Þjóðviljinn - 12.02.1964, Side 1

Þjóðviljinn - 12.02.1964, Side 1
Miðvikudagur 12. febrúar 1964 — 29. árgangur — 35. tölublað. Nýhygging í smíðum við Stáismiðjuna Málflutningur í Sigurbjarnarmál- inu í gærmorgun ■ í gær fór fram málflutningur í máli Sigurbjarnar Ei- ríkssonar veitingamanns í Glaumbæ og gjaldkeranna tveggja við Landsbankann er sakaðir eru um misferli í starfi í sambandi við ávísanasvik Sigurbjarnar. Má vænta dóms í málinu upp úr miðjum þessum mánuði. Málflutningurinn hófst kl. 10 £ gærmorgun og flutti verjandi Sigurbjamar, Jón Magnússon lögmaður, fyrstur vamarræðu sína. Jón viðurkenndi brot skjól- stæðings síns varðandi útgáfu innstæðulausra tékka en taldi honum ýmislegt til málsbóta og óskaði þess að hann hlyti væg- ustu refsingu, fjársekt eða skil- orðsbundinn dóm. << „Hefndarráðstafanir Þá lagði verjandinn áherzlu á að Sigurbjöm hefði með eignum sínum sett fulla tryggingu fyrir greiðslu á því fé er hann hefði haft ranglega af Landsbankan- um. Hins vegar gagnrýndi verj- andinn Landsbankann harðlega fyrir að beita Sigurbjöm „hefnd- arráðstöfunum" svo sem með því að reyna að þvinga fram nauð- ungaruppboð á Glaumbæ og fleiri eignum hans og sagði í því sambandi að einn af bankastjór- um Landsbankans hefði haft í hótunum um að bankinn myndi gera sérstakar ráðstafanir gagn- vart þeim mönnum er leyfðu sér að bjóða í Glaumbæ. Einnig sagði verjandinn að maður sem hefði hlaupið undir bagga með Sigurbirni og lagt fram trygg- ingu til þess að hann gæti hald- ið Glaumbæ hefði verið beittur refsiaðgerðum af hálfu bankans. Einnig kvartaði verjandinn yfir óhæfilega lágu mati á eignum Sigurbjamar, svo sem Álfsnesi Kröfðust sýknudóms Verjendur gjaldkeranna tveggja er vikið var frá störfum i Landsbankanum vegna Sigur- bjamarmálsins, þeir dr. Gunn- laugur Þórðarson og öm Claus- en hrl. kröfðust báðir sýknu- dóms fyrir hönd skjólstæðinga sinna. Leituðust þeir . báðir við að færa rök fyrir því að ekki bæri að dæma, gjaldkerana eftir sömu reglum og ppinbera starfs- menn þar eð vafi léki á um að þeir væru opinberir starfsmenn, nytu ekki sömu réttinda og þeir og gætu því ekki borið sömu skyldur. Verjendurnir töldu báðir að ekkert það hefði komið fram við rannsókn málsins er benti til þess að skjólstæðingar þeirra hefðu haft hagsmuna að gæta í sambandi við greiðslu á ávís- unum til Sigurbjamar. Þá töldu báðir verjendumir að skjólstæðingar .þeirra hefðu Framhald á 2. síðu. Ljósmyndar! Þjóðviljans átti ® í gær leið framhjá Stálsmiðj- nnni og tók þá þar þessa bráð- skemmtilegu mynd af nýbygg- ingu sem þar er í smíðum. Þarna á að setja upp tvo krana, ann- an 12% tonns og hinn 5 tonna og verðúr byggt þák yfir þá og braútimar sem þéir eru á. Er ætlunin að smíða þarna skips- hluta cr síðar verða fluttir til og settir saman annars staðar. — (Ljósm. Þjóðv. Ari Kárason). Kvenf élag sósíalista Kvenfélag sósfalista heldur aðalfund sinn að Tjarnargötu 20 í kvöld miðvikudag, kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Kaffidrykkja. Aríðandi að félagskonur mæti vel og stundvíslega. Hvernig komust liuldumennirnir inn á launaskrána? ■ Eins og skýrt hefur ver- ið frá hér í blaðinu hefur komið í ljós að á launaskrá á Keflavíkurflugvelli hafa verið ýmsir menn sem alls ekki hafa unnið þar syðra, sumir höfðu aldrei á völlinn komið, aðrir voru látnir, og enn aðrir hafa aldrei verið til svo vitað sé. Samt var ævinlega hirt kaup fyrir alla þessa menn. ■ Nú hefur ekki verið neitt auðhlaupið að því að kom- íngar iréttir enn af Stokkhólmsfundinum Fréttir höfðu engar bor- izt í gærkvöld af fundi flug- málastjóra Norðurlanda, sem staðið hefur yfir í Stokk- hólmi undanfama tvo daga. Agnar Kofoed-Hansen flug- málastjóri fór til fundarins um Stjórnmála- klúbburinn St.íómmálaklúbburinn. verður annað kvöld Tjarnargötu 2Ö. helgina eftir tilmælum flug- málastjórnanna í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, og þá fyrst og fremst til að ræða gagn- kvæma samninga skandinavísku landanna og fslands um loft- ferðir með tilliti til ákvörðun- ar stjómar Loftleiða um lækk- un fargjalda með flugvélum fé- lagsins á vori komanda. Talsverð blaðaskrif hafa orð- ið um þetta mál á Norðurlönd- um að undanfömu og hafa sum blaðanna talið líklegt að svar skandinavísku flugmálastjóm- anna við fargjaldalækkun Loft- leiða yrði endurskoðun loftferða-- ast á launaskrá á Keflavík- urflugvelli. Lengi vel voru menn valdir til starfa á vell- inum af þremur fulltrúum hernámsflokkanna, Alþýðu- flokksins, Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins og höfðu þeir sérstaka trún- aðarmenn sína í þeim verk- efnum. En fyrir nokkrum ár- um afnam Guðmundur í. Guðmundsson þetta kerfi og bjó til nýtt embætti: ráðn- ingarstjóri ríkisins. Setti hann í embættið ágætan flokksbróður sinn, og síðan hafa launaskrár á Keflavík- urflugvelli verið sérmál Al- býðuflokksins í innbyrðis verkaskiptingu hernáms- flokkanna. 1 Rannsókn sú sem nú er verið að framkvæma hlýtur m.a. að beinast að því hvern- ig huldumennirnir hafa kom- izt á launaskrá. Voru þeir „ráðnir“ af fulltrúum her- námsflokkanna þriggja á sínum tíma, eða hafa þeir „tekið upp störf“ eftir að ráðningarst'jóri ríkisins var skipaður í embætti sitt af utanríkisráðherra Alþýðu- flokksins? Sósíalistar, Kópavogi i • Árshátíð Sósíalístafélags Kópa- vogs verður haldin í Félags- heimili Kópavogs n. Ic. laugar- dag, 15. febrúar og hefst með borðhaldi kl. 7. Miðasala verður í Þinghól í kvöld kl. 8—10. Fund.ir iamn'nganna milli landanna og | Skemmtiatriði: Ávarp. — Karl kl. 9 í blands, þannig að fækkað yrði, Guðmundsson, leikari flytmr Indingarleyfunum. gamanþátt. — Dans, Steinkast frá bif- reiðum bótaskylt I fyrradag var kveðinn upp dómur í Hæstarétti í merki- legu prófmáli. Fjallaði það um bótaábyrgð vegna grjótkasts frá bifreiðum. Þar er skemmst frá að segja að Hæstiréttur stað- festi bótaábyrgðina sem héraðs- dómur hafði kveðið á um. Giss- ur Bergsveinsson greiddi sér- atkvæði. Málsatvik eru þau, að hinn 19. júlí 1959 mættust tvær bif- reiðar hiá Baldurshaga > ið Suð- urlandsbraut. Þeir Ólafur B. Jónas.son og. Erlingur 'óinfsson óku bifreiðunum. Hrökk þá steinvala í rúðu á bifreið Erl- ings, og telur hann að hún hafi flogið undan bifreið Ólafs. Fall- ast bæði héraðsdómur og Hæsti- réttur á það, að ekki sé ástæða til að efast um að svo sé. Fyrir rétti var mest rætt um hvernig túlka skyldi 67. grein umferðalaga nr. 26, 1958, en upphaf hennar hljóðar svo: „Nú hlýzt slys eða tjón á mönnum eða munum af skráningarskyldu, válknúnu ökutæki í notkun, og er þá þeim, sem ábyrgð ber á ökutækinu, skylt að bæta það fé, enda þótt slysið eða tjón- ið verði eigi rakið til bilunar eða galla á tækinu eða ógætni ökumanns". f sératkvæði sínu segir Giss- ur Bergsveinsson m.a. að um hreina óhappatilviljun hafi hér vérið að ræða. Ökutæki í notk- un stofni hvort öðru í mikla hættu, og f þá hættu ieggi eig- andi ökutæki sitt þá er hann hefur það í notkun. Það sé því óeðlilegt, að eigendur ökutækja beri hver gegn öðrum skaða- bótaábyrgð vegna tjóins, sem eitt ökutæki veldur öðru, nema gáleysi stjórnanda eða umráð- anda bess sé til að dreifa. Legg- ur Gissur til, að Ólafur B. Jónsson sé sýkn af kröfum Er- lings Ólafssonar. Þjóðviljinn átti í gærkvöld tal við Egil Gestsson, hjá Vátrygg- ingarfélaginu h.f. Egill kvaðst ekki enn hafa fengið dóminn í hendur, og gæti þvi litið um hann sagt. Hinsvegar væri þetta greinilega dómur á vátrygginga- félögin. Esill kvr>« ó f ^V cfrtí félögin hafa lagt fram í málinu afrit af norskum hæstaréttar- dómi um sama efni. Þar væru sömu aðstæður og sömu vanda- mál við að etja, malarvegir í báðum löndum. f Noregi hefði bótaskyldan ekki náð fram að ganga, en svo virtist nú hins- vegar orðið hér. Ný þingmál Meðal nýrra mála, sem lögð voru fram á Al- þingi í gær, var frum- varp Vestfjarðaþing- manna um menntaskóla á ísafirði og þingsálykt- unartillaga Alþýðu- bandalagsmanna um verðlaunaveitingu fyrir menningarafrek vegna 20 ára afmælis lýðveld- isins. Menntaskóli á ísafirði sé stofnaður Flutningsmenn frum- varpsins um menntaskóla Vestfirðinga á Isafirði eru þingmenn Vestfjarðakjör- dæmis: Hannibal Valdi- marsson, Birgir Finnsson, Sigurður Bjamason. Sig- urvin Einarsson og Matth- ías Bjarnason. Frumvarp samhljóða þessu hefur nokkrum sinn- um áður verið flutt á Al- þingi, en jafnan dagað uppi. Þar er gert ráð fyrir stofn- un menntaskólans á Isa- firði og að kostn. við stofn- un hans og rekstur greiðist úr ríkissjóði. I greinargerð fyrir frum- varpinu segja flutnings- menn m. a.: „Æska Reykjavíkur á greiðan aðgang að mennta- skólanámi. Sama er að segja um Norðlendinga og Sunnlendinga. — En vest- firzkur æskulýður — og austfirzkur er stórum verr settur í þessu tilliti. Á því fer tvímælalaust verr en flestu öðru, að nokkur ein- okunarblær sé á menning- ar- og menntunaraðstöðu þegnanna. Þess vegna er það rétt stefna, að mennta- skólar rísi af grunni í öll- um landsfjórðungunum.” Verðlaunaveit- ing til minn- ingar um stofnur lýðveldisins Þingsályktunartill., sem áður var sagt frá. er flutt af þeim Einari Olgeirssyni, Hannibal Valdimarssyni, Lúðvík Jósepssyni og Gils Guðmundssyni og er svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að veita fimm milljónir kr. til að minnast tuttugu ára afmæl- is lýðveldisins þann 17. júní í ár með eftirfarandi rnóti: Veitt skulu verðlaun er samanlagt nema þcssari upphæð, fyrir beztu afrek íslenzkra manna á sviði tónlistar, myndlistar. bók- mennta, sagnaritunar og vísindarannsókna, svo og fyrir ritgerðir og rannsókn- «r, er varða auðlindir ís- Iands og nýtingu þeirra. Menntamálaráð skal ann- ast veitingu þcssara verð- launa samkvæmt reglugerð, er það semur og mcnnta- málaráðhcrra staðfestir. Verðlaunaafhcnding fari fram 17. júilí 1964.” 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.