Þjóðviljinn - 21.03.1964, Síða 8

Þjóðviljinn - 21.03.1964, Síða 8
g SlDA ÞIÓÐVILIINN Laugardagur 21. marz 1964 Rússa/eppi tíl sölu Bifreiðin er yfirbyggð í góðu standi — traust og örugg ferðabifreið. Upplýsingar í síma 36171. KristínboBsdagurinn 1964 Pálmasunnudagur hefur um margra ára skeið verið helgaður kristniboðinu. Við guðsþjónustur og samkomur í eftirtöldum kirkjum í Reyk’javík og nágrenni mun einnig í ár verða tekið við gjöf- um til kristniboðsins í Konsó. AKRANES Kl. 10.30 f.h. Sunnudagaskóli í „Frón“. Kl. 2 e.h. Guðaþjónusta í Akraneskirkju. Jóhannes Sig- urðsson prédikar. Síra Jón M. Guðjónsson fyrir * altari. Kl. 8.30 e.h. Kristniboðssamkoma í „Frón“. Jóhannes Sigurðsson talar. HAFNARFJÖRÐUR Kl. 10.30 f.h. Barnasamkoma í húsi K.F.U.M. og K. við Hverfisgötu. Kl. 2 e.h. Guðsþjónusta í Hafnarfjarðarkirkju. Síra Jó- hann Hannesson, prófessor, prédikar. Sóknar- prestur sr. Garðar Þorsteinsson, prófastur, fyrir altari. Kl. 8.30 e.h. Kristniboðssamkoma i húsi K.F.U.M. og K. KEFLAYÍK Kl. 11 f.h. Barnaguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Síra Björn Jónsson, sóknarprestur. Kl. 8 e.h. Kristniboðssamkoma í kirkjunni. Baldvin Steindórsson og Hilmar B. Þórhallsson. KÓPAVOGUR Kl. 2 Guðsþjónusta í Kópavogskirkju. Síra Gunnar Árna- son, sóknarprestur. REYKJAVÍK Kl. 11 f.h. Hallgrímskirkja. Síra Sigurjón Þ. Árnason, sóknarprestur. Kl. 2 e.h. Fríkirkjan: Síra Þorsteinn Björnsson. Grensásprestakall: Guðsþjónusta í Breiðagerðisskóla. Síra Felix Ólafsson, sóknarprestur. Hallgrímskirkja: Síra Jakob Jónsson, sóknarprestur. Laugarneskirkja: Síra Garðar Svavarsson, sóknarprestur. Neskirkja: Síra Frank M. Halldórsson, sóknarprestur. Kl. 5 e.h. Dómkirkjan: Síra Óskar J. Þorláksson, sóknar- prestur. Kl. 8.30 e.h. Kristniboðssamkoma í húsi K.F.U.M. og K. við Amtmannsstíg. Friðbjörn Agnarsson og Narfi Hjörleifsson. Kristniboðsþáttur. Söngur. Vér bendum vinum og velunnurum kristniboðsins í Konsó á guðsþjónustur þessar og samkomur, þar sem gjöfum til þess verður veitt móttaka. SAMBAND ÍSLENZKKA KRISTNIBOÐSFÉLAGA. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall BJARGAR BJÖRGÓLFSDÓTTUR Hafnarfirði BOKiN Klapparstíg 26. ■ KAUPUM ■ LESNAR ■ BÆKUR. Gjörið svo vel að hringja í síma 10680. BÓKIN h.f. Klapparstíg 26. H jörleifur Guðbjörg Gunnarsdóttir; Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ada Litvak Gunnarsson, Asta Lúðvíksdóttir, Nanna Friðgcirsdóttir, barnabörn Gunnarsson Asgeir Long, Magnús Gunnarssoti, Björgúlfur Gunnarsson, Geir Gunnarsson, Hjörtur Gunnarsson og systkini. Kaupstefnan í Leipzig Framhald af 6. síðu. fræðingar, íorvitinn almenn- ingur og fávísir blaðamenn (þar af 200 erlendir) sem þyrp- ast um sýningarsalina dag eftir dag, kaupstefnunni er fyrst og fremst aetlað að skipu- leggja viðskipti. Hvert fyrir- tæki sem sýnir hefur sérstak- ar skrifstofur til sinna afnota, og þar er þingað og samið lið- langan daginn. Hversu um- fangsmikil viðskiptin eru þessa fáu daga sem kaupstefnan er haldin má marka aif því að ut- anríkisviðskipti Þýzka lýðveld- isins eru nú um 20 miljarðar marka, en á kaupstefnunum tveimur á síðasta ári var sam- ið á vegum Þýzka lýðveldisins um viðskipti sem námu rúmum sjö miljörðum marka; þannig eru kaupstefnurnar sjálfar mjög veigamikill þáttur í samninga- gerðinni. Auk þess takast þar viðskiptasambönd milli annarra ríkja, einkanlega milli auð- valdsríkja og sósíalistískra ríkja. Litið iöngunar- augum Eins og áður er getið er hlutur Þýzka lýðveldisins að sjálfsögðu langmestur á kaup- stefnunni í Leipzig. Og það duldist ekki að Austurþjóð- verjar voru hreyknir af vöru- framboði sínu og töldu það sóma sér vel við hliðina á varningi annarra þjóða, jafnt vestrænna sem austrænna. Al- menningur skoðaði hverskonar austurþýskar neyzluvörur með miklum áhuga, en ég heyrði það á tali manna að ýmsar þeirra væru ekki enn fáanleg- ar í verzlunum í Þýzka alþýðu- lýðveldinu, til að mynda sum þau heimilistæki sem hag- kvæmust virtust og glæsilegust. Ástæðan er sú að Austurþjóð- verjar eru mjög háðir utan- rík.' sviðskiptum, þá skortir m.jög hráefni í landinu og verða að flytja inn undirstöðu- efni eins og olíu, kol, jám- málm, baðmull, valsað stál og fleiri málma, ull og koks, svo að Bokkuð sé nefnt. Þess vegna verður utanríkisverzlun- in að vera í fyrirrúmi í ýms- um þáttum iðnaðarframleiðsl- unnar, og kaupstefnan í Leip- zig hefur m.a. þann tilgang að kanna hvaða nýjar vöru- tegundir eru markaðshæfar á heimsmarkaðnum. Þegar sú reynsla er fengin hefst fjölda- framleiðsla, og þá líður sjaldn- ast á löngu þar til Austurþjóð- ver.jjar sjá í verzlunum sínum ýmsar þær vörur sem þeir höfðu áður litið löngunaraug- um á kaupstefnu í Leipzig. Efnaleg velmegun Kaupstefnan f Leipzig hlýt- ur að vera mjög mikilvæg fyrir Austurþjóðverja sjálfa; þar geta þeir kynnzt því með samanburði við vaming ann- arra landa hvar þeir eru á vegi staddir. Og aðkomumað- ur er auðvitað býsna forvit- inn að kynnast efnahagsþró- uninni í Þýzka lýðveldinu, sem jafnaðarlega verður að þola meiri hrakyrði en nokkurt annað land í víðri veröld f afturhaldsblöðunum. Þegar ég kom þangað nú voru liðin fimm ár síðan ég heimsótti land'ð seinast, og ég reyndi auðvitað að bera saman í hug- anum hvað hefði breytzt. Auð- vitað gerir nokkurra daga dvöl í framandi landi aðkomumann ekki að neinum sérfræðingi um hagi þess, en sum meginatriði blasa að sjálfsögðu við: yfir- bragð fólksins, klæðaburðar þess, andrúmsloftið f verzlun- um og veit'ngahúsum. Ég gat ekki betur séð en Leipzig bæri á sér allt yfirbragð efnalegrar velmegunar, klæðaburður fólks var mjög svipaður og í Skand- inavíu. vöruframboð í verzlun- um allgott og andrúmsloftið létt og þægilegt. Enn mun þó °inhver skortur vera á land- h-'irp^p-vörum. hótt ástandið á hv' sv*ði hafi batnað stórlega frá þvj scm var fyrir hálfu öðru ári; raunar nota Austur- þjóðverjar meira af landbún- ’ aðarvörum en flestar þjóðir aðrar. Þetta mat mitt var einnig staðfest af viðtölum við fólk, heimamenn og fastagesti á kaupstefnum í Leipzig. Lífs- kjörin halda stöðugt áfram að batna, þótt heimamenn færu ekki dult mcð það heldur að margt mætti betur fara. Þýzka undrið Oít varð mér hugsað til þess á kaupstefnunni í Leipzig þegar ég kom í fyrsta skipti til Aust- ur-Þýzkalands 1951 og sá við- urstyggð eyðileggingarinnar. rústir í öllum áttum, og hvem- ig fólk starfaði að því að endurreisa nýtt þjóðfélag með tvær hendur tómar í bókstaf- legri merkingu þeirra orða, handlangaði tígulsteina í löng- um röðum og gekk að fram- leiðslustörfum með frumstæð- ustu verkfærum. Fyrir styrj- öldina var ekki einusinni þriðj- ungur af iðnaðarmætti Þýzka- lands í þeim hluta sem nú heitir Þýzka lýðveldið, hráefni eru þar af mjög skornum skammti eins og áður er get- ið, og ofan á rústirnar í styrj- aldarlok bættist það að Sovét- ríkin hirtu þar stríðsskaða- bætur þær sem þau áttu rétt á — á sama tíma og Vesturveldin jusu frá upphafi fé í Vestur- þjóðverja. Engu að síður hefur það nú gerzt að Þýzka lýðveldið er orðið eitt af tíu mestu iðnaðar- veldum heims. Þótt það nái aðeins yfir fjórðunginn af hinu gamla Stórþýzkalandi, er iðn- aðarframleiðsla þess nú eins mikil og alls Þýzkalands fyrir styrjöldina, og þá var Þýzka- land eins og alkunnugt er eitt fremsta iðnaðarveldi ■ veröld- inni. Nú framleiðir Þýzka lýð- veldið 5 miljörðum kílóvatt- tíma meiri raforku en allt Þýzkaland fyrir styrjöldina og er nú annað í röð Evrópu- landa að því er varðar orku- framleiðslu á rnann, en orku- framleiðslan er óvefengjanleg- asti mælikvarðinn á iðnaðar- getu ríkis. 1 efnaiðnaði eru Bandaríkin ein ofjarl Þýzka lýðveld'sins. Skipabyggingar eru orðin ein helzta sérgrein Þýzka lýðveldisins, eins og ís- lendingar ættu að hafa nokkra hugmynd um; skipasmíði er þar nú hin sjötta mesta í heimi. Og þannig gæti ég haldið áfram að þylja tölur um þá frain- þróun sem orðið hefur á ótrú- lega skömmum tíma; ég held að það sé ótvírætt að þeir menn hafi satt að mæla sem halda því frsm, að h:ð raun- verulega „þýzka undur” hafi gerzt t Austurþýzkalandi. Samkvæmt hinni nýju sjö ára áætlun sinni ætla Austur- þjóðverjar að auka iðnaðar- framleiðsluna enn um 60% fram til ársins 1970, og þá á hún að vera orðin sexfalt meiri en hún var 1949, árið sem Þýzka lýðveldið var form- lega stcfnað. Þá staðreynd ættu íslenzk stjórnarvöld og i íslenzkir kaupsýslumenn að festa sér í minni, því hún er til marks um það að viðskipt- in við Austur-Þýzkaland ættu að geta orðið stöðugt auðveld- ari og umfangsmeiri á næstu árum. ef við höfum vit á að festa okkur þá ágæt umarkaði sem þar bjóðast fyrir fram- leiðsluvörur okkar. En að því efni verður vikið í annarri grein. — m. Fylkingin Fclagar. Farið verður í Skálann um páskana. Nánari upplýsing- ar á skrifstofu ÆFR, sími 1-75-13. Stjórnin. Klapparstíg 26. REGNKLÆÐI Síldarpils Sjóstakkar Svuntur o.fl. Mikill afsláttur gefinn. VOPNI Aðalstræti 16 (við hliðina á bílasölunni) ÁSVALLAGÖTU 69. Sími 2-15-15 og 2-15-16. Kvöldsimi 2-15-16. TIL SÖLU: 4 herbergja óvenju skemmtileg og vönduð ibúðarhæð í sambýlishúsi. Allar innréttingur úr teak. gólf teppalögð. Tvö svefnherbergi, tvennar svalir. Mjög gott útsýni. 5 herbergja íbúð í vestur- .. bænum. Sólrík, sér hiti, þrjú svefnherbergi. 2 herbergja íbúð nær full- gerð á Seltjamarnesi, út- borgun 250 þús. 5 herberg.ja III. hæð, inn- dregin við Sólheima, 3 svefnherbergi, stórar stof- ur. Svalir meðíram allri suðurhlið íbúðnrinnar. teppalagt út í horn. Harðviðarinnréttingar. Sér þvottahús á hæðinni. 5 herbergja íbúð í Grænu- hlíð. 3 svefnherbergi. hitaveita. 5 herbergja fokh^ldar hæð- ir á Seltjarnarnesi. láns- hæfar hjá Húsnæðismála- stjórn. 3 íbúða hús. EinbýliShús í Garðahreppi, fokheld og lengra komin. 4 herbergja íbúð í sambýl- ishúsi í Háaleitishverfi. Selst tilbúin undir tré- verk. Sér hitaveita, sól- arsvalir. 5 herbergja íbúð á Melun- um. Endaíbúð í 3 hæða sambýlishúsi. 5 herbergja er.daíbúð í sambýlishúsi í Háaleitis- hverfi. Sér hitaveita. í- búðin seist tilbúin undir tréverk og málningu. Góð teikning. 4 hcrbergja stór risíbúð við K'rkjuteig. Sólrík. Ekki teljandi súð. Raðhús í Áiftamýri. Selst fokhetlt með hita, eða tilbúið undir tréverk og rnálningu Mjög rúmgott hús. Auglýsið / Þfóðvilfmum AIMENNA FflSTEIGNASAlAN LINDARGATA^^SÍMJ^IIISO LARÚTTr"vALbTMARSSÖN T I L s ö L U : Höfum kaupendur með miklar útborganir að: 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðum í smíðum eða nýjum. 2j—3ja herbergja íbúð í vesturborginni. 4ra—5 herb. íbúð í ná- grenni miðborgarinnar. 4ra—5 herb. hæð helzt í vestur'oorginni. 4ra—5 herb. íbúð í eigun- um eða nágrenni. 3ja—4ra herb. íbúð í Laug- arnesi eða við Kleppsveg. Tveimur 2ja—3ja herb. íbúðum í sama húsi. 3ja—4ra herb. kjallara og risíbúðum. Iðnaðar- og verzlunar- húsnæði á góðum stað. 2ja—3ja og 4ra herb. íbúð- ir í Kópavogi. TIL SÖLU: 2ja herb. íbúð við Lang- holtsveg, í góðu standi. 3ja herb. risíbúð við Máva- hlíð. 3ja herb. nýleg kjallaraí- búð við Heiðargerði, selst aðeins i skiptum fjrrir hús úr steini eða timbri í borginni eða nágrenni. Timburhús, jámklætt, hæð og ris á steyptum kjall- ara við Öldugötu. Eign- arlóð. laus 14. maí. Timburhús við Suðurlands- braut, 5 herb. íbúð vél staðsett, útb. Vr. 100— 150 þúsund. Litið hús við Fáikagötu, 2ja herb. íbúð. Útb. 75 þús. Múrhúðað timburhús, selst til flutnings, góð lóð í nágrenni borgarinnar get- ur fylgt, mjög gott verð. Lúxusíbúð á tveim hæðum í Þingholtunum, hvor hæð um 100 ferm,________ 727 sö/u Byggíngarlóðir, eignarlóðir á góðum stað í Skerja- firði. — Nánari upplýs- ingar gefur Fasteignasalan Tjarnargötu 14. Símar: 20625 og 23987. Tilsölum.a. 2ja herb. góð kjallaraíbúð f Vesturbæ. Sér hiti og sér inngangur. 2ja herb. íbúð á 11. hæð í Austurbrún. 2ja herb. íbúð í kjallara við Blönduhlíð. Laus strax. 2ja hcrb. risíbúð í steinhúsi. 3ja herb. íbúð í nýju húsi í Austurbæ. Helzt í skipt- um fyrir 2ja herb. íbúð 1 Vesturbæ. 3ja herb. góð íbúð í kjall- ara við Drápuhlíð. 3ja herb. íbúð á hæð við Vallargerði. 3ja hcrb. íbúðir á hæðum við Hverfisgötu. 3ja herb. íbúð á 2. hæð við Lönguhlíð. 4ra herb. íbúð á hæð við Lokastíg. 4ra herb. fbúð á hæð við Háaleitisbraut. 4ra hcrb. íbúð við Kirkju- teig. 5 herb. íbúð á hæð við Rauðalæk. 5 herb. íbúð á hæð við Kleppsveg. 5 hcrb. íbúðir á hæð við Goðheima. 5 herb. íbúðir á hæð við Ásgarð. 6 herb. íbúðir við Fellsmúla og Háaleitisbraut. Ibúðir í smíðuni og einbýl-. ishús. Fasteignasalan Tjarnargötu 14. Símar: 20625 og 23987.__

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.