Þjóðviljinn - 26.04.1964, Síða 5
Sunnudagur 26. april 1964
ÞlðÐVILJINN
Frímann Helgason skrifar um íþróttir í Tékkóslóvakíu
B!ak og knattspyrnukeppni að
morgni í misjöfnu veðri
'Á skrifstofu tékkneska íþróttasambandsins
fékk ég m.a. þær upplýsingar að blak væri 3.
vinsælasta íþróttagreinin þar í landi. Þótt þessi
íþrótt hafi eitthvað verið iðkuð á íslandi, a.m.k.
í skólum, þá hafði ég aldrei séð blakleik eða blak-
keppni nema í kvikmynd. Ég óskaði þess að fá
að horfa á leik þennan og vildi helzt nota til þess
sunnudaginn fyrir hádegi. Blak er ein þeirra
nýju íþróttagreina, sem verða teknar á dagskrá
olympíuleikanna í haust.
ur, sem greinilega voru leik-
vanar flestar hverjar, gengu
ekki með hangandi hendi að
keppninni, og hvað eftir ann-
að mátti sjá þær fleyta kerl-
ingar eftir gólfinu í tilraun
sinni til að forða þvi að
knötturinn snerti gólfið. Það
var heldur hreint ekki eftir
gefið ef það sýndi sig að
knöttur kom niður rétt við
netið, þá þustu tvær, þrjár til
og hoppuðu upp sem kraftar
leyfðu til að forða og bera
brostu bara að óförunum!
Þegar liða tók á leikinn,
mátti sjá að aðrar stúlkur
voru komnar í hliðarherberg-
in og unnu dyggilega að því
að hita sig upp fyrir næsta
leik. Tóku þær allskonar æf-
ingar og stökk, og héldu þvi
áfram lengi, og þegar að þeim
kom voru þær löðursveittar.
Þær kunnu sannarlega tökin
á því að koma vel undirbún-
ar og heitar til leiks. Þarna
áttu sem sagt að fara fram
Blak er íþróttagrein fyrir alla og vinnur sér hylli í stöðugf vaxandi mæli um allan heim. í ár
rerður blak í fyrsta sinn á dagskrá olympíuleikanna. Myndin er af stúlkum í blakkeppni í Tckkó-
slóvakíu, og láta þær ekki á sig fá þótt þær fái
Leiðsögumaðurinn kynnti
sér málið og sagði mér að kl.
9 á sunnudagsmorgun hæfust
leikirnir í bla'ki milli nokk-
urra beztu kvennaliða Tékka,
það væri undirbúningsmót
undir aðalmótið sem byrjaði
áður en langt um liði.
Sem sagt, leikirnir í meist-
araflokki byrjuðu kl. 9 að
morgni! Mér varð hugsað
heim, hvernig litið væri á það
þar, ef tekið væri upp á þvi
að láta leiki fara fram svona
snemma dags, til þess að nota
tínia og húsnæði sem bezt.
Við komum til leikjanna
rétt fyrir byrjun og voru
stúlkurnar í óða önn að hita
sig upp, því kalt var í veðri
ög ekki sériega heitt í húsinu.
Blak að morgni dags
Síðan hófst leikurinn. Satt
að segja hafði/ég hugsað mér
þetta heldur rólegan og til-
bi-éytingalítinn lei'k þar sem
,ekki peyndi mikið á kraft og
þrek.
Mér fannst sem nafnið —-
blak,.,.— sem annars er mjög
gott, fæli í sér að aðeins
væri blakað við knettinum,
án þess að í það væri mikið
lagt. Að þetta væri leikur
sem væri tilvalinn fyrir vel
greiddar dömur, sem vildu
helzt ekki að góð hárgreiðsla
færi úr skorðun!
Eg komst heldur betur á
aðra skoðun, eftir að hafa
horft á þessar tékknesku
blómarósir. Þó liðin leiki sitt
hvoru megin við hátt net, og
komi því aldrei saman, og
verði því ekki fyrir pústrum
eða skrokkskjóðum, þá þarf
keppandinn að hafa mikið út-
hald, viðbragðsflýti, mikla
kunnáttu í því að blaka við
knettinum, og þótt það verði
að gerast rétt, var það ekki
gert með neinum silkihönzk-
um. Þessar frísklegu stúlk-
hendur fyrir, er mótherjinn
blakaði af hörku úr svo góðu
fæin.
Þetta er því leikur sem
reynir verulega á kraft, á-
ræði, leikni, og staðsetning-
ar. Mér fannst hressilegt að
sjá þessar valkyrjur hvernig
þær „fórnuðu" sér og létu sig
engu skipta hvort þær fengu
eina eða tvær veltur, höfnuðu
á bakinu eða maganum á
hörðu gólfinu, þær þutu upp
eins og kólfi væri skotið og
smávegís bakföll.
margir leikir þennan sunnu-
dagsmorgun í kvennaflokki.
I öðrum sölum voru karl-
arnir með sína mótaieiki og
horfði ég á hlutá af einum
slíkum hjá liði úr annarri
deild karla, og þar var barizt
af mikilli hörku og krafti.
Eftir að hafa horft á þenn-
an leik, bæði hjá konum og
körlum, datt mér í hug
hvort þetta væri ekki tilvalin
flokkaíþrótt í strjálbýlinu
okkar hér heima. Það þarf
ekki svo marga til að koma
leik af stað, það þarf aðeins
slétta flöt, tvær stengur og
net, svo tilkostnaður er lít-
ill og hægt að koma slíkum
leik fyrir næstum hvar sem
er. Vafalaust á leikur þessi
eftir að nema hér land áður
en langt um líður.
Mikill knattspyrnu-
áhugi
Engin íþróttagrein er eins
vinsæl i Tékkóslóvakiu og
knattspyrnan. Segir það
nokkuð til um vinsældirnar
að nú eru skráðir 350.000
strafandi leikmenn.
Því miður var keppnistíma-
bilið ekki byrjað í fyrstu
deild, svo ég gat ekki séð
knattspyrnuleiki í þeirri deild,
en einmitt þennan sunnudags-
moi'gun sem við vorum að
horfa á blakið spurði leið-
sögumaðurinn hvort ég vildi
sjá leik i annarri deild sem
þá stæði yfir og hefði byrjað
kl. 10. Satt að segja þótti
mér ótrúlegt að leikir væru
leiknir fyrir hádegi og það
leikir í annarri deild. Auðvit-
að vildi ég sjá leikinn og fór-
um við þangað og var hann
þá byrjaður. Þarna áttust við
tvö af þremur efstu liðunum
Veður var heldur leiðinleet
kuldi 2—3 frost-gráður
nokkur vindur og hrímþoka lá
yfir landinu Það var því ekki
sérlega tilvalið knattspyrnu-
SlltiON
4ÖH.
AGUSTSSON
ffTTLEil
NAUÐSYNLEG BÓK
FYRIR
KJÖRFORELDRA
OG ALLA ÞÁ, SEM
ÆTLA AÐ TAKA
KJÖRBARN.
*
í þessari bók ræðir
einn kunnasti sér-
fræðing-ur okkar um
þau vandamál,
sem upp kunna að
koma við ættleiðingu
barna, og leitast
við að hjálpa til
við lausn þeirra.
*
ALMENNA
BÓKAFÉLAGIÐ
SlÐA g
veður, og í þessu veðri hafði
ég sannarlega ekki gert ráð
fyrir að um marga áhorfend-
ur væri að ræða. Eg varð því
ekki lítið undrandi að á á-
horfendapöllum var margt á-
horfenda, nokkur þúsund, og
þó var völlurinn lítill!
Voru þetta flest fullorðnir
menn, kappklæddir, með
miklar kuldahúfur á höfði, til
að að verjast kuldanum. Þeir
vildu ekki sitja heima þó
veðrið væi’i ekki sérstaklega
aðlaðandi fyrir áhorfendur,
auk þess var snjóföl á jörðu.
Það leyndi sér ekki að
þessi áhorfendaskari hafði
sinar hugmyndir iim leikinn
og leikmenn og lét það óspart
í ljós með hrópum og köllum,
og ef hlé var á, mátti heyra
hörkuumræður manna á
milli. og voru þær greinilega
um leikinn og gang hans.
Leiðsögumaður minn, sem
ekki var sérlega inn í leikn-
um, brosti tíðum er hann
hlustaði á mál manna. Sagði
hann að svo mikil alvara
fylgdi málflutningi þeirra, að
ekki mætti orði halla þá væri
keppzt um að rökstyðja og
afsanna skoðanir hins. Það
væri eins og um mikið tilfinn-
ingamál væri að ræða sem
væri þeim heilagt. Það var
eins og það væri þeirra í-
þrótt að ræða gang leiksins.
Yfirleitt voru þetta gamlir
knattspyi-numenn sem héldu
tryggð við íþróttina, þekktu
hana út og inn, og létu ekk-
ert tækifæri sér úr greipum
ganga til að horfa á knatt-
spyrnuleik. Það þarf ekki að
taka fram að seldur var að-
gangur að leiknum, þótt leik-
, ið væri, svona snemma og
svona veður í þokkabót!
Það er þessi gamli rót-
gróni áhugi fyrir knattspyrn-
unni meðal fólksins sem hef-
ur gert hana svo sterka í
Tékkóslóvakíu sem raun ber
vitni. Áhuginn er það mikill
að leikir annarrar deildar þar
geta dregið til sín fjölda á-
horfenda í slæmu veðri kl.
10 að morgni!
Lið þessi sýndu góða knatt-
spyrnu sem gaman var að
horfa á, þótt annarar deildar
lið væru, enda voni þau of-
arlega í deildinni.
Mér var hugsað til þess
hvað sagt yrði ef tekið yrði
upp á því að nota tímann fyr-
ir hádegi fyrir leiki annarrar
deildar hér í Reykjavík, til
þess að nota tímann og vell-
ina betur en gert hefur verið,
og á þann hátt koma mótum
ef til vill betur fyrir en ver-
ið hefur. Hér er mjög erfitt
að koma fjrrir öllu því sem
þarf að fara fram af leikjum
og mótum, og ekki má hafa
leiki og mót á tveim stöðum
á sama tíma, og er þó sann-
arlega tími til kominn að
taka það mál til nýrrar at-
hugunar.
Það sem knattspyrnuþjóð-
in Tékkar leyfir sér að
notast við, ætti að geta kom-
ið til umræðu hér.
Heimsóknin á þennan knatt-
spyrnuleik var í alla staði hin
skemmtilegasta, og var góð
spegilmynd af hinum al-
menna, áhuga á knattspyrn-
unni i Tékkóslóvakiu. Það má
lika segja að knatspyrnan sé
nokkurskonar lifakkeri íþrótt-
anna. 1 félögunum, sem hafa
knattspyrnuna á stefnskrá
sinni og mega sín nokkurs,
eru tekjurnar af knattspyrnu-
leikjunum aðalhluti allra
tekna félaganna. Það er þvi
viðtekin regla, að tekjum af
knattspyrnunni er dreift yfir
á aðrar greinar sem eiga erf-
iðara uppdráttar og hafa
minni tekjumöguleika.
Knattspyrnan er líka aðal-
tekjulind íþróttasambandsins
í landinu þar sem getraunirn-
ar eru byggðar upp á henni,
og sambandið tekur svo
hundruðum miljóna króna
skiptir á þeirri starfsemi,
sem einnig er miðlað út til í-
’ þróttagreinanna eftir því'á'éín
þarfir þeirra eru á hverjum
tíma.
íþróttaáhugi allra
Það sem ef til vill var at-
hyglisverðast við þetta allt
saman, sem var að gerast og
er að gerast í íþróttamálum
Tékkóslóvakíu, er hinn al-
menni áhugi fyrir því að al-
menningur fái notið iþrótta-
iðkana, og þá fyrst og fremst
unga fólkið, þar sem unnið
er að því að það fái notið a.
Framhald á 9. síðu.
Hraðkeppnismót Armanns
Haukar spreyta sig
í /. deild um helgina
Næstkomandi miðvikudag og
fimmtudag verður háð hrað-
keppnimót í handknattleik á
Hálogalandi. 1 mótinu taka
þátt öll liðin, sem voru í 1.
dcild á síðasta kcppnitímabili
og auk þess nýliðarnir í 1.
deild næsta ár, Haukar frá
Hafnarfirði. Mótið er þáttur í
hátíðahöldunum í tilefni 7S ára
afmælis Glímufélagsins Ár-
manns, og sér handknattleiks-
deild Armanns um mótið.
Miðvikudaginn 28. apríl hefst
hraðkcppnin, og vcrða þá
leiknir þrír lcikir. Á undan
keppa Ármann og Fram í 2.
flokki kvenna.
Fimmtudaginn 29. apríl verða
einnig þrír leikir í hraðkeppn-
inni. þar með talinn úrslita-
leikurinn. Á undan keppa „old
boys“ úr Fram og Armanni,
' og verða það Iiðin sem voru
í eldinum í kringum 1950.
Þetta hraðkeppnimót verður
útsláttarkeppni, þannig að það
Iið er úr leik sem tapar. Leik-
tími verður 2x15 mín. Nánar
verður tilkynnt síðar hvaða
lið leika saman, eftir að um
það hefur verið dregið.
Það lið. sem sigrar í hrað-
keppninni, hlýtur vandaðan
silfurbikar í verðlaun. ,