Þjóðviljinn - 07.02.1964, Blaðsíða 3
Föstudagur 7. febrúar 1964
ÞIÚÐVELHNN
EÍ3A 3
Ófríðlegt ó Kýpur !
Minnst 11 Gríkkir og 25 Tyrkir drepnirídag
NICOSÍA 6/2 — Fréttir frá Kýpur herma, að minnst 11
Grikkir hafi verið drepnir í dag og fjöldi manna særður,
þegar til bardaga kom milli Grikkja og Tyrkja á eynni.
Ekki er vitað hve marga menn Tyrkir. misstu í þessum
átökum, en þeir munu ekki vera færri en 25. Talsmaður
þeirra segir, að mannfallið hafi verið mikið og væri þetta
harðasti bardaginn, sem orðið hefði síðan um jól.
Skotizt var á 20 kílómetrum
sunnan við höfuðborgina, Nícos-
ja, á milli gríska þorpsins
Aþeníos og tyrkneska þorpsins
Ayios ' Sozemenos. Óstaðfestar
fréttir herma, að skothríðin hafi
hafizt með því, að einhver úr
liði Tyri:ja hafi skotið á grískan
lögregluþjón og hafi hann þá
svarað í sömu mynt. Brezkir
hermenn voru kallaðir á vett-
vang, og fengu þeir í fyrstu ekki
við neitt ráðið, en eftir langar
samningaviðræður við báða aðila
tókst að fá þá til að hætta skot-
hríðinni.
Mjög mikið mannfall varð í
bardaganum, sérstaklega misstu
Tyrkir marga menn. Talsmaður
tyrkneskra Kýpurbúa sagði í dag,
að þetta væri harðasti bardag-
inn, sem orðið hefði frá því
um jól. Minnst 11 Grikkir og
25 Tyrkir voru drepnir og mjög
margir særðust.
Sú saga gengur f Nícósía, að
Makaríos forseti hyggist bráð-
lega fara til New York til þess
að ræða málamiðlunartillögu
Breta og Bandaríkjamanna, um
að senda blandað gæzlulið til
eyjarinnar, við öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna.
Ú Þant sneri við úr Afríku-
för sinni til New York vegna
hins ískyggilega ástands á Kýp-
ur. Hann sagði, að mál Kýpur
beri að taka fyrir í öryggisráð-
inu, ef stjóm Kýpur óskar þess
Hins vegar sagði hann, að eng-
in lausn væri hugsanleg á mál-
inu fyrr en stjóm Kýpur haf:
fallizt á hana.
Hörkubardagi
í Suður-
Vétnam
SAIGON 6/2 — 1 dag urðu all-
harðir bardagar í Suður-Vjet-
nam. Ilugðist nýja stjómin með
þessari árás sýna hreysti sína,
bæði yfirboðurum sínum í
Bandaríkjunum og þegnum
heima fyrir. Bandaríkjamenn eru
mjög óánægðir með árangurinn
af herferðinni, sem var bæði
óhemjudýr fyrir þá og árangurs-
Iítil.
Ráðizt var á skæruliðana á
stórum óshólma. Bardaginn stóð
nokkuð lengi og féllu þarna 6
bandarískir liðsforingjar og einn
breskur. t)r liði skæruliða féllu
um 20 manns og voru 100 manns
handteknir. Þessi árás var vel
undirbúin og var miklu til henn-
ar kostað af hálfu Bandaríkja-
manna.
Kúba skrúfar fyrir
vatn tii Cuantenamo
MIAMI 6/2 — Stjórnin á Kúbu lokaði í dag fyrir vatns-
leiðslur til bandarísku herstöðvarinnar Guantenamo og
var stjórn Bandaríkjanna tilkynnt, að ekki yrði opnað
fyrir vatnið fyrr en sjómennirnir 36, sem Bandaríkjamenn
handtóku nýlega væru látnir lausir.
lsrezKa iierlióio, scm sent var til þess að stilla tii i'rióar i Austur-Asiu, var ckki sérlcga mjúkhent
við innfædda, er það var að bæla niður hermannauppreisnina. Þótt hermennirnir sýndu ekki hinn
minnsta mótþróa, og sætu hinir rólegustu í herbúðunum eftir að stillt hafii verið til friðar, urðu
nokkrir afrískir hermcnn að gjalda með lífi sínu og aðrir með heilsu fyrir að láta brezka her-
menn „stilla“ sig. — Á myndinni er sýnd ein þeirra aðferða, sem brezkir notuðu til þess að stilla
innfædda. Þessi aðferð hefur þann kost, að hún hefur engar blóðsúthellingar í för mei sér.
Járnbrautargöng
undir Ermarsund
Frakkar og Bretar hafa komið sér saman um að byggja
járnbrautargöng undir Ermarsundið og eiga þau að vera
tilbúin fyrir 1970 Göngin verða 52,45 kílómetra löng, þar
af verða 36,4 km. undir sjó, og kostnaðurinn er áætlaður
um 18 milljarðar íslenzkra króna. Enn er ekki ákveðið
hvort hlutaðeigandi ríki sjá um framkvæmdimar eða einka-
fyrirtæki undir ríkiseftirliti.
Brezka ríkið á að standa undir I einum f-jórða hluta kosnaðarins,
franska ríkið einum fjórða hluta
og bandarískir auðhringar taka á
sig. helming kostnaðarins.
Reiknað hefur verið út, að
slík göng borgi sig miklu betur
en brú, sem byggð væri yfir
sundið. Brúarbygging væri helm-
ingi dýrari en göng og mundi
þar að auki trufla skipaumferð
um sundið.
Göngin verða tvískipt, þannig
að lestir mætast aldrei. Ætlast
er til að þama verði mjög mikil
umferð og hver lestin reki aðra.
Fyrir utan flutninga- og farþega-
lestir verða sérstakar lestir, sem
flytja bifreiðar yfir sundið.
Þessi göng eru afar þýðingar-
mikil fyrir Bretland, sem við
þetta færist mun nær megin-
iandinu.
Fyrir nokkrum dögum voru 36
kúbanskir sjómenn teknir fyrir
að vera að ólöglegum veiðum
innan bandarískrar landhelgi.
Þeir voru fluttir til Key West,
þar sem þeir sitja nú í varð-
haldi.
Það er fullyrt á Kúbu, að
sjómennimir hefðu verið að
veiðum á alþjóðasvæði og hand-
takan væri því hreinasta sjó-
rán. Sagði stjómin, að Kúbu
bæri engin skylda til þess að
veita vatni til herstöðvarinnar,
sem væá i landinu í fullri ó-
þökk landsrnanna, en hefði
haldið því áfram til þess að
koma í veg fyrir óþarfa deil-
ur við Bandaríkin. Hins vegar
hefðu Bandaríkin nú enn á ný
beitt Kúbu svívirðilegum fanta-
brögðum, sem hún mundi ekki
þola með þögn og þolinmæði.
Jarðskjálfti
í Skoplje
BELGRAD 6/2 — 1 dag fannst
allharður jarðskjálftakippur í
makedónsku borginni Skoplje.
Ekki hafa borizt neinar fréttir
um manntjón eða annan skaða
af völdum jarðskjálftans. Þessi
kippur var 408. í röðinni, síðan
harmleikurinn mikli gerðist í
þessari borg í júlí í fyrra.
Surtur
Framhald af 1. síðu.
við Þjóðviljann í gær að
meiri líkur væru nú fyrir
þvi en áður að eyjan yrði
varanleg og stæðist ágang
sjávarins. Hún væri nú
orðin um 1200 metra löng
og 174 metra há og bætti
utan á sig í hverri gos-
hrinu og hraunklepramir
gera sitt til að treysta
byggingu eyjarinnar.
Þá segjast skipverjar á
ögra frá Hafnarfirði hafa
orðið varir við gos á nýj-
um stað í fyrradag. Sáu
þeir gufusúlu stíga upp úr
sjónum 1—2 sjómílur suður
eða suðvestur af Surtsey
en hún hvarf fljótlega aft-
j ur.
Ritsafn Jóns Trausta
8 bindi í svörtu skinnlíki
Ennþá sel ég Ritsafn Jóns Trausta fyrir aðeins
1000 krónur
Bókaútgáfa GuBjóns Ó
Hallveigarstíg 6A - Sími 14169
Huppdrætti Hóskóla íslands
□ Á mánudag verður dregið í 2. flokki.
□ Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja.
□ 2.000 vinningar að fjárhæð 3.680.000 krónur.
Happdrætti Hóskóla ís/ands
2. FLOKKUR.
2 á 200.000 kr. 400.000 k'r.
2 á 100.000 — 200.000 —
40 á 10.000 — 400.000 —
172 á 5.000 — 860.000 —
1.780 á 1.000 — 1.780.000 —
Aukavinningar:
4 á 10.000 kr. 40.000 kr.
2.000
3.680.000 kr.