Þjóðviljinn - 28.07.1964, Blaðsíða 12
Ök á tvo kyrr-
stæða jeppabíla
Um kl. 9.20 á sunnudagsmorg-
uninn ók ölvaöur ökumaður á
tvaer kyrrstaeðar jeppabifreiðir á
veginum skammt norðan Tíða-
skarðs í Kjós. Engin slys urðu
á mönnum en önnur jeppablf-
reiðin stórskemmdist.
Tildrög þessa slyss voru þau
að viftureim hafði slitnað hjá
ökumanni annars jeppans Qg
fór hann út til þess að athuga
hvað að væri. f því bili bar að
annan jeppa og staðnæmdist
hann samsíða hinum jeppanum
á veginum og tóku bílstjóramir
tal saman. Rétt á eftir kom
stór vörubifreið og skipti það
engum togum að ökumaður
hennar ók á báða jeppana og
stórskemmdi annan þeirra en
hinn slapp lítt skemmdur. —
Reyndist ökumaður vörubifreið-
arinnar mikið ölvaður og tók
lögreglan hann ; sína vörzlu er
hún kom á vettvang.
Lá örendur í
herbergi sínu
meira en viku
1 gærmorgun fannst madur á
sextugsaldri látinn í herbergi
sínu hér í bæ. Maðurinn sem
ér fráskilinn bjó einn í herbergi
og er talið að hann muni hafa
látizt fyrir meira en viku. Ekkj
var fullkunnugt um banamein
hans er blaðið hafði tal af
rannsóknarlögreglunni í gær en
talið var líklegt að hann hei ii
látizt úr hjartaslagi.
BráBkvaddur
í Þórsmörk
Á laugardaginn var Sigurður
M. Þorsteinsson formaður Flug-
björgunarsveitarinnar kallaður í
Þórsmörk með þyrilvængju til
að athuga með flutning á veik-
Oih ' manni, sem þar var. Her-
liðið á Keflavíkurflugvelli sendí
þyrilvængju þangað fyrir at-
beina Sigurðar.
Er þyrlan kom á vettvang var
maðurinn látinn. Hann hét
Haukur Hólmsteins, B götu 4,
Blesugróf. Han hafði verið á
göngu með konu sinni og feng-
ið aðkenningu af hjartaslagi.
Síðan var Haukur fluttur í skála
Ferðafélagsins i Mörkinni. En
ekki var vandinn þá leystur þvi
að ekki er talstöð né annað
slíkt tæki í Þórsmörk og eina
leiðin til að komast í síma að
fara til Stóru-Markar sem er í
allnokkurri fjarlægð. Þaðan var
svo haft samband við fyrr-
greinda aðila, en langur tími
var þá liðinn frá þvi að mað-
urinn veiktist.
Þæir salta hjá Ströndinni
Sigurður Líndal
hæstaréttarritari
í gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Hæstarétti:
Hæstiréttur hefur f dag veitt
Signrði Líndal fulltrúa yfirborg-
ardómara, embætti hæstaréttar-
ritara frá og með 1. ágúst næst
komandi.
Aðrir umsækjendur voru:
Bjami Bjamason, Eiríkur
Pálsson. Kristinn Gunnarsson
Og Sigurður Baldursson.
Tvö innbrot
í fyrrinótt
f fyrrinótt voru framin tvö
innbrot hér i Reykjavík. Ann-
»ð innbrotið var framið í rak-
irastofu að Langholtsvegi 126
Hafði þjófurinn komizt inn í
kjallara hússins og þaðan inn
i rakarastofuna með því að
brjóta gat á millivegg úr tré-
téxi. Hafði hann 400 krónur
[ peningum upp úr krafsinu.
Hitt innbrotið var framið í
Hraðfrystistöðina og var stolið
þaðan úlpu, skyrtu og peysu og
fleira smávegis.
Þriðjudagur 28. júlí 1964
argangur
167. tölublad.
Breti lézt vegna
höfuðkúpubrots
★ Þær salta hjá Ströndinni og'
voru á rúntinum á Seyðisfirði
fyrir nokkrum dögum til þess
að sýna sig og sjá aðra. Þær
eru orðnar vinkonur, — tvær
ofan af Héraði og tvær frá
Reykjavík.
★ Þær heita taiið frá vinstri:
Valgerður Karlsdóttir og Pálína
Karlsdóttir frá Gunnlaugsstöðum
í Vallarhreppi. Hildigunnur Þórs-
dóttir, Hverfisgötu 91, Reykjavík
og Helga Eyjólfsdóttir, Akur-
gerði 36, Reykjavík.
★ Það hefur verið mikið úrkast
í síldinní og erfitt að saita hana
undanfarna daga og erum við
búnar að salta um hundrað tunn-
hver.
★ Við erum allar friskar og
biðjum að heilsa heim. —
(Ljósm. Þjððv. G. M.).
Maður ferst við
veiðar í Ölfusá
Gísli Jóhannsson skrifstofu-
stjóri Síldarútvegsnefndar
drukknaði í Ölfusá s.I. föstu-
dagskvöld. Gísli heitinn var að
veiðum í ölfusá og hafði fengið
veiðileyfi frá Kaldaðarnesi Var
búizt við honum til Reykjavík-
ur á föstudagskvöldið.
Þegar veiðileyfið var fengið
hélt Gísli niður með ánni all-
nokkurn spöl niður fyrir Kald-
Drangur strandar
á Raufarhöfn
RAUFARHÖFN í GÆR — í fyrrinótt strandaði flóabát-
urinn Drangur hér í höfninni. Náðist hann út aftur rétt
fyrir miðnætti í nótt og mun skipið óskemmt.
Það slys varð í Kaldakiofs-
fjöllum vestur af Torfajökli sl.
laugardagskvöld að ungur Breti,
póstmaður frá London, Leonard
William Collison að nafni datt
á harðfenni rann síðan út á urð
og höfuðkúpubrotnaði og var
Iátinn er björgunarsveit kom á
vettvang.
Fimm Bretar voru í síðustu
viku staddir í Kaldaklofsfjöllum
í tjöldum. Foringi leiðangursins
hafði farið með hópinn í stutta
ferð á laugardaginn. Collison
var með hópnum og er komið
var þar sem er nokkuð harð-
fenni skrikaði honum fótur illi-
lega. Rann hann af hjarðbreið-
unni út í grjóturð með þeim af-
leiðingum að hann höfuðkúpu-
brotnaði.
Foringi leiðangursins gekk þá
strax til Landmannalauga. Þar
var staddur Gísli Eiríksson
fjallabílstjóri með talstöðvarbíl
og hafði samband við Gufunes-
radíó. Slysavamafélaginu barst
svo tilkynning og vísaði það
henni þegar í stað til flugstjóm-
arinnar en hún náði aftur sam-
Drangur hefur verið að flyt'ja
hingað sérverkunartunnur, syk-
ur og salt frá Siglufirði á veg-
um norskra síldarkaupenda því
að þeir eru orðnir svartsýnir á
að nokkur söltunarhæf síld
komi þangað í sumar. Skipið
náðist á flot réít fyrir mið-
nætti sl. nótt eftir að tunnurn-
ar höfðu verið fluttar úr því.
Engar skemmdir urðu á skipinu.
Þau fara að gerast nokkuð
tíð skipsströndin hér á Raufar-
höfn. Drangur strandaði á sama
stað og síldarbáturinn Jökuíl frá
Ólafsvík fyrr í sumar. Skýring-
in á þessum ströndum er e.t.v.
sú að í norðvestanátt slær reykn-
um og gufunni frá síldarverk-
smiðjunni fram á höfnina svo
að innsiglingarmerkin sjást ekki.
— H.R.
Togarínn Haribakur
tekinn í inndheigi
Kl. 3.19 á sunnudagsnóttina
kom varðskipið Óðinn að togar-
anum Harðbak frá Akureyri að
ólöglegum veiðum innan fisk-
veiðitakmarkanna suðvestur af
Kolbeinsey. Var togarinn 2,2
sjómílur innan 8 mílna mark-
anna og var að taka inn bak-
borðsvörpuna er varðskipið kom
að honum.
Togarinn fór frá Akureyri á
föstudagskvöld á veiðar og var
því lítið búinn að veiða. Skip-
stióri á togaranum í þessari
ferð var 1. stýrimaður en hann
var í koju þegar skipið var tek-
ið ,en 2. stýrimaður sem gegndi
störfum 1 stýrimanns í þetta
sinn var í brúnni. Skipstiórinn
viðurkenndi þegar mælinear
varðskipsins.
Óð:nn kom til Akureyrar nm
kl. 6 síðdegis á sunnudaginn og
hóftist réttariiöld í xnálinu um
kl. 8 um kvöldið og var þeim
haldið áfram í gær. 1
Vilja borgarafund
um síldarverk-
smiöjumalið
Raufarhöfn í gær. — Á annað
þúsund kjósenda hér í þorpinu
hafa undirritað áskorun á
hreppsnefndina um að haldinn
verði borgarafundur út af þeirri
íkvörðun hennar að reist verði
” síldarvérksmiðja hér á hafn-
”svæðinu. Sýnist mörgum að
^etta sé af ýmsum ástæðum
'’iót.færnisieg ákvörðun eins oe
rakið var í grein í Þióðviljan-
um si. fipimtudag. — H.R.
I i
Gísli Jóhannsson
aðames. Er Iíða tók á laugav-
dagsmorguninn fór kona hans
að óttast um hann og hringdi
að Kaldaðarnesi. Var þá farið
að svipast um eftir Gísla en
aðeins bíll hans kom í leitirnar
og veiðikassi.
Strax var hafizt handa um
leit og lögðu lögreglumenn og
skátar frá Selfossi af stað laust
fyrir hádegi á laugardaginn. Sú
leit bar engan árangur og var
nú leitað til hjálparsveitar skáta
í Hafnarfirði. Brugðu þeir skjótt
við og leituðu með aðstoð flug-
vélar frá klukkan átta á laug-
ardagskvöld. Einnig voru notaðir
til leitarinnar þrír bátar með
utanborðsmótur. Stóð leitin fram
yfir miðnætti en svo var aftur
byrjað að leita á sunnudag.
Kl. 6.35 á sunnudag tilkynnti
hjálparsveit skáta lögreglunni að
maðurinn væri fundinn, fannst
líkið skammt frá þeim stað er
Gísli var nð veiðum.
Tómas Jónsson lögregluþjónn
á Selfossi sagði blaðinu í gær
að Hafnarfjarðarskátamir hefðu
sýnt sérstakan dugnað og hæfni
við leitina. Leitarstjóri þeirra
var Jón Gunnarsson.
Eins og áður segir var Gís’i
heitinn skrifstofustjóri hjá Síld-
arútvegsnefnd. Hann bjó að
Kleppsvegi 46 hér í bæ. og var
tæplega 35 ára gamall, fæddur
5. ágúst 1929 hér í bæ. Hann
lætur eftir sig konu og 3 böm.
Slys í Ölfusá eru nú orðin ugg-
vænlega tíð. í fyrrasumar fórst
maður í ánni, og annar í fyrra-
haust. Virðist því full ástæða til
að hvetja menn til að sýna ætíð
fyllstu varkámi við veiðar í svo
vatnsmiklum og straumþungum
ám, sem ölfusá er.
þandi við heriiðið á Keflavíkur-
flugvelli. sem sendi þyrilvængju
með lækni á vettvang. Veður var
allvont á slysstaðnum og komst
flugvélin ekki að honum en varð
að lenda í Hvannagili. Er loks
var unnt að taka Bretann um
borð í flugvélina var hann lát-
inn og var líkið flutt til Reykja-
víkur.
Leonard William Collison var
26 ára gamall Lundúnabúi og
póstmaður að atvinnu.
Úrslita að vænta
í Kýpurdeilunni
AÞENU 27/7 — Makarjos, forseti
Kýpur kom í dag til Aþenu til
viðræðna við grísku stjómina.
Hann sagði við komuna þangað
að senn drægi til úrslita í Kýp-
urdeilunni. Það bæri að útkljá
hana á vettvangi SÞ. en Kýpur-
búar myndu alls ekki fallast á
að Atlanzhafsbandalagið skipti
' sér af henni.
Búii ni veiin 254
hvnii ú vertíiinni
Búið er nú að véiða 254 hvali
en vertíðin hófst 20. maí og er
þetta svipaður fjöldi og á sama
tíma í fyrra. Mest hefur veiðzt
af langreyð, búrhval og sand-
reyð en steypireyður og hnúfu-
bakur eru alveg friðaðir og hef-
ur svo verið í sex ár.
Að venju stunda fjórir hval-
bátar veiðamar og eru þeir frá
430 upp í 480 tonn að stærð.
Er 16 manna áhöfn á þrem bát-
anna en 15 manna á einum. Eru
áhafnimar mest skipaðar sömu
mönnum og undanfarin sumur.
I hvalstöðinni sjálfri vinna nú
yfir 70 manns.
Aðalveiðisvæðið er djúpt út
af Snæfellsnesi. Veiðitíminn er
fjórir mánuðir og verður því
haldið út fram um 20. septem-
ber. Nú er farið að skyggja á
næturnar og verður þá ekki
Rangerskoti
enn frestað
KENNEDYHÖFÐA 27/7 — Ætl-
unin hafði verið að skjóta geim-
fari af gerðinni Ranger því sjö-
unda í röðinni, til tunglsins í
dag, en hætt var við tilraunina
á síðustu stundu, þegar galli
kom í Ijós á rafbúnaði skotpalls-
ins. Allar fyrri tilraunir með
Ranger-tungl hafa mistekizt að
öllu eðn einhverju leyti.
Hörð orusta í
NorSur-Katanga
ELISABETHVILLE 27/7 — Hörð
orusta var háð í gær í nágrenni
bæjarins Baudouinville í Norð-
ur-Katanga og er því haldið
fram að stjórnarherinn hafi
unnið sigur./á uppreisnarmönn-
um og hafa fellt fjörutíu þeirra.
Uppreisnarmenn hafj haft Bau-
douinville á valdi sínu f nokkr-
ar vikur.
hægt að veiða nema á daginn
og styttist því veiðitímiim og
aflinn minnkar. Bátamir hafa
venjulega verið 2—3 sólarhringa
í hverri veiðiferð og er lítil við-
staða í landi á milli túra.
Hermdarverk enn
í Brezku Guiana
GEORGETOWN 27/7 — Enn era
framin hermdarverk í Brezku
Guiana, þar sesm landsstjóri
Breta hefur tekið öll völd í sín-
ar hendur og í rauninni sett af
löglega kjörna stjóm nýlendunn-
ar. Indversk kona og tvö börn
hennar létu lífið í gær þegar
sprengju var kastað inn í hús
þeirra. Þetta gerðist nokkrum
klukkustundum eftir að verka-
menn í sykuriðnaðinum höfðu
ákveðið að taka aftur upp vinnu
eftir fimm mánaða verkfall;
Tveir svertingjar hafa verið
handteknir fyrir sprengju árás-
ina. I annarri sprengingu rétt
fyiár dögun beið einn maður
bana, en 19 særðust Um 160
manns hafa látið lífið af völd-
um hermdamerkamanna í ný-
lendunni undanfarið
Laus hverfi
um mánaðamótin:
Skúlagata
Langahlíð
Framnesvegur
Kvisthagi
Grunnar
Talið við afgreiðsluna
ÞJÓÐVILJINN
sími 17-500.
V