Þjóðviljinn - 21.03.1964, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 21.03.1964, Qupperneq 2
2 SÍÐA Verður bannað að þeyta bíl- hornið á byggðum svæðum? Umferðarmerki, sem bannar bflstjórum að þeyta horn. á að afnema, en í staðinn á að koma almennt bann við notkun bfl- horna á byggðum svæðum. Þetta er till. umferðarnefndar sem starfar á vegum Efnahags- nefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu (ECE), og var hún --------------------------® Stjórn Framsókn- ar var öll endurkjörin Aðalfundur Verkakvennafél- agsins Framsóknar var haldinn sl. sunnudag og var hann fjöl- sóttur. Á áramótum voru í fé- laginu 1652 konur. Stjórn félagsins var öll end- urkosin en hana skipa: Jóna Guðjónsdóttir formaður, Guð- björg Þorsteinsdóttir ritari, Ingibjörg Bjamadóttir gjald- keri, Ingibjörg Ömólfsdóttir fjármálaritari og Þórunn Valdi- marsdóttir varaformaður. í varastjóm eiga sæti Pál- ína Þorfinnsdóttir og Kristin Andrésdóttir. Endurskoðendur voru kjörnar Helga Pálsdóttir og Guðrún Ingvarsdóttir. Á fundinum var samþykkt að árgjaldið fyrir árið 1964 yrði kr. 500,00. Explorer-20 féll í Atlanzhafið KENNEDYHÖFÐA 19/3 — Kl. 12.40 að íslenzkum tíma skutu Bandaríkjamenn þriggja þrepa gerfihnetti á ioft frá Kennedy- höfða. Tilgangurinn með skot- inu var að kanna jónósfemna Og auk þess átti hnötturinn að endursenda geisla til jarðarinn- ar: Gerfihnötturinn Explorer-20 var rúm 50 kiló að þyngd. Nokkm eftir klukkan 14.00 að íslenzkum tima var tilkynnt, að geimskotið hafi misheppnazt. Það mun hafa verið þriðja þrepið, sem brást og sennilega féll Ex- plorer f Suður-Atlanzhafið. Aðeins ein endurvarpsstöð f Brasilíu gat fylgzt með útvarps- sendingum gerfihnattarins í 15 mínútur. Engin önnur stöðheyrði hljóðmerkin. lögð fram á síðasta fundi henn- ar. ECE bendir hins vegar á, að áður en hin hljóða umferð komist á i Evrópu, muni nú- gildandi umferðarmerki verða notað enn um sinn í mörgum löndum, Umferðarnefndin samþykkti nokkur ný umferðarmerki, m. a. „viðvömn við hliðar- vindi”, en það er mynd af loftbelg, og merki sem afnem- ur öll gildandi bönn á ákveðn- um vegarkafla (bann við að fara fram úr farartækjum, há- markshraða o.s.frv.), og er það ljós kringla með dökkri þver- rák, sem er alsett þéttum mjó- um strikum. Þá vom einnig samþykkt tvö bannmerki. sem em í sérflokki. Annað gefur til kynna, að á- kveðnir vegir séu lokaðir öku- tækjum sem em með auka- vagn í eftirdragi, og er senni- legt að með þvf verði auka- merki sem segi til um, hvaða þungi aukavagna sé bannaður. Hitt merkið á að gefa til kynna, að vegurinn sé lokaður ökutækjum, sem em eitthvað lengri en tiltekið er á merkinu með tölu sem stendur fyrir ofan ör með tveimur punkt- um. Ný merki á krosSgötum Nefndin gerði mikilvæga sam- þykkt um merkingu vegamóta. Hingað til hefur verið notazt við merki með lóðréttri ör og þunnu þverstriki til að merkja þá vegi, sem yfirvöldin hafa gert að aðalbrautum frá upp- hafi til enda. Á öðmm veg- um, sem liggja þvert á aðal- brautir, mun að sjálfsögðu eftir sem áður verða notazt við stöðvunarmerkið sem gefur til kynna aðalbraut (þrihyming- urinn sem vfsar einu homi niður), en merkið sem hingað til hefur einungis verið not- að um þá vegi sem em aðal- brautir frá upphafi til enda (lóðrétt ör með þunnu þver- striki) mun eftirleiðis verða notað á öllum aðalbrautum, hvort sem þær eru langar eða stuttar. Með þessu móti mun hið almenna merki um kross- götur (svart krossmerki) ávallt merkja að skyldan til að víkja á umræddum vegamótum lúti þeim reglum sem gilda í land- inu, þ.e.a.s. hægrihandar-regl- an í flestum löndum. (Frá S.Þ.) ! ! ! ! i I ! i I Stjórnarflokkamir hafa lagt til á þingi að skyldusparnað- ur unglinga verði hækkaður um 150%, en fyrir sjö ár. um taldi Sjálfstæðisflokkur- inn þvilíkan skyldusparnað kommúnistískt tilræði við ís- lenzku þjóðina. Þorvaldur Garðar Kristjánsson gerði svofellda grein fyrir stefnu- breytingu flokksins á fundi í Varðarfélaginu fyrir nokkrum dögum: „Þegar skylduspamaðurinn var lögfestur árið 1957, var ég á móti þeirri ráðstöfun. Sjálfstæðisflokkurinn var á móti þeirri ráðstöfun, og sér- staklega snerist unga fólkið, sem hlíta átti þessum að- gerðum, á móti þeim. Ég hygg að mótstaðan gegn skyldusparnaðinum hafi fyrst og fremst komið til af okk- t- sérstöku siónarmiðum. Við crum ekki mikið gefin fyrir það að láta leggja bönd á okkur og alira sízt unga fólk- ið. En ef við ætluðum okk- ur í dag að vera sjálfum okk- ur samkvæmir, þá ættum við að afnema skyldusparnaðinn. En á það er ekki hlaupið, alira sízt eins og ástatt er í dag. Með skyldusparnaðinum hefur veðlánakerfið yfir að ráða fjármagni, sem nemur 70—80 millj. króna. Þetta fjár- magn myndi þurfa að greiða út úr veðlánakerfinu, ef skyldusparnaður væri nú af- numinn. Á því eru að sjálf- sögðu hin mestu vandkvæði, eins og nú stendur á. Við þurfum meira fé en ekki minna. Því sé ég ekki ann- að ráð, en að mæla nú með hugmyndum, sem fram hafa komið um það að hækka skylduspamaðinn frá því sem nú er.“ Það þótti löngum ágætur leikur hér á landi að flá kött eða fara i gegnum sjálf- an sig, og er ánægjulegt til þess að vita að leiðtogar Sjálfstæðisflokksins skuli þrátt fyrir allt hald tryggð við eina þjóðlega íþrótt. — Austri. vmrnim Daugandagur 21. marz 1964 Þarna sjáið þið körfustýrið nýja, stefnuljósarofinn er nú vinstra megin á stýrinu og siær auðvitað af án snertingar cftir beygju. Blikkljósið sem sést ofan á mælaborðinu gefur til kynna ef stefnuljós er í notkun. Þama er hann á götu i Reykjavik. Takið eftir nýja griliinu, breyttum lista utan á hurðum og brettum og einnig hinum vel staðsettu stefnuljósum. Brcttaspeglarnir eru ærið sterk- leglr. MOSKVITCH 403 BILAÞATTUR Bíllin hefur áfram 4ra gíra skiptingu, en útbúnaður og frágangur hennar er allur annar, skiptingin er mjúk og átakalaus, en það vildi brenna við, að fyrstu 4ra gíra bílarnir væru stirðir í gír- ana og gekk mörgum illa að □ Nú er 1964 árgerðin af MOSKVITCH komin til landsins og fyrstu bílarnir hafa ver- ið afhentir kaupendum. Hér á eftir verður spjallað dálítið um þennan bíl og þær breyt- ingar sem gerðar hafa verið frá síðustu árgerð. Það þarf áreiðanlega ekki að kynna útlit eldri árgerða af þessari bílategund fyrir lesendum, þeir eru margir Moskvitcharnir hér á landi, illameðfarnir og velmeðfamir og allt þar á milli. Það hafa margir sagt sem svo, að þetta væru ónýtir bílar, þeir ryðg- uðu niður á nokkrum mán- uðum og væru að öllu leyti ókeyrandi — það sé allt ó- nothæft og óferjandi sem kemur að austan, hverju nafni sem nefnist. Það er þó reynsla þess er þetta skrifar og fjölmargra annarra sem eiga þessa bíla- tegund, að með góðri hirðingu og umönnun eru þeir ósköp álíka og flestir aðrir bílar í sama stærðarflokki, einnig geta eigendur þessara bíla nefnt marga kosti sem þeir hafa í ríkara mæli en aðrir. Það er fengin reynsla fyr- ir því að rafkerfi rússnesku bílanna er framúrskarandi vandað, vel einangrað og endingargott. Rafgeymirinn er ótrúlega endingargóður, dæmi em til þess að þeir endist í átta ár og fimm til sex ár er algeng ending þeirra. Þetta er nokkuð sem er tvímæla- laust metending á rafgeym- um. Það mun einróma álit þeirra sem átt hafa Mosk- vjtch-bíla, að þeir séu mjög þægilegir ferðabílar, það er hátt undir þá, þeir eru ótrú- lega þægilegir í langkeyrsl- um af ekki stærri bílum að vera og það er hægt að böðl- ast á þeim yfir vatnsföll og gljár þar sem flestir aðrir benzínmótorar dræpu á sér af vatnsaustri; þar kemur að góðu gagni hið vandaða raf- kerfi og rimlatjaldið sem er fyrir framan kælinn og hægt er að loika með einu hand- taki úr ekilssætinu. Við skulum nú snúa okkur að 1964-árgerðinni — Mosk- vitch-403. — Grindarbygging og ,tboddy“ eru eins, en á stýrisgangi, girskiptingu. kúplingu og smáhlutum utan á bílnum hafa verið gerðar‘’“aaar breytingar. eiga við þá meðan bílarnir voru nýir. Stýrisgangur hefur breytzt verulega, nú eru spindilkúlur bæði ofan og neðan, ballans- stöng hefur verið endurbætt og gormaskálum breytt. Stýr- ishjólið sjálft er nú svokall- að körfustýri, mjög opið og þægilegt, stefnuljósarofi er nú staðsettur vinstra megin á stýrisstöng. Fetlarnir (pedalarnir) eru nú upphengdir og þar af leið- andi ekki göt í gólfið sjálft. Kúplingin er nú með vökva- dælu, mjög mjúk og þægileg. Rúðusprautur eru upp á framrúður og speglar á brett- um. Billinn er allur klæddur innan með leðurlíki, toppur- inn einnig, og ekkert tau er lengur til staðar, og er því hægt að sápuþvo allt áklæð- ið. Breytingar utan á bílnum eru þær, að nýtt „grill“ hef- ur verið sett á hann, opnara en á síðustu árgerð og stöðu- og stefnuljós eru nú stað- sett utar á brettunum, þann- ig að þau gefa til kynna fulla breidd þegar kveikt er á þeim og stefnuljósin sjást betur á hlið við bílinn en áður var. Ljósastæðin að aftan eru af annarri gerð en áður. Þau eru ekki krómuð en eru í sama lit og bíllinn, stór og áberandi glitaugu eru innbyggð í glerin. Núm- ersljósið er krómað og örlít- ið breytt í lögun frá eldri ár- gerðum. Einhver ryðvörn er á und- irvagni frá verksmiðjunni en til að hafa vaðið fyrir neð- an sig, láta Bifreiðar & land- búnaðarvélar ryðverja bíl- ana um leið og þeir eru tekn- ir upp. Sænska ryðvamar- efninu DINITROL er spraut- að á allan undirvagninn, inn- an í hurðir og grind, einnig í „sílsana" (þ.e. það sem yið getum einna helzt kallað þröskuldana á bílnum). Nú munu komnir til lands- ins milli 20 og 30 bílar af 1964 árgerðinni og- er verið að afhenda þá þessa dagana, en ef lesandanum dytti í hug að fara og kaupa einhvem þeirra þá verður að hryggja hann með því, að þeir eru allir seldir, en vonandi kem- ur næsta sending fljótlega til umboðsins svo hægt verði að afgreiða pantanir fyrir vo.r- ið. — L. mynciír cru tcknar i Kommúnarbifreið tvi.rksmiðjunum Moskvitch-bifreiðarnar framleiddar. í Sovétríkjunum, en þar eru Horðurlönd kjarnorkuvopnalaus STOKKHÓLMI 17/3 — Friðarþingi Norðurlanda lauk á sunnudaginn var. Þarna voru mættir 400 fulltrúar frá öllum Norðurlöndum nema íslandi og Færeyjum. 1 ályktuninni segir, að því mundi eflaust ákaft fagnað á No. ðurlöndum og um heim all- an, ef lýst yrði yfir, að Norð- urlönd séu belti S’ - kjarnavopnalaust á rík- ar, Finnia, IvUi'egS ctv> hefja tafarlaust samninga sín á milli, um, að kjamavopna- Iauat belti á Norðurlöndum verði staðfest með samkomu- lagi milli þessara fjögurra ^íkja. Til hægðarauka bendir ráð- jiefnan á eftirfarandi þrjú stig, sem áfanga að markinu: 1. Rikisítjórnir Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Nor- egs iýsa yfir, að þessi lönd hafi ekki í hyggju að gera breytingu á núverandi ástandi, ætli ekki að verða sér úti um FramhaJd á 9. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.