Þjóðviljinn - 13.05.1964, Page 6
g SÍÐA
ÞlðÐVILJINK
Miðvikudagur 13. mai 1984
„Það áttí að sýkna Stephen
Ward, ákæran var hlægileg"
Blaðamaður ræðst á lögreglu, saksóknara og dómara
— Enginn skyldi láta sér til hugar koma, að
réttarfar okkar miðist við það að leita sannleik-
ans. Um slíkt er yfirleitt ekki spurt. Hér er um
að ræða viðureign tveggja aðila, sem fer eftir
ákveðnum reglum, og ef svo skyldi fara, að
sannleikurinn skjóti upp kollinum við réttar-
höldin er það eins og hver önnur guðs mildi og
hrein tilviljun.
Sllk er í stuttu máli ályktun
rithöfundarins og blaðamanns-
ins Ludovic Kennedy, en hann
hefur nú gefið út bók um
straum- og skjálftalækninn,
fristundamálarann og heims-
lystarmanninn Stephen Ward.
Bókin er viðtæk og ofsafengin
árás á lögreglu, dómara og
saksóknara í máli Wards.
Ekk: hlutíaus
Stephen Ward íhugar mál *itt
Hvað Stephen Ward viðkem-
ur telur Kennedy, að hann
hefði átt að vera sýknaður.
Hin átta ákæruatriði gegn
Ward skoðar bókarhöfundur
,.hlægileg” og ræðir sérstak-
lega þann lið ákærunnar. að
Ward hafi lifað af „ósiðlegum”
tekjum, það er að segja tekj-
um af ástarlífi þeirra Christine
Keeler og Mandy Rice-Davies.
Ludovic Kennedy gerir enga
kröfu til þess að vera hlut-
laus aðili að málinu. Bók hans
er framlag manns, sem fylgt
hefur réttarhöldunum frá
byrjun og tekur ákveðna og
eindregna afstöðu.
í dómum um bókina er
þetta mjög gagnrýnt, Kennedy
hefur tekið svo eindregna af-
stöðu til málsins. að oftlega
missir hann alla sjálfsstjóm.
--------------------------------«>
Krústjoff lýsir stuðningi
vi& helztu kröfur Nassers
KAIRÓ 11/5 — Krústjoff, forsætisráðherra Sovétríkjanna,
flutti i dag ræðu á þingi Arabíska sambandslýðveldisins.
Hvatti Krústjoff sterklega til þess, að niður verði lagðar
allar herstöðvar í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Krústjoff var ákaft hylltur í þinginu, og þingheimur reis
allur á fætur þegar forsætisráðherrann lýsti samúð sinni
með kröfum Araba gagnvart áætlunum ísraels um að
breyta farvegi árinnar Jórdan.
gera hlé á ræðu sinni vegna
lófataks frá þingheimi. Krúst-
joff tók í ræðu sinni undir
ýmsar helztu kröfur Nassers og
gerði harða hríð að samningum
er þrælbyndu Arabaríkin. Sov-
étríkin kvað Krústjoff meta að
verðleikum viðleitni Nassers til
að fá fjarlægðar allar herstöðv-
ar á meginlandi Afríku.
En ritdómaramir minna einn-
ig á það furðulega fyrirbrigði,
að Kennedy skyldi neitað um
aðgang að hinu opinbera eftir-
riti af þvi, sem fór fram meðan
á réttarhöldunum stóð. Kom
þetta sér illa fyrir Kennedy
þegar hann vann að bók sinni.
Mannlýsingar
— Ég held út úr réttarsaln-
um lamaður. vonsvikinn og
ofsareiður. Ég hafði séð réttar-
misbeitingu og ég var sjúkur
á hjarta, segir Ludovic Kenn-
edy í viðtali við Daily Mirror.
Um saksóknarann, Mervyn
Griffith-Jones hefur Kennedy
þetta að segja m. a.:
— Honum er bezt lýst sem
ferköntuðum. Hann gæti feng-
ið brúðkaupsferð, hvað þá
annað til að vera klúra.
(Griffith-Jones var saksókn-
ari í Lady Chatterley-málinu
1959, Keeler-málinu í fyrra
haust og Fanny Hill-málinu nú
í vetur).
Um dómarann. Sir Archie
Marshall. og leiðbeiningar hans
til kviðdómsins, hefur Kenn-
edy þetta m. a. að segja:
— Hann þó hendur sínar i
ósýnilegri sápu.
Verjandinn. James Burge,
fær heldur skárri útreið:
— Góðlátlegur, pickwickí-
anskur gleðimaður . . . Hann
var siðmenntaður maður, mað-
ur með kímnigáfu og fyndni.
Allt andrúmsloftið við rétt-
arhöldin í Ward-málinu var
e.líkt, að sögn Kennedys, að
ætla mætti. að hér væri ver-
ið að dæma kynóða skepnu,
sem ekki var dregin fyrir rétt
vegna afbrota sinna heldur
vegna siðferðis síns, segir
Kennedy. og leggur áherzlu á
það:
Ákæruatriðin
Að Ward hafi aðeins verið
sekur fundinn um tvö af átta
ákæruatriðum.
Daginn áður hafði Krústjoff
talað á fjöldafundi í Kairó. og
fengið ágætar undirtektir mann-
fjöldans. Gerði forsætisráðherr-
ann þar harða hríð að Eng-
lendingum fyrir sprengjuárásir
þeirra á Jemen. Mikið var um
dýrðir á fjöldafundi þessum, og
láta fréttamenn mjög af því,
bve hjartanlega egypzkur al-
menningur hafi tekið hinum
sovézka forsætisráðherra.
Styður Nasser
1 ræðu sinni í þinginu varð
Krústjoff hvað eftir annað að
Stjórnmálaviðræður
Þá undirstrikaði Krústjoff það,
að kommúnismi, sósíalismi og
þjóðemisstefna eigi að vinna
saman gegn nýlendustefnu. Þeir
Nasser forseti héldu áfram á
Framhald á 9. síðu.
Að hvorki Christine Keeler
né Mandy Rice-Davies hafi
verið skækjur í lagalegum
skilningi, það er að segja átt
mök við karlmenn „aðeins
vegna peninganna.”
Að enda þótt fé hafi farið
Framhald á 9. siðu.
Til glöggvunar lesendum
Þjóðviljans gefum við kvik-
myndunum einkunnir, eða
stjörnur. Hæst gefum við sex
stjörnur. Iægst eina.
HÁSKÓLABÍÖ:
Suzie Wong
• * * Háskólabíó endursýn-
ir nú bandarísku kvikmynd-
ina Suzie Wong, sem gerð er
eftir samnefndri sögu. Efni
myndarinnar skal ekki rakið
hér að neinu ráði, hún fjallar
um bandarískan verkfræðing,
sem heldur til Hong Kong til
þess að gerast málari. Þar
kynnist hann ungri, kín-
verskri vændiskonu, Suzie
Wong, og verður hwgfanginn
af. Fjallar myndin svo um
samskipti þeirra.
Um þessa mynd er flest
gott að segja, helzt má það
að henni finna, að hún sé á
köflum óþarflega rómantísk
fyrir okkar smekk. William
Holden hefur alltaf verið
einkar geðþekkur leikari og
fer vel með hlutverk Banda-
ríkjamannsins unga. Nancy
Kwan. sem er kínversk í
aðra ættina, leikur Suzie
Wong með ágætum. 1 auka-
hlutverki tekur maður sér-
staklega eftir Noel Coward,
sem leikur veikgeðja Eng-
lending frábærlega. J.Th.H.
HAFNARFJARÐARBIO
Fyrirmyndar-
fjölskylda
* * * * Síðan þá Litla og
Stóra leið hefur heldur lítið
bragð verið að dönskum gam-
anmyndum. Nú bregður til
hins betra og ber að fagna
því, Hafnarfjarðarbíó sýnir
myndina Fyrirmyndarfjöl-
skylda og er að henni góð
skemmtun. Ekki er myndin
ncitt meiscaraverk, en prýði-
lega gerð. Söguþráður er að
vísu hvorki mikill né marg-
brotinn, hér er brugðið upp
mynd af háborgaralegri fjöl-
skyldu um aldamótin síðustu,
og hefur fjölskyldufaðirinn
gift dætur sínar því hærra
í metorðastigann sem efni
hans aukast. Nú á að gifta
yngstu dótturina inn í háað-
alinn danska, svo skemmti-
lengur sem hann nú er. og
af þvi spinnast vandræðin.
Myndin er príðilega leik-
in og svo jafn vel. að erfitt
er að nefna einn leikarann
öðrum fremur. Gunnar Laur-
ing leikur stórkaupmanninn
og fjölskyldu'öðurinn ágæt-
lega, Helle Virkner og Ghita
Nörby fara vel með hlutverk
tveggja dætra hans. Hinn
góðkunni sænski leikari Jarl
Kulle, sem þekktur er sem
prófessor Higgins, fer með
veigamikið hlutverk í þess-
ari mynd og gerir því eins
og vænta mátti góð skil.
Efnisskráin blandar á held-
ur leiðan hátt saman mál-
fræðilegri nútíð og þátíð. Er
það „stílbragð” srm ein-
hverra hluta vegna nýtur ó-
þarfa vinsælda með höfund-
um slíkra rita. J.Th.H.
flölskylda, sem nú er sýnd 1 Hafnarfjaröai-bíói.
Hundgá heyríst í
kosningabaráttunni
Fyrir nokkru lét Johnson
Bandaríkjaforseti ljósmynda
sig með tveim hundum sínum.
Slíkt þætti vart í frásögu fær-
andi í bandarískri kosningabar-
áttu væri það ekki fyrir þá sök,
að forsetinn lyftir hundunum
upp á eyrunum og kvað þá
hafa gott af slíkri meðferð.
Gelt hundanna túlkaði forset-
inn sem ánægjumerki yfir þesr,-
ari likamsrækt.
Nú hefur Dýravemdunarfé-
lag Bandaríkjanna sent frá sér
álitsgerð um málið, og segir
þar, að forsetinn myndi sjálfur
gelta væri hann tekinn unp á
eyrunum. — Slíkt er sárt, og
það er þessvegna, sem hund-
arnir geltu. telur félagið.
Stjómmálpfréttaritarar bíða
nú eftir því í ofvæni hvort
þetta kunni að hafa áhrif á
gengi forsetans. — Maður veit
aldrei, hvað fyrir kann að
koma í kosningabaráttunni.
segja þeir.
-------------------
flftur hækkar í
Séravsjanfljóti
MOSKVU 8/5 — Aftur er farið
að hækka iskyggiiega mikið i
lóninu sem myndaðist fyrir of-
an stífluna í Séravsjanfljóti
skammt frá Samarkand i Ús-
bekistan. Hinn nýi farvegur sem
sprengdur var til að leiða burt
vatnið úr lóninu héfur fyllzt að
mestu vegna nýrra skriðufalla,
en nú er reynt að víkka hann
með nýjum sprengingum.