Þjóðviljinn - 28.05.1964, Page 3
Fimmtudagur 28. maí 1964
H(KIVIUINH
SfÐA 3
Eru sammála um
arabíska einingu
MOSKVU 27/5 — Krústjoff.
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
lét svo um mælt í ræðu í dag,
að enginn ágreiningur sé milli
Sovétríkjanna annarsvegar og
Arabarikjanna hinsvegar um
hugtakið arabísk eining.
— Okkur Nasser Egyptalands-
forseta hefur ekki greint sér-
lega á um hvað hugtakið eigi
að innihalda, enda þótt Sovét-
ríkin trúi á einingu verkalýðs-
ins óháð kynþáttum, trúarbrögð-
um eða landamærum. sagði
Krústjoff. Ræðu sína hélt hann
í útvarpi. og sjónvarpi og sagði
ítarlega frá heimsókn sinni til
Egyptalands.
Akveðið að skiptast
nú á ræðismönnum
Pathet Lao
sækir enn á
VIENTIANE 27/5 — Hersveitir |
hlutleysissinna í Laos hörfuðu \
á miðvikudag úr hinu hernað-!
arlega mikilvæga þorpi Muong
Kheung, en áður höfðu her-
sveitir Pathet Lao náð á sitt
vald hæðardrögum nokkrum í
nánd við borgina.
Muong Kheung var tekið af
hersveitum Pathet Lao nú um
helgina, en hlutleysissinnar náðu
þorpinu á sitt vald aftur án
teljandi bardaga. Nú hafa hlut-
leysissinnar svo neyðst til að
hörfa úr þeim stöðvum. i
Landsstióri biður
nú um liðsauka
GEORGETOWN 27/5 — Lands-
stjórinn i Brezku Guiana, Sir
Richard Luyt, fór þess á leit í
dag, að Englendingar sendu
meira herlið til nýlendunnar. Er
búizt við þeim liðstyrk innan
fárra daga Eins og kunnugt er
hafa miklar kynþáttaóeirðir
geysað í landinu undanfarið og
fjöldi manns látið lífið í þeim
átökum.
Englendintum aS
enrn treystandi
NICOSIA 27/5 — Kýpurstjórn
heldur því fram í dag, að ensk-
ur flugmaður hafi játað að hafa
beitt flugvél sinni til hermdar-
verka á eynni. Kveður stjórnin
ekkert vera lengur að byggja
á þátttöku Englendinga í að-
gerðum Sameinuðu þjóðanna á
eynni.
Goldwater revnir
að draga í land
SAN DIEGO 27/5 — öldunga-
deildarþingmaðurinn Barry Cold-
water neitaði því á blaðamanna-
fundi í dag að hafa hvatt til
þess, að kjarnorkusprengjum !
væri beitt í Suður-Víetnam. j
Hinsvegar taldi hann að eyði-
leggja bæri aðflutningsleiðir
skæruliða Víetcong.
Eins og kunnugt er af frétt-
um var það haft eftir Coldwat-
er. að beita bæri kjarnorkuvopn-
um í Suður-Víetnam. Var þetta
hvarvetna tekið óstinnt upp og
Ú Þant lét eftir sér hafa, að slík
uppástunga stappaði nærri geð-
bilun.
Fransk' ^ndi-
herrann í Kína
PEKING 27/5 — Fyrsti sendi-
herra Frakka í Kínverska al-
þýðulýðveldinu Lucien Paye,
kom til Peking á miðvikudag.
Tóku fulltrúar utanríkisráðuneyt-
isins kinverska á móti honum oe
ailmargir sendimenn
ríkja í Kína.
WASHINGTON 27/5 — Johnson ,
Bandaríkjaforseti tilkynnti það í
dag, að Sovétríkin og Bandarík-
in hefðu gert um það milliríkja- J
samning að koma á fót ræðis- ]
mannaskrifstofu í Washington og
Moskvu. Er þetta fyrsti samning-
urinn af þessu tagi sem þessi
ríki gera sín í millum.
Samtímis þessari tilkynningu
Bandaríkjaforseta var frá þessu
samkomulagi sagt í Moskvu. Við-
ræður hafa farið fram um málið
síðastliðna viku. Haft er eftir
góðum heimildum í Washington,
að ekki sé ólíklegt að í kjölfar
þessa samnings fylgi nánari sam-
vinna á ýmsum sviðum, svo sem
aukin verzlunarviðskipti.
Áður en samningurinn tekur
gildi þarf öldungadeild Banda-
ríkjaþings að staðfesta hann, en
síðan verður hann væntanlega
undirritaður í Moskvu næstkom-
andi mánudag. Hefur Johnson
forseti svo frá skýrt, að Kohlen,
sendiherra Bandaríkjanna í Sov-
étríkjunum, muni undirrita
samninginn fyrir hönd Banda-
ríkjamanna.
Muelele tekur tvær
borgir í N-Katanga
ELISABETHVILLE 27/5—Upp-
reisnarmenn í Kongó undir
stjórn hins vinstri sinnaða fylg-
ismanns Lumumba. Pierre Mu-
elele, hafa nú tekið á sitt vald
bæina Albertville og Baudouin-
ville í Norður-Katanga. Eftir
öllu að dæma hafa þeir náð
bæjunum á sitt vald án þess að
hleypt væri af skoti. Albertville
er höfuðborg Norður-Katanga.
Forseti Norður-Katanga. Ja-
son Sendwe og ráðherra hans,
hafa verið teknir höndum og er
þeirra stranglega gætt af her-
verði. Atvinnumálaráðherrann
TÓKlÖ 27/5 — Meir en fimm
þúsund manns hafa farizt í um-
ferðaslysum í Japan síðustu
fimm mánuði, og er þetta um
600 manns fleira en á sama títna
og í fyrra. Það er fréttastofan
KYODO, sem þetta tilkynnti á
miðvikudag.
Fimm slasast
Framhald af 12 síðu.
munu þeir allir hafa verið ölv-
aðir. Jóhanri mun hins vegar
lítt eða ekki hafa verið undir
áhrifum áfengis.
Kristmundur Sigurðsson rann-
sóknarlögreglumaður sem hefur
rannsókn þessa slyss undir
höndum sagði í viðtali við Þjóð-
viljann í gær að það væri all-
títt að bílaleigubílar lentu í á-
rekstrum þar eð ökumenn
þeirra væru misjafnir bílstjór-
ar, oft ungir piltar, óvanir
akstri og glannafengnir. Taldi
hann að rétt væri að þessir bíl-
ar yrðu auðkenndir sérstaklega
í umferðinni til varyggðar.
Frú Anna Guðmundsdóttir frá Akureyri keypti einn miða í happdrætti Krabbameinsfélagsins og
gaf syni sínum Guðmundi, 14 ára, miðann. Hér sjást þau mæðginin ásamt fjölskylduföðurnum,
Brynjólfi Helgasyni starfsmanni í Iðunni, er þau tóku á móti vinningnum við hús Krabbameinsfé-
laganna. Vinningsnúmerið var 47597 og var bíllinn strax skráscttur með Akureyrarnúmeri. Þau hafa
aldrei átt bíl áður. Happdrættið gekk mjög vel a ð þessu sinni. Komu mjög góð skil utan af landi
og í Reykjavík sel dust miðarnir upp.
Michel Kitenta er hinn eini af
ráðherrunum, sem undan komst.
Hann heldur sig nú í Elisabeth-
ville.
Smyslof, Evans og
Gligoric efstir
Fregnir hafa nú borizt af 3.
og 4. umferð millisvæðamótsins
í Amsterdam og eru þeir Smys-
lof, Gligoric og Evans efstir að
þeim loknum með 3 vinninga
hver. Larsen er fjórði með 2Vi
vinning og biðskák. Bronstein.
Ivkov, Pachmann og Portisch
hafa 2í4, Reshevsky, Spasskí og
Porath 2 og biðskák hver og Tal
og Benkö 2 vinninga.
Úrslit í 3. umferð urðu þessi:
Larsen og Gligoric jafntefli,
Smyslof og Tringov jafntefli,
Bilek og Reshevsky jafntefli,
Evans vann Berger, Vranesic og
Benkö jafntefli, Ivkov vann Per-
ez, Porath vann Rosetto, Quin-
ones vann Fougelmann, Pach-
mann og Darga gerðu jafntefli,
Bronstein og Spasskí jafntefli,
Tal og Stein jafntefli, Lengyel
og Portisch jafntefli.
I 4. umferð urðu úrslit þessi:
Portisch vann Stein, Spasskí og
Tal jafntefli, Smyslof og Bron-
stein jafntefli, Pachmann vann
Tringov, Foguelmann og Darga
jafntefli. Gligoric vann Quinon-
es, Benkö og Ivkov jafntefli,
Evans vann Bilek. Aðrar skákir
fóru í bið.
Þá hafa borizt úrslit úr tveim
biðskákum úr 1. umferð: Lar-
sen vann Pachmann en Vranesic
og Porath gerðu jafntefli.
Sigurjón Björnsson:
LEIÐIN TIL SKÁLD SKAPAR
Gunnar Gunnarsson, 1916.
Hugleiðingar um upptök og
þróun skáldhneigðar Gunnars
Gunnarssonar.
I-Iöfundur segir í formála:
„Enda þótt Uggi segði mér
ævisögu sína, og það mjög
rækilega, var hann og er mér
reyndar emn mikil ráðgáta,
því að svo er háttað um þann
ágæta pilt, að þrátt fyrir allt
er hann mjög dulur . . . og
skemmst frá að segja, að það
varð mér smám saman á-
rátta að reyna að skilja
Ugga. Ég las allt, sem hann
hafði skrifað, og gerði mér
far um að setja það í sam-
t>.«P*$við ævisögu hans, eins
og hánn sagði mér hana. —
Hér er svo árangur þeirrar
viðleitni“.
Leiðin til skáldskapar er at-
hyglisverð könnun á nokkr-
um djúpstæðum efnisþáttum í
Fjallkirkjunni og flestum
skáldverkum Gunnars Gunn-
arssonar, sem eldri eru en
hún.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
melka
skyrtan er SÆNSK úrvalsframleiðsla,
— Ótrúlega endingargóð, létt í þvotti,
flibbi og líningar haldast hálfstífar,
þrátt fyrir marga þvotta.
melka he r r a p e i lp
Hvítar í 3 erma-
lengdum. — 3 flibba
snið.. — Misli+ar
mörgum gerðurr
Austurstræti 14. — Sími 12345.
Laugavegi 95. — Sími 23862.
A