Þjóðviljinn - 31.07.1964, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 31.07.1964, Qupperneq 2
2 SlÐA áskorun Áfengis- varnarnefndar Reykjavíkur Eins og undanfarin ár hefur Áfengisvarnamefnd Reykjavík- ur sent frá sér áskorun til al- mennings að gæta fyllsta hófs og stillingar um verzlunar- mannahelgina. Ávarp nefndar- innar fer hér á eftir: Ein lengsta frí- og ferða- lagahelgi sumarsins er fram- undan — verzlunarmannahelg- in — sem orðin er að mikíu leyti almennur ffídagur. Und- irbúningur hvers og eins, til að njóta þessa langa helgar- frís, hver á sinn hátt, mun að mestu fullráðinn. Þúsundum saman þyrpast menn í allar áttir, burt frá önn og erli hins rúmhelga dags. Samkvæmt árlegri reynslu, er umferð á þjóðvegum úti aldrei meiri en um þessa helgi, umferð sem fer vaxandi ár frá ári. Hundruðum saman þjóta bifreiðir, fullskipaðar ferða- fólki burt frá borgum og bæj- um, út í sveit, upp til fjalla og öræfa 1 slíkri umferð, sem reynsla áranna hefúr sýnt og sannað að er um þessa helgi, gildir eitt boðorð öðru framar, sem tákna má með einu orði, að- gæzla eða öryggi. En brot gegn því boðorði getur gætnin ein tryggt. Hafa menn hugleitt í upp- hafi ferðar — skemmtiferðar — þau ömurlegu endalok hvíldar- og frídagafarar. þeim sem vegna óaðgæzlu, veldur slysi á sjálfum sér, sínum nán- ustu, kunningjum eða sam- ferðafólk'i. Sá, sem lendir í slíku óláni, biður slíkt tjón, að sjaldan eða aldrei grær um heilt. Það er staðreynd, sem . ekki verður hrakin, að einn mesti bölvaldur í nútíma þjóðfélagi. með . sína margbrotnu og sí- auknu vélvæðingu, er áfengís- nautnin. Og tekur það böl ekki hvað sízt til umferðar- innar almennt, en þó sérstak- lega á stórum ferðahejgum. I þessu sambandi má minna á að s.l. 7 mánuði ársins hafa orðið hvorki meira né minna, en 14 banaslys af völdum um- ferðarinnar, sem m.a. stafa af ónógri aðgæzlu. Þá má minna Framhald á 9. síðu. Þifflivmum Föstudagur 31. Júlí 1964 Beykir í hers höndum Þeir á Skaganum ættu að kannast við þessar skiirutegu söltunarstúlkur, sem við náðum að festa á filmu á meðan beðið var löndunar hj’á söltunarstöðinni Mána í Neskaupstað s.I. laugardag. Þær eru flestar á því rcki, þegar maður hættir að sp yr.ja um aldur, sumar efla-ust orðnar mæður. Þær eru ótaldar síldarnar, sem orðið hafa höfðinu styttri i höndunum á þeim þessum, en Ágúst beykir virðist samt ekki kunna illa við sig á milli þeirra. Hjá stállsystrum þeirra á planinu hleruðum við: ,,Þessar frá Akranesi eru þær fljótustu, en þ ær eru lika helvíti frekar“. — Á myndinni eru Bjarney Gunnarsdótiíir, Sigrún Sigurðardóttir, J ónina Gísladóttir, Bára Pálsdóttir. Guðnin Þór- arinsdóttir, Ágúst Jóhannsson, béykir (frá Hofsósi), Ragnheiöur Magnúsdóttir og Asta Alberts- dóttir. (Lj ósm.: H. G.). * Ryki slegið í augu Það er algengt að ’ svo sé gert eða reynt að minnsta kosti og á margvíslegan hátt. Þó 'ekkí''l 'éfglnlegri' merkirrgurög fer þá eftir viðskiiptavininum sjálfum, hversu til tekst. Samt sem áður er þess dæmi hér í borg að ryki sé sleg'ð í augu viðskiptavinanna í bókstafleg- um skilningi. Væntanlegir við- skiptavinir bíða seljanda. þjón- ustu á ákveðnum stað — oftast reiðubúnir með greiðsluna i hendi. Svo kemur seljandi á fjórum hjólum og heilsar við- stöddum með því að þyrla upp rykmekki sem samstundis um- lykur viðskiptavinina. Ut úr ' mekkinum ganga þeir svo. einn og einn í einu, upp tvö þrep og inn í stóran og rúmgóðan íarkost, sem greinilega hefur ekki verið byggður af neinum vanefnum né smásálarskap. yf- irleitt er hann hreinn og þokkalegur að innan og sætin þægileg, enda vel þegin af ungum sem gömlum. Við- skiptavinimir eru yfirleitt hin- ir ánægðustu og almennt mjög Háska- legt góðæri Svo segir í íslandssögu að hérlandsmenn hafi öldum saman orðið að glíma við sult og seyru, eldgos og ísa, pestir og hverskyns óáran aðra. Nú er öldin önnur. Al- þýðublað'ð birti í fyrradag mjög áhyggjufulla forustu- grein sem nefnist ,,Góðæri”. Segir þar að nú sé .,óhjá- kvæmilegt að minna á. að ýmsar hættur geta verið samfara góðæri. Reynsla Is- lendinga er sú, að átök inn- anlands og taumlaus verð- bólga. sem leitt hafa til upp- lausnar í stjórnarfari, hafa helzt herjað á þjóðina í góð- æri. Muna menn ekki eftir 1955 eða 1958 eða 1963? öll þessi ár var góðæri. er ýtti undir verðbólgu, sem aftur kom af stað nýjum kröfum og de'lum meðaí landsmanna. en deilumar ýttu enn undir verðbólguna og ríkisstjórn r riðuðu til falls eða féllu.’’ Ekki skýrir blaðið nánar þá hagspeki sína að góðæri þurf: að ýta undir verðbólgu, að allt þurfi að hækka í verði þegar meira er til skiptanna milli þegna þjóðfélagsins! Hitt er ljóst að blaðið óttast að ríkisstjómin muni deyja úr offeiti, þar sem ófeiti var forðum ein 'nelzta dánarorsök hér á landi. Trúlega liggur stjórnmálaritstjórinn á bæn og mælist til þess að síldin eigi ekki afturkvæmt á þessu sumri og rigningum sloti ekki hér sunnan Jands. ef það mætti verða til bjargar rík- isstjórninni og Alþýðuflokkn- um. Þeir afskiptu Þá hefur ríkisstjóminni loks tekizt að gleðja landslýð- inn. ,,Flestir voru ánægðir með skattana sína”, segir Vís- ir í aðalfyrirsögn á forsíðu í fyrradag og ber nokkuð ríkulegri umbun í sjálfu sér en að gera náunga sína á- nægða? Til frekari sanninda- merkja kveðst blaðið hafa hitt ..verkfræðing með bros á vör”. „Þetta var ekkert — aðeins 18 þúsund krónur í allt”. segir hann, en að vísu hafði hann farið í verkfall verulegan hluta árs í fyrra. Einnig hefur Vísir hitt lög- reglumann „og hann sagði okkur að hann væri ánægður. Hann hafði nær 38 þúsund krónur í skatta og skyldur”. Ekki lætur Vísir þess getið hverjar tekjur lögregluþjóna eru, en væntanlega borgar hinn ánægði maður ekki meira en þriðjunginn af því kaupi. En trúlega eru samt ein- hverjir sorgmæddir. Þannig hlýtur því til dæmis að vera háttað um ráðamenn ýmissa kunnustu fyrirtækja landsins sem nú komast ekki einu sinni á skrá yfir hæstu gjald- endur. Af þeirri skrá eru horfin félög eins og SÍS, Shell, Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, O. Johnsón & Kaaber, Sameinaðir verktak- ar, Sláturfélag Suðurlands. Júpíter hf., Hai*pa hf., Is- björninn h.f., Hið íslenzka steinolíuhlutafélag, Garðar Gíslason hf., ölgerðin Egill Skallagrímsson, Flugfélag ls- lands hf., Marz hf.. Eim- skipafélag Reykjavíkur hf„ Litir og Lökk, J. Þorláksson & Norðmann, Sænska frysti- húsið og H. Benediktsson hf. Sum þessi félög greiða nú ekki öllu meira en einn ánægður lögregluþjónn, og hljóta eigendur þeirra að vera mjög miður sín yfir því að vera svo afskiptir og lítils metnir í þjóðfélaginu. — A’..„tri. prúðir. — sérstaklega þeir sem komnir eru af barnaskólaaldri. Þeir eru einnig flestir óbeinir hluthafar í fyrirtækinu, sem að flestra dómi er ágætlega rekið. Stöðugt er verið að byggja nýja kosti. svo hægt sé að taka þá eldri úr notkun sem fyrst, því að hugvitsmönnum tekst enda- laust að finna upp á einhverju nýju sem tekur hinu eldra fram að þægindum og allri gerð. Allt fyrir viðskiptavin- ina, erida eru þe:r fyrirtækinu allt. Þessi einföldu sannindi eru alls ekki augljós öllum for- ráðamönnum einkasölufyrir- tækja, þótt þeir séu bráðgáf- aðir sumir hverjir. Ekki er það þó alltaf, sem viðskiptavinum er heilsað með rykmekki. Það er þegar rign- ning kemur óhjákvæmilega í veg fyrií: það. Þá er það alls ekki framkvæmanlegt. 1 mesta lagi er þá dropum himinsins þeytt eilítið upp í loft aftur, skáhallt bó, en þeir falla skjótt og flestir, eri ekki alltaf nærri allir. niður á jörð aftur. Mörgum hógværum við- skiptavinum fyrirtækisins finnst þetta hvort tveggja bó óþarfa atlæti og rétt væri, að hróflað væri lítillega við fóst- urjörðinni á ýmsum biðstöð- um að beztu hugvitsmanna yf- irsýn. svo að viðskiptin, sem hvort eð er eiga sér stað dag- lega og oft á dag, geti hafizt án allrar viðhafnar. Það er ekki í fyrsta sinn, sem þessu er skotið að Strætisvögnum Rvík- ur. — (Úr Neytendabl.). Brauzt inn í tvær búðir en stal engu 1 fyri'inótt var framið inn- brot í Sunnubúðinni, Lauga- teigi 24, en engu var stolið þar. Einnig var farið inn í mjólk- urbúð sem er í sama húsi en ekkert tekið þar heldur. OrSsending Viðgerðabílar verða á leiðinni Reykjavík — Markarfljót. Reykjavík — Hvalfjörður — Borgarfjörður — Snæfellsnes. Hægt er að hafa samb&nd við þessar bifreið- ir í gegn um Gufunesstöðina. — Hægt er að hafa samband við bifreiðarnar út frá Ak- ureyri í gegn um Landssímann á Akureyri og við bifreiðina á Austurlandi er hægt að hafa samband í gegn um Seyðisfjarðarradíó. Félaginu er kunnugt um ýmis verkstæði sem opin eru meðfram þjóðvegunum. F.Í.B. bendir félögum sínum á, að fara ekki lengra en að Stóru-Mörk, á bifreiðum án framhjóladrifs. F.Í.B. bendir félögum sínum á, að hafa skír- teinið með í ferðalagið. — Gangið í F.Í.B. UTBÖÐ Tilboð óskast j lögn hitaveitu í Heiðargerði, Stóra- gerði, Hvammsgerði, Brekkugerði, Hvassaleiti og Háaleitisbraut sunnan Miklubrautar. Verkið skal hefja 1. sept n.k. og vera að fullu lokið 1. nóv. 1965. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora gegn kr. 3000,00 skilatryggingu. Tilboðsfrestur rennur út kl. 11.00 þriðjudaginn 11. ágúst og verða tilboð þá opnuð á skrifstofu vorri, Vonarstræti 8. INNKAUPASTOFNUN. REYKJAVÍKURBORGAR. Aðstoðarstólku á tannlækningastofu vantar mig frá 4. ág- úst. — Til viðtals á tannlækningastofunni Austprstræti 14 föstudaginn 31. júlí kL 5-6. HALLUR L. HALLSSON. VDNDUB VÖRUR Kartöflumús — Kokómalt — Kaffi —• Kakó. KRON - b ú ði r n a r . K0DACHR0MEII (15dln) K0DACHR0MEX f19 din) tottliiita LITFILMUR Þér getið treyst Kodak filmum mest seldu filmum i heimi — KODAK litfilmur skila réttari litum og skarpari myndum en nokkrar aðrar litfilmur. mm Bankastræti - Sími 203 [NIh iKJF 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.