Þjóðviljinn - 04.07.1964, Side 12

Þjóðviljinn - 04.07.1964, Side 12
Þátttakendur í verklýðsráðstehu 1 gærmorgun héldu 10 fulltrúar verklýðsfclaga víðsvegar að af landinu til Austur-Þýzkalands til þess að taka þátt í 7. verklýðsráðstefnu Eystrasa Itslandanna, Noregs og íslands. Myndin hér að ofan er tekin við brottför þeirra í gær og sjást á myndinni talið frá vinstri: Hallvarður Guðlaugs- son, Stefán Ögmundsson, Margrét Guðmundsdóttir, Jón Ásgeirsson, Vilborg Sigurðardóttir, Alfreð Guðnason, Óskar Garibaldason, Anney Jónsdóttir, Gísli Þ. Sigurðsson og Helgi Hósesasson. — (Ljósm. Þj óðv. A.K.). Saður-Víetnam deilumál í USA WASINGTON 3/7 — Repúblik- anaflokkur'nn í Bandaríkjunum hefur nú ákveðið að gera Suð- ur-Vietnam að einu helzta máli forsetakosninganna, sem fyrir dyrum standa. Þeir Everett Dirksen og Char- les Halleck. sem eru leiðtogar Repúblikana í Fulltrúadeild og öldungadeild bandaríska þings- ins, lýstu þessu yfir á blaða- mannafundi í Washington. Kváðu þeir stefnuleysi Johnsons forseta svo fyrir að þakka, að ekki yrði hjá því komizt að gera Suður-Vietnam að einu að- almáli kosninganna. Árekstur við Varmá í Ölfusi ! I Um átta leytið í gærkvöld biluðu hemlarnir í 5 manna fólksbifreið. Ford Consul með þeim afleiðingum að hann rakst aftan á veghefil á brúnni yfir Varmá í ölfusi. Bíllinn skemmd- ist töluvert, en tveir menn sem í honum voru sluppu heilir á húfi. Sænskir þjéðdansar sýndir / Arbæ í dag Árbæjarsafn hefur verið opið frá því um miðjan síðasta mán- uð og hefur verið gestkvæmt þar að vanda þrátt fyrir veðr- áttuna. sem hefur ekki verið upp á það bezta undanfarnar vikur. Af þeim sökum hefur Jónsmessuhátíðin fallið niður en bálköstur Jónsmessubálsins stend- ur fullhlaðinn á túninn og bíð- ur þess að hægt verið að tendra hann þegar einsýnt er um veð- ur, svo fólk geti skemmt sér við dans og góðar veitingar fram cftir kvöldi cinhverntíma á næstunni. . f dag á Árbæjarsafn von á góðum gestum. Sænski þjóð- dansaflokkurinn, sem hér hefur dvalizt að undanfömu á vegum Þjóðdansafélags Reykjavíkur mun koma uppeftir í boði safns- ins og mun þá nota tækifærið til að taka sporið á pallinum. Flokkurinn telur um 20 manns, alla í þjóðbúningum, og einnig verða í förinni hinir íslenzku gestgjafar þeirra úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. Gestimir munu sýna sænska þjóðdansa á sýningarpallinum kl. 3.30 og eru áhorfendur vinsam- legast beðnir að skipa sér í brekkuna fyrir ofan. Að dansin um loknum þiggja þeir kaffiveit- Framhald á 9. síðu. Reynist nýjasta samþykkt- in um sölutímann óraunhæf ■ Umræðum í borgarstjórn Reykjavíkur um afgreiðslu- tíma sölubúða í borginni lauk ekki fyrr en kl. hálf tvö í fyrrinótt. Voru þá samþykktar þær breytingar á af- greiðslutímasamþykktinni sem getið var 1 blaðinu í gær, þannig að nú getur borgarráð heimilað verzlunum, sem hafa til sölu sæmilegt úrval helztu nauðsynjavara að hafa opið til kl. 10 að kvöldi. Fylgi sínu við framangreinda tillögu lýstu þau Öskar Hall- grímsson, Birgir fsleifur Gunn- arsson, Einar Ágústsson og Grðá Pétursdóttir, en andvígir voru þeir Sigurður Magnússon og BÖðvar Pétursson. Sagði Böðvar m.a að tillagan um sölutímann væri algerlega óund- irbyggð og óraunhæf. Nauðsyn- Véltækni hJ. festir kaup á hörpunarstöð á hjólum Véltækní h.f. hefur nýlega fest kaup á mjög fullkominni og afkastamikilli hörpunarstöð, sem byggð er á undirvagni með gúmdekkjum *vo auðvelt er að flytja hana milli staða. Hörp- unarstöðin er nú staðsett í hinu velþekkta malarnámi i landi Fifuhvamm* f Kópavogi og af- kastar 40—60 rúmmetrum á klst. Félagið hefur einnig keypt geysistórt fjórhjóla uppmokst- urstæki af gerðinni Michigan, gagngert til þessarar starfsemi og verður það jafnframt notað til að draga vélasamstæðuna á milli vinnustaða. Véltækni h.f. hefur tekið að sér að vinna allt stcinefni fyrir hina nýju steypi- stöð Verk h/f, einnig hefur Reykjavíkurbær fest kaup á öllum þeim sandi, sem þörf er á í malbikunarefni á þessu ári. Auk þess selur stöðin öðrum viðskiptavinum harpaða steypu- möl og sand eftir þörfum. Með tilkomu þessarar afkasta- miklu hörpunarstöðvar, sem svo auðveldlega má flytja á milli staða, skapast möguleikar fyrir nærliggjandi byggðarlög að fá steinefni sitt fullunnið á auð- veldan hátt. hvort sem um er að ræða steypuefni til bygginga, hafnarframkvæmda eða vega, efni til malbikunar eða efni til ofanfburðar í götur og vegi. legt væri að menn gerðu sér grein fyrir hvaða möguleikar væru á breytingum í þessu efm, en jákvæðum tilgangi þjónaði það ekki að gera samþykktir til þess eins að sýnast. Það gæti heldur ekki þjónað jákvæðum tilgangi að gera samþykktir sem stofnað gætu til úlfúðar með þeim aðilum, sem framkvæmd málsins hvílir fyrst og fremst á. verzlunarfólki og eigendum verzlananna. Birgir fsl. Gunnarsson lagði áherzlu á að hér væri um bráðabirgðarákvæði að ræða, á- kvæði sem væri viss neyðarút- gangur borgarráðs til að gera tilraun til að komast út úr þeim ógöngum sem lokunartíma- málin væru komin í. Sigurður Magnússon taldi að breytingin myndi grafa undan hinni almennu matvörudreifingu í borginni og það væri ekki i þágu almennings. Gróa Pétursdóttir kvaðst greiða breytingunni atkvæði vegna þess m.a. að nauðsynlegt væri að sjómenn gætu keypt sér vinnu- vettlinga á öðrum tímum en al- mennum verzlunartíma. Breytingartillaga borgarfull- trúa Alþýðubandalagsins sein lýst var hér i blaðinu í gær var felld með 11 atkvæðum gegn 3, og aðalbreytingartillagan (um afgreiðslutímann tú 10 á kvöld- in) samþykkt með sömu at- kvæðatölum. Framhald á 9. síðu. ísröndin fyrir Vestfjörðum Fimmtudaginn 2, júlí 1964 var farið í ískönnunarflug á flugvél Landhelgisgæzlunnar TF-SIF. Lega ísrandarinnar úti fyrir Vestfjörðum og Húnaflóa var sem hér segir: Undan Kögri lá isinn í r/v 327° fjarlægð 20 sjómílur. Á Kögurgrunni beygir ísinn til NV og fjarlægist landið. Til austurs er Iega íssins r/v 067°. NNA frá Horni liggur hann í 22 sjómílna fjarlægð og beyg- ir þá til SA og er í r/v 041° frá Geirólfsnúpi i 20 sjómílna fjarlægð. Frá þessum stað ligg- ur röndin í r/v 027° og eft- ir að komið er norður á 67 breiddargráðu, þá sveigir hun til NNV. Þætti vænt um að sjá því iokið ■ Sá maður sem mestan veg og vanda hefur haft af þvi frá upphafi og fram á þennan dag að sjá Þjóð- viljanum fyrir húsnæði sem hæfir starfsemi hans, er Steinþór Guðmundsson kennari. Hann segir okkur hér í stuttu máli hvemig þessi mál hafa verið leyst og hvemig horfir nú, þegar lagt er út í lokaáfangann í endurbyggingu hússins hér að Skólavörðustíg 19. Árið 1940 var stofnað hluta- félagið Miðgarður til að kaupa hús yfir Þjóðviljann, þá keyptum við húseignina Túngötu 6 af dánarbúi Magn- úsar Einarssonar dýralœknis Húsið var dýrt og við treyst- umst ekki til að halda þvi. svo að Þjóðviljinn var aldrei til húsa þar, við leigðum það og seldum það síðan ári síð- ar. Fljótlega þar á eftir var ráðizt í að kaupa húseign- ina hér að Skólavörðustg 19. þá voru hér fbúðir og klæða- verksmiðjan Ultima á neðstu hæð. Við byrjuðum á þv) að byggja við húsið, en það var ekki fyrr en árið 1946 a ? við fengum prentvél og flu)* um þá alla starfsemi Þjóð viljans hingað. Þjóðviljini hóf göngu sína og var fyrst prentaður f Víkingsprenti en ir nokkurn tíma unnin I Prentsmiðju Jóns Helgason- ar áður en hann fluttist hing- að. Eftir því sem blaðið stækk- aði og rekstur þess varð um- fangsmeiri kom betur í ljós, að þetta húsnæði var alls ó- fullnægjandi og setti vexti og viðgangi blaðsins algerlega skorður. Þegar kom að því að ekki varð lengur dregið að fá nýja prentvél fyrir blaðið, þá varð ekki lengur umflúið að gera annað af tvennu: að kaupa nýtt hús eða endurbyggja þetta. Það varð ofaná eftir miklar vangaveltur að ráðast í þær framkvæmdir, sem staðið hafa yfir hér undanfarin ár og við förum að sjá fyrir endann á. Þessar breytingar á húsinu eru orðnar alldýrar; eft'r að nýjá pressan var keypt er kostnaður við húsið orðinn um 1 milj. kr. og þetta síð- asta átak sem eftir er mun kosta 4—500 þús. kr. Ur þvi sem komið er vantar ekki nema herzlumuninn á, að hægt sé að gera þetta hús svo úr garði að rekstur Þjóðvilj- ans verði auðveldari og kostnaðarminni. Að lokum vildi ég þakka öllum þeim sem unnið hafa að þvf með fjárframlögu.m til Þjóðviljans og öðru mót’ að þetta skuli hafa tekizt svo vel sem raun er á. Ég vildi persónulega segja: þetta er sfðasta átakið sem ég inni af hendi fyrir Þjóðviljann. og mér þætti vænt um að sjá bví lokið áður en ég hætti ?ð geta lagt því lið. Steinþór Guðmundsson 11 sjómílur A af Homi ligg- ur talsvert þétt íshrafl á um 60 fermílna svæði. Það er næst Hornbjargi í 8 sjómílum og Geirólfsnúp í 6 sjómílum. Á þessu svæði og út af að- alísspönginni A af Horni er nokkuð ískurl. Sjálfur ísjaðarinn er víðast sundurlaus, eða um 2/10 hlut- ar sjávar þaktir. ísinn þéjttist þó fljótlega eftir að innar dregur og verður nær sam- felldur. Jaðarinn er að mestu ísflög- ur og kurl. (Frá Landhelgisgæzlunni). Kastró sór og leiður HAVANA 3/7 — Fidel Kastro forsætisráðherra Kúbu, lét svo um mælt í dag, að yfirlýsing systur hans f Mexico — þegar hún kvaðst slíta öllu sambandi við þá Raoul og Fidel bræður sína vegna þess að þem væru kommúnistfskir harðstjórar — hefði verið samin af sendiráði Bandai’íkjanna í Mexico. — Fyrir mig persónulega er þetta biturt og sárt. sagðl Kast- ro. En ég skil að þetta gjald verður maður að greiða fyrir það að vera byltingarsinni, bætti hann við

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.