Þjóðviljinn - 28.07.1964, Síða 3

Þjóðviljinn - 28.07.1964, Síða 3
ÞeH53«dagtHr 28. Júlí tð<54 HtMUH SíöA J Ofsalegar kynþáttaóeirðir um helgina í borginni Rochester í New York fylki Fjölmennf herliS senf á veffvang og er nú á verSi meS alvœpni á gófum borgarinnar, hundruS sœrS, einn féll NEW YORK 27/7 — Ofsalegar kynþáttaóeirðir urðu um helgina í borginni Roehester í New York fylki. Hundruð manna særðust í viðureignum blökkumanna og lögreglu, einn maður lét lífið og óttazt er um líf annars. Mörg hundruð blökku- menn voru handteknir. Fjölmennt herlið var sent á vettvang og er það nú á verði á götum borgar- innar, búið alvæpni. Útgöngubann hefur verið sett í borginni. I»etta munu hafa verið mestu kynþáttaóeirðimar sem enn hafa orðið í sumar í Bandarikjunum. Óeirðimar hófust á föstudags- kvöld þegar lögreglumenn ætl- uðu að handtaka blökkumann fyrir ölvun á almannafæri. Kyn- bræður hans réðust þá að lög- reglumönnunum og fyrr en varði logaði allt í áflogum um alla borgina. Víða var brotizt inn í verzlanir. ruplað og rænt. Eftir þetta var útgöngubann sett í borginni, en þúsundir blökkumanna höfðu það að engu aðfaramótt sunnudagsins og urðu þá aftur harðar viðureign- ir milli lögreglunnar og blökku- manna. Þá um nóttina voru 380 manns tekin höndum í einni viðureign- inni beið hvitur maður bana þegar hann féll fyrir bfl. Óttazt er um líf blökkumanns sem varð fyrir byssuskoti. Eins og í átökunum í New York í síðustu viku beitti lög- reglan skotvopnum sínum og heyrðist skothrið víða í borg- inni alla nóttina. Borgarlögregl- an fékk 1000 manna liðsauka úr fylkislögreglunni og tókst að bæla niður uppþotin þegar leið á sunnudagsmorguninn. Útgöngubannið var þó áfram 26. júlí minnzt í Santiago á Kúbu SANTIAGO 27/7 — Þúsundir kúbanskra bænda og landbúnað- arverkamanna héldu á sunnudag til borgarinnar Santiago á Kúbu til að taka þátt í hátíðahöldun- um sem haldin eru 26. júlí ár hvert til minningar um fyrstu uppreisnina gegn Batista fyrir U árum. Rúmlega 300 þúsund manns voru samankomin þegar hátíða- fundurinn hófst seint á sunnu- dagskvöld. Þar voru og sendi- nefndir frá meira en hundrað erlendum ríkjum, bæði fulltrú- ar ríkisstjórna og verkalýðs- og stúdentasamböndum. / Hátíðahöldin stóðu allan laug- ardaginn og voru heldur urn- fangsmeiri en vanalega, þvi hið árlega karnival í Santiago var haldið á sama tíma. Forsætisráðherra Kúbu Fiedel Castro lýsti því yfir í ræðu á fundinum í fyrrakvöld að óvinir byltingarinnar á Kúbu fengju enga miskunn hjá núverandi stjóm. Óvinir byltingarinnar eru rétt- lausir. öryggislausir og lánlaus- ir. sagði hann og bætti við að ekki yrði tekið á hermdarverka- mönnum og bandarískum út- sendurum með neinum silki- hönskum M. a. sem hann minntist á í raeðu sinni var viðtal sem birt- ist við hann.-í New York Times í júll Hann sagðist vera ánægð- ur með það mestan part en hann hefði verið misskilinn í einu atriði. En það væri að: við semjum ekki um það, bvort við hjálpum . byltingarhreyl'ing- um sagði hann. Hann lýsti nýlokinni ráðstefnu utanríkisráðherra sambands am- eríkuríkjn sem smánarlegum at- burði og gagnrýndi harðlega Bandaríkin og önnur Iönd, sem stóðu að samþykkt tillögunnar ura ráðstafanir gegn Kúbustjórn og var hann harðorðastur i garð stjómar Venezuela. í gildi og lögreglan var við öllu búin. Þetta er í fyrsta sinn sem verulegar kynþáttaóeirðir verða í Rochester sem hefur um 35 þúsund íbúa. SkotiS á hjúkrunarmenn Átökin aðfaramótt sunnudags- ins voru einna mest í íbúða- hverfi, þar sem bæði búa hvítir menn og þeldökkir. Starfsmenn tveggja sjúkrahúsa segja að skotið hafi verið á þá þegar þeir voru á leið til að sækja særða menn sem lágu ósjálfbjarga á götunum, en ekki er ljóst hvort lögreglumenn hafa þar verið að verki. Blökkumenn báru ekki skot- vopn heldur höfðu að vopni grjót tómar glerflöskur og hnífa. Þó mun á einum stað haf a orðið skothríð milli lögreglu og blökkumanna. Fangelsi full Mörg htmdruð manna voru tekin höndum, eins og áður seg- ir, og fylltust fangélsi borgar- innar. Var farið með marga fanga í fangelsi utan hennar. Herlið á vettvang Á sunnudagskvöld hófust ó- eirðimar á nýjan leik og ákvað Nelson Rockfeller fylkisstjóri þá að senda hersveit úr þjóðvarnar- liðinu á vettvang. Eögreglan beitti táragas- sprengjum og slökk v idælum gegn blökkumönnum sem köst- uðu grjóti í hana þegar hún kom að rannsaka kæru um inn- brot i verzlunarhús. Lögreglan notaði þyriur. til að fylgjast með óeirðunum. Ein þeirra féli til jarðar. Flugmað- 103 biðu bana í fyrrakvöMí járnbrautarslysi í Portúga/ LISSABON 27/7 — A. m. k. 103 menn biðu bana í nótt þegar járnbrautarlest fór út af spor- inu í nágrenni við bæinn Porto í Portúgal og einn vagninn troð- fullur af fólki kastaðist af ofsa- Iegu afli í múrvegg. Aðrir 130 slösuðust og eru margir þeirra mjög illa haldnir, svo að búast má við að tala þeirra sem fórust muni enn hækka. Flestir farþegamir. en meðal þeirra voru mörg böm, voru að koma úr oriofi til baðstrandar í nágrenni við Porto. Jámbraut- arlestin var á fúllum hraða þeg- ar slysið varð. Ekki er enn kunnugt um orsakir slyssins. urinn og tveir aðrir menn sem með þyrlunni voru fórust. og eldur kom upp í húsi þvi sem þyrlan féll á. Margir menn særð- ust. 800 handteknir Eftir óeirðirnar í nótt var fjöldi þeirra blökkumanna, sem handteknir höfðu verið kominn upp í um 800. Réttarhöld hófust yfir þeim í dag. Þrfr dómarar voru önnum kafnir allan daginn við yfirheyrslur. Margir blökku- mannanna em sakaðir um að hafa staðið fyrir uppþotunum, en öðrum eru gefin að sök minni afbrot. Hundruð blökku- manna, skyldmenni þeirra sem ákærðir eru söfnuöust saman fyrir framan dómhúsið, en fjöl- mennt lögreglulið, vopnað kylf- um, hélt vörð um það. Líka í Buffalo Einnig hafa borizt fréttir um að kynþáttaólgan hafi magnazt í borginni Buffalo, sem er um 90 km frá Rochester, en þó mun enn ekki hafq soðið upp úr þar enn. Buffalo, sem hefur 600 þúsund íbúa er örmur stærsta borgin í New York fylki. Mik- ill viðbúnaður er hjá lögregl- unni þar. Frá kynþáttaóeirðunum í NeW York í síðustu viku. ■ " n James Baldwin í viðtali: Kynþáttaólgan gæti leitt til borgnrastríðs og einveidis BONN 27/7 — Þeldökki banda- ríski rithöfundurinn James Baldwin segir að ástandið í kyn- þáttamálum í Bandaríkjunnm geti leitt til borgarastríðs og hemaðareinveldís. James Bald- win, sem er á ferðalagi um Evr- ópu sagði í viðtali við Vestur- þýzka blaðið „Der Spiegel“ að núverandi sprengihætt ástand í kynþáttamálum í Bandaríkjun- nm hlyti að versna áður en það gæti aftur farið að lagast. Hann sagðist óttast að tíma- mótin yrði ægilegir atburðir, fullkomin ringulreið bæði í fé- Iags- og siðferðismáhun. Ráðherrafundur Ameríkuríkjanna Refsiaðgerðir samþykktar gegn Kúbu, en árangur er vufusumur Baldwin sagði að einu völdin sem blökkumenn hefðu í Banda- ríkjunum nú á dögum væru efnahagsleg völd. Það væru neikvæð völd og þýddu það að- eins, að hægt væri að stöðva allt bandariskt efnahagslíf, ef hmar 20 miljónir blökkumanna legðu allir einfaldlega niður vinnu. Ef 'hvítir menn breyta ekki af- stöðu sinni til blökkumanna, mun vesturheimur líða undir lok, hann stendur frammi fyrir geig- vænlegri ógn, sagði hinn þel- dökki bandaríski rithöfundur. Bunduríkin fjölgu í herliði í S- Vietnum SAIGON 27/7 — Stjórn Suður- Vietnams kunngerði í Saigon i dag að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að auka stóram aðstoð- sína við hana, auka bæði fjár- veitingar og fjölga her sínum í landinu. Enn hefur ekkert verið birt um það í Washington hversu mikið sé ætlunin að auka að- stoðina við stjómina í Saigon. en samkvæmt óstaðfestum fregn- um' á að fjölga í bandaríska hernum í Suður-Vietnam um 5 til 6.000 manns. Nú eru ttm 16.000 bandarískir hermenn í Suður-Vietnam. WASHINGTON 27/7 — Eins og við hafði verið búizt samþykkti ráðherranefnd Bandalags Ameríkuríkjanna í gær á fundi sínum í Washington fyrirmæli til aðildarríkj- anna um að taka upp refsiaðgerðir gegn Kúbu, en talið er næsta vafasamt að þeim fyrirmælum verði fylgt. Það fór einnig eins og talið hafði verið að fulltrúar fjögurra ríkja, Mexíkó. Chile. Uruguay og Bolivíu erpiddu atkvæði gegn refsiaðgerði'n’ Þær voru hins vegar samþyklctar með meára en tilskildum mr.rihluta og greiddu þau 15 ríki. sem þegar hafa slit- ið stjórnmálasambandi og hætt viðskiptum við Kúbu. atkvæðl með þeim. Ályktunin sem samþykfct var skuldbindur öll aðildarríki bandalagsins tíl að s>líta stjóm- málasambandi við Kúbu og tak- marka viðskipti við hana við sölu matvæla og lyfja „af mann- úðarástæðum“. Vafasamur árangur Ráðherrafundurinn hafði stað- ið í viku og tveimur dögum lengur en ráð hafði verið fyrir gert. Ríkin fjögur sem voru and- víg refhiaðgerðumim era þau einu í bandalaginu sem hafthafa stjórnmálasamband við Kúbu fram að þessu og mestöll við- sikipti Kúbumanna við lönd róm- önsku Ameriku eru einmitt við þessi fjögur ríki. Fulltrúi Venez- úela fékk samkvæmt reglum bandalagsins ekki að taka þátt í atk væðagrei ðslunni. en tillag- an um refsiaðgerðir var frá hon- um komin. Fréttaritari Reuters í Wash- ing segir að vafasamt sé hvort þessi samþykkt beri tilætlaðan árangur. En er með öllu óvfst hvort rik- m fjögur hlíta fjnrirmælum ráð- herrafundarms enda þótt þau séu skyldug til þess samkvæmt stofnskrá bamdalagsins. Enginn .tímaÍTestur var settmr í sam- þykktínni fyrir fi-amkvæmd refsiaðgerðanna. Rúmensk sendinefnd komin til Parísar PABÍS 27/7 — Rúmensk sendi- nefnd undir forystu Gheorghe Maurer forsætisráðhcrra kom í dag til Parísar i opinbera heim- sókn. Mun hún eiga viðræður við de Gaulle forseta og ráð- herra hans. - Aðrir í nefndinni eru Birlan- deanu aðstoðarforsætisráðherra, Manescu utanríkisráðherra og Petri. aðstoðarráðherra fyrir ut- anríkisviðskipti. Louis Joxe, sem gegnir störf- um forsætisráðherra í fjarveru Pompidou, tók á móti Rúmemm- um á flugvellinum. í Paris er tekið fram að í viðræðunum verði eingöngu fjallað um mál sem varða sam- skipti Frakklands og Rúmeníu, en ekki önnur alþjóðamál. Búizt er við að einkum verði rætt wm aukin viðskipti landanna, en Rúmenar hafa að undanförnu lágt mikið kapp á að auka verzl- an söia .við vesturlönd. i i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.