Þjóðviljinn - 07.02.1964, Page 12

Þjóðviljinn - 07.02.1964, Page 12
Farþegar FÍ s/. ár yfír 100 þúsund Flugvélar Flugfélags íslands fluttu árið 1963 fleiri farþega á áætlunarflugleiðum en nokkru sinni fyrr, bæði á flugleiðum innanlands og milli landa. Vöru- * 1 flutningar og póstflutningar juk- I ust milli landa en minkuðu í innanlands, er tvisvar á ár'.nu j lamaðist starfsemin vegna verk- faUa. Millilandaflug Á flugleiðum félagsins milli landa flugu 28.937 arðbærir far- þegar, á móti 25.750 ár'ð áð- ur. Aukning 12,3%. Arðbærir vörufluflutningar milli landa námu 332.5 lestum á móti 286.5 lestum árið á undan og varð aukning 16%. Þá jukust póst- flutningar einnig, námu 90,6 lestum á móti 72 lestum árið á undan. Aukning 25,7% Innanlandsflug Innanlands voru arðbærir far- þegar á áætlunarferðum félags- ins 62.056 á móti 61.554 árið áður. Aukning 0.8%. Vöruflutn- ingar og póstflutningar urðu hinsvegar minni en árið á und- an; fluttar voru 973.7 lestir af vörum á móti 1109.6; rýmun 12,2% og 117.4 lestir af pósti á móti 126.9 lestum árið áður, sem er 7.5% minna. Leiguflug og aftrir farþegar Farþegar í leiguflugi voru á Framhald á 2. síðu. FRÁ REYKJAVÍKURMEISTARAMÓTINU í BRIDGE. — Eggert og Þórir spila hér við Laufeyju Þorgeirsdóttur, sem snýr baki í Ijósmyndarann, og Ásu Jóhannsdóttur. Svo skemmtilega vill til að bæði þessi pör munu spila á Norðurlandameistaramótinu í bridge, sem haldið verður í Osló í sumar. Island viðurkenni Kín- verska alþýðulýðveldið f gær var lögð fram á Alþingi svohljóðandi þingsálykt- unartillaga frá Einari Olgeirssyni: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skiptast á diplomatískum fulltrúum við Kínverska Alþýðulýðveldið“. Tillögu sinni lætur Einar I nú 15 ára gamalt. Fjórðungur fylgja svohljóðandi greinar- mannkyns býr þar. Sæti þess- gerð: arar fjölmennustu og einnar „Kínverska alþýðulýðveldið er I helzbu menningarþjóðar heims 186.525 IBUAR HER A LANDI 1. DESEMBER SL. hjá Sameinuðu bjóðunum er enn ranglega skipað. Island hefur haft eðlileg sam- skipti við þetta ríki og stjóm þess í Peking, án þess hins veg- ar að skipzt væri á diplomat- ískum fulltrúum. Hins vegar hefur Island ekki haft neitt samþand við stjórn Tsjang-Kai- Sheks á Formósu. Það er því rétt, að Island komi samskiptum sínum við Kína í eðlilegt lag, með því að skiptast á við það diplo- matískum fulltrúum, svo sem þegar hefur verið gert við ríki eins og Japan, þótt það sé landfræðilega jafnfjarri oss. Leggur því Alþingi fyrir rík- isstjóm, að svo sé gert“. Sí gær barst Þjóðviljanum bráðabirgðayfirlit Hagstofu ands um mannfjölda hér á landi 1. desember sl. Sam- kvæmt því var mannfjöldinn 1. des. 1963 186.525 en var 1. des 1962 183.478 og nemur fjölgunin því 3.047 manns. íbúar Reykjavíkur 1. des. 1963 voru 76.057, íbúar annarra kaupstaða 50.080, íbúar í sýslum 60.273 og óstaðsettir voru 115. Eftir kvnjum var skiptingin svo að karlar voru 94.292 en konur 92.233. Ibúafjöldinn í kaupstöðunum var 1. des. sl. sem hér segir: Reykjavík 76.057 Akureyri 9,390 Kópavogur 7.652 Hafnarfjörðiu: 7.615 Keflavík 4.911 Vestmannaeyjar 4.80*i Akrancs 4.081 ísafjörður 2.722 Siglufjöröur 2.574 Húsavík 1.754 Neskaupstaður 1.441 Sauðárkrókur 1.317 Ölafsf jörður \030 Seyftisf jörftur 785 Fjölgun hefur orðið í öllum kaupstöðunum nema þrem. Á Siglufirði hefur fækkað um 51, í Neskaupstað um 16 og í Vest- mannaeyjum um 12. Mest hef- ur fjölgunin orðið í Kópavogi, að undanskildri Reykjavík, eða 189 og er hann nú orðinn þriðji stærsti kaupstaður landsins. Ibúafjöldinn í sýslunum var sem hér segir 1. des. 1963: Gullbringusýsla 6.038 Kjósarsýsla 2.814 Borgarf jarðarsý«la 1.465 Mýrasýsla 1.969 Snæfellssýsla 3.870 Dalasýsla 1.167 A-Barðastrandasýsla 523 V-Barðastrandsýsla 2.037 V-Isafjarðarsýsla 1.844 N-Isafjarðarsýíla 1.931 Strandasýsla 1.526 V-Húnavatnssýsla 1.406 A-Húnavatnssýsla 2.374 Skagafjarðarsýsla 2.622 Eyjafjarðarsýsla 3.848 S-Þingeyjarsýsla 2.758 N-Þingeyiarsýsla 1.946 N-Múlasýsla 2.453 S-Múla*ýsla 4.604 A-Skaftafellssýsla 1.458 V-Skaftafellssýsla 1.348 Rangárvallasýsla 2.984 Ámessýsla 7.288 Mannfjöldinn í sýslunum er ‘yfirleitt svipaður o.g árið áð- ur, örlítil fækkun í sumum en lítilháttar fjölgun i öðrum. Fjölmennustu hreppamir eru Árshófíð Sósíalistafél. Kópavogs Árshátið Sósíalistafélags Kópa- vogs verður haldinn í Félags- heimili Kópavogs laugardaginn 15. febrúar. Dagskrá hefst með borðhaldi kl. 7.30. Karl Guðmundsson verður með skemmtiþátt. Dans stiginn fram eftir nóttu. Selfoss 1.959, Seltjamamess- hreppur 1.525, Njarðvíkurhrepp- ur 1.415 og Garðahreppur 1.332. Fámennustu hreppamir eru hins vegar Grunnavíkurhreppur, N-ls., 7 manns og Doðmundar- fjarðarhreppur, N-Múl., 11 manns. Fáein orð með mynd Ragnars örfáar línur langar mig til að skrifa í vínarkveðju skyni um leið og Þjóð- viljinn birtir þessa eftirmynd af ágætu málverki Nínu Tryggvadóttur. Maður- inn sem sat fyrir hjá listakonunni, Ragnar Jónsson bókaútgefandi, er nefnilega sextugur í dag. Það mun ýmsum koma á óvænt, að þessi síungi og starfsglaði maður skuli nú þegar eiga sex áratugi að baki. öðrum mun alveg eins þykja það gegna furðu, með tilliti til þess sem maðurinn hefur komið í verk um dagana, að hann skuli ekki vera orð- inn sextugur fyrir löngu, sjötugur, átt- ræður eða jafnvel enn eldri, svo lengi og vel hefur hans notið viö í íslenzku lista- og menningarlífi. Og svo kunnur er hann alþjóð af þeim sökum, að óþarfi er að skrifa um hann langt mál í eftirmælatón eða bera við að semja á honum einhverja lýslngu. Það væri sömuleiðls alrangt að minni hyggju að reyna að draga Ragn- ar í einhverskonar dilk, og þá sízt af öllu pólitískan. Ég veit ekki hvort hann gerir það sjálfur, en ég held að íslenzkir listamenn geri það ekki. Það sem Ragnar hefur bezt gert í þágu menningar okkar en tvímælalaust yfir alla pólitík hafið, rétt eins og afstaða hans sjálfs til manna og málefna — og lista. I mínum augum er Ragnar Jónsson öðru fremur garðyrkjumaður. Honum lætur vel að hlúa að ungviði, enda- þótt hann hafi einatt orðið að sætta sig við misjafna uppskeru og úr mis- jöfnum jarðvcgi, rétt eins og allir aftrir jarðyrkjumcnn fyrr og síðar. Það er árciðanlega von allra góðra manna, að hans megi sem lengst njóta við á þcim vettvangi sem cr íslenzkur menningarakur. Ekki veitir okkur af. Landið er lítt numið og illa ræktað — og þjóðin býr við misvindasama tíð. Elías Mar. Eggert og Þórir Rvíkurmeistarar Um slðast liðna helgi var Reykjavíkurmeistaramótið í tví- menningskeppni spilað í Skáta- heimilinu við Snorrabraut. Spil- að var í tveimur flokkum, meistaraflokki og 1. flokki, og kepptu 28 pör í hvorum flokki eftir Barometerformi. Baromet- erkeppnir hafa það fram yfir önnur keppnisform, að hægt er að reikna út árangur keppenda, svo að segja jafnóðum og spil- in eru spiluð. Sigurvegarar í meistaraflokki og þar með Reykjavíkurmeistarar í tví- menning 1963—’64 urðu Eggert Benónýsson og Þórir Sigurðsson frá Bridgefélagi Reykjavíkur. Keppnin um fyrsta sætið var afar hörð og þegar úrslitalotan hófst skildu aðeins 14 stig milli fyrsta og annars sætis. En nú tóku taugamar að segja til sín og margra ára keppnisreynsla Eggerts og Þóris reið bagga- muninn. Röð og stig átta efstu par- anna var eftirfarandi, en þau munu skipa meistaraflokk Reykjavíkur í tvímenning 1963 til 12,64: 1. Eggert Benónýsson — Þórir Sigurðsson BR 1587 stig. 2. Aðalsteinn Snæbjömsson — Böðvar Guðmundsson BDB 1554 stig. 3. Ásmundur Pálsson — Hjalti Elíasson BR 1530 stig. 4. Jóhann Jónsson — Stefán Guðjohnsen BR 1503 stig. 5. Jón Magnússon — Gunnar Vagnsson TBK 1498 stig. 6. Jón Arason — Sigurður Helgason BR 1497 stig. 7. Einar Þorfinnsson — Gunn- ar Guðmundsson BR 1483 stig. 8. Halla Bergþórsdóttir — Kristjana Steingrímsdóttir BK 1464 stig. Meistaramir frá því í fyrra, Gunnar og Einar, urðu að láta sér nægja sjöunda sætið. 1 fyrsta flokki urðu h’lutskarp- astir Öli M. Guðmundsson og Páll Bergson frá Tafl- og bridgeklúbb Revkjavíkur. Sigur þeirra var þó í hættu allan tímann, því að. mestan hluta keppninnar leiddu þeir félagar Sovézkur sigur í skautahlaupi ANT ANTSS0N VANN 1500 M. Evrópumeistarinn í skautahlaupi, Ant Ant- son frá Sovétríkjunum, sigrraði í 1500 m skauta- hlaupi á olympíuleikj- unum í gær. Ant Antson er frá Eistlandi og sigraði óvænt á Evrópu- meistaramótinu í Osló í fyrra mánuði. Hann er 25 ára gam- all og býr í Tallin. Sigur hans nú kom því ekki á óvart. Úrslitin í 1500 m. í Inn- bruck urðu þessi: 1) Ant Antson, Sovét, 2.10,3 mín. 2) Cees Verkerk, Hollandi, 2.10,6 mín. 3) Willy Haugen, Noregi, 2.11.2 mín. 4) Launonen, Finnl., 2.11,9 mín. 5) Lev Zaitsev, Sovét., 2.12,1 mín. 6) E. Matusevitsj, Sovét., 2.12.2 mín. 7) Ivar Eriksen, Noregi, 2.12,2 mín. 8) Jarvinen, Finnlandi, 2.12,4 min. 9) M. Thimassen, Noregi, 2.12,5 mín. 10) Rudi Liebrechts, Hol- landi, 2.12,8 mín. Hollendingurinn Verkerk og Norðmaðurinn Haugen komu mjög á óvænt, og hafði eng- inn búizt við því að þeir myndu ná í silfur- og gull- verðiaunin. Verkerk hefur allt- af verið í skugga landa síns, Rudi Leibrecht, sem nú varð að láta sér nægja 10. sætið. Norðmenn gerðu sér engar vonir um að Haugen kæm- ist framarlega, og var hann valinn sem þriðji keppandi þeirra á eftir Ivar Eruksen og Nils Aness, en Haugen, sem er aðeins 19 ára gamall, skák- aði þeim báðum. Veður var slæmt til keppni meðan á hlaupinu stóð. Snarp- ar vindhviður trufluðu ýmsa keppendur, en Antson lét sér hvergi bregða rann skeiðið af miklu öryggi. Sigurvcgarinn Ant Antson hefur æft und- ir handleiðslu hins gamal- kunna sovézka heimsmeistara, Boris Sjilkov, sem byggt hef- ur upp nýtt þjálfunarkerfi fyrir skautahlaupara. Það er m.a. fólgið í miklum æfingum á hjólaskautum. Antson er hár vexti, mjög -rólegur og tauga- sterkur íþróttamaður og hefur því gott keppniöryggi. Fundinum sem verða átti i kvöld er frestað, þar til í byrj- un næstu viku. Stefnt er að þvt ">ð ályktunin verði þá full- gerð. I Ragnar Arnalds,

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.