Þjóðviljinn - 01.08.1964, Page 2

Þjóðviljinn - 01.08.1964, Page 2
2 STÐA ÞIÖÐVILIINN Laugardagur 1. ágúst 1964 Hérna er sökudólgurinn, loftbelgurinn sem fór s ína leið án þess að láta nokkuð meira frá sér heyra. Maðurinn i hvíta .jakkanum lengst til vi stri mun vera dr. Moser, sem er yfirmaður tilraun- anna. Áhyggjusvipurinn á andliti han s reyndist ekki ástæðulaus. Ljósm. Bj. Bj.) Þeir eru i byrginu rétt hjá skotpallinum, þar sem hleypa átti af. (Ljósm. Bj. Bj.) Hundruð áhorfendu mæltu ■ Það var mikið að snúast í Vík í Mýrdal á fimmtudag- inn, og ekki um annað rætt, en hvort Frakkarnir myndu skjóta eldflauginni upp þá um kvöldið. Þegar fréttamað- ur Þjóðviljans kom þangað um kvöldið, var ekki annað vitað en skotið ætti að ríða af um kl. 1 um nóttina. Frakk- amir sátu að snæðingi á hótelinu, en fóru síðan austur á sand til að leggja síðustu hönd a undirbúninginn. Þeir voru að flytja eldflaug- ina úr geymslunni út á skot- pallinn. þegar við komum austur á sand, og það voru margar hendur á lofti til þess að gæta þess að allt væri eins og vera bar. Stór kranabíll lyfti flauginni á skotsleðann. og Frakkamir gengu frá henni eftir kúnstarinnar reglum, meðan Ijósmyndarar hlupu í kringum þá og smelltu af í erg og gríð. Ekki var annað að sjá, en allt gengi samkvaémt á- ætlun. Skammt frá skotpallin- um var byrgi. sem búið var að öryggismálin vafalaust þar til umræðu. verið Svæðinu lokað Um klukkan ellefu var liðs- auki frá lögreglunni úr Rvík kominn á stjá; þeir voru að ..hreinsa" svæðið. Dr. Ágúst Valfells lét lögregluþjónana- sem lokuðu veginum að austan hafa með sér litla talstöð. „walki-talki“, til þess að gera viðvart. ef eit.thvað kæmi fyr- ir. Þetta var orðið heilt tal- Bölvuð leikslok Vestanmegin var veginum lokað við Kerlingardalsá. Lög- reglan beindi stöðugum straumi fólksbifreiða úr ná- grenninu og fjölmörgum komn- um að utan úr Rangárvalla- og Ámessýslu og alla leið frá Reykjavík eftir gamla vegin- um. sem liggur inn á Höf'"'a- brekkuheiði, Þaðan var ákiós- anlegt útsýni yfir skotstaðinn Þegar þangað kom blasti við mikill fjöldi bíla. og fólkið raðaði sér austur í heiðarbrún- íiia. Ög márgir sátu f bílun- um. bví að veður var hálfhrá- slagalegt. Þama hafa verið komin a.m.k. 400—500 manns til þess að horfa á. Allir horfa út í næturmyrkrið og niður á sv’artan sandinn. þar sem sá- ust liósin hiá skotstaðnum. Þetta var eins og á knatt- Áhugasamir áhorfendur austan í Höfðabrekkuheíðinni horfðu í eftirværrtngu út í nætur- myrkrið — -Ljósm Bj.Bj.) En skotíð reið ekki uf... hlaða sandpokum allt í kring. Það var aðsetursstaður þeirra, sém áttu að „hleypa af“. Frönsk hofmennska Veður hefði verið þungbúið mestan hluta dagsins og nokk- ur kaldi, en með kvöldinu stytti aðeins upp. Frakkamir voru búnir að senda tvo loft- belgi upp fyrr um daginn til þess að athuga veðarskilyrði; sá þriðji og síðasti sveif upp frá skotstaðnum nokkru eftir klukkan 10 um kvöldið. Hann átti að veita lokaupplýsingar um veðurfarið og fleira þama uppi í háloftunum. áður en til- raunin yrði gerð. I stöð:nni ofar á sandinum, þar sem radarinn og önnur mælitæki voru staðsett, var unnið sleitulaust við að prófa hvort allt væri í lagi. Og það var satt að segja undravert hve þolinmóðir og umburðar- lyndir Frakkamir voru við blaðamenn og ljósmyndara, sem alls staðar voru á hælum þeirra og vildu allt fá að sjá. (Sagt var að einn hefði helzt viljað fá að halda sig á skot- pallinum. þegar skotið væri); Mælaborð og sjálfritandi tæki voru uppljómuð og tilbúin að gegna sfnu hlutverki. þegar stundin rynni upp. Þama var dr. Ágúst Valfells forstöðumað- ur almannavama á tali við Lefevre verkfræðing, og hafa stöðvakerfi. ..Þið meldið ykk- ur sem mæðiveikihlið við hér sem radarinn, svo er það Höfðabrekka og sýslumanns- bústaðurinn", sagði 'dr. Ágúst. Svæðinu var lokað beggja vegna í hálfs þriðja kílómetra fjarlægð og nú var ekki um annað að gera en að'hypja sig út fvrir endamörkin. spyrnukappleik, sem Sigurður Sigurðsson lýsir í útvarpinu og allir bíða f spenningi eftir þessu eina úrslitaskoti. En þetta var hundleiðinlegur „leikur“. En svo fór allt f einu kliður um fólkið. Nú var klukkan alveg að verða eitt; —■ Lögreglan var rétt í þessu áð tilkynna. að það yrði ekk- ert skotið í nótt! En þótt ékki tækist að skjóta núna, þá skyldu menn vera rólégir. Það á að reyna aftur næsta kvöld, og biðin verður alveg jafn spennandi þá. (Samt má mikið vera, ef einhver hefur ekki bölvað þessum leikslokum). ^Frakkarnir sátu að kvöldverði á hótelinu, og það var stungið upp á því að kalla þessa mynd síð- ustu kvöldaiáltíðina — fyrir skotið. (Ljósm. Þjóðv. A. K.) Veðurskilyrði En hvað kom þá fyrir? t Jú, það var þessi veðurathugunar- stöð í loftbelgnum. sem sendur var upp siðast og auðvitað reið mest á honum. Hún fór bara sfna leið án þess að láta nokkuð meira til sín heyra. Sumir kenndu um bilun og það er trúlega alveg rétt. Ann- ars var það haft eftir Frökk- unum, að veðurskilyrði hefðu ekki verið heppileg. Þeir hafa líklega ekkert kært sig um að hleypa af þessu úrslitaskoti á föstudagsnóttina. Verkumenn óskust Viljum ráða nokkra verkamenn. L Ý....S I H. F., Grandavegi 2. Tung- ur tvær Skattskráin gefur tilefni til þéss að rifja upp að eftirlit með framtölum er slælegra hér en í nokkru öðru landi. Að vísu er tryggilega frá því gengið að launþegar gefi upp hvern eyri sem þeir vinna sér fyrir, en þeir sem stunda einhvem atvinnurekstur hafa ótal tækifæri til að fela tekj- ur sínar, enda hafa sumir æðstu máttarstólpar þjóðfé- lagsins leikið þann leik ár eftir ár að losna gersamlega við skatta með þvílíkum að- ferðum. Svo mikil brögð eru að þessari iðju að Alþýðu- blaðið, annað aðalmálgagn ríkisstjómarinnar, komst í fyrra að þeirri niðurstöðu að hundruðum miljóna kr. væri stolið undan skatti á þennan hátt á ári hv^rju, en laun- þegar bera þeim mun þyngri byrðar. Það var því sannar- lega ekki að ástæðulausu að þingmenn Alþýðubandalags- ins fluttu á síðasta þingi til- lögu um stóraukið eftirlit með framtölum atvinnurek- enda, m.a. um árlega könnun á ákveðnum hundraðshluta framtalanna, þannig að/ eng- inn gæti verið óhultur, en þvílíkt eftirlit er talið sjálf- sagt í öllum nálægum lönd- um. En þingmenn stjómar- flokkanna felldu þessa tillögu — þar á meðal Benedikt Gröndal, ritstjóri Alþýðublaðs- ins. sá sem nýbúinn var að skrifa að hundruðum miljóna væri stolið undan vegna skorts á eftirlitá. En i gær skrifar Benedikt Gröndal enn forustugrein í blað sitt um skatta og seg- ir með .heilagri vandlætingu: „Enn hafa ekki verið hafnar stóraðgerðir gegn skattsvikum til að eyða þvi ranglæti, sem þar hefur tíðkazt, og verður að koma mikið átak á því sviði“. Til þess að' svo megi verða þarf auðsjáanlega fyrst að eyða Benedikt Gröndal af þingi. - Vísir fylgiskjal Óvenjumikil sala var í Vísi síðastliðinn þriðjudag og miðvikudag. Ekki var ástæð- an þó sú að blaðið flytti þá merkara efni en venjulega, heldur ætla menn að senda blöðin sem fylgiskjöl með með kærum sínum til fram- talsnefndar. Þetta málgagn fjármálaráðherra og borgar- stiómarmeirihlutans í Reykja- vík staðhæfði semsé að til framkvæmda hefði komið ..veruleg skattalækkun“ sem hefði í för með sér .,veru- legar kjarabætur. . . bæði fyrir einstaklinga, og hjón“. og taki menn Vísi trúanlegan hlýtur allur þom' launþega í Reykjavík að komast að þeirri niðurstöðu að skatt- reikningar þeirra séu ein samfelld re'kningsvilla. Hætt er þó við að Vísir reyn- ist gagnslaust fylgiskjal. Þótt það varði þungum sekt- um að falsa framtöl, eru engin lög sem banrta að falsa stjómmálagreinar ' í dagblöð- um. — Austri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.