Þjóðviljinn - 17.06.1964, Page 4
4 SlÐA
ÞJÖÐVILIINN
mlovikudagur 17. júní 1964
Otgefandi; Samelmngarflokkur alþýðu — Sósialistaílokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.J,
Sigurður Guðmundsson,
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. orentsmiðja. Skólavörðust. 19.
Símj 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði.
Effólkið þorír
J^ýðveldisstofnunin 1944 var sigurtákn aldalangr
ar baráttu, merkisteinn í íslandssögu; þar verð-
ur staldrað við, ekki sízt þegar frá líður. En mönn-
unum sem stofnuðu lýðveldið var og er ríkt í huga
órofa samhengi sögunnar, sem helzt ofar slíkum
atburðum, hversu hátt sem þá ber. Þeim er íj
minni að mánuði og vikur næst fyrir lýðveldis- j
stofnun varð að berjast um það stig af s'tigi innan-
lands og líka við erlent vald hvort stofnað yrði
lýðveldi á íslandi 17. júní 1944. Þeir vita að eining-
in sem fram kom í þjóðaratkvæðagreiðslunni um
skilnað við Dani og stofnun lýðveldis var ekki
fengin átakalaust. En minnisstæðast mun þó flest-
um hvernig fögnuður og fullnægja sumardaganna
1944 blossaði upp, gleðin rík og heit í svipmóti
manna í hellirigningu á Þingvöllum 17. júní,
mannhafið á Reykjavíkurgötum í sólskini daginn
eftir, kyrrlátur fögnuður alþýðufólks við s’törf á
heimilum, í sveit og við sjó.
gn baráttan hélt áfram, lífsbarátta einstaklinga
og þjóðarinnar allrar, önn virkra daga. Sjálf-
stæðisbaráttunni var heldur ekki lokið. Dekksti
skugginn yfir fyrstu tveimur áratugum hins ís-
lenzka lýðveldis er undanlátssemi íslenzkra valda-
manna við erlent ríki, herseta Bandaríkjanna á
íslandi öll þessi ár, ásælni erlends valds, sem hef-
ur skekk't' og bjagað alla þróun íslenzkra þjóðfé-
lagsmála og orðin er hættuleg sjálfstæði íslands,
íslenzkri hugsun, íslenzkri menningu.
jslendingar eiga þó enn það frjálsræði að þeir
geta orðið gæfu sinnar smiðir, — ef fólkið þor-
ir. Á öllum öldum íslandssögunnar voru menn
uppi, sem ekki létu baslið og fámennið smækka sig.
Og sízt eru þau rök til þess nú, að íslendingar skeri
metnaði sínum svo þröngan stakk að lýðveldið
ísland eigi að vera auðmýktarþjónn erlendra ríkja.
íslendingar eiga þann metnað, að hér eigi hver
maður að geta haft meira en 'til hnífs og skeiðar
fyrir hóflegan vinnutíma, að hver íslendingur eigi
bæði tóm og þorsta til að drekka fast af lindum
vísinda og lista, en enginn maður sói ævi sinni í
skynlaust kapphlaup um fínni íbúð, fínni bíl,
fínna fánýti og prjál. Við erum enn svo fáir, ís-
lendingar, hver einstaklingur þjóðarheildinni svo
dýrmætur, að engin þjóð hefur brýnni þörf fyrir
mannrækt, að þjóðfélagið stuðli að því að hver
þegn alefli hæfileika sína og geri honum kleift
að beita þeim að þörfum viðfangsefnum og stórum.
Að sköpun þeirra þjóðfélagshátta beinis'f allt starf.,
öll viðleitni hinnar róttæku verkalýðshreyfing-
ar landsins. Það hlýtur að verða verkefni verka-
lýðssamtakanna að reisa merki heilbrigðs þjóðar-
metnaðar íslendinga og efla svo um munar þegar
á næstu árum hina nýju sjálfstæðisbaráttu, í sam-
fylkingu við þjóðhollustu öfl bænda, menntamanna
og listamanna. Hugsjón verkaiýðshreyfingarinnar
og sósíalismans um fagurt mannlíf, hin bjarta og
rismikla framtíðarsýn sem bez'tu menn hreyfing-
arinnar hafa brugðið upp, þarf að verða og getur
orðið kveikja hins djarfmannlega áræðis, sem nú
er þörf. eigi þjóðin að rata til íramtíðar sem hún
á skilið. — s. I
Operu - og ballettsýning á
listanwnnakvöldi
Listamannakvöld var í Þjóð-
Ieikhúsinu í íyrrakvöld, mánu-
dag, og þá frumflutt ný ópera
eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
sýndur listdans og leikin tvö
hljómsveitarverk eftir íslenzk
tónskáld.
Óperu sína nefnir Þorkell
..Tónsmíð í þremur atriðum”.
Gerist fyrsta atriðið í garði,
annað er hátíð á torgi og
þriðja atriðið gerðist einni viku
síðar. Einsöngshlutverk eru
fjögur, en auk þess kemur
fram kór og hijómsveit. Eygió
Viktorsdóttir fór með hlutverk
Óttu, Guðmundur Guðjónsson
var Eini, Kristinn Hallsson
Hópur og Hjálmar Kjartans-
son Borgarstjóri.
Höfundurinn, Þorkell Sigur-
björnsson, stjórnaði flutnirrgi
óperunnar, Helgi Skúlason var
leikstjóri og Magnús Pálsson
gerði leiksviðsútbúnaðinn.
Á frumsýningunni í fyrra-
kvöld vakti hin nýja ópera at-
hygli og var vel fagnað af á-
heyrendum, sem kölluðu höf-
undinn og stjórnandann, á-
samt flytjendum fram á sviðið
hvað eftir annað í sýningarlok.
Auk óperunnar var sem fyrr
segir sýndur ballett á lista-
mannakvöldi þessu. Var þetta
framlag Félags íslenzkra list-
dansara til Listhátíðarinnar og
sýndur ballettinn ,,Les Sylph-
ides” eftir Michel Fokine við
tónlist Chopins. Baliettmeist-
ari Þjóðleikhússins, Elízabeth
Hodgson annaðist sviðssetn-
ingu, en Sinfóníuhljómsveit ís-
lands lék undir stjóm Páls
P. Pálssonar. Sólódansarar
voi-u þau Ingibjörg Bjömsdótt-
ir, Jytte Moestrup og Halldór
Helgason, en auk þeirra komu
fram 16 ungar dansmeyjar.
Ballettsýning þessi þótti tak-
ast með ágætum og voru hinir
Jytte Moestrup
Ingibjörg Björnsdóttir
ungu listdansarar ákaft hyltir^
af áhorfendum.
Tónverkin sem flutt voru í
lok listamannakvöldsins af Sin-
fóníuhljómsveitinni undir
stjórn Igors Buketoffs voru
Forleikur að sjónleiknum Jóni
Arasyni eftir Karl O. Runólfs-
son og Sinfoniette seriosa eftir
Jón Nordal.
Tæknihjálp Samein-
uðu þjóðanna 12 ára
Jytte Moestrup, Halldór Helgason og Ingibjörg Björnsdóttir.
Sovétríkin framleiða
mest afjárnmálmi
Sovétríkin hafa á síðustu ár-
um farið fram úr Bandaríkj-
unum í framleiðslu jámmáims
og framleiða nú mest af hon-
um allra ríkja, en Bandaríkin
eru enn mesta stálframleiðslu-
land í heimi. Stálneyzlan er
hins vegar mest í Svíþjóð, eða
530 kg. á hvern íbúa árlega.
Þessar upplýsingar er að
finna í nýútkominni árbók
Sameinuðu þjóðanna. Árið 196?
framleiddu Sovétríkin 31 af
hundraði alls járnmálms í
heiminum, er. Bandaríkin 17 af
hundraði. Yfirlit Sameinuðu
þjóðanna leiðir í ljós, að stál-
framl. EEC-landanna minnkaði
um 0,7 frá 1961 til 1962.
Naest Svíþjóð í stálneyzlu
er Tékkóslóvakía með 513 kg.
árJega á hvern íbúa, en þar
næst koma Bandaríkin og Vest-
ur-Þýzkaiand með 488 kg. Nor-
egur er i 13. sæti með 300 kg
á íbúa. Landið sem minnst
notar af stáli árlega er Indó-
nesía með 2,5 kg. á íbúa, Þess-
ar tölur eru allar m;ðaðar við
1962.
Tæknihjálp Sameinuðu þjóð-
anna til vanþróaðra landa
(EPTA) er orðin 15 ára göm-
ul og hefur veitt yfir 100 lönd-
um aðstoð, sem er einstakt
bæði að umfangi og að því er
sncrtir fjölda þátttökuríkja.
Hún hófst með aðeins 6,5 milj-
ón dollara framlagi, en árið
1963 var kostnaðurinn við
þessa hjálparstarfsemí orðinn
48 miljónir dollara.
1 nývirtri skýrslu um starf-
semina gefur yfirstjóm tækni-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna
(TAB) stutt yfirlit yfir harta,
en bendir jafnframt á, að ýtar-
leg greinargerð um starfsemi
síðustu ára verði birt í niður-
lagi ársskýrslunnar fyrir 1963
—64. Skýrslan sem nú liggur
fyrir fjallar einkum um árið
1963.
Það var 15. ágúst 1949 sem
Efnahags- og félagsmálaráð
Sameinuðu þjóðanna ákvað að,
setja á stofn EPTA. Þá tóku
Sameinuðu þjóðirnar og fimm
sérstofnanir þeirra þátt í starf-
seminni. Nú eru tiu sérstofn-
anir þátttakendur. Fyrir fimm
árum var hjálparstarfsemin
verulega aUkin með stofnun
Framkvæmdasjóðs S.Þ. EPTA
og Framkvæmdasjóðurinn hafa
á þéssu ári tekjur sem nema
140 miljónum döllara.
TAB télur fjárhagsástæður
EPTA árið 1963 hafa verið góð-
ar, Framlög einstakra rikja
jukust úí 45,3 miljónum árið
1962 upp í 50,1 miljón árið
1963. Fjöldi rikja, sem lögðu
fram fé, jókst á sama tíma
úr 92 upp i 105. Fyrirheitin
sem gefin voru fyrir árið 1964
rættust þó ekki í jafnrikum
mæli og menn Ijöfðu gert sér
vonir um.
Árið 1963 er skilgreint sem
ár jafnvægis og éðlilégrar hró-
unar. Hjálp var veitt 122 lönd-
um og landsvæðum Fjöldi
“érfræðingar, sefn sengdu
út af örkinni, var 3.037, en
4riö áður hafði hann verið
7 894 Þar við bætast 2.036
'ér ræðinsar, sem gegngdu
störfum fyrir einstakar sér-
'tofnanir í hinu svokallaða
rpgiuiega hiáiparstarfi, Tala
r.ámsstyrkja var 2.595, en ár-
ið 1962 voru styrkirhír 3.831
talsins. Við ofannefnda tðlu
bætast svo 3.436 námsstyrkir
frá hinu reglulega hjálpar-
starfi.
Árið 1963 var framlag Dan-
merkur til EPTA 1,88 miljón-
ir dollara, Finnlands 0,13 milj-
ónir, fslands 0,04 miljónir, Nor
egs 0,98 miljónir og Svíþjóð-
ar 2 miljónfr doliara.
Frá Danmörku komu 60 sér-
fræðingar, auk 27 til hinnar
reglulegu hjálparstarsemi, frá
Finnlandi 17, auk 8, frá fslandi
4, auk 1, frá Noregi 57, auk
30 pg frá Svíþjóð 53, auk 38.
Af styrkþegum stunduðu
272 nám í Danmörku auk 127
frá hinni reglulegu hjálpar-.
starfsemi, í Finnlandi 36 auk
22, í Noregi 28 auk 30 og í
Sviþjóð 59 auk 120.
(Frá SÞ)’.
Friðarsvcitir
Friðarsveitir SÞ á Kýþur
(UNFICYP), eru nú orðnar
öflugt verkfæri til að koma
í veg fyrir ofbeldi og hindra
blóðsúthellingar. Þær hafa
líka átt þátt í að hjálpa ölluth
Kýpurbúum til að taka aftúr
upp eðlilega lífshætti í friði
og öryggi, sagði yfirmaður
sveitanna, P. S. Gyani, 28. maí
s.I. í yfirliti yfir starfsemi
þeirra fyrstu tvo mánuðina.
Hann kvað mestu vandkvæðin
felast í því, að alitof margir
aðkomumenn á Kýpur bæru
vopn Qg stofnuðu friðnum í
hættu.
(Frá SÞ).
Ellefti Landsfundur Kvenrétt-
indafélags íslands verður hald-
inn dagana 19.—-22. júní i Breið-
firðingabúð.
Aðalmál fundarins að þessu
sinni verða:
1. Fjölskyldan og þjóðfélagið.
2. Konurnar í atvinpulífinu.
3. Konurnar og stjórnmálin.