Þjóðviljinn - 12.07.1964, Page 12

Þjóðviljinn - 12.07.1964, Page 12
Eignumst við góðan ballettflokk? Spurt um hugsanleg samskipti við sovézka á þessu sviði Það hefur þegar komið fram í blöðum og út- varpi, að heimsókn Kíefball- ettsins gaeti haft merkilegar afleiðingar fyrir listdans á íslandi, þar eð ballettmeist- ari flokksins, Robert Kljavín fékk áhuga á því unga fólki sem stundar dansnám í skóla Þjóðleikhússins og hafði með því nokkrar kennslustuudir. Nú hefði legið beinast við að snúa sér til þjóðleikhússtjóra eftir nánari upplýsingum um þetta mál, en hann er því miður farinn af landi burt. En Eyvindur Erlendsso:n, fyrrum nemandi í leikskóla Þjóðleik- hússins og nú leiklistarnemi í Moskvu, var Kíefflokknum til aðstoðar meðan hann dvaldi hér og var milligöngu- maður milli gesta og gest- gjafa, og lét hann til leiðast að svara nokkrum spurning- um um þessi samskipti. Enda ekki um leyndarmál að ræða. J á, segir Eyvindur, það er rétt hermt að Kljav- ín hafi litizt vel á fólkið i skólanum hér. Hann sagði að þetta væri duglegur hóp- ur og í hbnum efniviður í góðan ballettflokk. En sú starfsgleði sem j hópnum ríkti hefði ekki verið beizluð, hann hefði iðkað fullmikið ýmsar æfingar en of lítið dansað, þessir unglingar gerðu tír sýningu íslenzkra listdansara á „Les SYLPHIDES“ margt rétt og vel, en það vantaði æfinlega í þau dans- inn. Hann sagði einnig að ef flokknum væri einu sinni komið vel af stað, og ef þetta unga fólk vissi vel að það vaeri þama til að skapa lista- verk en ekki til að þjálfa líkamann — þá myndi það geta mikið gert. Kljavín líkaði semsagt vel við flokkinn, og flokkurinn varð hrifinn af honum Qg hafði ánægju af æfingum með honum, og ýmsir þótt- ust finna í honum sinn gamla meistara Bidsted sem á sín- um tíma barðist fyrir því að íslenzkur ballettflokkur yrði til. Og þegar Kljavín var spurður að því hvernig hon- um litist á að hafa fleiri tíma í þessum sal, þá hafði hann ekki einungis ekkert á móti því, heldur kvaðst bein- línis gera það með gleði. Hann sá einnig nokkra nemendur sem honum leizt sérlega vel á og vildi gjarna sjá eina þrjá af þeim í fram- haldsnámi — og þá í Lenín- grad. forystu í þeim skóla sem hann legði grundvöll að. Með svo róttækum aðgerðum mætti breyta ástandinu í eitt skipti fyrir öll — fólk með beztu framhaldsmenntun og góður skóli heimafyrir gætu styrkt hvað annað, og af öllu saman gæti risið mikil alda af ungum kröftum sem einhvers mættu sín. Þá mætti búast við merkilegum sýn- ingum — þjóðleikhússtjóri lét jafnvel orð liggja að þvi að þá mætti smala saman hingað til stórra hluta ís- lenzkum dönsurum sem þeg- ar hafa getið sér gott orð erlendis. E: n*. hefur það gerzt nokkrum sinnum, að einstaklingar hafa tekið sig upp og farið í listdansnám erlendis, en þoir hafa ekki haft að neinum ílokki að hverfa hér heima, og því hafa þeir síðan orðið eftir erlend- is. Málið mundi horfa öðru- vísi við ef maður eins og Kljavín kæmi og þjálfaði hér upp flokk sem gæti orðið undirstaða ballettlífs — og meðan hann æfði flokkinn yrðu þrír þeir nemendur sem honum leizt bezt á í fram- haldsnámi og fengju þá menntun sem þarf til að hafa n nú vaknar eðlilega sú spurning hvort þetta sé framkvæmanlegt en ekki skýjaborgir einar. Væri til dæmis hægt að fá Kljavín lausan úr sinu leikhúsi, fá ferðaleyfi fyrir hann? Og síð- an voru allir spurðir: leik- hússtjórinn Gontar, sovézki sendiherrann og menningar- fulltrúi sendiráðsins og þeir luku allir upp einum munni um það, að ef íslenzkt leik- hús teldi sig þurfa á slíku að halda, þá gæti varla neitt orðið því til fyrirstöðu. Það var og álit þeirra, að það gæti vissulega orðið erf- itt að koma þrem íslenzkum nemendum að við skólann í Leníngrad sem er þröngset- inn og mikil aðsókn að. En þeir álitu að þetta myndi samt fást fram, ekki sízt ef fram kæmi, að hér væri um víðtæka áætlun að ræða. — Þótt þeir svo hlytu að taka það fram, að þeir hafi að sjálfsögðu ekki vald til að taka neinar ákvarðanir í mál- inu, sagði Eyvindur að lok- um. — Á.B. Drukkinn ökumaður Á föstudagskvöldið um níuleyt- ið varð árekstur fyrir framan Fossvogsbúðina í Kópavogi. Sá bííl, er var valdur að árekstrin- um var ekinn á brott, er lögregl- an kom á staðinn. Tókst að hafa upp á númerinu á bílnum og rakti lögreglan för hans unz hann fannst á mjög hraðri ferð. Ekki lét ökumaður sér segjast við að sjá lögregluna á hælum sér og ók nú allt hvað aftók. . Gekk nú eltingaleikur þessi um hríð, er komið var þar er heitir Silfurtún. Nam fararskjóti ökumanns þá staðar. Nú er það af lögreglunni að segja, að hún fór og skoðaði slysvaldinn í krók og kríng og komst að þeirri niðurstöðu, að hann væri ofurölvaðu.r. Hinn bíllinn skemmdist miög lítið. 50-60 á stofnfundi HÆ-félags í Kefíav. Fyrir nokkru var stofnað í Keflavík félagið Hjarta- og æða- verndarfélag Keflavíkur og ná- grennis. Á stofnfundinum mættu milli 50 og 60 manns. Snorri P. Snorrason læknir flutti á fundinum fróðlegt er- indi um myndun hjarta- og æða- sjúkdóma. Einnig skýrði hann það helzta sem hægt væri að gera í GÆRMOKGUN fór fram minn- ingarathöfn í Dómkirkjunni um Ara Jósefsson stud. philol. sem fóst í hafi aðfararnótt 18. júní sl. Séra Gunnar Benediktsson flutti minningarræðu í kirkj- unni, Björn Ólafsson lék einleik á fiðlu, Ragnar Björnsson lék á kirkjuorgelið og kór söng. til verndar sjúkdómsmyndun og svaraði að lokum fyrirspurnum fundarmanna. Stjórn félagsins sem kosin var á stofnfundinum hefur skipt með sér verkum; Formaður Kjartan Ólafsson héraðslæknir, gjald- keri Páll Jónsson, ritari Sólveig Hannesdóttir og meðstjórnend- ur Guðjón Klemenzson og Jón Tómasson. Til athugunar fyrir þá sem hug hafa á að ganga í félagið og teljast vilja stofnendur þess skal á það bent að listar liggja nú frammi á fjölmörgum stöð- um í Keflavík, Grindavík, Sand- gerði og Gait5i, ennfrenaur hjá stjórnarmeðlimum. Sunnudagur 12. júlí 1964 — 29. árgangur — 154. tölublað. [Ojgj Er bítilæskan á síld? Raufarhöfn 9/7 — Töluvert hef- ur verið um brottrekstra verka- fólks úr vinnu hér á staðnum. Er þetta eingöngu aðkomufólk, sem hefur komið hingað í at- vinnulcit. Síðustu daga hefur til dæmis síldarverksmiðjan rekið fimm menn úr vistinni og var þeim gefið að siik að stunda drykkjuskap og einn rak sprútt- sölu á staðnum. Þá hafa tvö síld- arplön rekið nokkrar aðkomu- stúlkur og þóttu þær full fjör- ugar í samkvæmislífinu og kalla menn þó ckki allt ömmu sína í þeim efnum. Þrír lögregluþjónar frá Rvík hafa hér sumarsetu og komu þeir hingað um síðustu helgi. Einn af þeim tók þátt í hátíða- höldunum við Hreðavatn um hvítasunnuna og fullyrðir að margt andlitið þaðan komi sér kunnuglega fyrir sjónir hér á staðnum. Bítilæskan hefur sem sagt farið á síld. Ekki einu sinni fyrir viðhaldi Kópaskeri, 9/7 — Lítið hefur verið unnið að vegabótum á veginum milli Kópaskers og Raufarhafnar. Hangir víst í tveim vinnudögum á sumrinu. Er þetta fjölfarin leið yf-r sumartímann og raunar allt ár- ið um kring. Vegurinn hefur blásið upp á svokölluðum Geita- sandi og vestur eftir nær Kópa- skeri. Hefur sáralitlu fjármagni verið veitt í þennan veg þetta árið. Sigurður Árnason á Þórs- höfn hefur umsjón með vega- framkvæmdum á Sléttu og tók við af Jóni Þ. Jónssyni, bónda á Ásmundarstöðum, sem sá um vegagerðinu í tuttugu ár. Verið að þjálfa upp riddaralið Húsavík, 9/7-----Nú er farin að þróast blómleg þjóðleg menning hér á Húsavik. Þeir eru þó nokkuð margir hér sem fengið hafa reiðhesta vestan af Hólabúinu sér til ánægju og yndisauka, og er þetta að verða heilt riddaralið, sem hér er að vaxa upp. Helzt eru þetta menn sem stunda atvinnu í landi, iðn- aðarmenn, kennarar og fleiri. Enn er reiðmennskan þó ekki komin í fullan gang og er verið að þjálfa upp liðið, hestamir eru flestir í tamningaskóla vest- ur í Reykjadal. Talsvert skepnu- hald er hér í kaupstaðnum og er sláttur hafinn. Aðallega er hér sauðfé auk hestanna, en aðeins einn kúabóndi er eftir í bænum. Af sjósókn er það helzt að frétta, að dauft er yfir trillu- bátaútgerð eins og undanfarin ár. en stærri bátar eru að veiða ufsa í nót og er það hið eina sem berst til Fiskiversins núna. Aðeins lítillega er byrjað að salta síld á tveim stöðvum, en við erum við öllu búnir til að taka á móti þegar síldin verður söltunarhæf. I vor var byrjað á nýrri sjúkrahúsbyggingu og miðar því verki vel áfram. Þá er verið að bora eftir heitu vatni enn einu sinni, en aldrei hefur feng- izt árangur af því, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Skæð inflú- ensa herjar á mannfólkið í ná- lægum sveitum, bæði í Keldu- hverfi og eins hér framan við. — H.J. Síldarfólkið liggur í tjöldum Vopnafirði 10/7 — Hér er mikill fjöldi aðkomufólks, líklega jafn- margt heimamönnum, sem eru um 400, og að sjálfsögðu eru mikil vandræði með húsnæði og liggur sumt af síldarfólkinu í tjöldum. Mikil síld hefur borizt hingað í sumar, miklu meira en í fyrra, nú eru komin hing- að yfir 100 þús. mál, en á sama tima í fyrra höfðu borizt aðeins 17.500 mál. Verksmiðjan liefur unnið með fullum afköstum um 5 þús. mál á sólarhring, en aðeins Iítils- háttar er byrjað að salta, þvi að sfldin er mjög misjöfn til sölt- unar enn. Fjórar söltunarstöðvar verða starfræktar hér í sumar. Hér hafa verið hálfgerð vandræði með vatn og var borað í fyrra en árangur af því varð enginn, í vor var svo byrjað að bora aftur og eru nú góðar vonir um að úr rætjst. Hafa fundizt allt að 8 sekúndul. af vatni — D.V, Fer Austur-Sléttan í eyði? SÞ taki við Brezku-Gíneu LONDON 11/7 — Tillaga um að Brezka-Gínea verði gerð að verndarsvæði Sameinuðu þjóð- anna hefur verið lögð fram á ráðstefnu Samveldislandanna, sem nú stendur yfir í London. Það er Eric Willilims forsætis- ráðherra í Trinidad og Tobako sem flytur tillöguna. Hann legg- ur til að Sameinuðu þjóðirnar tilnefni umboðsmann sem kojni í stað brezka landstjórans í ný- lendunni. Forseti Ghana Kwame Nkrumah styður tillöguna, en brezka stjómin er algjörlega andvíg henni. Williams forsætis- róðherra hefur einnig lagt til að fastákveðinn verði dagur sá, er Brezka-Gínea hljóti sjálf- stæði, en hún er nú ein eftir af brezkum nýlendum á megin- landi Suður-Ameríku. Kópaskeri 11/9 — Hver vildis- jörðin fer nú eftir aðra í eyði á Melrakkasléttu og horfir nú til landauðnar á Austur-Slétt- unni og er hvert höfuðbólið eftir annað gefið guði og hrafn- inum á vald. Um síðustu aldamót voru fjörutíu til fimmtíu manns í heimili á þessum jörðum og prís- aði sig margur sælan að ráða sig í vist á þessum heimilum, þar sem nóg var að borða. Fylgir mörg matarholan þessum jörðum. Eggjataka er mikil á hverri jörð og sela og rauðmagaveiði á vor- in með ströndum fram. Þá er silungsveiði í vötnunum og æða- vörp mikil og stór. Útbeit fyrir fé næstum árið um kring. Þessar jarðir eru hinsvegar mannfrekar og þótti til dæmis á sumum bæjum tveggja manna verk að ganga að mótekju og ganga á reka og safna eldiviði til búsins. Langar leiðir þurfti að ganga til heyja. Á Austur-Sléttu eru nú þessar jarðir komnar í eyði: Harðbak, Skinnalón og Rif og voru tví- býli á öllum þessum jörðum áð- ur. Ásmundarstaðir skrimta í bú- skap og Höfði er í eyði. Það má segja, að búskapur sé rekinn á aðeins tveimur jörðum á Austur- Sléttu. Það er í Höskuldsnosi og á Hóli og hefði það þótt ótrúleg saga í upphafi aldarinnar. Nýtt síldarplan uppi í landi Raufarhöfn, 11/7 — Nýtt síldar- plan var tilbúið til móttöku síð- astliðinn fö'studag hér í þorpinu og er það staðsett upp í landi norðan við höfnina undir svo- nefndum Klifum. Svona er farið að þrengjast plássið fyrir síldar- plönin við höfnina. Þarna er starfrækt grjótmuln- ingsstöð, og hefur nú fyrirtækið fært út kvíarnar og gert þarna líka síldarplan. Stæði er á plan- inu fyrir 16 stúlkur og er ætlun- in að aka síldinni á bílum frá höfinni. Ileitir planið Möl s.f. Aðaleigcndur eru Stefán Magnús- son og Einar Borgfjörð. Þcir eru bjartsýnir á reksturinn í sumar. T

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.