Þjóðviljinn - 31.07.1964, Page 5
Fðstudagur 31. júli 1964 ——r— -—;—«—,— -—;———- ÞIöÐVIliraN
SÍÐA g
Beztu hástökkvarar heims
HVER STEKKUR HÆST -
OG AF MESTU ÖRYGGB?
Ástralíumaðurinn Anthony Snearwell vakti heimsathygli í fyrra fyrir að stökkva 2,20 m. Hann
er nokkúrskonar tvífari Brumels. Þeir eru jafnháir (1,85 m), jafnþungir (77 kg.) og jafngamlir
,(22 ára).
Bandaríkjamaðurinn John Rambo, sem er aðeins tvítugur að aldri, er einn efnilegasti hástökkvari
heimsins í dag.
Ef lagðir eru saman 5 bez’tu keppniárangrar
helztu hástökkvara heimsins í sumar, kemur í
ljós að heimsmethafinn, Valeri Brumel, er þeirra
langfremstur.
r' & - .
KtPðUTGCRÐ HiMfctiSS1
Ferðaáætlun m7s Herjólfs
í byrjun ágúst.
1/8 laugard. frá Ve kl. 13 til
Þorlh, þaðan aftur kl. 18
til Ve.
Miðnæturferð til Surtseyjar
kl. 23, farmiðar seidir fyrir
hádegi.
2/8 sunnud. frá Ve kl. 05 til
Þorlh, þaðan aftur kl. 00 til
Surtseyjar c>g Ve; þaðan kl.
20 til Þorlh (23,30) og áfram
til Rv.
Frá 3/8 — 5/8 verða ferðir
eins og venjulega, en þar sem
mánud 3/8 er fríd. verzlunar-
manna, er reiknað með að
flestir sendi vörur í hús út-
gerðarinnar fyrir helgina.
Athugið einnig, að þá eru að
verða síðustu forvöð að
senda vörur til Ve fyrir
þjóðhátíð, því að miðviku-
dagsferðin gefur minní mögu-
leika um vöruflutning.
6/8 fimmtud kl. 17 frá Ve til
Þorlh. og 21 frá Þorlh. ttil Ve.
7/8 föstud. kl. 05 frá Ve. til
Þorlh., kl. 09 frá Þorlh. til
Ve, kl. 14 frá Ve til Þorlh.,
kl. 18 frá Þorlh. til Ve, kl. 22
frá Ve tif Hornafj.
8/8 laugard. kl. 13 —19 á
Hornaf.
9/8 sunnud. kl. 10 frá Ve til
Þorlh., kl. 14 frá Þorlh. til Ve,
kl. 19 frs Ve til Þorlh. og RV.
Æskilegt er að fólk tryggi sér
farmiða í ofangreindar ferð-
ir hjá aígreiðslum skipsins
á venjulegum skrifstofutíma,
því að tala farþega í ferð er
stranglega takmörkuð, og
óski fleiri fars en hægt er
að taka, er eðlilegast að þeir
víki, sem ekki hafa farmiða.
Annað fyrirkomulag getur
valdið óþarfa fyrirhöfn og
óþægin'ilum.
Brumel hefur samanlagt
10,97 m. í fimm beztu stökk-
unum, en það þýðir 2,194 m.
að meðaltali í stökki. Á ár-
inu 1963 voru samanlögð fimm
béztu afrek hans 10,90 m. Yf-
irlit sem þetta þykir sýna
einna bezt styrkleika og keppn-
isöryggi- hástökkvara. Flestum
mun koma nokkuð á óvart að
Pólverjinn Edwars Czernik
skuli vera næstbezti hástökkv-
arinn þegar skoðaðir eru 5
beztu árangrarnir. Hann stökk
hæst 2,11 m í fyrra, en hefur
margsinnis bætt pólska metið
í ár. Um siðustu helgi sigraði
hann á pólska meistaramótinu
með 2,18 m.
Hver er fremstur?
Valeri Brumel (Sovét) 10,97
2,24 2,23, 2,18 2,17 2,15
Framhald á 9. síðu.
Armannsstúlkurnar
sigursælar
í Þýzkalandi
Kvennameistaraflokkur Ármanns í handknatí-
leik hefur nýlokið keppniferðalagi sínu í Suður-
Þýzkalandi. Ármann styrkti lið sitt með tveimur
landsliðsstúlkum úr FH, Jónínu Jónsdóttur og
Sigurlínu Björgvinsdóttur. Flokkurinn vann 5
leiki en tapaði tveimur.
sitt af hverju
★ Frakkar háðu þrjá lands-
leiki um síðustu helgi og
tefldu fram þrem landsliðum
samtímis. A-Iandslið Frakka
vann landslið Itala 257:207 og
voru þrír keppendur frá
hvorum aðila í hvorri grein.
B-liðið og C-liðið unnu einn-
ig landskeppnina vlð Spán
og Portúgal.
★
★ Danska stúlkan Kirsten
Strange hefur' enn bætt
danska metið í 100 m skrið-
sundi kvenna. Synti hún á
1.04.0 mín. Vibeke Slot. sem
er 18 ára, setti met í 100 m
bringusundi kvenna — 1.23.6
mín. Metin voru sett á danska
sundmeistaramótinu í fyrri
viku. Lars Kraus Jensen
vann 100 m skriðsund karla
á 50,7 sek.
utan úr heirni
Stúlkur úr Val
og Fram sigruðu
Valur Qg- Fram sigruðu í
fyrstu leikjunum í meistara-
flokki kvenna á fslandsmótinu
í handknattleik utanhúss á
miðvikudagskvöldið. í meist-
araflokki karla mætti KR-lið-
ið ekki til leiks gegn Ármanni.
Valur og Þróttur léku fyrst
í kvennaflokki. Valur vann —
10:5 (6:3). Síðan léku Fram
og Víkingur, Qg unnu Fram-
stúlkurnar — 7:5 (4:2).
Það var ausandi rigning þeg-
ar keppnin fór fram, en stúlk-
urnar létu það ekkert á sig fá
og börðust með prýði.
Handknattleiksstúlkurnar úr
Ármanni héldu suður til Mun-
chen, en félagið E.S.V. L,aim
annaðist móttökur hópsins þar
syðra.
Ármann keppti fyrst við
gestgjafana 20. júlí og sigraði
— 5Æ. Sama dag kepptu
stúlkumar við félagið .,1880”
og unnu aftur — 10:2.
22. júlí tóku þær þátt i 40
ára afmælismóti félagsins
„E.S.V. Munchen" ásamt fjór-
um öðrum liðurh. Ármann
sigraði í mótinu og hlaut að
verðlaunum stóran silfurbikar.
Úrslit leikjanna urðu þessi:
Ármann — Neanbing 6:1
Framhald á 9. síðu.
I
Knattspyrna — 1. deild
JAFNTEFLIMILLIVALS 0G
FRAM í SLÆMU ,FÆRI'
□ Skilyrði til að sýna góða kna'ttspyrnu voru
af lakasta tagi, þegar lið Fram og Vals hlupu inn
á Laugardalsvöll á miðvikudagskvöldið, suðaust-
an stinningskaldi og rigning. Völlurinn var og
rennblautur og flugháll, svo að knötfurinn fleytti
kerlingar og leikmenn áttu mjög erfitt með að
fóta sig og átta sig á hreyfingum knattarins.
Það vantaði því mikið á að
færi fyrir góðri knattspyrnu í
leiknum, en ekki verður ann-
að sagt en að leikmenn hafi
barizt hinni góðu baráttu, því
að stigin eru dýrmæt, fyrir
bæði liðin.’En þrátt fyrir hin-
ar þægilegu afsakanir um vont
veður, sótti yfirleitt í sama far
og þegar veðrið er gott: send-
ingar ónákvæmar. langspyrnur
í tímn og ótíma, og þar á milli
einleikur, eins og til að sýna
sig og sitt ágæti! Þessu lík var
hin ráðandi knattspyrna í
leiknum. og er svipað um bæði
liðin í þessu efni. Það var
meira eins og tilviljun þegar
menn tcku að leika saman, en
samleik brá þó fyrir við og
við.
Þó telja megi, að jafntefli
hafi v^rið nokkuð sanngjörn
úrslit, voru skot Framara
heldur hættulegri og koma þar
fyrst og fremst til skot Ásgeirs
sem strauk þverslána ofan-
verða, og annað síðar í leikn-
um þar sem knötturinn fór
í stólpann og þaðan út á
völlinn aftur.
Það var þó Valur sem ógnaði
fyrst eða á 9. mín. er Ingvar
var kominn innfyrir, en skaut
í markmann. Þessi sama saga
endurtók sig er Baldvin, tveim
mínútum síðar, komst einnig
innfyrir vörn Vals, og skaut
beint í markmann.
Fyrsta hálftímann sóttu lið-
in nokkuð á víxl, og eins og
raunar í öllum leiknum var
viss spenna. hvað yrði úr þeim
tækifærum sem buðust á báða
bóga, en það var eins og það
væri svo erfitt að nota þau
vegna ,,ófærðarinnar”.
Eftir hálftíma leik varð Guð-
jón Jónsson að yfirgefa völlinn
vegna smámeiðsla, og inn kom
í hans stað Grétar, Sigurðsson,
og litlu síðar verður Björn Júl-
íusson að hætta en í hans stað
kemur Ormar Skeggjason.
Engu virtist þetta breyta um
gang leiksins, sama baráttan,
sama þófið.
Á síðustu mínútu hálfleiks-
ins lítur út sem Hermann ætli
að gera út um leikinn er hann
kemst innfyrir til hliðat. en
markmaðurinn kemur út, lok-
ar og ver, og þannig lauk hálf-
leiknum. Valur hafði leikið
undan strekkingnum, og með
Björn miðvörðirtn burtu og ný-
liða í stað Áma Njálssomar og
Matthíasar Hjartarsonar, var
útlitið ekki gott að leggja út i
síðari hálfleik.
Sama þófið hélt áfram með
heldur færri tvísýnum augna-
blikum í síðari hálfleik, þar
sem Fram var þó meira í sókn-
inni, án þess að geta notfært
sér það, en bæði lið áttu tæki-
færi til að skora. ■
Vörn Fram var betri helm-
.ingur liðsins með Sigurð Frið-
riksson sem bezta mann; Jó-
hannes og Sigurður voru einn-
ig allgóðir. I framlínunni var
Baldur beztur, og Ásgeir og
Baldvin sluppu sæmilega.
M arkmaðurinn bjargaði oft
vel.
Það var sama sagan hjá Val.
það var vörnin sem var betri
helmingurinn og léku þó tveir
nýliðar þar. Rafn Guðmunds-
sen bakvörður s’app vel frá
þessum fyrsta leik sinum. og
sama er að segja um Jón Ág-
ústsson, sem hefur auga fyrír
því hvað knattspyrna er. Arn-
ars var Þorsteinn og Ejörgvin
Framhald á 9. síðu.