Þjóðviljinn - 21.03.1964, Page 3

Þjóðviljinn - 21.03.1964, Page 3
Laugardagur 21. marz 1964 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 3 Landamærastríi milli Kambodsja og S-Víetnam? • Flugvél með bandarískum flugmanni © skotin niður yfir Kambodsja Lézt 169 ára gömul PHNOM PENH og MOSKVU 20/3 — Herlið frá Suður- Víetnam og skriðdrekar, sem í voru bandarískir hermenn, réðust í dag á þorp í Kambodsja. Þjóðhöfðingi Kambodsja hefur áður kvartað undan ágangi nágranna sinna, en aldrei hefur Suður-Víetnam þó gengið svona langt áður. Einnig skutu Kambodsjamenn niður suður-víetnamska flugvél og kom í ljós, að henni stýrði bandarískur flug- maður, sem særðist hættulega. 16 manns féllu í bar- daganum. Atburður þessi bendir til þess, að Kambodsja og Suður-Víet- nam séu komin í opið landa- mærastríð og hér verði ekki látið staðar numið. Stjómin í Kambodsja hefur hvað eftir annað sent mótmælaorðsending- ar til Suður-Víetnam vegna loft- árása, sem þorp i Kambodsja verða fyrir af völdum suður-víet- namskra flugvéla. megnis bandarískir hermenn. Bardaginn við Chantrea var allharður og féllu þar a.m.k. 16 manns. Eitthvað um 14 manns munu hafa særzt. Loftárás Kambodsjastjórn sendi alþjóð- legu eftirlitsnefndinni, sem skip- uð var til þess að fylgjast með vopnahléinu í Indókína, orð- 6endingu, þar sem árás Suður- Víetnam er mótmælt. í orðsend- ingunni segir, að einn liður í árásinni hafi verið loftárás á þorpið og hafi flugvélin, sem skotin var niður yfir Kambod- sja kastað sprengjum á Chantrea. Annar flugmaðurinn í vélinni var Bandaríkjamaður og særð- ist hann alvarlega, þegar vél- in hrapaði. Hinn flugmaðurinn var frá Suður-Víetnam og beið hann bana. Bandaríkjamenn lýstu því yfir, að vélin hafi verið skotin niður yfir Suður-Víetnam og f Sai- gon var gefin sú skýring, að vélin hafi verið að stjóma her- æfingum, þegar skyndilega komu tvær flugvélar frá Kambodsja og skutu hana niður. Bein árás Auschwitz: „Opnaíu munninn— lokuðu augunum!" FRANKFURTH 20/3 — Eitt vitnanna, sem kom fram í Auschwitzréttarhöldunum í dag, skýrði frá óvenjulegum hrottaskap, sem hann varð vitni að í fangabúðunum. SS- liðsforingi gaf sig á tal við litla gyðingastúlku, þóttist ætla að gefa henni súkkulaði, sagði henni að opna munn- inn og láta aftur augun — og hleypti af skoti upp í munninn á barninu. Fréttir frá Kambodsja herma, að í dag hafi herlið frá Suð- ur-Víetnam ráðizt á þorpið Chantrea skammt frá landa- mærunum. 1 fylgd með þeim voru skriðdrekar, sem vörðu á- rásarmenn með stöðugri skot- hríð. 1 skriðdrekunum voru að sögn Kambodsjamanna mest- Fulltrúi S.-Afríku gengur af fundi S.Þ. GENF 1973 — 1 dag var sam- þykkt á fundi Heilbrigðismála- stofnunar Sameinuðu þjóðanna að breyta lögum stofnunarinnar þannig, að hægt sé að vísa S- Afríku úr stofnuninni. Þessi til- laga var borin fram af samtök- um Afríkuríkjanna og samþykkt með nokkrum meirihluta. Fulltrúi Suður-Afríku reis þeg- ar úr sæti sínu og sagðist hann hafa skipun frá stjóm sinni að fara þegar af fundi. Allir Suð- ur-Afríkufulltrúarnir, sem stadd- ir voru á fundinum fóru þegar í stað af fundinum. Fimmtugur gyðingur, Leuwar- den að nafni var kallaður fyrir sem vitni í Frankfurt í dag. Leuwarden vitnaði gegn Boger liðsforingja f SS, sem er einn hinna ákærðu. Hann sagðist hafa verið kallaður til yfir- heyrslu á skrifstofu Bogers ein- hverju sinni, og hafi hann orðið vitni að því, að fanga var kast- að út um gluggann. Hann kallaði á vatn og þegar Leuwarden ætl- aði að færa honum vatnið var honum skipað að nema staðar. Fanginn dó af meðferðinni. Boger kvaðst ekki geta borið á móti því, að sumt væri satt, sem vitnið sagði, en þó væri frásögnin mikið ýkt. Þá sagði Leuwarden frá því, að mörghundruð fangar hafi orðið vitni að átakanlegum at- burði eitt sinn úti í garði fanga- búðanna. Einn liðsforingjanna úr SS hafi gefið sig á tal við litla gyðingastúlku. Allan daginn höfðu þau spjallað saman og gengið um garðinn. Um kvöldið námu þau staðar utan við húsið og liðsforinginn stakk hendinni f vasa sinn og lét skrjáfa f silf- urpappír. Fangamir fylgdust með því sem gerðist og héldu, að hann ætlaði að gefa stúlkunni súkkulaði. Liðsforinginn sagði henni að opna munnin og loka augunum. Stúlkan gerði það, en fékk ekki súkkulaði upp í sig — heldur byssukúlu. Kirkiuténleikar endurteknir Nýr utanríkisráð- herra USA í haust? WASHINGTON 20/3 — Sjónvarpsstöð i Bandaríkjunum skýrði frá því í morgun, að Dean Rusk hefði í hyggju að draga sig í hlé sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna vegna fjárhagsörðugleika, sem hann hafi komizt í á með- an hann gegndi stöðunni. Rusk bar þetta til baka í dag. Dean ltusk í gærkvöld var skýrt frá því í bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC, að Ðean Rusk hafi i hyggju að segja af sér utanrik- isráðherraembættinu i haust eftir kosningar. Orsökin væri bó ekki ágreiningur við Johnson forseta heldur fjárhagsörðug- leikar sem hann ætti vfð að stríða eftir að hann tók við embættinu. Margir voru taldir koma til greina sem væntanlegir utan- ríkisráðherrar — og var í því sambandj bent á Robert Mc- Namara, varnarmálaráðherra og George Ball. varautanríkisráð- herra. t dag var þessi fregri borin til baka Dean Rusk sagði sjálf- ur, að þetta væri hreinasta fiarstæða. Þegar hann var ! spurður hvernig fjárhagnum I liði svaraði hann hlæjandi: Ég I er ekkert að leyna þvi, að hann er mjög bágborinn. Ákveðið hefur verið að end- urtaka tónleika þá er söng- flokkur Hafnarfjarðarkirkju hélt í kirkjunni þann 1. þ.m. undir stjóm Páls K. Pálsson- ar organleikara. Þóttu þessir tónleikar takast með ágætum. Söngflokkurinn söng án undir- leiks fjögur lög og þrjú lög með undirleik Áma Arin- bjarnarsonar organleikara og undir stjórn Páls Kr. Pálsson- ar. Frú Inga María Eyjólfs- dóttir söng fjögur lög með undirleik Páls Kr. Pálssonar. Ámi Arinbjamarson lék ein- leik á kirkjuorgelið bæði á undan og eftir. Tónleikar þessir voru öllum bátttakendum tii sóma og það er ekki oft sem tækifæri gefst til að heyra jafnfágaðan tón- listarflutning. — Tónleikarnir verða endurteknir á pálma- sunnudag klukkan fimm í Hafnarfjarðarkirkju. — B.J. ISTANBUL 20/3 — Hacer Sim- sek, sem álitið er að hafi ver- ið 169 ára gömul, lézt í dag á heimili sínu á Tyrklandi. Banameinið var hjartaslag. Hún lét eftir sig 87 bamabörn. Krístilegur flokkur stofnaður í Svíþjóð STOKKHÓLMI 20/3 — Verið er að stofna kristilegan stjómmála- flokk í Svíþjóð. Fyrsti formaður flokksins verður Lewi Pethrus, áttræður maður og ritstjóri Kristilega dagblaðsins. Ekki er dregin dul á tilefni flokksstofn- unarinnar — deilumar um hin- ar umræddu kvikmyndir, „Þögn- in“ og „491“. Nauðgarinn í Stokk- hólmi fundinn STOKKHÖLMI 20/3 — Undan- famar vikur hefur verið leitað að pilti í Sokkhólmi, sem hvað eftir annað hefur ráðizt á stúlk- ur og gert tilraun til þess að nauðga þeim. Atburðir þessir skeðu í grennd við neðanjarð- brautarstöðvar að kvöldi til. Lögreglunni hefur nú tekizt að hafa hendur í hári 16 ára pilts og eftir margra daga yfir- heyrslur hefur hann játað á sig verknaðinn. 6 manna f jölskylda fannst myrt heima CARDIFF 20/3 — Fjölskylda ein í Suður-Wales fannst i dag myrt á heimili sínu. Alls voru það sex manns, roskin ekkja, dóttir hennar og tengdasonur á- samt þremur dætrum 15 ára, 7 ára og 4 ára gömlum. Ekkert hefur verið látið uppi um orsök morðsins, né hver sé hinn seki, en það hefur kvis- azt. að ekkjan hafi verið slegin í rot með hamri. Senda Krústjoff tóninn PEKING 20/3 — Málgagn al- banska kommúnistaflokksins skrifar mjög harðorðar greinar um Krústjqff þessa dagana. Er Krústjoff ákærður fyrir sam- starf við Bandaríkin og einnig fyrir að hafa misnotað nafn Lenins. W ennerström-mála- ferlin eiga að hefjast 10. apríl STOKKHÖLMI 19/3 — Skýrt hefur verið frá því, að mála- ferlin gegn Stig Wennerström, sem sakaður er um njósnir fyr- ir Sovétríkin. hefjist 10. apríl. Ef engin breyting verður á þessu verður dómurinn felldur í síðasta lagi í lok maí. Tage Er- lander skýrði frá því í gær eft- ir viðræðumar við Gromiko ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, að ekki hefði verið minnzt á Wennerströmmáliö. Þorp þeirra standa auð og yfirgefin Tyrkneskum íbúum á Kýpur fækkar óðum NICOSÍA 20/3 — Sjónarvottar herma, að ástandið í tyrk- nesku þorpunum á Kýpur sé hörmulegt, og tyrkneska þjóðarbrotið afar illa leikið. Sum þorp hafa staðið auð vikum saman og hefur það verið tekið til bragðs áð jafna þau við jörðu með ýtum. í gærkvöld komst á kyrrð í Ghaziveran, en þar var barizt heiftarlega í gærdag. Gæzlu- lið Sameinuðu þjóðanna drífur nú hvaðanæva að. í dag var brezkt gæzlulið sent til Ghaziyeran, þar sem barizt var mest í gær. Þar er nú kom- in á ró og tyrkneskar konur og böm hættu sér heim til þorps- ins undir kvöldið. Mörg hús í þorpinu bmnnu til kaldra kola og var haldur daufleg heimkoma fyrir marga. Allt er nú tiltölulega rólegt á eynni. Bardaginn í gær kostaði átta manns lífið, sex tyrknesk- mælandi og tvo grískumælandi menn. I dag var tekið að jafna við jörðu rústirnar af tveimur þorpum. Þorpin hafa verið auð og yfirgefin í margar vikur; íbú- ar þess, sem eru af tyrknesku bergi brotnir, em annað hvort flúnir eða dauðir. Nokkur skriður komst á flutn- inga gæzluliðsins, þegar Tyrkir hótuðu innrás á eyna fyrir skömmu. Nú eru næstum allir kanadísku hermennimir komnir og von á fleiri um helgina. Fyrstu sænsku hermenniroir, sem alls eiga að verða 600, verða sendir á fimmtudaginn kemur. Norska þingið samþykkti í dag að láta 355.000 norskar krónur af hendi rakna til gæzluliðsins, og Finnar ætla að senda 5,5 milljónir marka. Tyrkneska stjómin hefur látið i ljós kvíða varðandi ástandið á Kýpur og vilja láta hraða liðs- sendingum enn meir. USA eiga 12 Pol- ariskafbáta WASHINGTON 19/3 — Banda- ríski sjóherinn hefur tilkynnt, að hann hafi nú yfir að ráða flota tólf pólariskafbáta. Hver einstakur kafbátur hefur 16 pólariseldflaugar. Skipt um blaðafull- trúu í Hvíta húsinu WASHINGTON 20/3 — Johnson forseti lýsti því yfír í morgun, að blaðafulltrúi Hvíta hússins, Pierre Salinger, hafi beðizt lausnar frá embætti og hafi lausnarbeiðnin verið tekin gild. Sá orðrómur gengur, að hann ætli að bjóða sig fram í Kaliformu sem fulltrúi demókrata í öld- ungadeildinni. Pierre Salinger hefur verið blaðafulltrúi Hvíta hússins frá því John Kennedy tók við for- setaembætti árið 1961. Hann var ákafur stuðningsmaður Kenn- edys og tók virkan þátt í kosn- ingabaráttunni með honum. Hann var einnig náinn vinur for- setans og eftir dauða hans sagð- ist hann ætla að skrifa um hann bók. Aðstoðarblaðafulltrúi Saling- ers sagði einnig Iausu embætti um leið og Salinger kvaddi. Þeir flugu báðir til San Fransisco í dag. Ekkert hefur verið látið uppi opinberiega um ástæðuna fyrir brottför Salingers, en uppi er orðrómur um, að hann ætli að bjóða sig fram í þingkosningun- um í Kaliforníu. Búizt var við að Salinger tilkynnti framboð sitt í dag. Lokið síðasta áfanga i smíði Hótei Sögu n í gær var lokið síðasta áfanga í byggingarmálum Hótel Sögu, er tekin var í notkun vistleg setustofa inn af anddyri hótelsins og stór vínstúka. Er þessi hluti hótelsins mjög í stíl við annað þar á bæ, til frágangs og útlits hefur mjög verið vandað að sjá og fátt til sparað, en íburður þó ekki áberandi. Nýju vinstúkunni, þeirri | fjórðu i Hótel Sögu, hefur ver- ið gefið nafnið „Mímisbar". Þar geta um hundrað manns verið rneð góðu móti, notið veitinga standandi við barborðið eða i sætum og sófum við laus borð. Allt er teppalagt i hólf og gólf, utan sporöskjulaga flötur, fá- einir fermetrar, á miðju gólfi. Þar er dansplássið, en píanó- leikari mun leika létta músik og dansmúsik þegar Mímisbar er opinn. þ.e. öll kvöld vik- unnar. Sem fyrr var sagt, hefur nú allt sem viðkemur Hótel Sögu, verið tekið i notkun. Frá ýmsu öðru er þó enn eftir að ganga í sambandi við Bændahöllina, t.d. skrifstofuhæð Búnaðarfé- lagsins. Þá er og eftir að leggja síðustu hönd á frágang ýmiskon- ar baðstofa og snyrtistofa í kjallara hússins, einnig eiga ferðaskrifstofa á vegum Flugfé- tags íslands, fatnaðarverzlun og útibú Búnaðarbankans eftir að hefja störf í afmörkuðum bás- um sínum á götuhæð hússins. Þorvaldur Guðmundsson for- stjóri sér sem kunnugt er um rekstur Hótel Sögu fyrir hönd búnaðarsamtakanna. Hann sagði fréttamanni Þjóðviljans í gær, að rekstur hótelsins á s.l. ári hefði verið mjög hagstæður, nýting gistirúma um 67% miðað við allt árið. Forráðamenn hót- elsins hefðu vitað það, er þeir hófu reksturinn fyrir tveim ár- um, að aðsókn gesta yrði mik- il sumarmánuðina eins og reyndin hefur líka orðið, en hinsvegar hefði aðsóknin á öðr- um tímum ársins, haust og vet- ur, reynzt til mun meiri en bú- izt var við, Gistiherbergi á Hótel Sögu eru nú 90 talsins með 150 rúmum. Eru nær öll gistirúmin i sumar þegar upp- pöntuð.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.