Þjóðviljinn - 06.06.1964, Page 2

Þjóðviljinn - 06.06.1964, Page 2
2 SfÐA Öfl utan alþingis Þegar viðreisnarstjómin tók við fóru leiðtogar henn- ar háðulegum orðum um þau vinnubrögð vinstristjórn- arinnar að reyna að leysa efnahagsmálin með samning- um og samkomulagi við verklýðssamtökin. Einkanlega einbeitti núverandi forsætis- ráðherra hinu skapstygga spotti sínu að því verkefni og talaði af stakri fyrirlitn- ingu um „öfl utan alþingis“ sem hefðu verið látin taka ráðin af hinum kjömu lög- gjöfum þjóðarinnar. Nú skyldi verða breyting á, sagði Bjarni Benediktsson og fylgdi þeirri yfirlýsingu sannarlega eftir í verki. En þetta sem helzt hann varast vann, varð þó að koma yfir hann. Naumast hefur nokkur íslenzkur forsætis- ráðherra neyðzt til þess að hvarfla jafn gersamlega frá helzta stefnumiði sínu. I nóvember f fýrra gerðust HÓÐVTLnHN Mugardagur 6. júní 1964 þ*a emstasðu tíðmÆ að Jöfl utan alþingis" felldu fsum- varp sem búið var að sam- þykkja við fimrn umræður innan veggja þinghússins og mánuði síðar samdi forsæt- isráðherrann við verklýðs- samtökin um þau mál sem áður átti að afgreiða með einhliða löggjöf. Og í fyrri- nótt — nokkrum vikum eft- ir að Alþingi hafði verið sent heim — sat forsætisráðherra niðri í þinghúsi og skrifaði undir samning við verk- lýðssamtökin um marghátt- uð löggjaíaratriði. Alþingi hafði nú i rúm fjögur ár stað- ið fast á þv£ að ekki mætti greiða neinar vísitöluuppbæt- ur á kaup og fellt allar til- lögur um það efni; nú samdi forsætisráðherrann við al- þýðusamtökin um kauptrygg- ingu með nýrri löggjöf. Al- þingi hafði í engu sinnt til- lögum Alþýðubandalagsins um aukið orlof; nú skrifaði forsætisráðherra undir samn- ing við vérklýðssamtökin um að orlof skyldi lengt um hálfa viteu með nýrri Iðggjðf. Al- þingi hafði ekkert skeytt um húsnæðismálin, eitt erfiðasta vandamál almennings; nú féngu verklýðssamtökin Bjama Benediktsson til að lofa nýrri og stórbættri lög- gjöf á því sviði. Tillaga sú sem forseti Alþýðusambands- ins fiutti á þingi um vinnu- vemd hafði engar undirtekt- ir hlotið meðal stjómarþing- manna; nú hét forsætisráð- herra þvi meðf undirskrift sinni að ríkisstjórnin skyldi tryggja málinu framgang. Þannig höfðu ,,öfl utan al- þingis" leyst ýmis mikilvæg mál sem langt en starfslítið þing hafði vanraekt með öllu. Það er vissulega ánægju- legt fyrir núverandi forsætis- ráðherra að hafa þannig fylgt þeirri gömlu kennisetningu sem segir að batnandi manni sé bezt að lifa..Svo er og fyr- ir að þakka að hann gæti fylgt henni lengi enn, án þess að leggja hart að sér. — Austri. LÁNSÚTBOÐ Bæjarstjórn Kópavogskaupstaðar hefur ákveðið að bjóða út fimm miljóna króna skuldabréfalán vegna vatnsveitu- framkvæmda í Kópavogi. Út eru gefin handhafaskulda- bréf með þrenns konar verðgildi að fjárhæð kr. 1.000,00 kr. 5.000,00 og kr, 10.000,00. Bréfin endurgreiðast á fimmtán árum eftir útdrætti. Þau eru með hæstu lögleyfð- um vöxtum fasteignaveðlána eins og þeir verða á gjald- daga hverju sinni. Láninu ve.rður varið til nýbyggingar og endumýjunar á vatnsveitukerfinu. Bréfin eru til sölu á þessum stöðum: í bæjarskrifstof- unni j Félagsheimilinu, Sparisjóði Kópavogs og Búnað- arbanka íslands — aðalbankanum í Reykjavík. Sérstaklega er skorað á Kópavogsbúa að flýta fyrir vatns- veituframkvæmdum í bænum með því að kaupa bréfin. Kópavogi, 1. júní 1964. BÆJARSTJÓRINN. ATHUGIÐ: Höfum opnað nýtt sýningarhúsnæði. — SKOÐIÐ RAMBLER AMERICAN OG RAMBLER CLASSIC OPIÐ I DAG TIL KLUKKAN 5. RAMBLER umboðið: RAMBLER verkstæðið: RAMBLER varahlutir: JON LOFTSSON h.f. SIMI 10600 - HRiNGBRAUT 121 til afgreiðslu eftir pöntunum frá U.S.A. manna ameríska bifreiðin á hagstœðasta verðinu! Kynnizt RAMBLER og þér veljið LITAORVAL 6 CYL. — 125 HA RAMBLERGÆÐI ÁKLÆÐISÚRVAL ÁRSÁBYRGÐ R AMBLEREN DIN G *

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.