Þjóðviljinn - 17.07.1964, Page 6

Þjóðviljinn - 17.07.1964, Page 6
r 6 SlÐA MÓÐVIUÍNN Föstudagur 17. júlí 1984 Spíritistar í Danmörku — Framliðið þjóðskáld leyfir hjónaskilnað — Stalín horfinn úr heimspekinni — Fróðlegur enskur leikritahöfundur Andrei ZdanoX ¥»að eru líka til spíritistar í Danmörku. Blaðið In- formation birti nýlega við- tal við einn af forystumönn- um þeirra, Sofus Blaksted, sem áður var formaður ,,Danske spiritisters kirke- samfund“ og er nú ritstjóri tímaritsins „Spiritistisk Tid- ende“. Þar með er ferill hans ekki allur rakinn, því miðl- ar hafa tilkynnt honum sitt- hvað um lif hans á fyrri til- veruskeiðum: „Einu sinni var ég jafnvel rússneskur sendi- fulltrúi við frönsku hirðina", segir Blaksted. Frami hans á jörðu hér, er því sýnu minni nú en þá, en hann hefur sem betur fer ágæt og fín sambönd við annan heim. Þegar Blaksted hafði kynnzt núverandi konu sinni og var að velta því fyrir sér hverníg hann gaeti skilið við þá konu sem hann var þegar kvæntur — þá vildi svo til að eitt helzta þjóðskáld Dana, Adam Oehlenschláger (d. 1850) lcom honum til aðstoðar og gaf honum leyfi til skilnaðar. Skáldið sendi svoféild skila- boð til Blaksteds: „Tíminn er liðinn. Þú mátt gjama flytja að heiman. Bamið mitt, hvorugt ykkar getur þroskazt meira (í sambúð- inni) „Blaksted kveðst haía orðið mjðg glaður, því hann bjóst ekki við skilnaðarieyfi svo fljótb Blaksted var ekki vel á- nægður með útbreiðslu spíritismans í Danmörku. Hann segir það þó vera öll- um spíritistum til mikillar ánægju, hve margar þýðing- armiklar persónur hafa sleg- izt í för með þeim og sýnt áhuga fyrir öðru lífi „sem er okkur hið eina sanna líf“. Hér nefnir hann það til. að spíritistar hafi alltaf átt skoðanabræður í flestum konungsfjölskyldum, einmg nefnir hann Churchill, Mont- gomery, nokkra bandaríska forseta og utanríkisráðherra Ástralíu. En, segir hann, það er ekki í tízku núna að vera spfrit;sti. og þessvegna eig- um við aðeins nokkur þús- und áhangendur í Danmörk — þó trúa í raun og veru ein hundrað þúsund því sama og við. En þora ekki að viðurkenna það. Blaðamaðurinn spurði m.a. hvernig á því stæði, að sá ,,boðskapur“ sem að handan kemur væri svo lágkúrulegur að formi sem raun ber vitni — en hinumeginlífið hinsveg- ar að sögn spíritista, miklu margbreytilegra og auðugrr en jarðlíf. Blaksted svaraði: Þei’- æðstu þar hinumegin vilja rð allir skilji þá — en við lérna erum hver og einn á mismunandi vitsmunastigi. . . U” tgáfa uppsláttarrits um heimspeki er í Sovét- ríkjunum ekki mál sem kemur þröngum hópi sér- fræðinga við. Saga heim- spekinnar, díalektísk efnis- hyggja, og söguleg efnis- hyggja eru námsgreinar sem kenndar eru í öllum æðri skólum landsins, en fjöldi nemenda í þeim er ekki smá- legur eins og kunnugt er. Og stúdentum þykir eðlilega gott ;tð grípa til samanþjappaðra ■>g einfaidaðra útlegginga á fræðunum í próflestri. Það er því ekki undarlegt þótt ný útgáfa á ,,Fí!osofskí slov- arj“ sé gefin út í 400 þús- und eintökum. Síðasta útgáfan af þessu verki kom út árið 1954. Síð- an er mikið vatn runnið til sjávar en engu að síður eru ritstjóramir þeir sömu og þá: Rozental og Júdín. En þótt ritstjóramir séu þeir sömu, þá er bókin önnur. 1 Sov- étrikjunum ríkir nefnilega það sjónarmið, að pólitík og heimspeki séu ekki sjálfstæð svið og óháð hvert öðru, heldur þvért á móti Þvf er það, að gerist stórpólitfskar breytingar í landinu, þá er þess skammt að bíða að nokkuð fjaðrafok hefjist í sölum heimspekinnar. * Iheimspekilexíkoninu frá 1954 var Stalín gefið meira rúm en nokkrum manni öðr- um — hann hlaut þar fimmtán dálka og heilsíðu- mynd. og var þarmeð orð- inn mesti hugsuður allra STALlN — Fimmtiu dálkar horfnir. alda, að minnsta kosti að flatarmáli. í nýju útgáfunm er kaflinn hinsvegar alveg horfinn. Mao Tse-tung átti áður átta dálka, mjög vel- viljaða — í nýju útgáfunni eru hinsvegar bæði dálkam- ir og velviljinn horfnir. Þá er og hortinn Andrei, Zdanof. sem orðið hefur samnefnari alk hins leiðinlegasta í svo- ézkri menningarpólitík. Þá er og athyglisvert að fylgjast með því. hverjum hefur verið bætt við f nýju útgáfunni. Þeirra á meðal eru Kalvín og Lúther og fá þeir hálfan dálk hvor og er sagt að þeir megi allvel una við þá iýsingu sem gefin er á skoðunum þeirra. Einstein er hér orðinn heimspekingur og er talað um ham með mikilli velþóknur., en í út- gáfunni frá 1954 var það látið nægja að kalla afstæð- iskenningu hans „afturhalds- sama og óvísindalega". All- margir menn fá nú aJlt aðra dóma en áður. þeirra á með- al Bertrand Russel, sem áður var kallaður afturhalds- maður og hugmyndafræðing- ur imperíalismans. Nú er sagt blátt áfram frá framlagi hans til matematískrar rök- fræði, frá þekkingarfræðileg- um skoðunum hans, og að lokum bætt við lofsamlegri setningu um framlag hans til baráttu fyrir friði. Þeir sem enn fá hvað versta útreið eru existential- istar og látið mjög liggja að því, að afturhaldsmenn eigi töluverðan hauk í homi þar sem kenningar þeirra eru. Einna bezt sleppur þó Jean- Paul Sartre. Það myndi ekki hvað sízt stafa af því að Sartre hefur nú um nokkurra ára skeið unnið kappsamlega að því að menningarfrömuð- ir úr austri og vestri ræddu sín hugðarefni af skynsemd og fordómalaust. ★I Englendingar búa nú við allfjöiugt leikhúslíf og leikritauppskera árs hvers hjá þeim vekur athygli og umtal langt út fyrir þær blautu Bretlandseyjar. John Arden er um þessar mundir ákaflega umræddur maður. Verkum hans er svo lýst að í þeim gæti furðu- margra grasa: þar er sitthvað komið frá Brecht og Shake- speare og frá nútíma sálfræð- ingum og félagsfræðingum. Enginn skuli reyna að skil- greina þessi verk í einu orði: hafi menn kállaö þau heims- ádeiluverk, . þá þurfi þeir innan stundar að minnast þess að þau eru fullkomlega ,.raimsæ“. og ekki hafi þeir fyrr sleppt orðinu en upp synda hugtök eins og leikræn póesía. Hinn sami marg- breytileiki kemur einnig fram í afstöðunni til þess mann- lega veruleika sem lýst er: Siðaprédikunin er látin við- urkenna áhrifaleysi sitt, en samt lætur hún skína í tenn- umar; málamiðluninni er lýst sem lífsformi manneskjunn- ar, en engu að síður er *hún ekki látin í friði, svörtu og hvítu er hafnað og ýmisleg blæbrigði látin njóta sin. Síðasta leikrit Ardens er ,,The Workhouse Donkey“ segir frá i>ólitískri og mann- legri spillingu í enskri smá- borg. Mikið fjör færist I pólitíska refskák á staðnum þegar nýr lögreglustjóri er skipaður þangað og virðist við fyrstu sýn tiltölulega ó- háður flokkadráttum. Þarna berjast Verkamannaflokks- menn undir stjóm horgar- stjórans. Boocock, og hins aldna skuggabaldurs, Charlie Butterthwaite, fyrrum borg-_ arstjóra annarsvegar — og* íhaldsmanna undir forystu Sir Harold Sweetman. eig- anda næturklúbbs og brugg- húss. Lögreglan og háttvirtir kjósendur taka einnig þátt f átökum. Enginn þessara aðila getur státað sig af óflekkuðu mann- orði, og engum er lýst án nokkurrar samúðar. Aðalper- sónan er „asninn frá fá- tækrahælinu" Charlie Butter- thwaitet, og er hér gefin mjög greinargóð lýsing á upphefö hans og ósigri. Arden kallai sjálfur þetta verk „vúigari melódrama". Það er sagt á- kaflega fjörlega skrifað, fullt af hnyttnum tilsvörum og skemmtilegum söngvum. Ekki er það talið beinlínis ádeila á það þjóðfélag sem Arden lifir í, heldur yfirgripsmikil lýsing á því eins og það endurspeglast í lifi smárrar borgar. Á.B. Umræðufundir sov- ézkru og rúmenskra MOSKVU 15/7 — Krú.tjoff for- sætisráðherra og aðrir háttsettir sovézkir stjórnmálamenn fylgdn i dag rúmenskri stjómarsendi- nefnd á járnbrautarstöðina, en hún hefur setið að samningum í Moskvu siöastliðna viku. 1 sameiginlegri yfirlýsingu, sem birt var á þriðjudagskvöld segir að umræðumar í Moskvu hafi fjallað um sambúð Sovét- ríkjanna og Rúmeníu, frekari þróun samskipta kommúnista- flokka beggja landanna, og vandamál í samskiptum sósíal- istiskra landa svo og framtíðar- horfur í haráttu kommúnista og verkalýðsstéttar fyrir friði. Enn fremur er sagt að umræðumar hafi verið hinar nytsömustu og farið fram í vingjarnlegu og op- ins.káy andrúmslofti. Fréttamenn í Moskvu telja að umræðumar hafi verið harð- skeyttar. Þeir benda á að ekk- ert hafi verið um þær skrifað í blöðum í Moskvu fyrr en yfir- lýsingin var gefin út. Telja þeir að hvorugur aðili hafi breytt af- stöðu sinni svo nokkm nemi, en helzt er talið milli bera, að Rúmenar hafa ekki lýst opin- berlega stuðnmgi sínum við Sovétríkin í deöunni við Kína. Þó er talið fullvíst að umræð- umar hafi borið nokkurn árang- ur og muni framtíðarþróun efnahags- og utanríkismála leiða það í Ijós hversu viðsemj- endur hafi getað samræmt við- horf sin. o BILALEI6AN BILLINN RENT-AN-ICECAR SÍM1 18833 dondui CÉortína ^ercurtj Cötnet tíiSci-jeppar Zepky 6 ” & BILALEIGAN BILLINN HÖFÐATÚN 4 SÍM1 18833 1. TRABANT (station) bifreið 14711 2. 18 daga ferðalag 10. ágúst með flugvél og skipi, Reykjavík — London — Vín, eftir Dóná til Yalta og til baka 13134 3. 18 daga ferðalag 21. ágúst með flugvél Reykjavík — Kanp- mannahöfn — Const- anza (Mamaia) og til baka 1335 4 18 daga ferðalag 17. júli með flngvélum Reykjavík — Kaup- mannahöfn — Búda- pest — Balatonvatn og til baka 8063 5 21 dags ferðalag 5. september með flug- vélum Rvfk — Luxem- burg — Munchen — Júgóslavía og til baka 2279 6. Ferðaútbúnaður: Tjald svefnpoki, bakpoki ferðaprímus og fleira að verðmæti 15.000,00 krónur 24098 Lenín í fimmtu ferð ísbrjóturinn Lenin var fyrsta kjarnorkuknúna skipið scm ekki var gert til hernaðarþarfa. Hér cru íbúar Múrmansk að kveðja skipið áður en það Ieggur af stað í fimmtu ferð sína austur í ísbrciður Norðurhafa. Skipið verður fimm mánuði á leiðinni og tylftir skipa munu fylgja í kjölfar þess. Thorez Maurice Thorez, leiðtogi franskra kommúnista, lézt á dögunum og biöð um viða veröld hafa gefið töiuvert rúm j frásögnum af æviferli hans og mati á verkum hans. Þessi mynd er tekin fyrir tæpum tuttugu árum og sýnir Thorez í hópi franskra sjálfboða- Iiða er börðust með lýðveldisstjórninni spænsku gegn herjum Francos. J i 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.