búnar til slíkar Tjamir
með æmum kostnaði. Því hefði
vart verið trúað fyrir nokkr-
um áratugum, að árið 1964
samþykkti stjóm Reykjavíkur
nær einróma að, láta byggja
8 hæða stórhýsi niðri i Tjörn-
inni og það tvöfalt stærra en
áætlað var 1955. Það þarf
mikla hugkvæmni til að láta
sér detta slíka ósvífni í hug.
Auk staðarvals verður vitan-
lega að líta á fjárhagshliðina
og hvað verkið er aðkallandi.
Þó við Islendingar um þessar
Eftir HJÁLMTÝ
PÉTURSSON
mundir þykjumst geta allt og
sóum fjármunum fyrirhyggju-
laust, virðast þó verkefnin æði
mörg, sem blasa við ef litið
er á þjóðarheildina. Við höf-
um daglega fyrir augum tvö
risastór sjúkrahús hálfsmíðuð
vegna fjárskorts og enginn
veit hvar á að afla fjár til
reksturs þeirra. Hjúkranar-
kvennaskóli er hálfsmíðaður
vegna fjárskorts. Ekki bólar á
nýju raforkuveri, þó rafmagns-
skortur sé á næsta leiti. T. d.
getur Áburðarverksmiðjan ekki
starfað að fullu vegna raf-
magnsskorts. Hvar era millj-
óna hundruðin i hin fyrirhug-
uðu hafnarmannvirki? Öll út-
hverfi bajjarins hafa moldar-
götur með forarvilpum. Eiga
íbúamir að vaða aurinn á
næstunni fyrir þá von að eign-
ast Ráðhus á Tjamarbotnin-
um, og síðast en ekki sízt,
borgaramir í þessari borg, þeir
sem ekki geta byggt og enga
íbúð geta fengið leigða. Ráð-
húshugsjónin verður þessu
fólki lítið skjól.
Það væri ólíkt myndarlg«ra
verkefni fyrir borgastjónina á
næstu fimm áum að losa bæ-
inn vi ðbraggahverfin og heiis-
uspillandi íbúðarkjallara og
skúra, áður en hornsteinninn
er 'V gður að ráðhúsi.
Herra borgarfulltrúar. Etv.
mynduð þið nú hleypa inn
húsnæðislausu fólki í gierhöll-
ina á Tjarnarbotninum?
Samkvæmt rannsókn, sem
gerð hefur verið á botni Tjarn-
arinnar með borunum, eru 15
metrar niður á fast frá botni
hennar. Það gætu þannig auð-
veldlega staðið hús á stærð við
Landsbankann eða Arnarhvál
undir Ráðhúsinu; eða 8 borgar-
stjórar gætu staðið þar, hver
j öxlum annars, þó þeir
væru al'lir jafn glæsilegir á
vöxt og Geir Hallgrímsson
borgarstjóri.
Um ráðhúsmálið er það að
segja, að bygging stórhýsis er
ekkert aðkallandi mál. Það er
ósk sumra að fá fína veizlu-
sali til að halda erl. gest-
um veizlur, en nægjanlegt hús-
rými virðist ti'l þess á Hótel
Sögu og Borg. Fyrir borgar-
fulltrúana 15 er meira en nóg
húsrými í harðviðar loftsal
hinum rrýkla, sem Gunnar
Thoroddsen lét gera í verk-
smiðjuhúsi við Skúlagötu.
Ráðhús framtíðarinnar? Á
það aðeins að vera fyrir yfir-
stjórn borgarinnar með til-
heyrandi aðstöðu eða á það um
lei ðað vera almennt skrifstofu-
hús fyrir flestar greinar starf-
seminnar? Fyrri kosturinn
virðist vera sjálfsagður, hinar
almennu skrifstofur eiga að
vera sérstök bygging sem ligg-
ur vel við samgöngum og hef-
ur næg bílastæði.
Ráðhús þarf ekki að vera
stórt, en fögur bygging á fögr-
um stað. Þennan stað höfum
við milli Laufásvegar og Tjam-
arinnar, þar sem stendur
gamla Herðubreið, Kvenna-
skólinn og hús Thor Jensens.
Þetta era a'llt gömul hús sem
enginn eftirsjón er í. Þessi
staður er móti sól og suðvestri.
Bílastæði þarf ekki mörg, ef
hinar almennu skrifstofur eru
annars staðar. Ef hugsað er
stærra í þessum málym um
Stór Reykjavík, allt svasðið til
Hafnarfjar^ar og upp að Graf-
arvogi, myndi ráðhús sóma sér
vel á Golfskálahæð'nni, þar
er mikið landrými, sem borgin
á. og þaðan er útsýni fagurt
og þetta er nokkurn vegin
miðsvæðis. Þetta svæði mun
hafa verið hugsað sem bæjar-
kjami og Fossvogsdalurinn
sem skemmtigarður borgarbúa.
Þama þarf ekkert land að
kaupa og engin hús að rífa
niður.
Stjórnarráð.
Á stjómarárum þeirra
Tryggva Þórhallssonar og Jón-
asar Jónssonar keypti rikið
miklar lóðir milli Bankastrætis,
Lækjargötu og Amtmannsstígs.
Staður þessi virðist vera hinn
ákjósanlegasti og ætti þar að
rísa veglegt stjómarsetur fyrr
en síðar, því húsakynni ríkis-
stjórnarinnar era fjærri því að
vera viðunandi. Stjómarráðs-
bygging er langtum meir að-
kallandi en ráðhúsbygging.
Alþingishús.
Hvar á hin nýja þinghöll að
vera? Það viðurkenna allir að
þinghúsið gamla hefur senn
lokið sínu hlutverki, en þess
gæti beðið nýtt hlutverk, t. d.
að vera dómhús Hæstaréttar,
Á síðastliðnu hausti sendi
Krabbameinsfélag íslands eft-
irfarandi bréf til 60 bama-
skóla á landinu:
„1 viðleitni vorri til að
hamla gegn tóbaksreykingum
bama og unglinga, teljum vér
mikilsvert að eiga samvinnu
við skólastjóra landsins.
Að þessu sinni sendum vér
yður filmræmu, ásamt is-
lenzkum texta, sem gjöf til
skóla yðar. í trausti þess að
þér notið þessi gögn til að
fræða nemendur yðar um skað-
semi reykinga.
Dómkirkjunni og Oddfellow-
til þess er það mjög vel fallið.
Það er mjög ákjósanlegt að
Þinghús og stjórnar-setur séu
ekki langt hvort frá öðru.
Bezti staðurinn fyrir alþingis-
hús er þar sem menntaskólinn
stendur og þær lóðir sem hon-
um tilheyra. Á þessum stað
var Þjóðfundurinn ha'ldinn og
þar starfaði Alþingi um hríð.
Menntaskólahúsið er gamalt og
hefur gegnt með sóma sínu
hlutverki og að það geti staðið
um aldur og ævi er vonlaust.
Sú hugmynd, sem nú er uppi
hjá ráðamönnum menntamála,
að byggja þar smekklausar
viðbyggingar í allar áttir er
fráleit og öllum til skammar
sem að því standa. Mennta-
skólinn getur vel unað því
hlutskipti að Þinghöll þjóðar-
innar rísi á hans helga stað.
Nýr Menntaskóli væri mjög
vel staðsettur á Melavellinum
í nánd við Háskólann. Þar er
landrými gott og miklir mögu-
leikar til margra hluta.
Það er krafa þúsunda Reyk-
víkinga að Tjamaræfintýri
Félag vort er fúst til að lána
skólum kvikmynd (með ísl-
tali) um tóbaksreykingar. Enn-
fremur er verið að búa til
prentunar fræðslubækling um
þessi efni og er oss Ijúft að
senda ókeypis eintök handa
nemum yðar”.
Sem dæmi um undirtektir,
leyfum vér oss a<t birta eftir-
farandi bréf frá skólastjóra á
Austurlandi:
„Krabbameinsfélag íslands
— Reykjavik.
Hef í dag móttekið filmræmu
ásamt ísl. skýringartexta, og
borgarfulltrúanna verði stöðvað
áður en slys hlízt af. Tjöm-
inni verður að þyrma. Það eru
engin skynsamleg rök fyrir því
að kasta í þetta æfintýri 4 —
500 milljónum, rifa fjölda
húsa, sem geta gegnt sínu
hlutverki um langa framtíð.
Margt af þessum loftköstul-
um er hrein blekking teikni-
meistara og verkfræðinga. Tak-
ið eftir Reykvíkingar. Við sem
erum á miðjum aldri, munum
ekki lifa það, að Þórshamar og-
V.R.-húsið verði sprengt í loft
upp og síðan að Tjamarbrúin
verði ritfin. Lítum á fram-
kvæmdir borgarinnar í verki.
Hekla við Lækjartorg var rif-
in, nýstandsett hús, en Smjör-
húsið stendur enn og skagar
út í umferðargötu. ,.Veltan’!
við Austurstræti var rifin, á-
gætt hús með mörgum verzl-
unum og skrifstofum. Skúrinn
hans Steindórs stendur enn og
gerir grín að framkvæmdinni.
Hver haldið þið að framkvæmd-
in verði, þegar á að fara
að tæta niður Miðbæinn til að
geta myndað hið mikla skugg-
sæla torg norðan við Ráðhúsið?
Máli þessu er ekki lokið.
Það era íbúar Reykjavíkur
sem ráða úrslitum. Borgar-
stjórn og borgarfulltrúar era
starfsmenn og þjónar borgar-
anna, hreinn meirihluti getur
með vantrausti vikið þeim frá.
Þar sem lýðræði er viðurkennt,
verða menn að beygja sig fyrir
bví. Söfnum undirskriftum og
látum vilja Reykvikinga koma
ótvírætt í ljós.
Reykvíkingar stöndum vörð
um Tjömina okkar og forðum
henni frá eyðileggingu, lofum
öndunum og kríunni að vera
þar í friði. örfirisey var tekin
frá okkur, en við höldum
Tjörninni. beirri náttúrugjöf
sem höfuðborginni okkar var
gefin.
hefi nú þegar kynnt mér hvort
tveggja.
Ég er sannfærður um að
þetta er hin þarfasta lexía, og
hvort sem fræðslan má nokk-
uð eður ei, þá er þó ekki hægt
að segja að ekkert sé gert til
að vara við hættunni.
Ég þakka yður sendinguna og
lofa að kynna nemum mínum
efni hennar.
Neskaupstað 16/12. ‘63 —
Virðingarfyllst Gunnar Ól-
afsson skóiastjóri.”
Krabbameinfélagið hefur nú
Framhald á 10. síðu.
A h hania gegn tóbaksreyk
ingum barna og unglinga
TiI glöggvunar lescndum kvikmyndagagnrýninnar skal það
tekið fram, að við gefum kvikmyndunum einkunnir. Hæsta
einkunn er sex stjörnur en sú iægsta ein stjama.
HAFNARBÍÓ
Þrenning
óttans
** Þeir, sem ekki hefur
runnið kalt vatn milli skinns
og hörunds, geta kynnzt slíkri
tilfinningu í Hafnarbíó um
þessar mundir. Þar eru á ferð
þrjár hrollvekjur með 150 ára
gamalli stemningu frá Edgar
Allan Poe, sjálíum höfuðpaur
og meistara allra hryllissögu-
höfunda. Að vísu virðist
frjálslega með sögur Poe far-
ið í þessari kvikmynd, t.d. er
„Svarti kötturinn" með til-
leggi úr „Amontilado", en
versnar ekki við það.
Þetta er amerísk kvikmynd
með aðalleikuram af evr-
ópskum upprana (Vincent
Price, Peter Lorre). Price
lcikur aðalhlutverk í öllum
sögumim, en nýtur sín bezt í
Svarta kettinum, og sú saga
tekur mjög fram hinum
tveimur sögunum í þessari
kvikmynd („Morella" og
„Dauði herra Valdemars“).
Peter Lorre leikur líka í
Svarta kettinum og er aldeilis
í essinu sínu, en hann hefur
leikið skúrkhlutverk í rúm
30 ár, eða allt frá því að
hann sló í gegn í kvikmynd
Fritz Lang, „M“, árið 1931 í
Þýzkalandi.
Hið villta og ógnþrungna
ímyndunarafl, sem gagnsýrir
sögur meistara Poe, kemur
allvel fram í þessari kvik-
mynd. Þeir, sem hafa gaman
af að glugga í slíkar sögur,
ættu ekki síður að hafa
skemmtan af kvikmyndinni
með jafnágætum leikurum og
þar koma fram. c.þ.
HÁSKÓLABÍÓ
Prófessorinn
** Jerry Lewis er í þessari
mynd ákaflega seinheppinn
prófessor í efnafræði sem
öðru hvora sprengir í loft
upp vistarverar vísindanna
og er þar að auki ljótur og
ástfanginn af einni stúdínu
sinni. Og ófyrirleitnir sport-
menn á kúrsinum sýna hans
vesæla kropp mestu harðýðgi.
Ut úr þessum vandræðum
tekur prófessorinn að leita að
nokkurskonar lífselixír og
tekst að breyta sér skamma
stund í einu í ungan og fima-
lega glæsilegan mann sem
veitir sér á kvöldin með
miklum fyrirgangi allt það
sem prófessor dagsins hlýtur
án að vera
Jerry Lewis færist töluvert
i fang — hann er leikstjóri
og þar að auki sagður annar
höfundur kvikmyndarhand-
ritsins. Hann ætlar að sjálf-
sögðu að láta menn hlæja.
Tekst það misvel — hann
skortir hugkvæmni til að
halda gríninu uppi í svo
langri mynd. Hitt kemur svo
á móti að Jerry Lewis er
mörgum kostum gamanleik-
ara búinn og stendur sig oft
ágætlega sem slíkur. Og þó
prófessorinn geti stundum
verið leiðinlegur þá er hinn
svali súpermaður kvöldsins
það ekki — á honum nær
Jerry skemmtilegum tökum.
Um aðra leikara er fátt að
segja, enda skipta þeir
kannski ekki miklu máli. Það
er annars einkennileg árátta
frægra gamanleikara að það
er eins og þeir þoli ekki
neina hæfileikamenn nálægt
sér, virðast passa ákaflega vel
upp á það að enginn steli
sjóinu. Þessi regla virðist svo
til undantekningalaus allt frá
Hollywood til Moskvu. A.B.
NÝJA BÍÓ
Hugrakkir
landnemar
(The Fiercest Heart)
Bandarisk (Fox)
Framleiðandi og ieikstjóri:
George Sherman
Handrit eftir skáldsögu
S. Cloete: Edmund H North
Hljómlist: Irving Gertz.
* Myndin er byggð á skáld-
sögu, sem á að lýsa tilraun
Búa til að brjótast undan
kúgun Breta og hefja nýtt
og sjálfstætt landnám í Suð-
ur-Afríku. Þetta er árið 1837.
Vissulega hefði það auðveld-
að hinum hrjáðu hollenzku
landnemum þá flutninga ef
tækni þeirra tíma hefði leift
þeim að dóla í stóran hring
í fögru og tiltölulega friðsælu
umhverfi og tjalda kvöld eft-
ir kvöld á sama grasbalan-
um. Eða þeir herskáu Zúlú-
menn — af einskærum elsku-
legheitum — hefðu fallið
hver um annan þveran fyrir
hverri kúlu þeirra og lagt á
flótta þegar þeim varð ljóst
að þeir vora að bera þetta
vesalings fólk ofurliði svo
ekki sé minnzt á heitan
rakstur kvölds og morgna
hárlagningu fyrir dömumar.
sunnudagaföt upp á hvern
dag en þvottahús, fatahreins-
un og hvað eina í hverjum
áningarstað.
Ég býzt þó við, að siðferði-
þrek þessara púrítönsku píla-
grima hefði beðið einhvem
hnekki ef hún Juliet Prowse
hefði verið á ferð með þeim,
ögrandi mönnum með óstýri-
látum meydómi og látið eins
og hún lætur. Svei attan.
Það hefur auðsjáanlega far-
ið fram hjá leikstjóra, að
einn leikaranna gerir aumkv-
unarverða tilraun til að taka
hlutverk sitt alvarlega, enda
þótt honum takist á engan
hátt að raska samræmi þess-
arar endileysu. Úhjv.
Kraftaverkið í
Kópavogsbíói
Kópagogshió nef'.u' .
förnu sýnt kvikmyndina
Kraftaverkið við mjög góða
aðsókn. Myndin fjallar um
bemskuár Helenar Keller. —
Myndin hér að ofan er úr
einu atriði Kraftaverksins og
sýnir Anne Bancroft og Patti
Duke í hlutverkum kennslu-
konunnar og Helenar Keller.