Þjóðviljinn - 13.05.1964, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 13.05.1964, Qupperneq 4
4 SlÐA Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíaiistaflokk- urinn. — Ritstjórar: tvar H. Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.). Sigurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja. Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði. Verkamannasambánd íslands það mun ekki ofmælt að verkamenn í Reykjavík og víða um land hafi fagnað stofnun Verka- mannasambands íslands. Allt frá fyrstu tíð verka- mannafélaga á íslandi hafa þau verið einvalalið verkalýðshreyfingarinnar, staðið þar í baráttu stéttarinnar fyrir bættum kjörum og auknum réttindum sem fastast hefur verið tekizt á og stær'stu sigrarnir unnizt. Fjöldi annarra launa- manna og starfsstétta hafa notið góðs af þeim sigrum og fengið árangurinn allt að því fyrirhafn- arlaust fluttan yfir á sín kjör. Það hefur ýmsa ókosti ekki síður en kosti að stærri og stærri heildir launþegafélaga séu í einu 1 samningum, félög og sambönd manna sem vinna mjög ólíka og ósambærilega vinnu. Hefur verkamönnum fundizt að aðrir hafi tekið rífari skerf af mörg- um þeim sigrum sem verkalýðshreyfingin hefur unnið á undanförnum árum, og þá stundum aðil- ar sem meira hefðu mátt fyrir baráttunni hafa. Það er því í fyllsta máta eðlilegt að verkamanna- félögin og verkakvennafélögin sem um flest eru hliðstæður myndi sjálf sterkt hagsmunasaiíiband, sem hafi að verkefni fyrst og fremst kjaramál verkamanna og verkakvenna, einbeiti sér að þeim málum. Með stofnun Verkamannasambands íslands ætti verkalýðshreyfingin á íslandi að auðgast að nýj- um sterkum þætti, og ástæða er til að vekja sér- staka athygli á orðum fyrsta formanns samtak- anna, Eðvarðs Sigurðssonar, hér í blaðinu í dag, að stefnt verði að því að öll verkamannafélög og öll verkakvennafélög landsins verði innan sam- bandsins; að það sé von forystumanna þess að þar geti tekizt bróðurlegt samstarf um sameiginleg mál félaganna og að sú pólitíska togstreita sem verið hefur í verkalýðshreyfingunni eigi þar ekki upp á pallborðið. — Þjóðviljinn óskar hinu nýja Verkamannasambandi íslands allra heilla og styrks til að vinna árangursríkt að þeim stóru verkefnum er bíða þess. LÍÚ reynir að rjúfa samning það er ekki lítið sem útgerðarmenn fá í sinn hlut þegar eins aflast og á þorsknótaveiðun- um í vetur. En mikið vill meira. Þeir eru komn- ir á stúfana gerðardómsmennirnir alræmdu í Landssambandi íslenzkra útvegsmanna og neita að gera upp við sjómenn fyrir þorskveiðarnar í nót eftir eina hringnótasamningnum sem í gildi er, en bar er skýrt tekið fram að hann skuli gilda þó veiddur sé annar fiskur en síld. Hér er á ferð- inni ósvífin tilraun til þess að hafa fé af sjómönn- um sem þeir eiga samningsbundinn rétt á. Öll sjó- mannasamtök landsins hafa krafizt þess að samn- ingum sé fvlgt við uppgiörið og þurfa siómenr að vera vel á verði gagnvart t>ngsanlegum samn ingsbrotum útgerðarmanna. — s. ÞJðÐVILJINN Miövikudagar 13. maí 1964 Viðtal við Eðvarð Sigurðsson, formann Verkamannasambands íslands Bróðurlegt samstarf að sam- eiginlegum hagsmunamálum ■ 8500 félagsmenn — Hvað er að segja í skemmstu máli um undirbún- ing og þinghaldið? — Félögin þrjú sem haft hafa forgöngu að stofnun sam- bandsins, Dagsbrún, Hlíf og Eining, sendu boðsbréf um Stofnþing Verkamanna*ambands Islands að störfum í húsakynnum Dagsbrúnar og Sjómanna- félags Reykjavíkur að Lindargötu 9. stofnþingið út um miðjan marz, og segja má að lítill annar skipulagslegur undir- búningur hafi verið, enginn erindrekstur eða því um líkt. Þau 23 félög, sem stofna sambandið eru að tölu til um fjórðungur þeirra verkalýðs- félaga innan Alþýðusambands- ins, sem gætu átt aðild að sam- bandinu. Þau hafa um 8500 fé- lagsmenn, og meðal þeirra eru flest stærstu félögin í land- inu. Við höfum fengið vitn- eskju um ýms félög sem ætla að vera með, en ekki hafa getað komið því við að halda fundi nú undanfarið, ekki sízt vegna hinnar miklu afla- hrotu. Það er takmark okkar að öll verkamannafélög verði inn- an sambandsins og það er von okkar að þar geti tekizt bróð- urlegt samstarf um sameigin- Icg mál félaganna, og að sú pólitíska togstreita sem verið hefur í verkalýðssamtökunum eigi þar ekki upp á pallborðið. ■ Miklar vonir tengd- ar við Verka- mannasambandið — Hefur þú ekki orðið var við að verkamenn t.d. hér í Reykjavík hafa fagnað stofn- Framhald á 9. síðu. □ Fyrsti formaður Verkamannasambands íslands, Eðvarð Sigurðsson, á annríkt þessa dagana eins og fleiri, en Þjóðviljinn náði snöggvast tali af honum í fyrradag og spurði hann nokkurra spurninga um Verkamanna- sambandið nýja. ■ Hvers vegna verka- mannasamband? — Hver er aðalástæðan til stofnunar verkamannasam- bands einmitt nú? — Meginástæðan er sú að farið hefur vaxandi skilning- ur á og aukizt kröfur um að verkamanna- og verkakvenna- félögin byndust öðrum skipu- lagsböndum en nú er, til þess að fjalla um sín sérstöku mál og þá einkum kjaramálin. Við teljum að þróunin hafi orðið sú i þeim efnum nú á æðimörgum undanfarandi ár- um að hlutur þessa fólks hef- ur hlutfallslega minnkað. En það er einmitt fólkið í verka- mannafélögunum og verka- kvennafélögunum, sem stendur undir þýðingarmestu fram- leiðslunni í landinu. Það er áreiðanlega stórskaðlegt fyrir þjóðarheildina ef dugandi og góður vinnukraftur er flæmd- ur burt frá þessum mikilvægu framleiðslustörfum. í öðru lagi má minnast þess að Alþýðusambandið hefur verið að breytast mjög '■mikið frá því ' sem áður var, þegar heita mátti að það væri að langmestu leyti samband verkamanna. verka- -kvenna — og sjómanna, og er það vegna þeirr- ar atvinnuþróunar sem orðið hefur í landinu. Nú þegar eru komin innan Alþýðusambands- ins fjölmenn landssambönd. Ályktun stofnþings Verkamanna- r sanéands Islands um KJARAMÁL Stofnþing Verkamannasam- bands islands haldið í Reykjavík 9. — 10. mai 1964 telur að stefna sambandsins í kjaramálum verkamanna og verkakvenna nú og í næstu framtíð hljóti mjög að mark- ast af þeirri þróun, sem í þeim efnum hefur orðið á síðari tímum. Megindrættir þessarar þróunar verða ljósir af þeim staðreyndum að frá lokum síðari heimsstyrjaldar hefur ekki. þegar á heildina er lit'ð. verið um að ræða neinar hækkanir rauntekna miðað við vinnuframlag og vinnutíma hjá verkamanna- stéttinni og hvað lægstu laun þeirra snertir hefur verið um verulegar launaskerðingar að ræða. Mismunur milli launa verkamanna og annarra stétta, einkum hinum hæst launuðu. hefur farið vaxandi og alveg sérstaklega síðustu 4—5 árin. Vinnutími hefur lengzt langt úr hófi fram svo að vinnu- þreki, heilsu og eðlilegum lífsháttum er ógnað. Þessu hefur farið fram þrátt fyrir mjög auknar þjóð- artekjur og þar með vaxandi getu þjóðfélagsins til þess að bæta hag vinnustéttanna, sem að réttu hefði átt að nýta til þess að bæta hag hinna lægst launuðu verka- manna og verkakvenna, sem flestum fremur hafa staðið undir aukinni framleiðslu þjóðarinnar og þar með bætt- um hag hennar sem heildar. Þessi þróun á sér því ekki stoð í neinu réttlæti og er auk þess andstæð þjóðarhags- mununum þar sem hún hrek- ur vaxandi fjölda dugmikilla starfskrafta frá undirstöðuat- vinnuvegunum. Verkamannasamband ís- lands mun skoða það sem meginverkefni sitt að ein- beita kröftum félaganna, sem að því standa og samtaka- mætti þeirra til þess að hér verði gerbreyting á: að scm jafnastar og örugg- astar kjarabætur til handa verkamnnstéttínní komi ár- Iega til framkvæmda, vinnu- tími verði styttur í áföngum og án skerðingar heildar- tekna. fullkomnu Iaunajafn- rétti kvenna og karla verðí komið á, á sem allra skemmstum tíma orlofsrétt- indi aukin og hlutur verka- mannastéttarinnar miðað við aðrar launastéttir verði bætt- ur. Nú um sinn telur Verka- mannasamband Islands að megináherzlu beri að leggja á stöðvun verðbólgu og sí- vaxandi dýrtíðar jafnhliða raunhæfum aðgerðum í fram- angreinda átt. Stofnþing sambandsins lýsir því fyllsta stuðningi sínum við nýlega gerða ályktun ASl um kjara- mál og við þann grundvöll, sem þar er lagður að sam- komulagi og samstarfi við ríkisvaldið um stöðvun verð- bólgunnar samhliða aðgerð- um til raunhæfra kjarabóta. Vill þingið lýsa ánægju s nni yfir því að alvarlegar við- ræður eru nú hafnar um þessi mál milli fulltrúa ASÍ og ríkisstjórnarinnar og tel- ur brýna nauðsyn á að þeim viðræðum verði lokið hið fyrsta með iákvæðum ár- angri. Þá vill þingið enn- fremur lýsa fyllsta stuðningi við þau verkalýðsfélög á Norður- og Austurlandi, 23 að tölu, sem nú eiga í sam- eiginlegum samningum við atvinnurekendur og telur málstað þeirra sinn málstað, sem það vill styðja af fremsta megni. Fari svo. mót von þings- ins. að ekki reynist sá vilji til samstarfs og óhjákvæmi- legra aðgerða fyrir hendi hjá ríkisvaldinu og samtökum at- vinnurekenda, er einsætt að eins og nú er komið málum er þá sá einn kostur fyrir hendi að verkalýðshreyfingin beiti öllum mætti samtaka sinna til þess að fá hlut um- bjóðenda sinna réttan. 1 því sambandi varar þingið ríkis- valdið af fullkomnum al- vöruþunga við öllum hugsan- legum tilhneigingum eða til- raunum til valdbeitingar gegn frjálsum samnings- og samtakarétti verkalýðssam- takanna og lýsir yfir því að slíkt verður ekki þolað að hálfu Verkamannasambands- ins hvorki í lengd né bráð. I samræmi við framan- greinda stefnu Verkamanna- sambandsins í kjaramálum og henni til stuðnings felur stofnþingið væntanlegri stjórn sambandsins að gæta same:ginlegra hagsmuna s.ambandsfélaganna með sem nánustu samráði við Alþýðu- samband Islands og við þau verkalyðsfélög sem nú eiga í samningum eða undirbúa nú samningsgerð við samtök at- vinnurekenda.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.