Þjóðviljinn - 17.06.1964, Síða 6
SlÐA
ÞIÖÐVILJINN
SfíSvflcudagur 17. j6ní 1964
Afgreiðslutími almannatrygginga í Rvik
Skrifstofur vorar að Laugavegi 114 eru opnar til alennrar af-
greiðslu sem hér segir:
Mánudag kl. 9—18.
Þriðjudaga til föstudaga kl. 9—17.
Laugardaga kl. 9—12, nema mánuðina júní — september er lok-
að á laugardögum.
ÚTBORGUN BÓTA 'fer fram sem hér segir:
Mánudaga kl. 9.30 — 16,
þriðjudaga til föstudaga kl. 9.30—15,
laugardaga kl. 9.30 — 12, nema mánuðina júní — september.
Útborgun bóta, sem falla til útborgunar þá laugardaga, sem lok-
að er, hefst næsta virkan dag á undan. Aðrar brey'fingar á útborg-
unartíma frá því er segir á bótaskírteinum, verða auglýstar
sérstaklega.
ÚTBORGUN FJÖLSKYLDUBÓrA til 1 og 2 barna fjölskyldna
fjndr 2. ársfjórðung ,hefst fimmtudaginn 18. júní, þar eð 20. júrií
ber upp á laugardag.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
Samvinnumenn
Samvinnumenn
verzla við sín eigin samfcök.
Vér höfum flestar algengar neyzluvörur
á boðstólum.
Kaupfélagil Ingólfur
Sandgerði.
Samvinnuverzlun tryggir yður
sannvirði vörunnar og
tryggir yður góða þjónustu
Kaupfélag Raufarhafnar
Raufarhöfn
Svíar og Bretar eru mestu
blaðalesendur í h eiminum
Svíar eru nú, ásamt Englendingum, orðnir
mestu dagblaðalesendur í heimi. Samkvæmt ný-
útkominni árbók Sameinuðu þjóðanna hefur
fjöldi dagblaðseintaka á hverja 1000 íbúa aukizt
í Svíþjóð en minnkað í Bretlandi, þannig að bæði
löndin eru nú með hlutfallstöluna 490.
Örmur lönd þar sem dagblöð
eru mjög útbreidd eru (hér
er miðað við árin 1961 og
1962) Lúxemborg 445 eintök á
hverja 1000 íbúa, ísland 422
eintök, Japan 416 eintök, Nýja
Sjáland 400, Noregur 378,
Ástralia 375, Sviss 372, Finn-
land 359, Danmörk 347 og
Bandaríkin 321 eintak á hverja
1900 íbúa.
Þykkustu blöðin koma greini-
lega út í Bandaríkjunum, því
þar eru árlega notuð 36 kg.
af dagblaðapappír á hvern í-
búa. Þar næst koma Ástralía
með 33,9 kg., Svíþjóð með 29,2
kg., Bretland 25,6, Danmörk
22,9, Finnland 21,7, Sviss 17,8,
Holland 15,5 og Noregur 14,6
kg. á hvern íbúa. Til saman-
burðar má nefna, að í Tang-
anjíka er árlega notað 0,1 kg.
af dagblaðapappír á hvern í-
búa, 0,2 kg. í Jórdaníu, Níger-
iu og Sýrlandi, og 0,3 kg. i
Indlandi.
Árið 1962 voru um 415 milj-
ónir útvarpsviðtækja í heim-
inum. f Bandaríkjunum voru
184 miljónir viðtækja, i Sov-
étríkjunum 44 miljónir (árið
1960), í Japan 18,6 miljónir. í
Vestur-Þýzkalandi 16,7 miljón-
ir og í Bretlandi 15,6 miljónir
viðtækja.
Pjöldi sjónvarpstækja árið
1962 var 129 miljónir. Af þeim
voru 60 miljón tæki i Banda-
ríkjunum, 12,6, miljónir í Jap-
an, 12,2 miljónir í Bretlandi,
8.3 miljónir í Sovétrkjunum,
7,2 miljónir í Vestur-Þýzka-
landi,, 4,3 miljónir í Kanada,
3.4 miljónir á ftaliu, 3,4 milj-
ónir í Frakklandi og 1,6 milj-
ón í Svíþjóð
Japan framleiðir ílestar kvik-
myndir leikræns eðlis af öll-
um ríkjum heims. Þar voru
gerðar 378 kvikmyndir árið
1962. Næst var Indland með
319 kvikmyndir, þá Bandarjk-
in með 254, síðan ítalia með
242 og loks Hong Kong með
232 kvikmyndir.
Flestar bækur eru gefnar út
i Sovétríkjunum, 79.140 titlar.
Þá kemur Bretland með 25.079
titla, síðan Japan með 22.010
titla og loks Bandaríkin með
21.901 bókartitil.
( Frá SÞ).
768 þúsund krónur eru nú
í minningarsjóðnum
Þjóðhátíðamefnd Reykjavík-
ur skýrðí blaffamönnum frá því
í gær, að nú væru f lýðveldis-
minnismerkissjóði borgarinnar
kr. 768.763,55. Hefur nefndin ný-
Icga gcrt það að tillögu sinni
við borgarráð að efnt verði til
samkeppni meðal íslenzkra lista-
manna um gerð minnismcrkisins.
sem gert er ráð fyrir að verði
komið upp á 25 ára lýðvcldis-
afmælinu 1969. Leg'gur nefndin
cnnfremur til að veitt verði 1.
verðlaun fyrir beztu tillögur að
minnismcrkinu að upphæð 100
búsund krónur.
Tekjxir hefur fyrrgreindur sjóð-
ur fengið á undanförnum árum
með sölu þjóðhátíðarmerkis 17.
jiinf, svo og hafa runnið til
hans aðrar tekjur sem inn hafa
komið í sambandi við þjóðhá-
tíðina í Reykjavík, leyfisgjöld
verna veitingatjalda o.fl.
Þjóðhátíðarmerkið hefur Þór
Sandholt skólastjóri teiknað að
þessu sinni. Á því er mynd af
Fjallkonunni, en áletrunin: Lýð-
veldið fsland 20 ára — 17. júní
1964. Merkið kostar 20 krónur.
f þjóðhátíðamefnd Reykjavik-
ur eiga sæti: Ólafur Jónsson,
formaður, Bragi Kristjánsson,
Böðvar Pétursson, Einar Sæ-
mundsson, Reynir Sigurðsson,
Jens Guðbjörnsson, Jóhann
Möller, Valgarð Briem og Guð-
mundur Ástráðsson.
AXMINSTER
ANNAS
EKKI