Þjóðviljinn - 11.07.1964, Side 8
3 SÍÐA
ÞlðÐVIUINN
Laugardagur 11. júlí 1964
hann sá dymar að stofunni opn-
ast örlítið og lítinn ljósgeisla
berast inn í svefnherbergið og
þá vissi hann að hann lá í rúm-
inu sínu í samstæðu númer 654
á gistihúsinu í Róm og hann
var ekki einn.
— Kom inn, sagði hann og dró
teppin upp að höku, vegna þess
að hann var nakinn.
Dyrnar opnuðust meira og
hann sá að það var þjónustu-
stúlkan. sú gamla, með jakkann
hans. Hún stóð þama brosandi
með langt á milli tannanna
og hélt herðatrénu með jakkan-
um á fram fyrir sig eins og sig-
urtákni: Sjá hvað ég hef veitt
í dag í rómverska frumskóginum,
amerískan jakka, flekkaðan am-
erísku blóði.
— La giacca, sagði hún og
flissaði glaðlega. — La giacca del
Signóre. E pulita.
Hún vagaði inn yfir gólfteppið
og það var svitalykt kringum
hana. Hún hengdi. jakkann inn í
skápinn og strauk hann og gældi
við hann eins og hann væri ^fW*
irlætið hennar. Jack hefði. gjam-
an viljað gefa henni peninga, en
,hann gat ómögulega farið allsber
fram úr rúminu fyrir framan
gömlu konuna. Hún yrði sjálf-
sagt sárgröm. hugsaði hann. en
hundrað lírumar hennar yrðu
að bíða betri tx'ma.
— Grazie, sagði Jack og hnipr-
aði sig saman undir teppunum.
Hann fann vel hinn daufa ilm af
ilmvatni Veronicu í rekkjuvoðun-
um. — Grazie tanti.
— Prego, prego, sagði hún
flissandi og leit rannsakandi í
kringum sig í herberginu, sá allt;
ekkert fór framhjá henni. Svo
gekk hún afturábak út. méð enga
drvkkjupeninga og andlit hennar
var ásökun til hinna ríku fyrir
svíðingsskap þeima. Hún lokaði
ekki á eftir sér og Jack heyrði
hana rölta yfir stofuna tautandi
fyrir munni sér. Hann heyrði
hana ioka dyrunum fram í gang-
inn og hapn teygði notalega úr
6ér í hlýju rúminu. hlustaði á
niðinn í miðstöðvarofnunum og
hugsaði um þennan skrýtna dag.
>að var í rauninni ails ekki svo
vitlaust að ég skyldi fá blóð-
nasir. hugsaði hann letilega, því
að annars hefði hún naumast
haft tilefni til að fara upp í
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu og
snyrtistofa STEINU og DÓDÖ
Laugavegi 18, III h. (lyfta)
SÍMI 24616.
P E R M A Garðsenda 21
SÍMI: 33968.
snyrtistofa
Hárgreiðslu- og
Dömur! Hárgreiðsla við
allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10 — Vonarstræt-
ismegin — SlMI: 14662
HARGREIÐSLUSTOFA
AUSTURBÆJAR
(María Guðmundsdóttir)
Laugavegi 13. — SÍMI: 14656
— Nuddstofa á sama =+að
herbergið með honum. Næst
þegar ég sé þrjótinn sem barði
mig, þá þakka ég honum kannski
fyrir.
Hann teygði út handlegginn og
kveikti á náttborðslampanum.
Svo leit hann á armbandsúrið.
Klukkan var sjö. Svefnleysi, það
er hægt að lækna þig! Þess sá-
ust engin merki að Veronica
hefði verið þarna. aðeins daufur
ilmurinn í rekkjuvoðunum. Hann
velti fyrir sér hvenær hún hefði
farið. Hann mundi að frönsk
kona hafði einu sinni sagt, að
það væri ruddalegt af karlmanni
að sofna, þegar hann væri búinn
að sofa hjá stúlku. Æ, þú rudda-
legi, siðlausi kani, hugsaði hann
og honum leið vel.
Hann hugsaði um konuna sína
og hvort hann fyndi til sektar-
kenndar. Hann fann til margs,
þar sem hann lá í hlýju, um-
snúnu rúminu, en hann fann
ekki til sektar. Þau átta ár sem
hann hafði verið giftur Helenu,
hafði hann engin afskipti haft af
öðrum konum. Hann hafði auð-
vitað oft hugsað um slíkt og
verið að því komion ,í nokkur
.skipti, en hann hafði alltaf dreg-
ið sig í hlé á síðustu stundu.
Ekki af siðferðilegum ástæðum
— hann hafði gengið í gegnum
of mörg hjónabönd og séð of
mikið af hjónaböndum annarra
til að geta trúað því að framhjá-
hald væri undantekning fremur
en regla á þeim tíma og þeim
stöðum, sem hann
hrærðist á. Hann hafði verið
Helenu trúr til þessa dags, vegna
þess — vegna þess að hann elsk-
aði hana? Það kom fyrir, eins
og til dæmis á flugvellinum. að
hann elskaði hana alls ekki.
Vegna þess að hann skammað-
ist sín fyrir að elska hana ekki
nóg og reyndi að vera trúr og
dyggur eiginmaður í von um
að allt færi batnandi? Vegna
þess að hann var henni þakk-
látur fyrir hlýleik hennar og feg-
urð og ást hennar á honum?
Vegna þess að hann hafði verið
giftur of oft og hafði þjáðst og
látið aðra þjást? Vegna þess að
eftir alla sorgina og eymdina
gerði hann sér nú að góðu nota-
leik og hlýju og afsalaði sér á-
stríðum? Ojæja, hugsaði hann, í
dag hafði hann snúið við blaðinu
og það var ágætt. Og þó ef nokk-
ur hætta hefði verið á að hann
yrði ástfanginn af Veronicu, sagði
hann við sjálfan sig, þá hefði
hann ekki leyft henni að koma
upp. En á þennan hátt — hann
færði sig letilega til í rúminu og
leit þangað sem höfuð Veronicu
hafði legið og þar sem tvö löng,
dökk hár lágu eftir — á þennan
hátt (Ó. blessaða slys!) yrði það
ekki neinum til tjóns og kannski
mörgum til góðs. Fjandakomið,
þetta eru þó aldrei nema tvær
vikur, hugsaði hann.
Hvað Helenu snerti (sem dans-
aði — var sagt eða skáldað eða
símað eða logið — í næturklúbb
klukkan þrjú um morguninn), þá
var hann alls ekki viss um hvað
hún hafðist að. Hún var parísar-
kona. hún var falleg og aðlað-
andi i augum karlmanna, hún
hafði átt þó nokkur ástarævin-
týri sem hann vissi uin áður en
hún giftist honum, hún var að
heiman á þvi nær hverjum degi
í óljósum erindagerðum eins og
konur finna sér til í Paris, og
hann yfirheyrði hana ekki um
það, hvernig hún verði tímanum.
Hann vissi það, að kæmi hann
til Parísar og sæi hana f fyrsta
sinn, myndi hann strax ganga að
því vísu að hún væri kona sem
ætti elskhuga. Jæja, og þó svo
væri. hugsaði hann fullur um-
burðarlyndis eftir reynslu dags-
ins, og þótt hún segi mér það
ekki og ef henni finnst hún jafn-
ósnortin og mér, þá er það bara
þeim mun betra fyrir hana.
Hann fleygði af sér teppunum
og fór fram úr rúminu og blístr-
aði lágt. Hann kveikti á loft-
ljósinu og leitaði að bréfi frá
Veronicu á skrifborðinu. Þar
var ekkert bréf. Hann var sann-
færður um að hún hefði ekki
farið án þess að skilja eftir
heimilisfang sitt og símanúmer.
og hann gekk berfættur og nak-
inn fram í stofuna að leita að
því. En þar var ekkert heldur.
Hann yppti öxlum kæruleysis-
lega. Kannski er það einmitt
svona, hugsaði hann — ástarat-
lot og síðan kveðjur, kannski er
hún skynsamari en ég hélt.
Hann fór aftur inn í svefnher-
bergið og blístraði enn. Svo átt-
aði hann sig á því hvaða lag
hann var að blístra. — Walking
My Baby Back Home. Hann
hætti að blístra og fór inn í bað-
herbérgið til að skrúfa frá vátn-
inu og fá sér bað. Þegar hann
kveikti ljósið sá hann stórt. eld-
rautt V skrifað með varalit þvert
yfir spegilinn yfir öðrum vask-
inum. Hann brosti. Nei. hugsaði
hann, þetta er ekki kveðja. Sím-
inn hringir sjálfsagt bráðum.
Glaður og ánægður skrúfaði
hann frá vatninu. 1 baðherberg-
inu var breiður spegill í líkams-
stærð og hann stóð kyrr fyrir
framan hann og horfði rannsak-
andi á sjálfan sig. Þegar hann
var ungur, hafði hann oft horft
á kropp sinn í speglinum. Hann
háfði leikið fótbolta í mennta-
skóla og framanaf í háskólanum,
þangað til hann meiddist í hnénu
og læknarnir ráölögðu honum að
hætta, ef hann vildi ekki eiga á
hættu að verða haltur alla ævi.
í þá daga hafði hann haft lík-
ama eins og fimleikamaður og
hann hafði horft í spegilinn
næstum feiminn af hreykni yfir
sterklegum herðum. flötum,
stinnum magavöðvunum, löngum
stæltum fótleggjunum. Og þeg-
ar hann fór að stunda leiklist-
ina hafði hann æft fjórum sinn-
um í viku í fimleikasal. svo að
líkami hans gæti orðið við öllum
þeim kröfum sem hlutverk kynni
að gera til hans. En eftir stríðið,
eftir sjúkrahúsvistina, þegar allir
vöðvarnir voru orðnir slakir og
mjúkir eftir langleguna og mor-
fínið og örin vom ennþá rauð
og kjálkinn svo undarlega þykk-
ur, hafði hann forðazt að horfa
á sjálfan sig til þess að verða
ekki þunglyndur yfir því. Og
síðan. þegar hann rakst af til-
viljun á spegla, hafði hann horft
á sjálfan sig með viðbjóði og
tekið eftir spikinu sem hlóðst
á hánn. Hann hafði náð sérfull-
komlega — fitufölvinn hafði
horfið og kroppurinn orðið sterk-
legur og hraustlegur — en hið
liðlega og ferska var horfið.
Unglingskroppurinn sem hafði
þotið eftir leikvelli og hoppað
hátt í loft upp. var ekki annað
en minning sem skvap tímans
hafði lagzt yfir.
En nú varð hann þess var að
hann horfði á líkama sinn með
velþóknun. Hann mundi hversu
vel hann hafði látið að stjórn
fyrr um tíaginn og leit öðrum
augum á spegilmynd sfna. Ekki
svo afleitt, hugsaði hann og
brosti með sjálfum sér að eigin
hégómaskap, einokun æskunnar
er ekki alger, — líkami á að
endast lengi og breytingarnar eru
ekki endilega til hins verra. Ef
hann léttist um tíu pund. hugs-
aði hann og horfði á sjálfan
sig gagnrýnisaugum, þá væri
þetta ekki sem verst. Það eru
að minnsta kosti hvergi neinir
keppir ennþá. og ég er ennþá
flatur þar sem máli skiptir.
Hann steig upp í fomfálegt
baðkarið og lá í bví Tengi og
bætti í það heitu vatni á nokk-
urra mínútna fresti og naut hins
hreinsandi svita sem streymdi
niður ennið. Hann lá og horfðd
á rauða V-ið á speglinum. það
var orðið döggvað af baðgufunni,
og hann velti fyrir sér hvemig
hann ætti að fá þernuna' til að
láta það vera þarna um kyrrt
í hálfan mánuð.
Seinna, þegar hann var búinn
að klæða sig, leið honum aUtof
vel til að nenna að fara í kokk-
teilveizlu Hann fór niður og bað
dyravörðinn að skila til bílstjór-
ans að hann þyrfti ekki á hon-
um að halda í kvöld. Svo fór
hann inn í barinn og pantaði
Martin, feginn því að vera einn
og hlakkaði til að eiga kvöldið
í næði. Sömu Italirnir voni þama
og kvöldið áður. en í þetta sinn
sætti Jack sig við það án allr-
ar öfundar.
Hann tæmdi glasið sitt, fór út
úr gistihúsinu og rölti hægt nið-
ur götuna, horfði í búðarglugg-
ana, frakkinn var fráhnepptur
þrátt fyrir kvöldkulið. Án þess
að átta sig á því, gekk hann
í áttina að kvikmyndahúsinu þar
sem verið var að sýna „Stolna
stund“. Þegar hann kom þangað,
stóð hann um stund fyrir utan
og horfði á litlu auglýsingamynd-
imar af sjálfum sér, en án allrar
geðshræringar, án sjálfsaumkun-
ar. Hann horfði á myndina af
Carlottu og velti fyrir sér hvar
hún væri núna og hvemig hún
liti út eftir öll þessi ár og hvem-
ig honum yrði við ef hann kæmi
af tilviljun inn í stofu þar sem
hún væri. Sem snöggvast lang-
aði hann til að fara inn og sjá
kvikmyndina einu sinni enn,
horfa á sitt gamla sjálf í skýl-
andi myrkrinu og reyna að kom-
ast að því hvað það hefði verið
í fari hans fyrir tuttugu árum
sem Veronica hefði hrifizt svo
mjög af. En hann ákvað að
sleppa því. Honum fannst hann
hafa fengizt nóg við sjálfsrýni
þennan daginn.
Hann borðaði miðdegisverð í
friði og ró á litlu. mannauðu
veitingahúsi. Hann mundi eftir
tíu pundunum og borðaði hvorki
brauð né pasta. Eftir matinn
gekk hann í áttina að Forum,
fékk sér espresso og glas af sætu
ítölsku konjaki. Forum Roman-
um, sem var innilokað bakvið
rimlagrindur fyrir nóttina, var
eyðilegt og skuggafullt í daufu
6kini nýmánans og kaldur gust-
ur varð til þess að hann hneppti
frakkanum upp í háls.
Meðan hann stóð þama, ber-
höfðaður í vetrargolunni, hafði
hann þá notalegu tilfinningu að
hann væri einn með sjálfum sér.
langt burtu frá öllu og öllum.
Hvaða kröfur sem fólk kunni að
hafa á hendur honum, hversu
mjög sem einhver þurfti á hon-
um að halda þessa stundina, þá
var hann ekki til viðtals þessa
stundina. Ég er í miðju hjarta
Evrópu. hugsaði hann, við rætur
álfunnar, aleinn. hugsaði hann,
óþekktur milli rústanna.
Hann mundi allt í einu eftir
nokkrum línum úr einni af ræð-
um Ciceros, sem haldin hafði
verið á þessum stað og hafði
endurómað milli steinanna: O
tempora o mores! Senatus haec
intellegit consul videt; his tam-
en vivit. Vivit? Immo veroetiam
in senatum venit, fit publici cons-
ili particeps, notat et designat
oculis ad caedcm unum uuemque
nostrum. Menntaskólalatína og
hesturinn sem krotaður hafði
verið f skrifborðið hans heima
þegar hann var fimmtán ára
gamall. Hvílíkir tímar. Hvílíkir
siðir! Öldungaráðið veit þetta.
konsúllinn veit það. Og þó Iifir
þessi maður. Sagði ég Iifir? Nei,
það sem vcrra er, hann kemur
inn í öhlungaráðið, hann tckur
þátt í fundum ráðsins. Hann vel-
ur hvcrn einstakan okkar og
bcndir mcð augnaráði sínu á
hvern okkar til morðs. Svo
kyrktu þeir Cicero langt frá vett-
vangi sigra hans. þegar fagnað-
arlætin voru hl.ióðnuð. Veslings
gamli maðurinn. en hvað hann
hlýtur að hafa iðrazt mælsku
sinnar þeear þeir sóttu hann.
Ég er Rómverji. hugsaði hann
og lék leik sem hann hafði geng-
ið mjög upp í sem bam, begar
hann lá á næturaar í rúmi sfnu
með lokuð augu og sagði við
siálfan sig: Ég er eskimói. snjó-
húsið mitt er heitt. selirair gelta
á ísnum eða: Ég er Nathan Hale,
Frá ÆFR
Skrifstofan er opin alla daga kl. 10—12.30 og
þriðjudaga og fösitudaga kl. 17—19.
Félagsheimili ÆFR er opið mánudags-, þriðjudags-
fimmtudags- og fðstudagskvöld kl. 20.30—23.30.
Ferðalög eru farin einu sinni í viku út í „bláinn“
á miðvikudagskvöldum.
Sími Æskulýðsfylkingarinnar er 17513.
Athugið ennfremur: Félagsgjöldin eru fallin í
gjalddaga fyrir árið 1964.
Við höfum alltaf nóg við vinnukraft að gera í ým-
isskonar störf. — Komið í Tjamargötu 20 og hafið
samband við skrifstofuna.
Áskriftarsíminn
er 17-500
Hringið í dag
DmnNini
buaih
Klapparstíg 26
Sími 19800
VÖRUR
Kartöflumús — Kokómalt — Kaffi — Kakó.
KRON - búðírnar.
FERÐIZT
MEÐ
LANDSÝN
• Seljum farseðla með flugvélum og
skipum
Greiðsluskilmálar Loftleiða:
• FLOGIÐ STRAX - FARGJALD
GREITT SÍÐAR
• Skipuleggjum hópferðir og ein-
staklingsferðir
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
FERÐASKRIFSTOFAN
imn.TA'MJia
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK.
UMBOÐ LOFTLEIÐA.
wsm
Auglýsið í ÞjóBviljanum
4
4