Þjóðviljinn - 26.04.1964, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 26.04.1964, Blaðsíða 10
10 SlÐA ÞlðÐVIUINN Sunnudagur 26. apríl 1964 RAYMOND POSTGATE: en einu leyti. Tækifæri, tilgang- ur, undirbúningur — allt virtist þetta koma heim. Herra Popes- grove lagði þetta allt saman í huganum. Harðlynd og illg.iöm kona sem hafði andúð á heilsu- veilum drengnum. Hún fengi stórfé ef hann dæi. Eitrið við höndina. dreift um allan garð- stíginn. Og það var ekki ein- ungis sannað að hún hefði aflað sér upplýsinga um hvernig ætti að nota það, heldur sást til henn- ar í herberginu. þar sem hlaut að hafa verið rjálað við matinn. Það var ekki hægt að fá ótví- ræðari sannanir, fyrst ekki var beinlínis um sjónarvotta að ræða. Hann leit á plögg sín og yfir- fór það sem hann hafði krotað niður, næstum á sama hátt og hann var vanur að yfirfara veitingahúsareikningana. Það var eins og útkoman yrði ævinlega á einn veg. IV. En þegar Sir Ikey reis á fæt- ur, virtist hann fullur af sjálfs- ,trausti. Það var engan bilbug á honum að finna. Hanri ’ lágði hendumar á borðið fyrir framan sig, hallaðist fram á þær, unz bær glenntust út eins og klær, hann festi einglymið öðrum megin við langt nefið og horfði hægt og seinlega yfir kviðdóm- endur. dómarann og loks á rjótt og búlduleitt andlitið á herra Proudie. Eiginlega minnti hann á öm sem hafði komið auga á sérlega feita og vamarlausa kan- ínu og var að sækja í sig veðr- HARGREIÐSLAN tlárgrefðslu oc snyrtistofa STFTNU og DÓDÖ Lancaveel 18 m h. Hyfta) SfMT 24616. P E R M A Garðsenda 21 SfMT 33968. Hárgreiðslu- og snyrtistofa. Dðmnr! Hárgreiðsla v|ð allra hæff TJARNARSTOFAN TjarnargStn 10 Vonarstrætis- megin. — SÍMl 14662. ið áður en hann hellti sér yfir hina öruggu bráð. — Þegar ég var að hlusta. sagði hann loks, — á hinn lærða andstæðing minn, þá dáð- ist ég meira að hæfileikum hans en nokkru sinni fyrr. Með- an hann var að tala og leggja fram sönnunargögn sín, trúði ég því meira að segja sjálfur sem snöggvast. að mál hans lægi hArgreiðsltjstofa AUSTURBÆJAR (Maria Guðmundsdóttir) Laugavegi 13 — SÍMi 14656. — Nuddstofa á sama stað — 29 alveg Ijóst fyrir. Þið vitið það ef til vill ekki, herrar mínir og frúr, en við sem tilheyrum þess- ari líttelskuðu lögmannastétt, vitum mætavel að hlnn lærði andstæðingur minn er meðal hinna alhættulegustu í þeim hópi. Hann reifar mál með þeim ágætum að slíks era naumast dæmi: hann getur gert múr- steina sína ekki aðeins án hálms heldur einnig án leirs og án vatns. I dag hefur hann meira að segja ekki annað en hálm- strá og þau eru fá, rytjuleg og benda f ranga átt. Dr. Holmes- trló—rtð og kvið- dómendur urðu léttari á svip. — Ég mun ekki kalla mörg vitni og ég ætla að útskýra hvers vegna. Það er fyrst og fremst vegna þess að megnið af beim vitnisburði sem þið hafið heyrt. fellur um sjálfan sig. Þetta munuð þið sjá við nánari yfirvegun. Ef til vill eru enn grunsemdir í huga ykkar, áður en þið hafið hlýtt á mál mitt. En háttvirtur dómari mun segja vkkur, að það er ekki nóg. Grunur og tortryggni hlýtur að liggja f loftinu eftir svo hörmu- legt atvik sem dauða hins ó- lánsama drengs. Svo útbreiddur var grunurinn, svo ákafar voru rógtungumar að nauðsynlegt reyndist að láta þessi réttarhöld fara fram í London, eins og ykkur er kunnugt, fyrst og fremst í þeim tilgangi að fá hlutlaus réttarhöld. — Eins og háttvirtur dómari mun einnig staðfesta, þá er það ekki nauðsynlegt að verjantli sanni að einhver annar hafi framið morð og legg.ja fram nafn hins seka. Það er ákæruvaldsins að sanna í fyrsta lagi að morð j hafi verið framið yíirleitt og í öðru lagi að skjólstæðingur rninn hafi íramið það. vorugt hefur verið gert, eins og ég vona að ykkur sé að verða ljóst. Og 1 jafnvel þótt það hefði verið á báðum þessum forsendum, myndi það falla um sjálft sig um leið og við gætum sannað að aðrar persónur hefðu hæglega getað framið morðið — haft bæði til- efni og tækifæri. Þetta getum við gert. — Ég mun nú minnast stutt- lega á það sem liggur beinast við. Var yfirleitt framið nokkurt morð? Ég er engan veginn fylli- lega sannfærður um það og ég geri ekki ráð fyrir að þið séuð það heldur. Ég býst við að þið hafið öll tekið vel eftir vitnis- burði Parkes læknis hér í vitna- stúkunni. og ég vona að þið haf- ið gert ykkur grein fyrir hvaða ályktun draga má af henni. í meira en tuttugu og fjórar klukkustundir tókst honum ekki að átta sig á ásigkomulagi sjúklingsins og gaf inn lyf sem áttu engan veginn við þetta til- felli. Hsnn kellaði ekki á annan .'ækni fyrr en veslings bamið \-ar bókstaflega dauðans matur og öll björgunarvon úti. 1 raun réttri — mér er ljóst að þetta er djúpt tekið í árinni, en það er skylda mín að tala Ijóst — í raun réttri fékk drengurinn enga 'æknishjálp fyrr en á dauða- stundinni. Ef færari lækn.ir hefði verið til staðar, hver getur þá sagt um hvemig farið hefði? Ég trúi því eins og flest ykkar gera efalaust, að Philip Ark- wright hefði verið á lífi í dag, ef þetta hefði ekki gengið svona til. Sir Ikey talaði látlaust og ein- arðlega, hækkaði ekki róminn né beitti dimmu hljómunum sem gáfust stundum svo vel við ó- framfærin vitni. Hann sneri sér næst að frú Rodd. Hann sýndi fram á að hún hefði haft æma ástæðu tll að fremja glæpinn. Fjögur þúsund pund handa henni sjálfri og eiginmanni hennar — stórfé fyrir fóljy í þeirri stöðu. Hún matbjó salatið og hún fleygði því. Hún þurfti ekki að fara inn í borðstofuna til að menga lóginn — hún útbjó hann sjálí og hefði getað gert við hann það sem henni sýndist þeg- ar henni sýndist. Sjálfsagt hafði hún þvegið grænmetið eins og Ada þjónustustúlka sagði. Og hvað um það? Hún hefði alla vega aldrei farið að framreiða það óhreint. Hefði hún ætlað að blanda bergfléttufrjódufti í löginn, hefði hún áreiðanlega gert það þegar grænmetið var þvegið og tilbúið. — Og svo er það fundur þess- arar úrklippu, sem á að vera svo afdrifarík fyrir ?kjólstæðing minn. Herrar mínir og frúr, er þetta ekki furðuleg saga? Hafið þið nokkurn tima heyrt nokkuð undarlegra? Spyrjum þá fyrst hvaðan hún kom, Svarið er: Það veit enginn. Þið hafið heyrt til blaðakaupmannsins. Fyrst hélt hann eða öllu heldur konan hans. að það hefði verið eigin- maður frú Rodd sem pantaði blaðið. En nú, þegar margar vikur eru umliðnar og allt ná- grennið hefur logað af rógi og söguburði wn skjólstæðing minn — er har.n kominn að þeirri nið- urstöðu að hún hafi pantað það. En samt sem áður vill hann ekki sveria það. Hann heldur aðeins að það gæti verið. Einskisverð fullyrðing — ekkert annað en til- gáta — út í bláinn. Það er stað- reynd að við vitum a'.ls ekki hver pantaði þetta blað. Það ræti verið hver sem væri — herra Rodd, frú Rodd. iafnvel herra Gillingham, hnýsni kenn- arinn. — Og hvernig fannst það svo? Ég vildi óska að ég hefði verið viðstaddur. Ég hlustaði á herra Gillingham eins og þið og ég varð furðu lostinn. Þama er álit- legt bókasafn, bækur af öllu tagi og þær margar. Hann neitar því að hafa verið að snuðra. Nei, hann gengur beint að hillunum og úr þessum hundruðum bóka velur hann eina, lftið lesna, sem reynist hafa að geyma þetta mjög svo innihaldsríka plagg. Hvernig stóð á þessu? Hann veit það ekki. Var bókin framar í hillunni fyrst athvgli hans beindist að henni? Eða stóð homið á plagginu uopúr henni á freistandi hátt? Hafði henni verið komið þama fyrir — hag- rætt — svo að fyrsti maður Útboð Tilboð óskast í að byggja annan áfanga barnaskóla við Laugalæk hér í borg. — Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, Vonarstræti 8, gegn 3000,00 kr. skilatryggingu. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. LÁVÖLLUR Reykjavíkurmótið í dag kl. 14 ieika: FRAM — VÍKINGUR Á morgun (mánud.) kl. 20 leika: KR — VALUR Mótanefnd. Hvernig kynntuzt þið Andrés- ína. frændi? Það byrjaði þannig að Hvað er þetta strákur ertu að reyna að koma af stað illindum? Snáfaðu =tra%- í rúmið! SKOTTA <7-8 g>KingFeaturcsSyndicatp, Tm- 1 WorldrlgMswserved. Ef þú ert að hugsa um a oða hcnni út, ætla ég aðeins að láta þig vita, að ég sá hana einu sinni borða þrjá hamborgara og drekka 5 kók á hálftíma! Sendisveinn óskast strax, hálfan eða allan daglnn. Auglýsingaskrifstofa Þjóðviljans Sími 17-500. Útboð — Stólar Tilboð óskast í nokkrar gerðir a'f stólum á skrifstofur. — Útboðsgagna má vi'tja á Teiknistofu S.Í.S., og skal tilboðum skilað eftir hádegi mánudaginn 4. maí ’64. Teiknistofa S.Í.S. — Hringbraut 119. Okkur vantar HANDSETJARA og PRESSUMANN Prentsmiðja Þjóðviljans Sími 17-500. ÓFAR - SÓFASETT

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.