Þjóðviljinn - 10.06.1964, Side 7

Þjóðviljinn - 10.06.1964, Side 7
MSðvikudagur 10. júní 1964 MÖÐVUHNN SIBA 7 Merk hugvekja Halldórs Laxness til íslendinga ListahátiS sett Þórbcrgur hcrmdi eftir séra Árna Þórarinssyni Á Listahátíð Bandalags is- lenzkra listamanna sem opnuð var á sunnudag flutti Halldór Laxness aðalræðuna. Halldór kom víða við í þessari merku og fróðlegu ræðu, en því mætti halda fram með miklum rétti, að efni máls hans hafi fyrst og fremst verið menningarleg staða smáþjóðar, menningarleg staða Islendinga í heimi sam- tíðarinnar. Halldór rakti i upphafi máls síns aðdraganda að fyrstu lista- mannaþingum sem háð voru hér á landi fyrir rúmum tutt- ugu árum „að sýna fulltrúum érlendra ríkja, er hér sátu, hverjir við værum, en þó eink- um sanna fyrir sjálfum okkur, að við réðum fyrir þeim and- legum verðmætum, sem ættu að réttlæta það, að við kölluð- um okkur sjálfstætt fólk“. Síðan rakti Halldór nokkuð þá þróun sem síðan hefur átt sér stað í heiminum: „Hlutur mannkynsins er að meira leyti en nokkru sinni fyrr kominn f hendur fárra öflugra miðstöðva, sem sín á milli hafa gert sam- komulag um nokkur höfuðat- riði. Smáríki og fámenn lönd sem áður voru gildir aðilar í héiminum vegna sérstæðrar menningar sinnar, ellegar voru látin eiga sig af því þau lágu afskekkt. standa nú berskjald- aðri en áður fyrir þeirri sam- hyggju sem skapast af vél- gengni tímans". Hann minnti og á það, að það hafi gerzt í sögunni að smáþjóðir gæfu upp menningarleg verðmæti sín vegna áhrifa frá sterkari ná- grönnum — og það án þess að veita teljandi mótspyrnu. Stóru ríkin, sagði Halldór ennfremur, sækja í menningar- legum skilningi fast að þeim smáu. Þessi ásókn er ekki endilega nein herferð. Hitt er sönnu nær. að það er einkum með þunga sínum og óhnikan- legri nærveru sem stóru ríkin hafa áhrif á smáa nágranna sína. . . Stundum getur ístöðu. lítil smáþjóð gagnvart voldug- um nágranna tekið á sig mynd af hænuungum sem þyrpast undir ungamóður ef einhver skarkali heyrist, eða lambi sem stekkur undir móður sína og sýgur hana, ef ímynduð eða raunveruleg hætta steðjar að. Afstaða af þessu tagi er ekki mjög efnileg í menningarlegu tilliti. -ef hún verður smáþjóðar." ARFLEIFÐ OG EFNAHAGUR Þá ræddi Halldór um þær þjóðir sem hafa reynzt fastar fyrir áleitni voldugra nágranna, og tók einkum dæmi af Gyð- ingum og Grikkjum sem þrátt fyrir allt risu upp aftur sem sjálfstætt fólk að lokym vegna þess að þeir misstu aldrei sam- band við íorna arfleifð sína. „En fjarri fer því", mælti skáld- ið, „að trúin á afrek langfeðr- anna sé einhlít. Þess er holt að minnast á 20. aldursári lýð- veldisins íslenzka. að sjáífstæði þjóðarinnar hefur aldrei náðst í eitt skipti fyrir öll, heldur verður það að ávinnast á hverj- um degi þjóðarævinnar. Sjálf- stæðan heiðui-ssess skapar sú þjóð sér, sem að innra lögmáli tjáir mannvitsþroska sinn í list og skáldskap og öðrum afrek- um eins og blómið, sem breiðir úr krónu sinni af því að það getur ekki annað. Þokkalegur efnahagur er vafalaust nauð- synlegur, og auður kann að vera góður, en hann er þess ekki umkominn að skapa menningarafrek, því miður. Satt er það, að alls konar súp- erkúltúr eða hátimbrun í menn- ingu tilheyrir fyrst og fremst ríkidæmi. svo sem glæsileg söngleikahús, hallir og minnis- merkjastfll í byggingastíl, kvik- myndir sem kosta miljarð og sjónvarp. En það er Ifka til velgengi og hagsæld án menn- ingar. öll grundvallarafrek í list virðast hins vegar eiga uppruna sinn hjá þjóðum, stéttum og einstaklingum, sem hafa aðeins til hnffs og skeið- ar. Þessi ótrúlega staðreynd hefur valdið vonbrigðum á okk- ar tímum. Það er nokkum veg- inn hægt að sanna, að skáldið sem samdi Jobsbók og svo þau skáld sem ortu Ljóðaljóðin. hafi verið fátækir sauðfjár- bændur. Á þeim öldum. þegar Grikkir sköpuðu grundvallar- afrek, sem enn eru hornsteinar vestrænnar menningar, voru þeir svo fátækir, að það er ó- líklegt, að nokkur þjóð í Evr- ópu lifi almennt við svo þraungan kost nú á tímum." DÖNSK BIBLlA ÓKEYPIS Er Halldór hafði rætt þær þversagnir, sem sköpunarsaga listrænna afreka geymir. vék hann að afstöðu nútímaislend- inga til gullaldarbókmennta, sinna: áð þeirri korglegu stað- reynd að áhugi okkar á þeim sé ef til vill meiri f orði en á borði. Hann sagði að við mynd- um hafa sterkari aðstöðu út á við, ekki hvað sfzt siðferðilega í handritamálinu, ef við hefð- um sýnt meiri dug í því að gefa út íslenzkar fombókmennt- ir, ritskýra þær og ritstýra þeim hér heima, í stað þess að láta útlendinga svo til eina um það. Halldór nefndi svo hörmu- legt dæmi sem það, að enn eig- um við ekki sómasamlega út- gáfu af Eddu, sjálfur neyddist hann til a® taka þýzkar og tékkneskar útgáfur ofan úr hillum ef útlengingar bæðu sig að sýna sér Eddu. Ennfremur væru gullaldarverk eins og Hómilíubókin. Lilja, Heilagra manna sögur óútgefnar á ís- landi. ,,En sú var tíð“, hélt Halldór áfram, „að sérstæð ís- Ienzk menning birtist í stað- rcyndum en ckki skjaili og skrumi. A scxtándu . öld þegar þjóðkirkja okkar, páfakirkjan, hafði verið útlæg gerð úr land- inu af dönsku stjóminnl. cn biblía var komin í stað kirkju, þá hefðum við áreiðanlega get- að fcngið danska biblíu ókcypis hingað til Iands og þar með danskar prédikanir á sunnu- dögum og danskar bænir til guðs, eins og Norðmenn fengu. Var það þjóðeraismetnaður, sem kom okkur til að prenta Guðbrandsbiblíu? Mun ekki sanni nær, að það verk þætti íslendingum svo einhlítt að vinna, að annað gat ekki flökr- að að þeim? Þó þeir væru fá- tækir, þá voru þeir ekki komn- ir á það stig þróunarinnar. eins og sagt er nú á dögum, að þeim fyndist íslcnzkt mannréttinda- mál að taka við danskri Biblíu gefins. Og þó þeir væru kannski svangir, var bauna- diskurinn frægi, sem talað er um í Biblíunni, ekki orðinn þeim það hjartans mál, að þeir Iétu fyrir hann frumburðarrétt sinn sem bókmenntaþjóð. Þeir prentuðu sína Biblíu sjálfir í torfkofa í cinum afskekktasta Guðmundur Böðvarsson las úr ljóðum sínum fjalladal Norðurlands. Þá bók getur Islendingur enn þann dag i dag stoltur hafið upp til hvaða útlendings sem vera skal.“ AUGLtSING OG ÞJÓÐERNI Að lokum mælti Halldór á þessa leið: ,.Heimsfrægð nú á dögum er komin undir þunga auglýsing- arinnar, enda er auglýsingin það eina sem stórþjóð getur lagt eftirlætisbömum sínum til umfram smáþjóðir . . En sá Eftir opnuu myndlistarsýningarinnar: Ragnar Jónsson, forsetahjónin, Jón Þórarinsson, form. B.Í.L. Halldór Laxness: Sú var tíð að sérstæð íslenzk menning birtist í staðreyndum en ekki skjalli og skrumi. sem er listamaður af innri köllun, sannfæringu og sam- vizku, honum er sá stáður bezt- ur, sem forsjónin hefur sett hann. Hann er óháður auglýs- ingu og gæti ekki verið meiri meistari þó hann væri af öðru þjóðemi. Þá er vel ef sú hátíð sem hér hefur verið sett, ber þess nokkurt vitni að hér búi smá- þjóð sem er éldri en tvævetur í menntun sinni og þó einkum ef þetta listaþirtg tjáir vilja okkar til að halda áfram sjálf- stæðu þjóðlífi við þann hlut sem okkur hefur verið kjörinn hér vestur í hafinu." HÁTÍÐLEG ÁVÖRP Hátiðin var sett af formanni Bandalagsi íslenzkra lista- manna. Jóni Þórarinssyni, að loknum flutningi þjóðsongsins. Forsetahjónin voru viðstödd, sendiherrar og mikill fjöldi ís- lenzkra listamanna. Húsið var þó ekki fullskipað. Jón Þórarinsson rakti nokkuð forsendur þess að hin fyrstu listamannaþing voru haldin. Hann sagði og frá undirbúningi þeirrar hátíðar sem nú er haf- in, gat um þá nýbreytni að á henni koma fram erlendir lista- menn og kvaðst vænta þess að slíkar hátíðir myndu smám saman fá alþjóðlegri svip ef á þeim yrði framhald. Jón minnt- ist einnig þriggja afreksmanna í íslenzkri menningarsögu, Hallgríms Péturssonar, sem á 350 ára afmæli á árinu, Einars Benediktssonar, aldargamals í ár. og Davíðs Stefánssonar.< Risu áheyrendur úr sætum sín- um og minntust þessara manna og þúsunda annarra skapara og gæzlumanna íslenzkrar þjóð- menningar. Gylfi Þ. Gíslason mennta- málaráðherra flutti ávarp og boðaði alllengi vinsamleg sam- skipti lista og vísinda, tveggja andlegra stórvelda er „ekki mega og eiga ekki að takast á“ og vildi hann koma á þvi valdajafnvægi þar á milli sem nauðsynlegt væri eins og valda- jafnvægi milli stórvelda. Hann ræddi einnig nauðsyn þess að barizt yrði fyrir því að fjölda- menning nútímaþjóðfélags yrði sönn menning. Geir Hallgrímsson borgar- stjóri talaði m.a. um það hve listir væru nauðsynlegar borg- um og stillti sig inn á mjög landföðurslegan tón. Hann var yfirmáta sáttfús í ræðu sinni og vildi þaka öllum á samleið: manninum og listamanninum, þéttbýlinu og þjóðfélaginu. Guðmundur Hagalín las úr ó- prentaðri bók sem er víst um útgerðarfrömuð á Akranesi og var pistill hans mjög sunnu- dagaskólalegur. Guðmundur Böðvarsson las þrjú ljóða sinna. Þórbergur Þórðarson sagði nokkrar sögur af séra Áma Þórarinssyni. Sinfóníúhljómsveitin og söng- fólk úr Fílharmoníu og Fóst- bræðrum flutti yfirtak hátið- lega tónlist eftir Jón Leifs og Pál lsólfsson — stjómandi var Igor Búketoff. OPNUN MYND- LISTARSÝNINGAR Klukkan fjögur siðdegis var svo opnuð bóka- og myndlist- arsýning í húsi Þjóðminjasafns- ins. Ragnar Jónsson opnaði sýninguna. Hann ræddi einkum um það andlega volæði sem fylgir ópersónulegu lífi í verk- smiðjuframleiddum þægindum. Og bað Ragnar alla að taka höndum saman um að forða æsku framtíðarinnar frá svo leiðinlegu lífi: ,.Þeir sem hér sýna verk sín, sem eru ekki framleidd í verksmiðju held- ur eru hvert og eitt tjáning persónulegrar reynslu, bjóða okkur aðstoð sína af heilum hug." Tvístruðust gestir síðan um sali Listasafnsins. Og virtu fyrir sér stórar og traustlegar myndir Gunnlaugs Schevings, glaðlegan rómantískan vegg eftir Kjarval, furðuðu sig á kátu hugmyndaflugi Þorvaldar. Það var léttleiki yfir þessari sýningu yfirleitt, hún minnti á hinar bjartari árstíðir. Og hún er svo til öll nonfígúratíf. Seinna um kvöldið hafði menntamálaráðherra boð inni í ráðherrabústaðnum við Tjam- argötu fyrir listamenn og aðra gesti og var þar mikið fjöl- menni. Kalblettirnir segia enn til sín Norðfirði, 1/6 — Skepnuhöld voru góð hjá bændum í Norð- fjarðarsveit í vetur sem leið. Einnig hefur sauðburðinn geng- ið vel og er nú víðast hvar lokið. Veðráttan í vor hefur verið -fremur hagstæð, en kulda- köst síðustu vikur hafa þó hægt á gróðrinum, sem annars var óvenju snemma á ferðinni, hér eins og annarsstaðar. Síðastliðna nótt snjóaði t.d. niður í byggð, þótt ekki frysi. Steinþór Þórð- arsson bóndi í Skuggahlíð segir okkur. að með sæmilegri tíð ætti sláttur að geta hafizt um 20. júní, þar sem sauðfé hefur ekki verið beitt. Kalskemmimar miklu frá í hitteðfyrra segja enn til sín, og vex sama og ekkert uppúr þeim ennþá. Munu bændur verða að plægja þær spildur upp á nýjan leik til að koma þeim í rækt. en þær eru sumstaðar nær þriðjungur af túnunum hér f sveitinni. Kostar það ekki lítið ofan á það tap í heyfeng, sem þegar er orðið. — H.G.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.