Þjóðviljinn - 21.03.1964, Page 6
■'f'
;
’ '
;
.'• '•/.• • ••'••' v • ■.• ••' ;■ ..•'•• '■..•• ■
• • •■>••• / • ■
. .
:
*•»;, >
\
■mmmm
i ,•■•■•• •.;•••.•••
't'Á
: ■'■'■'■';
li
;
•':- ••'••,•;.; -• .
'Víllf&tynfw.'íwt
6 SÍÐA
WÖÐVIUINN
Laugardagur 21. marz 1964
KAUPSTEFNAN
Myndln sýnir nýtt kaupstefnuhús í Leipzig, en á bak vlð það sést í ráðhúsið fræga; það var
reist rnn 1550 og er gimsteinn meðal rcnisans-hú sa í Evrópu. Kaupstcfnuhús þetta var í vor troð-
fullt af bókum á öllum hæðum; þar var að finna 40.000 bókatitla frá um 500 forlögum jafnt í só-
síalistískum rikjum sem vestrænum; þar sýndi m cira að scgja bandarískt foriag bækur sínar. Eint
og marka má af myndinnl eru nú miklar byggi ngafrarr.kvæmdir í miðborginni í I.eipzig; hún
verður endurreist á næstu árum, og báru teikningar með sér, að þar myntlu fles< bin nýju hús
bera svipað yfirbragð og hið væntanlega ráðhús í Reykjavík.
A milli sýningarskálanna á tæknidoiHinni í Leipzig gnæfðu kranar og vinnuvélar við himin eins
og þéttur frumskógur.
undir úr Þýzka lýðveldinu
sjálfu. 1 hótelum og gististöð-
am Leipzig eru aðeins um
2.000 rúm, þannig að svo til
hver einasta fjölskylda verður
að opna heimili sín til þess að
hýsa gesti. Háskólunum í Leip-
zig er lokað meðan á kaup-
stefnunni stendur, og þeir
námsmenn sem ekki starfa við
kaupstefnuna flytja heim til
sin á meðan og eftirláta her-
bergi sín aðkomumönnum. Ný
veitingahús eru opnuð, þjónar
og matreiðslumenn þyrpast til
borgarinnar, leigubílar koma
langt að til að starfa þar, og
menn sem eiga einkabíla taka
upp leigubílaakstur þessa daga;
sumir götulögregluþjónar reyn-
ast vera jafn ókunnugir og
maður sjálfur þegar þeir eru
spurðir til vegar. Hvarvetna
má heyra annarlegar tungur
og sjá fólk sem auðsjáanlega
hefur ferðazt yfir hnöttinn
hálfan. Á kaupstefnunni (
Leipzig birtist „heimurinn (
hnotskurn”. eins og Goethe
komst að orði í bréfi til Schill-
ers un 1800, en hann þurfti
einnig að eftirláta herbergi
sín aðkomumönnum á stúd-
entsárum sínum í Le pzig. Og
ekki gat ég heyrt annað en
Leipzigbúum félli það vel að
tilveru þeirra væri umturnað
tvisvar á ári hverju, kaup-
stefnan væri að vísu erfið en
hún væri einnig samfelld hátíð
og skildi eftir margar ánægju-
'egar minningar. Enda væru
'caupstefnurnar óframkvæman-
°gar án l'fandi þátttöku al-
’nnnings; nú er að vísu verið
1 byggja ný og glæsileg hóte'
'oorginni og eiga þau að koms
gagnið á næsta ári á afmæl-
’kaupstefnunum, en einni"
bau munu hrökkva ákaflep
skammi þegar íbúafjöldir:
tvöfaldast í einu vetfangi.
8.400 fyrirtæki
frá 64 löndum
Kjörorð kaupstefnunnar í
vor var „tækniframfarir í þágu
frjálsrar alþjóðaverzlunar” og
henni var m.a. ætlað að búa i
haginn fyrir þá miklu alþjóða-
ráðstefnu um viðskiptamál sem
Sameinuðu þjóðirnar gangast
fyrir og haldin verður í Geni'
í vor. Meginþunginn var að
þessu sinni lagður á tækni-
deildina og þar voru í fyrir-
rúmi efnaiðnaður og vélbúnað-
ur honum tengdur, vélaiðnaður
og rafeindataekni. Tæknideildin
öll var á samfelldu svæði sem
náði yfir um 200,000 fermetra,
en á öðrum stöðum í borginni
voru sýndar neyzluvörur og
heimilisvélar á 100.000 fermetra
svæði. 8.400 fyrirtæki frá 64
löndum taka þátt í sýningunni.
Þar af eru 5.4Q0 fyrirtæki frá
Þýzka lýðveldinu sjálfu og
taka rúmlega tvo þriðju af
sýningarrýminu. Frá öðrum
sósíalístískum ríkjum voru
286 stórir viðskiptaaðilar. Frá
auðvaldsríkjum Vestur-Evrópu
tóku 2.200 fyrirtæki þátt í sýn-
ingunni, og voru þar fyrir-
ferðarmest fyrirtaeki frá Vest-
ur-Þýzkalandi og Vestur-Berl-
ín eða alls um 820 talsins;
einnig var mikil þátttaka frá
fyrirtækjum í Frakklandi, Bret-
landi, Austurríki, Hollandi og
Belgíu. Um 580 fyrirtæki frá
rúmlega 30 ríkjum utan Evrópu
tóku þátt í sýningunni. og voru
'•'ar fyrirferðarmestar sýningar
'ndlands, Sameinaða Araba-
'•ðveldisins, Úrúgvæ og Mar-
'kkó.
Vörum er nú í vaxandi mæii
"ðað eftir tegundum á vöru-
'•nineunni í Leipzig. þótt enn
-é nokkuð um sérstakar þjóða-
sýningar. En tegundaröðunin er
að sjálfsögðu mikið hagrasði
bæði fyrir kaupsýslumenn og
tæknifræðinga sem komnir eru
til Leipzig til þess að bera
saman vörugæði og nýungar i
tækni. Er slíkur samanburður
raunar að verða mjög mikil-
vægt atriði á kaupstefnunni;
þar er nú úthlutað sérstökum
heiðursverðlaunum fyrir vörur
sem bera af og nýungar sem
taldar eru mikilvægar.
Mikil viðskipti
Þess er auðvitað enginn kost-
ur fyrir blaðamann með ákaf-
lega takmarkaða vöruþekkingu
að gefa hugmynd um þann
fjölbreytilega vaming sem
sýndur er í Leipzig. Sýningar-
skráin ein var um 2.000 þétt-
prentaðar síður og vegur
næstum þvi tvö kíló, enda
fylgdi henni sérstök burðar-
taska. Allra sízt er ég fær um
að skýra frá þeim margvíslegu
nýungum sem þar voru kynnt-
ar í efnaiðnaði, vélbúnaði og
rafeindatækni í þágu sivaxandi
sjálfvirkni, en ég sá að sér-
fræðingar könnuðu þær nýung-
ar af mikilli gaumgæfni, enda
er það mikilvægur þáttur f
kaupstefnunni að sérfraeðing-
ar beri saman bækur sínar; þar
eru haldnir fjölmargir fyrir-
lestrar og umræðufundir um
vísindi og tækni. Allur al-
menningur horfði af þeim mun
meiri sérþekkingu á neyzlu-
vaminginn, hverskonqr vefnað-
arvörur. húsgögn og húsbúnað,
matvæli og heimilistæki. Þar
mátti m.a. sjá að A-þjóðverj-
ar eru nú að ná mjög góðum
tökum bæði á vefnaðarvörum
úr gerviefnum, hentugum hús-
Kögnum og framleiðslu á raf-
'cminum heimiiistækjum.
I'n hað eru ekki aðeins sér-
Framhald á 8. síðu.
ILEIPZIG
Vðruframleiðslan er hið
mikla einkenni okkar tima,
fjöldaframleiðsla á nauðsynj-
um —■ og raunar óþarfa sem
gerður er að nauðsynjum með
áróðri og auglýsingum. Iðnað-
arframleiðslan er hið mikla
keppikefli allra þjóða, mæli-
kvarðinn á getu þeirra til að
tryggja þegnum sínum góð
lífskjör og batnandi. Og heims-
verzlunin fer stöðugt vaxandi,
en i henni birtist skipulögð og
óskipulögð verkaskipting ríkja
og þjóða. Á síðustu tíu árum
einum saman hefur heimsverzl-
unin tvöfaldazt að verðmæti.
Þessi margþættu viðskipti eru
flókin og nátengd stjórnmál-
um, en einn áþreifanlegasti
þáttur þeirra fyrir almenning
eru vörusýningar þær sem
haldnar eru víða um lönd og
verða stöðugt fjölþættari og
umfangsmeiri, Á þessu ári
verða haldnar um 80 alþ.jóð-
legar vörusýningar í fjölmörg-
um löndum, flestar raunar í
Evrópu. en á smærri sýningar
sem kynna framleiðslu einnar
þjóðar verður naumast komið
tölu. Sú alþjóðlega vörusýning
sem flestir Islendingar sækja
er vörusýningin í Leipzig, en
hún er sögufrægasta fyrirtæki
sinnar tegundar og kynnir
neyzluvörur á haustin, en á
vorin bætist við umfangs-
mikil tæknisýning.
800 ára afmæli
Kaupstefnan í Leipzig er
langelzt.a fyrirtæki sinnar teg-
undar í heiminum. 1 skjala-
6afni borgarinnar er enn að
finna réttindaskjal sem Otto
von Meissen markgreifi gaf út
1160, en þar fengu Leipzigbúar
forréttindi til að halda mark-
aði og stunda verzlun, og var
6amkeppni við þá á því sviði
bönnuð í næsta nágrenni borg-
arinnar. Fimm árum síðar var
haldinn stór markaður sem tal-
inn er upphaf vörusýninganna
í Leipzig, þannig að þær munu
á næsta ári halda hátíðlegt 800
ára afmæii sitt og er þegar
mikill viðbúnaður að gera þau
tímamót sem hátíðlegust,
Markaðirnir í Leipzig urðu sí-
fellt umfangsmeiri; þegaríupp-
hafi 15. aldar var Leipzig orð-
in miðstöð viðskipta í Evrópu,
og eftir þrjátiu ára stríðið varð
hún mikilvægur tengiliður i
viðskiptum Austur-Evrópu og
Vestur-Evrópu. 1 skjalasafni
borgarinnar má finna við-
skiptasamninga milli Leipzig og
Moskvu frá 1573, og upp úr
því urðu tengslin alþjóðleg. Á
vörusýningum í Leipzig mátti
þá sjá varning frá Asíulöndum,
fluttan þangað með aðstoð
vörusýningarinnar í Nizhny-
Novgorod, og sæfarar í Vestur-
evrópu fluttu til Leipzig hinar
nýstárlegu vörur frá annar-
legum löndum. Þannig hefur
kaupstefnan í Leipzig með
sanni verið alþjóðleg í tæpar
fjórar aldir.
Kaupsýslumenn
Leipzig er þannig i sveit
sett að hún hefur fengið að
kynnast þeim grimmilegu þjóð-
félagsátökum og styrjöldum
sem geisað hafa í miðbiki Evr-
ópu öld fram af öld. En það
hefur ævinlega verið regla
kaupstefnunnar að viðskipti
skuli háð hvað sem þjóðfélags-
átökum líður. I skjalasafni
borgarinnar er að. finna griða-
yfirlýsingu skráða á bókfell
frá Dietrich von Meissen mark-
greifs 1268. Þar lýsir einválds-
herrann yfir því að hann heiti
að „aðstoða og vernda alla
kaupmenn, hvaðan sem þeir
koma, hvenær sem þeir vilja
gera við oss viðskipti í hinni
umræddu borg Leipzig, jafn-
vel þótt vér eigum í yfirlýstri
styriöld við þjóðhöfðingja
þessara kaupmanna.” Þetta
einkenni kaupstefnunnar í
Leipzig hefur sett sérstakan
svip á starfsemi hennar eftir
síðustu heimsstyrjöld. Eins og
kunnugt er var það veigamikill
þáttur í kalda stríðinu að tor-
velda viðskipti milli sósíalist-
ískra landa og auðvaldsríkja.
Kaupstefnan í Leipzig hefur
sett sér það sérstaka mark að
vera í staðinn tengiliður milli
austurs og vesturs á sviði við-
skipta, og hún hefur án efa
átt ríkan þátt í því hversu
mjög þau viðskipti hafa auk-
izt á undanfömum árum. Um
Leipzig hefur aldrei verið neitt
„jámtjald”, þar hafa verzlun-
armenn úr austri og vestri átt
stefnumót, borið saman vam-
ing sinn, rætt um vandamál
sín og gert sívaxandi viðskipti.
„Heimur í
hnotskurn"
Leipzig ber svip af því að
vera miðstöð fyrir þessar
miklu alþjóðlegu kaupstefnur,
hún er án efa einhver mesta
ferðamannaborg í heimi. Ibú-
arnir eru um hálf miljón tals-
ins, en á þeim tíu dögum sem
kaupstefnan í vor stóð bættist
önnur hálf miljón við, þar á
meðal kaupsýslumenn og sér-
fræðingar frá meira en 90
löndum. Um 50.000 gestir komu
erlendis frá, en um 450 þús-