Þjóðviljinn - 26.04.1964, Síða 4
t
4 StÐA
HÓÐVILIINN
Sunnudagur 26. apríl 1964
Otgelandi:
Sósialistaflokk-
Sameiningarflokkur alþýðu
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsmgar. prentsmiðja. Skólavörðust 19.
Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði.
Yfirklór
■JVTú fer að verða erfitt að eiga orðastað við Al-
þýðublaðið. Á miðvikudaginn var birti blaðið
forustugrein sem nefndist „Norðmenn leysa vand-
ann“. Var þar skýrt frá því með augljósri velþókn-
un að norska ríkisstjórnin hefði ákveðið að lá'ta
gerðardóm úrskurða um ágreining verklýðssam-
takanna og atvinnurekenda um kaup og kjör. í lok
forustugreinarinnar var síðan lögð áherzla á það
að þessir atburðir sýndu, að viðhorf íslenzka Al-
þýðuflokksins og norska Verkamannaflokkins
væru mjög hliðstæð; „flokkarnir þar og hér hafa
sömu stefnu" voru lokaorðin í forustugreininni
um gerðardóminn. Af þessu dró Þjóðviljinn þá
augljósu ályktun að Alþýðublaðið teldi gerðardóm
hugsanlega lausn á kjaradeilunum hér og varaði
mjög alvarlega við því að reynt yrði að beita ís-
lenzkan verkalýð þvílíku valdboði.
rn í gær segir Alþýðublaðið í nýrri forustugrein
að þessi ályktun Þjóðviljans sé „óheiðarleg
blaðamennska“ og heldur áfram: „Annað hvort
skilja ritstjórar Þjóðviljans ekki eða vilja ekki
skilja, að dagblöðin birta fréttir og greinar, þótt
þau séu þeim ekki sammála. Þetta er eðlilegt um-
burðarlyndi, sem eykur frelsi manna til að segja
sínar skoðanir.“ Sízt skal Þjóðviljinn amast við
umburðarlyndi 1 Alþýðublaðinu, en það er alger
nýung í blaðamennsku hér á landi og annarstaðar
að forustugreinar blaða séu vettvangur fyrir frétt-
ir og greinar sem blöðin eru ekki sammála. Hing-
að til hefur það verið talið einkenni og tilgangur
forustugreina að túlka stefnu blaða og þeirra
flokka sem að þeim standa; einmitt þess vegna
hefur íslenzka ríkisútvarpið tekið upp þann hátt
að flytja landsmönnum útdrátt úr forustugrein-
unum. Það eru vissulega tíðindi fyrir landsmenn
að ekki megi lengur líta á forustugreinar Alþýðu-
blaðsins sem sönnun um stefnu þess, heldur ge'ti
þær eins verið samdar af alþjóðlegri fréttastofu
eða túlkað einkaskoðanir einhvers Jóns Jónssonar.
En þá væri það óneitanlega nokkur't hagræði ef Al-
þýðublaðið tæki það fram í upphafi hverrar for-
ustugreinar, hvort það sé sammála henni eða ekki.
En auðvitað er þessi skýring Alþýðublaðsins að-
eins barnalegt yfirklór. Ritstjórar blaðsins
hafa fundið fyrir því að forustugreinin urn ágæti
gerðardóma hefur vakið reiði meðal verkafólks
sem fylgir Alþýðuflokknum að málum. Alþýðu-
flokksmenn í launþegastétt eru fyrir löngu orðnir
leiðir á því að sjá flokk sinn og íhaldsflokkinn
eins og samvaxna tvíbura; þeir sýndu það í verki
í átökunum í nóvember og desember um þving--
unarlög ríkisstjórnarinnar og nýja kjarasamninga.
Þeir telja að nú verði að semja við verklýðssam-
tökin um kaup og kjör en ekki beita þau neinu
valdboði. Af þessum viðbrögðum stafar hring-
snúningur Alþýðublaðsins. Hann er vissulega fagn-
aðarefni. en skynsamlegra hefði verið fyrir rit-
stjóra blaðsins að biðjast afsökunar á fvrri for-
ustuvreininni en að gera sig að athlægi með frá-
leitum skýringum. — m.
Tónskóli Sigursveins D. Kristins'
sonar stofnaður í Reykiavík
Stofnaður hefur verið i
Reykjavík músikskóli og nefn-
ist hann Tónskóli SigursveinS
D. Kristinssonar. Tekur hann
til starfa næsta haust. Mun
Sigursveinn veita skólanum
forstöðu. Skólinn er sjálfseign-
arstofnun.
Styrktarmannafélag Tónskól-
ans stendur að honum. Það er
skipað um 100 einstaklingum
og fulltrúum félagsheilda er
styrkja skólann.
Markm'ð skólans er eins og
segir í 2. gr. skipulagsskrár
hans, að efla almenna músik-
þekkingu þjóðarinnar, ekki
sízt meðal þess fólks, sem að-
eins getur varið takmörkuð-
um tómstundum til þess að
auka músikþekkingu sína.
1 skólanum er fyrirhugað að
halda uppi kennslu fyrir náms-
flokka í ýmsum greinum tón-
listar. þar sem fólki á öllum
aldri gefst kostur á að stunda
mús'knám í tómstundum eftir
því sem aðstæður leyfa.
I A-deild skólans verður ein-
göngu hópkennsla og verður
kenndur nótnalestur. söngur,
blokkflauta, melodika og kynnt
þjóðlög frá ýmsum löndum,
enn fremur einstök timabil
músiksögunnar o.fl,
í undirbúningsdeild og fram-
haldsdeild verður kenndur
hljóðfæraleikur, söngur, hljóm-
fræði og aðrar kennslugreinar
samkvæmt þeirri námsskrá,
sem gildir fyrir músikskóla í
landinu hverju sinni.
Til þess að auðvelda börnum
aðgang að námi í skólanum
verða, eftir því sem efni leyfa,
keypt létt hljóðfæri til skól-
ans. er svo verða lánuð byrj-
endum fyrstu námsárin. Þá
verður einnig leitazt við að
létta börnum í úthverfum borg-
arinnar aðgang að námi í skól-
anum meö því að skipuleggja
kennslu fyrir byrjendur 1 þeim
úthverfum, þar sem þátttaka
og aðrar ástæður eru fyrir
hendi.
Það er sérstakt áhugamál
skólans að efla músikmenntun
og músikiðkun meðal öryrkja.
Þátttakendur í Styrktar-
félagi Tónskólans hafa for-
gangsrétt um skólavist fyrir
sjálfa sig og börn sín, svo
lengi sem húsrúm leyfir. Einn-
ig hafa Styrktarfélagar ókeyp-
is aðgang að nemendatónleik-
um skólans.
Árgjald styrktarfélaga þetta
ár er kr. 500.00.
má vænta þess að upp úr frjó-
um jarðvegi alþýðumenntunar
muni vaxa snillingar á líkan
hátt og gerzt hefur í bókmennt-
um okkar. En ritsnillingar,
sem íslenzka þjóðin hefur alið
á liðnum öldum og allt þe&sa
dags og heimskunn afrek
þeirra væri hvorttveggja ó-
hugsandi án bókmenntaáhuga
alþýðunnar í landinu.
Hvað er Tónskóli?
Sigursveinn D. Kristinsson.
tónlist muni valda einangrun
hinna menntuðu tónlistar-
manna, músikframförun þjóð-
arinnar til mikils tjóns.
öll alþýða manna þarf að
læra frumatriði tónmenningar,
nótnalestur og nótnaskrift, þá
Með nafninu Tónskóli er átt
við svipaða stofnun og nefnd
er Volksmusikschule í Mið-
Evrópu.
Við uppbyggingú þessa Tón-
skóla mun verða stuðst við
reynslu. sem fengizt hefur af
starfi Tónskóla Siglufjarðar.
en hann er sex ára í vor.
Skólaráð Tónskóla Siglufjarð-
ar er kosið af Lúðrasveit,
söngfélag! og verkalýðsfélögun-
um á Siglufirði. Jáfnframt því
að verkalýðssamtökin þar háfa
veitt skóanum mikilvæga að-
stoð. héfur hann einnig notið
stuðnings almennings í öllum
stéttum bæjarfélagsins. Tón-
skóli Siglufjarðar hefur einnig
haft mjög gott samstarf við
Bamaskólann á Siglufirði og
annazt fyrir hann kennslu í
nótnalestri og blokkflautuleik
fyrir 9 ára böm.
Árangur af starfi Tónskóla
Siglufjarðar hefur orðið góð-
ur. Tala nemenda í framhalds-
námi hefur flest árin verið
50—60 á ýms hljóðfæri, auk
námsflokka skólabarnanna,
Samsvarandi tala í Reykjavík
væri 1600—1800 nemendur.
Sá Tónskóli, sem hér hefur
verið stofnaður á fremur að
eiga samstarf við sem flest
menningar- og félagssamtök og
hefur þegar snúið sér til fjöl-
margra samtaka í borginni. '
Tónskólinn mun taka til
starfa í haust og hefja þá
kennslu i þessum greinum:
Hljómfræði, píanó, fiðlu, gítar.
harmoniku, blásturshljóðfæri
og námsflokkakennslu i nótna-
lestri, blokkflautu. melodiku,
munnhörpu o.fl.
Eitt höfuðverkefni, sem nú
liggur fyrir er að fá skóían-
um viðunandi húsnæði, en íor-
senda þess er að efla hoiiúm
stuðnings frá sem flestum ein-
staklingum og félagssamtökum.
Þau félög sem gerast aðilar
að styrktarmannafélaginu vill
Tónskólinn styðja eftir megn'
til hvers konar viðleitni, sem
miðar að músikuppeldi og fé-
lagslegu músikstarfi. (félags-
kóra, hljóðfæraflokka o.s.frv.).
Framhaldsstofnfundur styrkt-
armannafélags Tónskólans
verður haldinn fyrir haustið
og getur fólk innritazt sem
stofnendur til þess tíma.
Áskriftarlistar liggja frammi
í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur,
Hljóðfæraverzlun Poul Bem-
burg, Vitastíg 10, Hljóðfæra-
verzlun Sigríðar Helgadóttur
sf, Vesturveri, Bókabúð Máls
og menningar Laugavegi 18.
Bókabúð KRON Bankastræti
2. Istorgi h.f. Hallveigarstíg 10
og Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar Austurstræti 18.
Hver er orsökin fyrir
stofnun Tónskólans?
Megin orsökin er sú skoðun
okkar að frjósöm tónmenning
verði aðeins byggð upp af lif-
andi músikiðkun fjöldans. söng
og hljðfæraleik.
Þrátt fyrir vaxandi fjölda
lærðra tónlistarmanna og vax-
andi tónleikshalds, hefur söng-
ur og önnur músikiðkun ver-
ið dvínandi meðal almennings
á síðustu áratugum.
Svo virðist sem bilið milli
lærðra tónlistarmanna og al-
mennings í landinu breikki.
Hætt er v'ð að áhugaJeysi alls
fjöldans að því er varðar góða
happdrætti
NYTT
HAPPDRÆTTISAR
iw
k
UM LANDIÐ ALLT, MUN ALDRAÐ
FÓLK NJÓTA AÐSTOÐAR ÞESS.
m
•••'
STDRVIWNIWGAR Í MANIIfll
4
BÍLARNIR ÚTDREGNIR
MÁNAÐARLEGA
ÍBÚÐARVINNINGAJtí VERÐA EFTIR
EIGIN VALI FYRIR
kr. 750.000,— og kr. 500.000,—.
ENDURNÝJUN ÁRSMIÐA OG FLOKKSMIÐA
STENDUR YFIR.
/IRÐUM OG
STYÐIUM ALDRA
* mmm
h|
k|
X X
L