Þjóðviljinn - 17.07.1964, Qupperneq 2
StÐA
MÓÐVILIINN
Föstudagur 17. júlí 1964
MEÐ RÓS í NAFLANUM
Tízkufrömuðir úti í hinum
stóra heimi hafa látið heldur
betur aö sér kveða í baðfata-
tízku kvenna á þessu ári.
Ameríkanar og Englendingar
hafa verið einna róttaekastir
á þessu sviði. og vilja þeir
afhjúpa sem allra mest af
líkama konunnar. Á baðstöð-
um víða erlendis hefur orðið
uppi fótur og fit þegar stúlk-
ur hafa sýnt sig þar klæddar,
eða réttara sagt afklæddar
samkvæmt fyrirmælum
Ameríkana. íslenzkar stúlkur
hafa ekki enn sýnt sig á al-
mannafæri í slíkum baðföt-
um, en ef til vill kunna þær
betur að meta þær nýjungar.
sem ftalir hafa upp á að
bjóða. Stúlkurnar hér á
myndinni eru í svokölluðum
„Trikini-baðfötum" og eru
þau allra nýjasta tízka
á ftalíu. ítalir virðast stefna
í þá átt að hylja meira a£
líkamanum en verið hefur
síðan bikini baðfötin komu
til sögunnar. Þeir vilja hylja
naflann með einhvérju
skrautlegu, t.d. rós.
Syngur í ríkiséper-
unni í Stuttgurt
Sigxxrður Björnsson, óperu-1 ríkisóperuna í Stuttgart og hef-
söngvari, var meðal farþega ur þar samning í enn eitt ár.
með Gullfossi þann 16. júlí. Á liðnu starfsári óperunnar
Hann hefur undanfarin tvö ] söng Sigurður í 19 óperum.
starfsár verið við Wurthenberg1 Meðal annars söng hann hlut-
verk Cassoi í Othelio, Fentons
í Kátum konum frá Windsor og
Heinrichs í Tannhauser. Þar að
auki hefur Sigurður sungið í
Madrid, em þar söng hann
Mattheusar passíuna og í Dah-
mörku söng hann í 'jólaórator-
íunni í Árósum. Einnig hefur
hann nýlega sungið íslenzk lög
í danska útvarpið.
Mörg verkefni bíða Siífurðar
Vesturþýzkir styrkir
til runnsóknursturfá
Stofnuð Leikfélugu-
sumh. Austuriunds
Sitnnudaginn 5. júlí s.1. var
stofnað á Reyðarfirði Leikfé-
lagaSamband Austurlands.
Stofnendur sambandsins eru:
Leikfélag Seyðitf jarðar, Leik-
féiag Neskaupstaðar, ung-
mennafélagið Egill rauði, Norð-
fjarðarsveit, Leikfélag Reyðar-
fjarðar, Leikféiag Fáskrúðs-
fjarðar og Ungmennafélag
Stöðf irðinga.
Á fundi, sem haldinn var á
Reyðarfirði í maílok með for-
ráðamönnum þestara félaga og
framkvæmdastjóra Bandalags
íslenzkra leikfélaga, var ákveð-
ið að vinna að stofnun leik-
félagasambands. Unnið var að
því í júnímánuöi.
öll félög á Austurlandi, sem
hafa leikl st á stefnuskrá sinni
og eru aðildarfélög Bándalags
íslenzkra leikfélaga, hafa rétt
til aðildar að sambandinu.
Stofnfundmn sátu 16 full-
trúar, og ríkti þar mikill á-
hugi fyrir öflugu starfi hins
nýstofnaða Leikfélagasam-
bands. En eitt aðalmarkmið
þess er að efla samvinnu að-
ildarfélaganna og vinna að
sameiginlegum hagsmunamál-
um þess.
Samkvæmt lögum sambands-
ins skal stjórn þess flytjast ár-
lega milli staða. Fyrsta stjóm
sambandsins er í Norðfiröi, úr
Leikfélagi Neskaupstaðar og
ungmennafélaginu Agli rauða.
Stjórnina skipa: Birgir Stef-
ánsson, formaður, Aðalsteinn
Halldórsson og Steinþór Þórð-
arson.
Varamenn: Þorlákur Frið-
riksson og Ægir Ármannsson.
Endurskoðendur sambandsins
voru kjömir frá sömu félög-
um, en þeir eru: Stefán Þor-
leifsson og Bjöm Bjamason.
Sendiráð Sambandslýðveld-
isins Þýzkalands í Reykjavík
hefur tjáð íslenzkum stjómar-
völdum, að Alexander von
Humboldt- stofnunin muni
veita styrki til rannsóknar-
starfa við háskóla- og vísinda-
stofnanir i Þýzkalandi háskóla-
árið 1965 — 1966.
Styrkirnir eru tvennskonar:
1) A-styrkir, sem nema 800
þýzkum mörkum á mánuði um
10 mánaða skeið frá 1. október
1965 að telja.
2) B-styrkir, sem nema 1100
þýzkum mörkum á mánuð1 um
6—12 mánaðá skeið, að öðru
iöfnu frá 1. október 1965 að
télja.
Umsækjendur um hvora
tveggja styrkina skulu hafa
lokið fullnaðarprófi við há-
skóla í vísindagrein þeirri. er
þeir hyggjast leggja stund á.
Þeir skulu að öðru jöfnu vera
á aldrinum 25—35 ára. Um-
sækjendur um A-styrki skulu
hafa starfað að minnsta kosti
tvö ár við háskólakennslu eða
rannsóknarstörf. Umsækjendur
um B-styrki skulu annáð-
Frjálsíþróttamót
í Kópavogi
Ungmennafélagið Breiðablik
heldur frjálsíþróttamót dagana
18. og 19. þ.m. á íþróttasvæð-
inu við Fífuhvammsveg. Mótið
hefst báða dagana kl. 2 síðdeg-
is. — Frjálsíþróttadeild.
Að
frelsa lönd
Þegar flokksþing Repúblik-
ana í Bandaríkjunum sam-
þykkti hina ofstækisfullu
stefnuskrá sína, birti Morg-
unblaðið um hana fagnandi
forsíðufrétt undir fyrirsögn-
inni: „Undanlátssemi, en
ekki stefnufesta. hættulegust
friðnum”. Samkvæmt frásögn
blaðsins var hin lofsverða
stefnufesta í utanríkismálum
m.a. fólgið í þessum mark-
miðum:
„Repúblikanar munu róa
að þvi öllum árum að frelsa
lönd sem kommúnistar ráða
í Austur-Evrópu, Asiu og S-
Ameríku, þ.á.m. Ungverja-
land, Pólland, A-Þýzkaland,
Tékkóslóvakíu, Rúmeníu, Al-
baníu, Búlgaríu, Eistland,
Lettland, Litháen, Armeníu,
Ukraínu, Júgóslavíu. Serbíu,
Króatíu og Slóveníu, Kúbu
og Rauða Kína.”
Um Kúbu er þetta sérstak-
llga tekið fram samkvæmt
hinni aðdáunarfullu frásögn
Morgunblaðsins: ,,Við repú-
blikanar munum viðurkenna
útlagastjórn Kúbu; við mun-
um styðja tilraunir hennar
til að koma aftur á frelsi á
Kúbu; við munum styðja
kúbanska frelsishetjur og
hjálpa þeim til að halda á-
fram skæruhemaði gegn
kommúnistastjórninni.”
Til þess að framkvœma
alla þessa ..frelsun” ætlar
Repúblikanaflokkurinn að
sögn Morgunblaðsins að
,.halda sverði þjóðarinnar
brýndu, svo að það sé ávallt
tilbúið til höggs og á það
megi treysta”; einnig muni
flokkurinn „auka áhættuna
af árás, ef með þurfi, til að
svipta megi óvinaþjóðimar
hulu sigurvonarinnar”.
Herstöðvamar á lslandi
eru sem kunnugt er hluti af
því ,.sverði þjóðarinnar” sem
Repúblikanaflokkurinn talar
um, og það stendur auðsjáan-
lega ekki á ritstjórum Morg-
unblaðsins að taka brýnsl-
unni. — Austrí.
fíugsýn hJ. sími 18823
FLUGSKÓLI
Kennsla fyrir einkaflugpróf — atvinnuflugpróf.
Kennsla í NÆTURFLUGI
FFIRLANDSFLUGI
BLINDFLUGI.
Bókleg kennsla fyrir atvinnuflugpróf byrjar i nóvémber
og er dagskóli. — Bókleg námskeið fyrir einkaflugpróf,
vor og haust.
FLUGSYN h.f. sími 18823.
Síma og
skrifstofustúlka
Fyrirtæki í Reykjavík' óskar eftir síma- og
skrifstofustúlku. Vélritunarkunnátta nauð-
synleg. Tilboð, er tilgreini aldur, mennt-
un og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins
ásamt mynd, fyrir sunnudagskvöld,
merkt: SIMI.
hvort hafa kennt við háskóla
eða stundað sjálfstæð rann-
sóknarstörfum að minnsta
kosti um fimm ára skeið og rit-
að viðurkennd vísindarit.
Innritunargjöld styrkþega
greiðir Alexander von Hum-
boldt-s.tofnunin. Til greina
getur komið, að hún greiði
einnig ferðakostnað styrkþega
vegna eiginkonu og barna.
StyrkþegUm, sem ekki hafa
næga kunnáttu í þýzku, gefst
kostur á að sækja þýzkunám-
skeið áður en styrktímabilið
hefst.
Eýðublöð undir umsóknir um
styrki þessa fást í menntamála-
ráðuneytinu. stjórnarráðshús-
inu við Lækjartorg. Umsókn-
ir þurfa að vera í þríriti og
skulu hafa borizt ráðuneytinu
fyrir 1.. september.
Sigurður Björasson
á næsta starfsári. Hann mun
syngja hlutverk Fento;ns í Fál-
staff undir stjórn Ferdinands
Leithners. Öperan í Dusseldorf
hefur boðið Sigurði 30 eða 40
sýningar á komandi leikári og
í Liibeck mun hann syngja
hlutverk Almaviva í Rakaranum
frá Sevilla. Mattheusar passíuna
syngur Sigurður aftur á næsta
starfsári og þá í Munchen og
í Stuttgart syngur hann í jóla-
óratoríunni í byrjun desember,
en fer síðan til Árósa og syng-
ur þar sama hlutverk á ný.
Skrá yfír umboðsmenn
Þjóð viljans úti á iandi
,"*-7 ? '• "r. ' ‘ •••■•• . . r\: p *irJR5? I
AKRANES: Ammundur Gíslason Háholti 12. Sírtii 1467
AKUREYRI: Pálmi Ólafsson Glerárgötu 7 —. 2714
BAKKAFJÖRÐUR: Hílmar Einarsson.
BORGARNES: Olgeir Friðfinnsson
DALVÍK: Tryggvi Jónsson Karls rauða torgi 24.
EYRARBAKKI: Pétur Gíslason
GRINDAVÍK: Kjartan Kristófersson Tröð
HAFNARFJÖRÐUR: Sófus Bertelsen
Hringbraut 70. Sími 51369.
HNÍFSDALUR: Helgi Björnsson.
HÓLMAVÍK: Árni E. Jónsson, Klukkufelli.
HÖSAVÍK: Arnór Kristjánsson.
HVERAGERÐI: Verzlunin Reykjafoss h/f.
HÖFN, HORNAFIRÐI: Þorsteinn Þorsteinsson.
ÍSAFJÖRÐUR: Bókhlaðan h/f.
KEFLAVÍK: Magnea Aðalgeirsdóttir Vatnsnesvegi 34.
KÓPAVOGUR: Helga Jóhannsd. Ásbraut 19. Sími 40319
NESKAUPSTAÐUR: Skúli Þórðarson.
YTRI-NJARÐVÍK: Jóhann Guðmundsson.
ÓLAFSFJÖRÐUR: Sæmundur Ólafsson.
ÓLAFSVÍK: Gréta Jóhannsdóttir.
RAUFARHÖFN: Guðmundur Lúðvíksson.
BÚÐAREYRI, REYÐARFIRÐI: Helgi Seljan.
SANDGERÐI: Sveinn Pálsson, Suðurgötu 16.
SAUÐÁRKRÓKUR: Hulda Sigurbjörnsdóttir,
Skagfirðingabraut 37. Sími 201.
SELFOSS: Magnús Aðalbjarnarson, Kirkjuvegi 26.
SEYÐISFJÖRÐUR: Sigurður Gíslason.
SIGLUFJÖRÐUR: Kolbeinn Friðbjarnarson,
Suðurgötu 10. Sími 194. ■*
SKAGASTRÖND: Guðm. Kr. Guðnason, Ægissíðu.
STOKKSEYRI: Frímann Sigurðsson, Jaðri.
STYKKISHÓLMUR: Erl. Viggósson.
SUNNUTÚN: Sigurlaug Gísladóttir, Hoftúni við
Vífilsstaðaveg.
VESTMANNAEYJAR: Jón Gunnarsson, Helga-
fellsbraut 25. Sími 1567.
ÞORLÁKSHÖFN: Baldvin Albertsson.
ÞÓRSHÖFN: Hólmgeir Halldórsson.
Nýir áskrifendur og aðrir kaupendur geta snúið sér
beint til þessara umboðsmanna blaðsins.
I
Sími 17-500.
í