Þjóðviljinn - 20.03.1964, Page 12
Nú er skyldusparnaður
■ Það kveður við dá-
lítið annan tón hjá íhald-
inu um skyldusparnað-
inn nú í dag en þegar
honum var komið á
1957. Enda er hann allt
í einu orðinn viðreisnar-
bjargráð. Því duga eng-
in sex prósent lengur,
unglingarnir verða að
leggja fimmtán prósent
til hliðar.
■ 1957 átti Morgunblað-
ið varla nógu sterk orð til
að lýsa vanþóknun sinni á
þessu „kommúniska" tilræði
við æsku landsins, í dag
þykir því sjálfsagt og eðli-
legt að skvldusnarnaðurmn
sé hækkaður um m'u prósent
eins og ríkiisstjórnin fer
fram á. Það er 150% hækk-
un.
Föstudagur 20. marz 1964 — 29. árgangur — 67. tölublað.
fiM pf mlPl fjfl
Leggja netin undir ísinn
Garði, 19/3 — Sumarblíða er
hér í Mývatnssveit og er ís
farinn að þynnast á Mývatni.
Eru nú komnar stórar vakir á
vatnið. Vei2i hefur verið stund-
uð undanfarið og er netunum
Iagt undir ísinn og hefur afll
verið misjafn. Sala á silungi er
líka takmörkuð á þcssum tíma.
Þá cr farin að sjást gróðumál
við vatnið. — Starri.
Fengu áttatíu tonn í róðri
Hnífsdal, 9/3 — Góður afli
hefur verið undanfama daga
og sækja bátarnir suður undir
Jökul. Fjórir bátar róa héðan
og hefur Mímir og Páll Pálsson
feng ð allt að áttatíu tonn eft-
ir tvær nætur. Meðalafli hefur
verið þrjátíu og átta tonn. Ein-
ar og Rán fengu þennan afla í
fyrradag. Þá hefur verið góður
steinbítsafli út af Barðanum.
H.B.
-
Nýtt 230lesta skip til Hafnarfjarðar
Seint í fyrrakvöld kom nýtt íslenzkt fiskiskip, Eldborg, til Hafnarfjarðar. Þetta er 220—230 lesta
skip (110 fet), eign Eldborgar h.f. í Hafnarfirði. Skipið er smítað í Bols0nes skipasmíðastöðinni í
Molde í Noregi og er níunda skipið sem sú stöð smíðar fyrir íslendinga á fjórum árum. Hin
eru: Gamla Eldborg, Eldey f Keflavík, Náttfari Húsavík, Jón Finnsson Garði, Amfirðingur, Lóm-
«r Keflavík ögri og Vigri. Eldborg er útbúin öllum fullkomnustu tækjum en hefur, fyrst ís-
Er hreindýrastofninn í hættu?
Tcigi, 9/3 — Á sumum bæj-
um í Vopnafirði hefur fé ekki
verið á gjöf f vetur eins og til
dæmis að Hellisfjörubökkum og
öðrum kostajörðum, sem liggja
að sjó. Fé hefur líka verið hald-
ið til beitar í uppsveitinni og
rásar það hér um alla hálsa.
Lítið hefur orðið vart við hrein-
dýr í vetur og eru þau fjarri
byggð í góðu tíðinni. Grunur
er um garnaveiki í hrein-
dýrastofninum og hafa menn
stundum gengið fram á ákaflega
horuð og máttlaus dýr í vetur.
Líklega cr þetta sami sýkillinn
og gengið hefur í sauðfé hér
um slóðir og nýlega hefur ver-
ið staðfest. — G.V.
Lúðvík Jósepsson talaði af
hálfu Alþýðubandalagsins í um-
ræðum um þetta mál er það
kom til fyrstu umræðu í neðri
deild Alþingis í gær. Gerði
hann góðlátlegt grín að afstöðu
Sjálfstæðisflokksins til máls-
ins fyrr og nú en fagnaði þvi
jafnframt, að eitthvað virtist
döpur reynsla viðreisnarinnar
hafa kennt íhaldinu þó í litlu
birtist.
Eitt af mörgu
Lúðvík sagði, að Alþýðu-
bandalagið væri að vísu ekki
á móti skyldusparnaði, enda
hefði það átt hlut að lagasetn-
ingu um hann, en þó vildi hann
benda á, að hann hefði aðeins
verið ein af fjórum megin ráð-
stöfunum vinstri stjómarinnar
til að skapa Húsnæðismála-
stofnuninni tekjustofna. Hinir
liðimir hefðu verið, í fyrsta
lagi, að ríkið eftirlét stofnuninni
vexti og afborganir af öllum
lánum sem það hafði veitt til
smáíbúða-lánakerfisins, í öðru
lagi hefði stofnuninni verið
tryggt 1% af öllum innheimtum
tollum og sköttum til ríkis-
sjóðs, í þriðja lagi var það svo
skyldusparnaður unglinga en
síðast og ekki sízt stóreigna-
skatturinn — sem svikizt hefði
Framhald á 3. síðu.
lenzkra skipa verið útbúin með 24 mílna transitor radar, auk venjulegs 48 m. radars. Þá má geta
þess, að í skipinu er þýzkt astictæki (Elac) sem dregur 3600 metra (venjuleg astictæki 1500
m.) og mun þetta vera fullkomnasta astictæki sem hingað hefur komið en Iíka allt að helmingi
dýrara en venjuleg tæki.
I skípinu er svokölluð M.A.N. vél (Maschinenfabrik Augsburg-Numberg A.G.) en umboð fyrir
þær hér á landi hefur Ólafur Gíslason & Co. Vélar af þessari gerð eru nú t.d. I togurunum
Júpííer og Maí, Hamrafelli og Jóni Finnssyni. Vélin í Eldborgu er sex strokka fjórgengisvél, með
gír og sklptiskrúfu.
Fullyrða n á að Eldborg er eitt glæsilegasta fiskiskip sem hingað hcfur komið. Það er
sandblásið utan og innan og hefur rúm fyrir 15 manna áhöfn. Skipið fór rúmar 11 mílur í
reynsluferð. Skipstjóri á Eldborgu er Gunnar Hermannsson.
Eignaréttarákvælin göllul
■ í umræðum um frumvarpið um skipulagslög í neðri
deild Alþingis í gær benti Einar Olgeirsson á, að þrátt
fyrir að margt gott mætti segja um frumvarpið væri
bað verra lögunum frá 1948 hvað viðvíkur eignarréttar-
ákvæði á lóðum.
Sýndi Einar fram á, að frum-
skilyrði fyrir allri skipulagningu
væri að bæjarfélögin ættu lóð-
imar í umdæmi sínu og þau
svæði sem skipuleggja þarf. Á
þessu er mikill misbrestur, sagði
hann, og verður að búa betur
um hnútana í þessu efni. Minnti
hann á að mörg bæjarfélög
hefðu að vísu haft forsjálni og
ættu sitt land en annarsstaðar
stæði einkaeignarréttur á landi
í vegi fyrir skynsamlegu skipu-
lagi og nauðsynlegu.
Verst hefði þó Reykjavík orð-
ir úti og benti Einar sérstak-
lega á einkalóðirnar innan
Hringbrautar sem stæðu í vegi
fyrir öllu skipulagi borgarinn-
ar og sagði að þetta yrði að
færa í betra horf. Drap hann
í þessu sambandi á tillögur
sínar um skipulag Qg vernd
miðborgarinnar sem áður hefur
verið getið hér í blaðinu og
það hvemig einkaeignarréttur-
inn torveldar framkvæmd slíks
nauðsynjamáls.
Kvöldvaka FÍ
endurtekin
sDollaraprinsinn' í Suðursveit
HrolIIaugsstaðir, 9/3 — Hér í
Suðursveit eru tún orðin græn
og veðurblíða með eindæmum.
Er þetta líkara sumri en vetri.
Hér var nýlega sýndur sjón-
Ieikurinn „Dollaraprinsinn" í
félagsheimilinu á staðnum fyrir
yfirfullu húsi. Það var kvenfé-
lagið í Suðursveit, sem sá um
þessa leiksýningu.
Þá gekkst Menningarsamband
Austur-Skaftfellinga fyrir um-
ræðufundi í Mánagarði í Nesja-
sveit. Tvö mál voru til um-
ræðu. „Hlutverk prestanna í nú--
tima þjóðfélagi" og höfðu þar
framsögu frú Sigurlaug Árna-
dóttir frá Hraunkoti og Stein-
þór Þórðarson bóndi á Hala.
Auk frummælenda tóku til
máls Sr. Fjalar Sigurjónsson,
prestur á Kálfafellsstað, Bene-
dikt Þórðarson, bóndi á Kálfa-
felli, Sighvatur Davíðsson, bóndi
á Brekku, Þorsteinn Guðmunds-
son, hreppstjóri á Reynivöll-
um, Sr. Skarphéðinn Pétursson,
prófastur í Bjamanesi og Páll
Beck, kennari í Höfn. Umræður
urðu allmiklar og allir að mestu
sammála. Hitt málið var um
nútíma Ijóðlist og var fram-
sögumaður Vilhjálmur Guð-
mundsson, bóndi í Gerði. Það
var orðið nokkuð áliðið kvölds,
þegar tveir ræðumenn höfðu
fjallað um þetta mál og var
frekari umæðum þá slitið. Var
síðan stiginn dans fram eftir
nóttu. — T.S.
Ekki brást honum hetjulundin
Teigi, 9/3 — Jón bðndi í
Möððrudal cr nýlega kominn
heim í öræfafaðminn sinn eftir
tveggja mánaða sjúkrahúslegu á
Akureyri í vetur. Gamli maður-
inn er heldur vanheill ennþá
og býr sig þó undir að ganga
til vinnu. Hánn er nú á átt-
ugasta og fimmta aldursári.
Ljúfir orgcltónar berast nú um
allan dalinn hans á nýjan leik.
Jón bóndi gekk til gegninga um
miðjan janúar og datt þá ofan
úr heygarða og lá í roti um
skeið. Tróðu kindumar á hon-
um og var hann heldur illa
til reika, þegar hann náði einn
og óstuddur til bæja. Var hann
meðal annars brákaður í baki
og á mjöðm. En ckki brást
honum hetjulundin. — G.V.
Sóknarpresturinn, sr. Grímur
Grímsson fyrir altari í nýja
hökklinum.
Hafin fjársöfnun til kirkju'
byqgingar í Ásprestakalli
Kl. 15 næstkomandi laugardag,
21. marz 1964, verður haldinn
kvikmyndasýning í Laugarásbíói
í Reykjavík til ágóða fyrir vænt-
anlega kirkjubyggingu í Ás-
prestakalli.
Einar Magnússon mennta-
skólakennari flytur ávarp á
undan sýningunni.
Sóknarpresturinn, séra Grímur
Grímsson, messar nú á tveim
stöðum í sókninni, annanhvern
sunnudag í Laugameskirkj’u og
hinn sunnudaginn í Laugarás-
bíói. Þar eru einnig barnamess-
ur annanhvern sunnudag.
Nýlega var stofnað Kvenfélag
Ásprestakalls og gengst það fyrir
samkomunni í Laugarásbíói á
laugardaginn. Stofnendur voru
90 konur, en félagsstjómina
skipa Guðrún S. Jónsdóttir for.
maður, Guðríður I. Einarsdótti'
varaformaður, Inga Ólafsdóttir
ritari, Guðmunda Petersen gjald-
keri og meðstjómandi Rósa Guð-
mundsdóttir. Hinu nýstofnaða
kvenfélagi hafa þegar borizt
margar góðar gjafir, þar á meðal
5000 kr. frá Kvenfélagi Lang-
holtssóknar, 7000 kr. í ferming-
arkyrtlasjóð frá ýmsum velunn-
urum. Einnig hefur Langholts-
söfnuður lánað safnaðarheimili
sitt fyrir félagsstarfsemina.
Þá hafa söfnuðinum í As-
prestakalli borizt ýmsar góðar
gjafir, og er þá fyrst að nefna
handsaumaðan messuhökul, sem
er gjöf frá hjónunum Unni
Ölafsdóttur og Óla M. Isakssyni.
Hjónin Guðriður I. Einarsdóttir
og Þórhallur Þorláksson hafa
gefið nýtt og vandað Lindholm
orgel-harmóníum til minningar
um Þorbjöm Askelsson útgerð-
armann frá Grenivík, og er leik-
ið á það við guðsþjónustur f
I.augarásbíói. Organisti þar er
Guðjón Guðjónsson stud. theol.
Af öðrum gjöfum má nefna
tvö rikkilín frá tveim konum í
sókninni og einnig sálmabækur
frá Elliheimilinu Grund.
Kvöldvaka Ferðafélags Islands
hefur orðið svo vinsæl að hún
verður enn endurtekin. Dr. Sig-
urður Þórarinsson segir frá
Surtsey og sýnir skuggamyndir
þaðan. Ennfremur verða stuttar
kvikmyndir frá gosinu. Að lok-
um verður dansað. — Kvöld-
skemmtun þessi verður í Sig-
túni í kvöld kl. 9. Aðgöngu-
miðar í Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
Tveir seldu í gær
Tveir íslenzkir togarar seldu
afla sinn í Vestur-Þýzkalandi
í gær. Bv. Sigurður seldi í
Bremerhaven 233,8 lestir fyrir
195.874 mörk en bv. Askur seldi
í Cuxhaven 105 lestir fyrir
86.791 mark.
Átta ára gamall drengur varð
fyrir bifreið á Laugaveginum í
gær, á móts við húsið númer
176. Þetta varð klukkan að ganga
sjö síðdegis. Drengurinn var
fluttur á slysavarðstofuna og
dvaldist þar fram eftir kvöldi
eða á meðan hugað var að
meiðslum hans, sem þegar til
kom, reyndust ekki vera alvar-
leg.
Afli Þingeyrarbáta
Þingeyri 10/3 — Þrír bátar róa
héðan í vetur Reru þeir með
línu fram til 22. febrúar, en
skiptu þá yfir á þorskanet.
Gæftir voru stirðar á línu-
vertíðinni. Heildaraflinn á línu-
vertíðinni varð 508.185 kg. í 89
I róðrum, meðalafli i róðri 5.710
kg. Línuaflinn skiptist þannig
milli báta: Framnes 184.350 kg.
í 29 róðrum, Fjölnir 177.275 kg.
í 30 róðrum, Þorgrimur 146.520
kg. í 30 róðrum.
Netaveiðarnar eru stundaðar
suður á Breiðafirði — suður
undir Kolluál — en þkngað er
7 til 8 stunda stím og er meg-
inhluti netafisksins tveggja
nátta. 29 febrúar var afli bát-
anna frá áramótum orðinn;
Framnes 226.835 kg.
Fjölnir 215.010 kg.
í>orgrímur 191.495 kg.
Afli hefur verið að glæðast
síðustu daga, og 4. marz land-
aði Framnes 41,5 tonni og Þor-
grímur 29 tonnum.
Einmuna veðurbliða hefur
verið að undanförnu. Hrafns-
eyrarheiði var mokuð um mán-
aðamótin, en Gemlufellsheiði
hefur verið akfær í allan vet-
ur. Muna menn tæplega slika
veðurblíðu og hlýviðri eins og
hefur verið frá áramótum.
— G.F.M.
Eitt síldarplanið ennþá
Raufarhöfn, 9/3 — Sæmilegur
rauðmagaafli er hcr um þessar
mundir og gæftir góðar dag
cftir dag. Atvinna er næg við
undirbúning síldarvertíðar að
sumri. Er unnið að byggingu
tveggja síldarplana. Einnig er
nokkur vinna í síldarverksmiðj-
unni. Nýlega var stofnað hér
hlutafélag um rekstur á síldar-
plani og vcrður það á gömlu
kaupfélagsbryggjunni, þar scm
Valtýr Þorsteinsson rak áður
plan.
Hlutafélagið heitir Björg.
Meðal hluthafa eru Víglundur
Jónsson útgerðarmaður í Ólafs-
vílr og Halldór Jónsson, út-
gcrðarmaður á sama stað. Þá
má telja Steinar Steinsson, verk-
smiðjustióra á Raufarhöfn, ÁS-
eeir Ágústsson. oddvita og Karl
Ágústsson, verkstjóra hjá S.R.
— L.G.