Þjóðviljinn - 26.06.1964, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 26.06.1964, Qupperneq 1
Föstudagur 26. júní 1964 — 29. árgangur — 140. tölublað. Hrikalegasta prentvilla ó íslandi Vísir segir nú loks í gær í skömmustulegri klausu að rosafyrirsögnin á forsíðu og furðufréttin um úthlutun 1000 íbúða til Reykvíkinga hafi verið ..prentvilla” Mun það hrikalegasta prentvilla sem birzt hefur í íslenzku blaði, því ekki verður annað af fyrirsögn og greininni sjálfri ráðið en blaðið hafi trúað því að öllum þessum íbúðum hafi verið úthlutað, þar er meira að segja talað um „út- hlutun 602 íbúða í fjölbýlis- húsum”, en það hefur senni- lega átt að vera ,,lóða í fjöl- býlishúsum!” Yfirklór bætir ekki úr slík- um fréttaflutningi. Hitt er miklu viðkunnanlegra að rit- stjórnin viðurkenni mistök- in og helzt skopist að þeim — ásámt þeim mörgu sem hafa haft þessa Vísisfrétt að spotti. 10 dagar eftir Almennur skila- dagur í dag í dag höfum við almenn- an skiladag og opið til kl. 7 e.h. að Týsgötu 3. Við væntum þess að sem allra flestir geri skil { dag og einkanlega er það nauð- synlegt að þeir sem kynnu að fara í sumarleyfi um þessa helgi líti inn til okk- ar áður en þeir leggja upp. Á morgun birtum við fyrstu samkeppni deild- anna í Reykjavik og kjör- dæma úti á landi og verð- ur spennandi að sjá hver verður i efsta sæti eftir daginn í dag. Við viljum minna þá sem eru búsettir utan Reykjavíkur á að hægt er að gera skil til umboðs- manna okkar á hinum ýmsu stöðum úti á landi eða póstsenda okkur þau beint til skrifstofu Happ- drættis Þjóðviljans, Týs- götu 3. — Umboðsmenn okkar á Vesturlandi eru: Akranes: Páll Jóhannsson, Vesturgata 148. Rorgarnes: Olgeir Frið- finnsson. Stykkishólmi; Jóh. Rafns- son. Grundarfirði: Jóhann Ás- mundsson, Kverná. Olafsvjk: Elias Valgeirsson óg á ísafirði tekur Halldór Ólafsson, Pólgötu 10, á móti skilum hjá ísfirðing- um. — Herðum sóknina. — Gerið skii í dag. FYRSTA SllDIN SÖLTUB A SICLUFIRÐIICÆRKVÖID Siglufirði seint í gær- kvöld. — Um kl. 11.45 1 kvöld hófst fyrsta söltun á síld á þessu sumri. Það var söltunarstöð Vigfús- ar Friðjónss., íslenzkur fiskur h/f, sem tók síld til söltunar af Bergi VE 44, Bergur er með 1000 til 1200 tunnur, og búast má við að um 200 tunn- ur verði saltaðar. Mikil ánægja er með þetta hér á Siglufirði og hefur tjöldinn allur af bæjar- búum flykkzt á stöðina til að fylgjast með þess- ari fyrstu söltun sum- arsins. Leyfi hefur enn ekki verið veitt fyrir söltun og gerir stöðin þetta á eigin ábyrgð. Menn bíða nú spenntir að vita hvað gert verð- ur á öðrum stöðvum. Mikilli síld hefur verið landað í dag og kvöld og hefur 100.000. málið í sumar borizt hingað í kvöld. Skýrsla um Hrímfaxaslysið: Lét ekki að stjórn í hæð og var5 ekkl rétt við ■ Flugslysanefndin norska hefur nú skilað skýrslu um rannsókn sína á slysinu við Fornebu-flugvöll við Osló 14. apríl í fyrra, þegar Hrímfaxi Flugfélags íslands fórst og allir sem með honum voru, fimm manna áhöfn og sjö farþegar. B Niðurstaða nefndarinnar er sú að telja megi líkleg- ast að flugstjórinn hafi „í aðfluginu til Fornebu misst stjórn á flugvélinni í svo lítilli hæð að ekki hafi yerið hægt að rétta hana við aftur“. Nefndin tekur fram að þau SR hefiur tekið á móti um 60 gögn sem henni hafi tekizt að þusund málum og er bræðslu ný- I safna gefi ekki til kynna með lokið en hefst aftur klukkan sex , hvaða hætti þetta hafi orðið í fyrramálið. Eftirtalin skip hafa Líkur benda þó til að þar hafi Framhald á 3. síðu. annaðhvort verið um að ræða Rannsókn hafnað á iyga- frétt lögreglustjórans Valdlinar Stefánsson saksókn- ari hefur hafnað kröfu Samtaka hernámsandstæðinga um að rétt- arrannsókn verði framkvæmd á ósannindum þeim um þátttöku í Kefiavíkurgöngu sem lögreglu- stjórinn í Reykjavík og mennta- málaráðherra komu inn í útvarp- ið í krafti cmbætta sinna, Bréf saksóknara var dagsett 24. júní og barst Þorvaldi Þórarinssyni hæstaréttarlögmanni i gær. Það er svohljóðandi: ,,Eftir viðtöku bréfs yðar, herra hæstaréttarlögmaður, dag- setts 22. þ.m., þar sem þér fyr- ir hönd Jónasar Ámasonar og Ragnars Arnalds kærið yfir því, EKIÐ A BARN Um kl. 18.50 í gær var ekið á tæplega 3ja ára barn á móts við Njálsgötu 104. Var barnið flutt á slysavarðstofuna en ekki var lögreglunni kunnugt um það í gærkvöld, hvers eðlis meiðslin voru. að lögreglustjórinn í Reykjavík hafi átt hlut að meintu mishermi í útvarpsfrétt að kvöldi þess dags um hina svonefndu Kefla- víkurgöngu, skal hérmeð fram tekið. að eigi þykir af ákæru- valdsins hálfu ástæða til aðgerða í máli þessu“. Hið opinbera hefur þannig — og af skiljanlegum ástæðum — engan áhuga á því að Ieiða hið sanna í Ijós. Framkoma lögreglustjóra og menntamálaráðherra í þessu máli hefur vakið mjög almenna furðu. Áratugum saman hafa tíðkazt deilur um það hér á landi hversu margir menn hafi tekið þátt í kröfugöngum og stjórnmálafund- um. En það hefur aldrei komið fyrir áður að lögreglustjórinn í Reykjavík, einn æðsti embættis- maður réttarkerfisins, tæki þátt í slíkum deilum. og allra sízt með staðhæfingum sem eru sannanlega upplognar! Þáð hefur einnig þótt tíöindum sæta að menntamálaráðherrann skyldi beita húsbóndavaldi sínu til að neyða fréttastofuna til að birta ósanna frétt. Er þama um að ræða freklega misbeitingu þess- ara manna á embættum sínum; þeir eru að reyna að gera ósann- indin sennilegri með embættin að bakhjarli og misnota ríkisútvarp- ið í áróðursskyni. Verði slík framkoma talin heimil, getur hún haft alvarlegar afleiðingar — og saksóknarinn telur hana auðsýni- lega heimila. ísmyndun á stéli flugvélarinnar eða að skrúfurnar hafi farið i ,,flatstillingu” („gröund fine pitch”) og megi telja síðari til- gátuna heldur sennilegri en þá fyrri. 1 niðurstöðum skýrslunnar sem er tæpar 32 vélritaðar síð- ur kemur ekkert fram sem bendir til að slysið hafi stafað af vanrækslu eða tæknigöllum. Það er m.a. bent á eftirfarandi: Flugvélin hafði gilt loftfærms- skírteini. þunginn var undir því sem hann má vera mestur, þyngdarpunktur vélarinnar var innan tilskipaðra mai'ka. henni hafði verið haldið vel við og aldrei hlekkzt neitt á, áhöfnin hafði öll nauðsynleg skilríki og hafði fengið næga hvíld áður en haldið var af stað, flugmenn- irn:r voru kunnir staðháttum á Fornebu og aðflugi að braut 06, ekkert í radíóskiptum við flug- vélina á leiðinni benti til að e'tt.hvað væri ekki með felldu, ekkert að veðri sem hefði átt að hamla lendingu á Fornebu, þó gera mætti ráð fyrir nokk- urri ísingu í aðfluginu og engir tæknigallar fundust í flakinu sem hefðu getað orsakað slysið. 60 þúsund mól til Vopnafj. VOPNAFIRÐI, 25/6 — Vopna- fjarðarverksmiðjan er nú búin að bræða um fjörutíu þúsund mál og hefur tekið á móti sextíu þúsund málum. Þessi skip bíða nú losunar í höfninni: Vigri 1250 mál, Skarðsvík 1100, Keilir 450, Arnkell , 1000, Ársæll Sig- urðsson II. 800, Þorbjörn 450, Víðir SU 600. Þró losnar klukk- an 11 í kvöld og tekur hún 2500 mál. Rúm WOþús. múí til Raufarhafnar RAUFARHÖFN í gærkvöld — Veiðihorfur eru að glæðast. og eru margir bátar að kasta út af Héraðsflóa og Seyð'sfjarðardýpi. Eftirfarandi bátar hafa tilkjmnt um afla sinn til síldarleitarinn- ar nér, en flestir fara þeir vest- ur um til S’glufjarðar og á Eyjafjarðarhafnir: Guðm. Pét- urs. RE 900, Haraldur AK 900, Sigurpáll GK 800, Halldór Jóns- son SH 700, Pétur Jónsson ÞH 350, Guðbjörg ÓF 700, Fjarðar- klettur GK 700, Húni II. 600. Akurey RE 900, Faxaborg GK 750, Guðrún GK 700, Pétur Sig- urðsson 500. Eftirtalin skip bíða hér lönd- unar: Sigurvon RE 1150 mál, Oullfaxi NK 750, Þórsnes SH 600, Grundfirðingur II. SH 250, Dofri BA 350. Reykjanes GK 650, Hólmanes SH 800. Kl. 10 í morgun hafði síldar- verksmiðjan hér tekið á móti rúmlega 108 þúsund málum. Á öllum plönum er verið að und- irbúa söltun og kvenfólkið þyrp- ist hingað að sunnan, t.d. komu fimm flugvélar til Kópaskers í dag hlaðnar kvenfólki. H. R. ii-bs BORGARFIRÐI EYSTRA, 25/6 — Síldarmóttaka mun ekki hefj- ast fyrr en um miðja næstu viku. Viðgerð fer fram á bryggj- unni ennþá og standa vonir til þess að viðgerð ljúki í næstu viku. Hér er um sex hundruð mála verksmiðja og þróarrými er fyr- ir fimm þúsund mál. — G.E. Hertoglnn ní Edin- horg kemur 30. júni ■ í gær barst Þjóðviljan- um eftirfarandi fréttatil- kynning um heimsókn her- togans af Edinborg til ís- lands en hann er væntanleg- ur hingað til Reykjavíkur 30. þ.m. og dvelst hér á landi í fjóra daga í boði forseta tslands. Svo sem áður hefur verið skýrt frá mun hans konung- lega tign, hertoginn af Edinborg koma i he:msókn til íslands á snekkju konungsf jölskyldunnar ..Britania” og dvelja hér 30. júní til 3. júlí. VöruskiptajöfnuBur óhagstæður í muí Samkvæmt bráö'abirgðayf- irliti Hagstofu íslands var vörusklptajöfnúðurinn í maí óhagstæður um 64,7 milj. kr (30.9 milj. í fyrra) Inn voru fluttar vörur fvrir 390.6 mil.i kr. (408,9) en út fyrir 343.9 (378.0) ■ Frá áramótum til maíloka hefur viöruskiptajöfnuðurinn værið haastæður um 6.3 milj kr en var óhagstæður um 72.5 milj. kr. á sama tirna í fyrra Út hefur verið flutt fyrir 1717.6 milj. kr (1563,9) en inn fyrir 1711.3 milj. kr (1636 4). Hertoginn mun stíga í land á Loftsbryggju kl. 17, þriðju- daginn 30. júní, og verður ekið þaðan til Alþingishússins, þar sem hann gengur fram á sval- irnar ásamt forseta Islands. Þar býður forsetinn hann velkom- inn, en hertoginn svarar með stuttri ræðu. Lúðrasveit Reykja- víkur leikur þjóðsöngva beggja landanna við þetta tækifæri. Miðvikudaginn 1. júlí verður farið til Þingvalla og í Borgar- fiörð og dvalið þar fram eftir degi. Þennan dag kl. 19.00 mun hertoginn ásamt forseta Islands koma með flugvél til Akureyrar. Verður ekið í Lystigarðinn þar sem forseti bæjarstjórnar býð- ur hertogann velkominn til Ak- urevrar, en hann svarar. Þetta sama kvöld verður flog- ið til Mývatns, og dvalið þar daginn eftir, fimmtudaginn 2. iúlí. við fuglaskoðun. Að morgni föstudagsins 3. júlf mun hertoginn fara f heimsókn í brezka sendiráðið og hitta '^’-ezka beena á fslandi. og held- ur síðan flugleiðis heim á há- degi þann dag. > A

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.