Þjóðviljinn - 17.06.1964, Side 12

Þjóðviljinn - 17.06.1964, Side 12
Norðuriandaheimsókn hafin Krústjoff kom í gær til Kaupmannahafnar Hin opinbera heimsókn Krústjoffs, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, til Norðurlanda hófst með komu hans til Kaup- mannahafnar í gaer, síðan heimsækir hann Noreg og Sví- þjóð. Fylgdarlið Krústjoffs var um 40 manns, þeirra á meðal kona hans Nina, Adsjubei ritstjóri Isvestia og Gromyko utanríkisráðherra. Mikill fjöldi fréttamanna var kominn til Kaupmannahafnar er skip Krústjoffs lagðist að Longu- línu í gær og fylgzt er með heimsókn hans til Norðurlanda af miklum áhuga um heim all- an. Forsætisráðherra Krag og Hækkerup utanríkisráðherra voni meðal þeirra sem tóku á móti Krústjoff og voru þar haldnar stuttar ræður. Hópur manna, sem setið höfðu i þýzk- um fangabúðum á styrjaldar- árunum, hafði þar uppi spjöld þar sem Krústjoff var boðinn velkominn. Síðar um daginn fór Krúst- joff að minningarlundinum um þá sem féllu í stríðinu og lagði þar krans. Þá sat hann hádeg- isverðarboð í ráðhúsi Kaup- mannahafnar og skoðaði síðan Bræðsla byrjuð á Bakkafirði BAKKAFIRÐI í gær — Fyrsta síldin kom á land hér í bi'æðslu í gærdag. Það var Helga Björg frá Höfðakaupstað er kom hing- að með 475 mál. Síðan hafa skipin verið að tínast inn allt fram að þessu og eru’ nú kom- in samtals 1269 mál í bræðslu. Allt eru þetta þó slattar. Búizt er við að bræðsla hefj- ist næsta fimmtudag. Unnið er af krafti að undir- búningi söltunar hér á staðn- um. — M. J. þinghúsið undir leiðsögn for- seta bingsins. Ríkisstjórnin hafði opinbera móttöku, en um kvöld- Fyrstu stúdentarnir frá Verzl- unarskólanum brautskráðust vorið 1945 alls 7 piltar. en kennsla í lærdómsdeild skólans hófst haustið 1943. 1 lærdómsdeild skólans í vet- ur voru samtals 51 nemandi. 25 í 6. bekk og 26 í 5. bekk. Af þeim sem luku prófi upp úr 5. bekk hlutu 9 1. einkunn, 14 II. einkunn og 1 III. einkunn. Á ársprófi 5. bekkjar varð efst Arndís Björnsdóttir sem hlaut I. einkunn, 7,31 (eftir Örsteds- skala). Af þeim 25 nemendum er stúdentspróf þreyttu hlutu 20 I. énkunn, en 5 II. einkunn. Efst- ur á stúdentsprófi varð Hjálmar Sveinsson með 7,31, annar varð Valur Kr. Guðmss. með 7,11 og þriðja Ólöf Jónsdóttir. 7,10. ið var hann og nánasta fylgd- arlið hans einkagestir Krag for- sætisráðherra í íbúð hans í út- jaðri Kaupmannahafnar. Á morgun gengur Krústjoff á fund Friðriks Danakonungs í höll hans Fredensborg, en um kvöldið situr hann kvöldverðar- boð ríkisstjórnarinnar í Cristi- anborg. Heimsókn hans til Dan- merkur stendur í fimm daga. Er skólastjóri, dr. Jón Gísla- son hafði afhent nýju stúdent- unum skírteini og sæmt þá verðlaunum er fram úr höfðu skarað ávarpaði hann þá með ræðu. Vék hann að vandamál- um líðandi stundar og hvatti stúdentana til þess að ganga á hólm við þau og flýja hvergi. Viðstaddir skólaslitaathöfnina voru nokkrir fulltrúar eldri stúdenta-árganga. Fulltrúi 15 ára stúdenta Þórður B. Sigurðs- son, afhenti skólastjóra í nafni þeirra félaga veglega gjöf, stórt safn af hljómpiötum. Fulltrúi 10 ára stúdenta, Þorsteinn Guðlaugsson, skýrði frá því að þeir félagar hefðu stofnað verðlaunasjóð stúdenta brautskráðra 1954 er hefði það hlutverk að verðlauna þann nemanda sem efstur yrði hverju sinni á stúdentsprófi. Hluti verðlaunanna skyldi jafnan verða bikar með áletruðu nafni nemandans. Slíkur bikar var nú afhentur í fyrsta sinn og hlaut hann Hjálmar Sveinsson. Svs’* finnnars vann Danmörk H. OSLÓ 16/6 (NTB) Úrslit í 1. umferð Norðurlandamótsins í bridge urðu þessi: Karlaflokkur Svíþjóð 2 vann Noreg 2 6:0 136/93. Danmörk 1 vann Noreg 2 6:0 99/62. ísland 1 vann Danmörk 2 5:1 101/90. Finnland 2 vann ísland 2 6:0 129/73. Finnland i vann Svíþjóð 1 4:2 90/86. Kvennaflokkur Svíþjóð vann ísland 6:0 105/73 Danmörk vann Finnland 6:0 211/92 Noregur sat yfir. Vinningsstig eru reiknuð þannig, að vinnist leikur með hærri púnktafjölda en 20, þá fær sigurvegarinn 6 vinnings- stig gegn engu. Fyrir að vinna leik með 11 púnktum upp í 20 fást 5 vinningsstig gegn 1, fyrir að vinna með 4 púnktum upp í 10 fást 4 vinningsstig gegn 2 og jafntefli 3 vinnings- stig gegn 3 ef ekki munar meiru en 3 púnktum. fsland 1 er skipuð eftirtöld- um spilurum: Gunnar Guð- mundsson fyrirliði, Kristinn Bergþórsson, Lárus Karlsson og. Jóhann Jónsson. Dregið eftir 19 daga 1 happdrætti Þjóðviljans 2. fl. sem dregið verður í 5. júlí eru 6 vinningar að verðmæti kr. 166,000,00. Fyrsti vinningur er Trab- ant-station bifreið. Trab- antbíllinn er 4 manna fólksbifreið, sem ryður sér mjög til rúms hér á landi. Vélin er tveggja strokka tvígengisvél 23 hestafla mjög sparneytin, eyðir í kringum 6—7 lítrum á 100 km. Húsið er í sérflokki hvað snertir styrkleika með sterkari stálbitum en flestir aðrir bílar og klæddur plasti á þeim stöðum þar sem mest er hætta á ryði svo sem hurð- ir að neðan, bretti og ann- að því um líkt, auk þess er stálgrindin klædd plasti. Hvem hlut úr yfirbygging- unni er hægt að fá útaf fyrir sig, ef óhönp vilja til. Varahlutaþjónusta er fyr- ir hendi og sérstakt verk- stæði s.em annast viðgerð- Þetta er bíllinn sem við bjóðum upp á í happdrætti okkar að þessu sinni. mjög þægileg og gangviss bif- reið. Ef heppnin er með getur þú orðið eigandi þessarar bifreiðar 5. júlí n. k. Við væntum þess að sem flestir liti inn til okkar næstu daga til að gera upp fyrir þá miða sem þeim hafa verið sendir. Tryggið útgáfu Þjóðvilj- ans. Enn eigum við eftir nokkra miða og geta menn annað hvort litið inn til okkar, hringt eða skrifað og þeir munu fá senda miða um hæl. I dag höldum við 20 ára lýðveldisafmælið hátíðlegt og höfum lokað hjá okkur á Týsgötu 3 en á morgun höfum við opið á venjuleg- um tíma frá kl. 9—12 f. h. og 1—6 e.h. Við óskum öll- um til hamingju með af- mælið. 25 stúdentar hrauP skrúðir frú VR i gær í gær var brautskráður 20. árgangur stúdenta frá Verzl- unarskólanum í Reyk’javík, 25 stúdentar, og hafa bá sam- tals brautskráðst 368 stúdentar frá skólanum, 270 pilt- ar og 98 stúlkur. Miðvikudagur 17. júní 1964 — 29. árgangur — 133. tölublað. 21STÚDENT FRÁ LAUGARVATNI Menntaskólanum á Laugar- Söngferðalag ISAFIRÐI 16/6. — Karlakór Ak- ureyrar kom hingað til Isafjarð- um kvöldið í Alþýðuhúsinu við um kvöldið í Alþýðuhúúsinu við góðar undirtektir. Söngstjóri kórsins er Áskell Jónsson. Kór- inn hafði sungið á Reykhólum á föstudagskvöldið og á laug- ardag kl. 3,30 söng hann á Þingeyri. Á sunnudaginn fór hann til Bolungarvíkur með Fagranesinu í boði bæjarstjórnar Isafjarðar og söng þar kl. 4,30. Á undan söngnum hélt hreppsnefnd Hóls- hrepps kórnum samsæti. Uf kvöldið hélt kórinn aðra söng- skemmtun á ísafirði og á eft- ir hélt Karlakór Isafjarðar hon- um samsæti. Kórinn fór til Patreksfj arðar á mánudag og söng þar í heim- leiðinni. Molakaffið kr. 14.00 Molakaffi á Hressingar- skálanum hefur nú hækk- að upp í kr. 14.00, kost- aði áður kr. 12,00. Skeði þessi hækkun í gær. Þetta er þriðja hækkun- in síðastliðið ár og kostaði molakaffið kr. 10.00 fyrir ári síðan. vatni var *litið s.l. sunnudag og útskrifaðir 20 stúdentar úr skólanum og einn utanskóla- nemandi. Skólameistari, Jóhann Hannesson, sleit skólanum með ræðu. Ur stærfræðideild útskrifuð- ust 13 nemendur og 8 úr mála- deild. Hæstu einkunn í stærð- fræðideild hlaut Bergljót Magna- dóttir frá Laugavatni — 8.69. 1 máladeild hlaut hæsta einkunn Elísabet Björk Snorradóttir frá Hveragerði — 8,19. I Menntaskólanum á Laugar- vatni voru 101 nemandi í vetur. Það sem hindrar fjölgun nem- enda i skólanum er einkum það. að heimavistarhúsnæði nemenda er lítið og of þröngt. Sjálf skólabyggingm myndi rúma fleiri nemendur, en skortur á heimavistarhúsnæði stendur frekari stækkun skólans fyrir þrifum. Ekki mun fyrirhuguð frekari stækkun þessa húsnæðis í ná- inni framtíð. 1 smíðum er nú einn kennarabústaður og bygg- ing annars í undirbúningi. Við skólann eni 6 fastakenn- arar og allmargir stundakenn- arar. Nú eru 10 ár liðin síðan fyrstu stúdentamir voru útskrifaðir frá Menntaskólanum á Lauga- vatni. Var fyrsti árgangurinn viðstaddur skólauppsögnina á sunnudaginn. Árni Bergmann hafði orð fyrir 10 ára stúdent- um og afhenti skólanum að gjöf frá þeim vandaðan stjömukíki. Keflavíkurgangan ft næstkomandi sunnudag □ Skrifstofa hernámsandstæðinga er opin í Mjóstræti 3 daglega frá kl. 10 til 12 og 13 til 19. Fjársöfnun fyrir Keflavíkurgönguna er nú í fullum gangi, en mikil útgjöld hlaðast nú á skrifstofuna vegna undirbúnings göngunnar og er nauðsynlegt, að flestir stuðningsmenn láti eitthvað af hendi rakna nú þegar. ■ ■■ ——- □ Á annað hundrað manns hefur nú látið skrá sig til göngunnar alla leið. — Hafið samband við skrifstofuna s’trax í dág. verður % Elzti fiátttakandi 76 ára Um síðustu helgi skráði fjöldi manna sig til þátt- töku í Keflavíkurgöngunni næstkomandi sunnudag, bæði ungir og gamlir. Elzti þátttakandinn — enn sem komið er — er Sigurður Guðnason fytrum for- maður Dagsbrúnar, en hann á afmæli göngudaginn, verður 76 ára gamall. Sigurður Guðnason Ekki veit ég nú hvort ég geng alla leið. sagði sá aldni heiðursmaður. en ég ætla að rölta það sem ég kemst. Þennan fyrirvara hafði Sig- urður reyndar einnig á með hinar fyrri Keflavíkurgöngur — og gekk alla leið. En síð- an hefur Sigurður yngst ef nokkuð er. Væri ekki ráð, að her- námsandstæðingar þeir sem j yngri eru, en treysta sér illa | að ganga ,,alla leið”, seti sér það mark að halda í við Sig- urð og vita hvort hann yrði þeim ekki til uppörvunar og styrks í göngunni? Jóhanna Þráinsdóttir Jóhanna sagðist ganga til að taka undir kröfur Sam- taka hemámsandstæðinga og í þeirri von, að baráttan gegn ''ernáminu verði . sigursælli en sú barátta s-sm háð er gegn íslenzku þjóðerni; til að sanna að ..Islands óham- ingju” er enn ekki orðið allt að vopni. Sólveig Hauksdóttir Sólveik Hauksdóttir er ein af 211 stúdentum sem út- skrifuðust frá Menntaskól- anum í Reykjavík í gær og lét það verða sitt fyrsta verk að loknu prófi að skrá sig í Keflavíkurgönguna. Mér þætti ég varla vera húfunnar verð, ef ég legði ekki allt sem ég get af mörkum í bar- áttunni gegn hemámi Islands og fyrir hlutleysi þess; sem jafnframt er barátta fyrir varanlegum heimsfriöi, sagði Só'lveig þegar Þjóðviljinn hringdi til hennar í gær. Ég vænti þess að ég veroi ekki oini „hvíti kollurinn” í göng- unni, bætti hún við.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.