Þjóðviljinn - 04.03.1964, Side 2

Þjóðviljinn - 04.03.1964, Side 2
2 &ÍBA HðÐVSLimN Háhýsin eru tengd gangorautum á tvcim hæðum. NYR SVIPUR A GAMALLI BORG Undanfarin misseri og mánuði hafa staðið yfir merkilegar byggingafram- kvæmdir í Moskvuborg. Mikill húsnæðisskortur hefur verið í borginni, en mikið gert til úrbóta. Á síðasta ári voru byggðar í borginni 110 þús íbúðir, og er það svipaður íbúðafjöldi og bvggður var árið á und- an. íbúðimar eru nú yfir- leit stærri, þriggja og fjög- urrá herbergja, eða þaðan af stærri, en áður hefur að- aláherzlan verið lögð á tveggja herbergja íbúðir. Nú er hafin endurskipu- lagning á hinu sögulega Arbat-hverfi í Moskvu. Hverfið er eitt hið elzta í borginni en verður að mestu rifið og upp á að rísa fyr- irmyndarhverfi í staðinn. Nú ber þó ekki svo að skilja, að hér sé verið að eyðileggja fomfrægt, gam- alt og minjaríkt borgar- hverfi. Að vísu hélt Napóle- on inn í Moskvu um aðal- götuna Arbat, og hér gusu upp fyrstu eldarnir í borg- inni. Allt hverfið brann þá til kaldra kola; það voru aðallega kaupmenn sem reistu það úr rústum á ný og var heldur lítill menn- ingarbragur að beirri bygg- ingarstarfsemi. Þótt hverf- ið verði nú rifið glatast bví ekki neinar umtalsverðar, sögulegar minjar. í byggingar hins nýja hverfis verða notuð ný- tízku byggingarefni, svo sem alúminíum, gler, sem- ent og ýmiskonar gerviefni. Þá er það til nýmæla, að engar jámalagnir verða í húsunum, utan í kjallara og neðstu hæðum. Efstu sextán hæðimar verða ein- göngu úr jámsteypuefnum, sem framleidd eru í sér- stökum verksmiðjum. Ný form, nýir litir og ný efni munu einkenna þetta nýja hverfi. Allt er gert til þess að hið nýja Arbat-hverfi verði í rauninni sannkallað fyr- irmyndarhverfi. Allar dag- legar nauðsynjar munu fást á neðstu hæð hverrar húsa- samstæðu, og reynt verður að hafa sjálfsafgreiðslufyr- irkomulag þar sem því verður við komið. Séð verð- ur fyrir vöggustofum, dag- heimilum og tómstunda- heimilum, og blaðasölu- tumar munu selja blöð hvaðanæva að úr Sovétríkj- unum. Þá er heldur ekki gleymt annarri þjónustu, rakarastofur munu rísa. bílaverkstæði, þvottahús. efnalaugar og ferðaskrif- stofur, sem jafnframt sjá um leikhús- og kvikmynda- ferðir. Leigjendum til umráða«>- verða svo í húsunum veizlusalir og útlánastofn- anir sem lána allt frá hníf og skeið upp í segulbönd og bíla. Tómstundaherbergi verða eins mörg og helzt verður á kosið. Það er í stuttu máli sagt hugsað fyr- ir öllu. Svo er til ætlazt, að hið nýja Arbat-hverfi verði fyrirmynd annarra slíkra. Þessi bygging er liður í 20-ára áætlun um heildar- skipulag Moskvuborgar. Á- ætluninni á að ljúka árið 1980. Séð ofan á líkan af hinni nýju breiðgötu og stórhýsum við hana. Fjárskorturinn veldur töfum á framkvæmdum Dr. med. Bjarni Jóns- son, yfirlæknir St. Jós- efsspítala í Landakoti, hefur sent Þjóðviljan- um eftirfarandi til birt- ingar: Herra ritstjóri, 1 heiðruðu blaði yðar 29. febrúar, er mynd frá Landa- kotsspítala, og sýnir hún hvemig umhorfs er nú á lóð- inni framan við spítalann, eftir að gamla timburhúsið var rifið, og steyptur kjallari, sem það stóð á brotinn niður. Var þess getið undir myndinni, að hér væri þörf bráðra aðgerða að fegra lóðina og losna við brak- ið. Ég er yður sammála. Væri hirðuleysi einu um að kenna — og þeir sem ekki þekkja nánar til, vita ekki annað — þá væri það ámælis- vert og þó ekki einsdæmi i okkar landi að umgengni utan húss sé ábótavant. Hér liggja aðrar orsakir til. Enn er ekki lokið byggingu spítalans í Landakoti. Meðal annars er óbyggt smáhýsi framan við spítalann. verður bað ein hæð, og staðseft þar sem gamla og nýja húsið mæt- ^st. Þar verða aðaldyr spítal- ans. skrifstofur og fatageymsla, en nú .verður að ganga inn í kjallara baka til. Framan við þessa byggingu verður að hækka lóðina svo hægt sé að aka rakleitt að útidyrum. Rúst- irnar af kjallaranum eiga að fara í þessa uppfyllingu, og væntanlega líka steingirðingin sem nú er íraman við lóðina við Túngötu. Fjárskortur veldur þvi að ekki hefur verið hægt að byrja á þessum framkvæmdum nú í góðviðrinu. En stjórn spítalans er svo bjartsýn, að hún vonast til að úr megi rætast áður en langir tímar líða. Það kostar fé að flytja kjall- ararústirnar burtu og þau út- gjöld verða tvöföld þegar aftur þarf að sækja uppfyllingarefni. Fjárhagur spítalans berst í bökkum og rekstur hans væri óhugsandi með þeim greiðslum, sem hann fær, ef systumar gæfu ekki 50 dagsverk á hverj- um degi árið um kring. Það er af þessum sökum, sem það er lagt á Reykvíkinga að horfa á brakið og verður gert enn um hríð. Mest mæðir það á okkur sem vinnum þar og höfum þetta fyrir augum dag hvern, en við vitum hvað veldur og sættum okkur við hvemig umhorfs er, en ég get fullvissað yður um að við sjá- um það og óskum að biðin verði stutt, bar til verkinu er iokið. Hinu tel ég mig geta lofað fyrir hönd St. Jósefssystra, að þegar byggingin er fullgerð, muni ekki skorta snyrti- mennsku í umgengni utan húss, frekar en innan dyra. Til frekari skýringar móli mínu, leyfi ég mér að senda yður mynd af líkani af spítal- anum. Er hún tekin frá líku sjónarhomi og sú sem birtist 1 blaðinu. Með þökk fyrir birtinguna. Vinsamlegast, Bjami Jónsson, dr. med., yfirlæknir. ★ (Umrædd mynd af spítalalík- aninu er birt á öðrum stað í blaðinu. — Ritst.). Ný tiilaga um vinaheimsóknir BERLÍN 2/3 — Austurþýzka stjórnin hefur enn lagt fram til- lögu til að auðvelda íbúum Vest- ur-Berlínar heimsóknir til vina og ættingja í AusturrBerlín. Sam- kvæmt henni yrði komið á fót fastri skrifstofu í Vestur-Berlín þar sem austurþýzkir embættis- menn gæfu út vegabréf handa öllum þeim sem vildu fara til Austu r-Berlínar. I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.