Þjóðviljinn - 01.08.1964, Síða 6

Þjóðviljinn - 01.08.1964, Síða 6
NððVIUINN g SIBA Laugardagur 1. ágúst 1964 Til eru aðeins tvær gerðir kvenna: hóran og móðirin Upp er risinn mikill kvenskörungur í Danmörku og heitir Elin Hogsbro Áppel. Hún ætlar að beita sér fyrir því, að stofna pólitískan flokk í Danmörku sem sé skip- aður konum einum. Hún hefur lýst því yfir í viðtali, að hið veika kyn hafi ekki bætt neitt aðstöðu sína síðustu fimmtíu árin, og sé þjóðfélagið allt undirokað af karl- mönnum, sem noti konur til lítilvægra þjónustustarfa. Stríð milli kynjanna Frúin segir, að nú, þegar stéttabaráttunni sé að mestu lokið, sé tími til kominn að blása í herlúðra og boða stríð milli kynjanna. Þessi pólitíska skjaldmær astlar að stilia upp frambjóð- endiun í vaentanlegum kosning- um til danska þingsins, og heldur hún því fram að þegar sé mikill áhugi í landinu fyrir hugmyndum hennar um kvennaflokk. Hinsvegar álíta Gullforði Bandaríkjanna minnkaði í júnímánuði um 70 miljónir dollara og er tvöfalt meiri þurrð en varð í maí- mánuði og mesta þurrð sem orðið hefur á einum mánuði í ár. Frakkar fengu helming þess gulls sem Bandarikin misstu í júní. pólitískir sérfræðingar í Dan- mörku, að henni muni varla takast á þeim stutta tíma. sem til stefnu er, að safna þeim tíu þúsundum .undirskrifta sem krafizt er til að flokkur sé skrásettur til þátttöku í kosn- ingum. Ekki að gefast upp Frú Appel er samt ekki á því að gefast upp, þótt fram- boðstilraunir hennar mistakist í fyrsta sinn, eða annað sinn. Ef tíminn reynist , henni of stuttur, mun hún tryggja að- stöðu sína og mæta betur und- irbúin á næstu pólitískum krossgötum. Hún álítur að kvennaflokkur hafi mikla fram- tíðarmöguleika í iandinu — en þar eru nú tvaer miljónir kvenna — að hrakspár karl- manna eigi sér fyrst og fremst rætur í ótta þeirra við að verða undir í samkeppninni. Tvær gerðir kvenua — Ég verð í dag, segir frú- in, vör við aðeins tvær gerðir kvenna: hóruna og móðurina. Ég myndi setja amerísku kon- una í hóruflokkinn og þá rúss- nesku í mæðraflokkinn, en danskar konur myndu verða einhversstaðar mitt á milli. Hún álítur einnig að það sé mesta svívirða hvernig konan er sett undir forsjá eiginmanns síns, og þar að auki tilneydd að taka upp ættamafn hans. Maðurinn hefur þannig vanizt á að líta á konuna sem nokk- urskonar byrði í lífinui 'en þessa byrði mun hann losna við um leið og við konur er- um viðurkenndar jafnréttháir aðilar, segir frú Appel enn- fremur — en sjálf skildi hún við mann sinn fyrir fimmtán árum. Hún álítur ennfremur, að konur hafi éinnig rétt til að ráða utanríkisstefnu landsins, ekki sízt vegna þess, að þær verji ekki neina hefð sem tengd er hermennsku. Gengi austurþýzka marksins hækkar í Vestur-Þýzkalandi Gengi anstur-þýzka marksins hefnr hækkað í víxlarastofum Vestur-Þýzkalands. Nú kosta hundrað austur-þýzk mörk 47 vesturþýzk í Hannover og hef- ur ékki fyrr verið greitt svo mikið fyrir þann gjaldmiðil vestantjalds. Austurþýzka markið er reyndar ekki gjaldeyrir í venjulegum skilningi, því enn er stranglega bannað að fara með austurþýzka peninga inn í eða út úr landinu. Opinber- lega er gengið eitt austurmark á móti einu vesturmarki, en raunverulegt gengi í Vestur-' Þýzkalandi skapast einfaldlega af framboði og eftirspum, Þegar fólksstraumur að austan var sem mestur til Vestur-Berlínar var gengið fjögur austurmörk gegn einu vesturmarki, þvi flóttamenn- irnri komu með mikið að aust- an og prúttuðu þannig genginu ( niður hvér fyrir öðrum. En er múrinn var byggður tók að mestu fyrir þetta að- streymi bæði af fólki og aust- urmörkum. Vesturþýzkir fjár- málamenn skilja því ekki vel, hvemig á því stendur að þessi peningaverzlun heldur samt sem áður áfram. Margt bendir til þess, að þessu braski sé I stjórnað af mönnum sem kunna vel að hafa áhrif á markaðinn. Sumir eru jafnvel að láta sér detta í hug, að austurþýzkir séu hér á ferð og brjóti sín eigin lög af á- settu ráði til að verða sér úti um vestrænan gjaldmiðil. En aðrir benda á að slíkt fyrirtæki væri of mikið hættuspil fyrir þá. Þeir sem kaupa austurþýzka peninga ætla sér austurfyrir og leita landamæraverðir þar öðru hvoru á mönnum og sæta þeir þungum kárínum ef þeir verða uppvísir að gjaldeyris- smygli. ...á...— ■»£. I j—^ /fi 111^1.1 Hvað dettur mönnum í hug þegar þeir sjá þessa mynd? — Ef sú skýring er látin fyigja með að hún sé frá Bandaríkjunum munu víst flestir þegar ráða gátuna. Þctta eru nýsmíðaáir bílar 'við eina af verksmiðjum Gencral Motors. í»eir söfnuðust saman við verksmiðjuna vegna verk- falls flutningamanna. Þarna befur nokkrum bifrelðum, sem annast vegaþjónustu FlB um verzlunarmannahelgina, verið raðað saman. Stuðlum öll að slysalausri verzlunarmannahelgi í ár Um verzlunarmannahelgina mun Félag íslenzkra bifreiða- eigenda hafa nokkra bíla í þjónustu sinni’ eins og undan- farin ár. Verða þeir að störf- um á öllum fjölförnustu leið- um sunnanlands, allt austur að Markarfljóti, á Norður- og Vesturlandsleiðum verða bif- reiðar allt frá Reykjavík um Hvalfjörð og Borgarfjörð, ,þá verður bifreið til taks hjá Bif- reiðaverkstæði Hellissands, Hellissandi, og er hægt að komast í samband við hana um Landsímastöðina á Hellis- sandi. Vegaþjónustubifreiðar verða einnig á leiðum bæði vestan og austan Akureyrar og austanlands á helztu leiðum á Fljótsdalshéraði. Ef bifreiðastjórar lenda í vandræðum á einhvern hátt, geta þeir leitað til vegaþjón- ustubílanna, annað hvort í gegnum talstöðvar annarra bifreiða eða með því að hringja í stuttbylgjustöðvam- ar; 1 Gufunesi sími 22384, norð- anlands j Landsímastöð Akur- eyrar og austanlands í Seyðis- fjarðar radíó. Félagsmenn í FÍB verða látnir ganga fyrir þjónustu þessari, en einnig mun hún veitt öllum öðrum, eftir því sem við verður kom- ið og greiða þeir fullt gjald fyrir þjónustuna. Félag íslenzkra bifreiðaeig- enda hefur beitt sér fyrir því að viðgerðarverkstæði verða opin við helztu umferðaríeiðir á Suðurlandi, Vestur- og Norð- urlandi og geta bifreiðastjórar, sem þurfa á aðstoð að halda, snúið sér til þeirra, en sér- stakir samningar eru ekki gerðir við verkstæði þessi og verða allir að greiða þá þjón- ustu, sem þar er af hendi leyst. Af gefnu tilefni er rétt að taka fram að þjónusta þessi miðast við að hjálpa þeim bif- reiðum, sem verða algjörlega óökufærar, eða því sem næst, og framkvæma aðeins nauð- synlegustu skyndiviðgerðir, en ekki meiri háttar viðgerðir. Það skal einnig tekið fram að ekki er unm, að anhast við- gerðir á hjólbörðum á vegum úti, nema bifreiðin sé óökufær vegna skorts á varahjólbarða. Varúð á vegnnum, orðsend- ing frá vegaþjónustu FÍB Umferðin eykst ár frá ári og í hönd fer mesta umferðarftelgi ársins og ef veður verður hag- stætt mesti umferðartími í sögu landsins. Tjón af völdum bifreiða og alvarleg umferðar- slys hafa orðið ískyggilega mik- il og mörg á yfirstandandi ári. Þetta sýnir ótvírætt að hjá sumum bifreiðastjórum skortir öryggi í akstri og gefur tilefni til áminninga um meiri varúð á vegunum. Meira er af nýjum og góðum bifreiðum á íslenzk- um vegum en nokkru sinni fyrr. Allar þessar bifreiðar eru gerðar fyrir hraðan akstur, en sííkt hentar ekki á hinum 10.000 km. löngu en lélegu ís- lenzku vegum, að 20 km. kafla undanskildum, sem er í sam- ræmi við eðlilega notkun þeirra bifreiða, sem til lands- ins eru fluttar. Hámarkshraði á íslenzkum vegum er 70 km„ en ef þið þekkið ekki veginn gerla getur verið lífshættulegt að aka með þessum hraða. Þetta hefur slysasaga undan- farinna mánaða sannað. Hrað- ur akstur er ein algengasta or- sök slysa á vegum úti, en hins vegar er rétt að minnast þess að bifreiðar, sem aka með minni hraða en 7ft km. á klst. eiga að hliðra til og draga úr ferðinni og leyfa framúrakstur þar sem skilyrði eru fyrir hendi. Akið aldrei fram úr nema hafa góða yfirsýn yfir veginn framundan. Mjóir vegir og mætingar Alveg sérstök ástæða er til þess að minna ökumenn á að yíða hér á landi eru vegir svo mjóir að bifreiðar geta trauðla mætzt á heppdlegum stöðum. Sumstaðar ganga ræsi langt inn í veginn og eru þau víð- ast merkt með gulum stólpum en á nokkrum stöðum eru þau ómerkt með öllu og léynast þar alvarlegar hættur í grasi- vöxnum vegakantinum. Þessar hættur þarf alltaf að hafa í huga, er ekið er á vegum, sem liggja um mýrlendi. Hindranir og húsdýr á vegunum Þar má einkum nefna kyrr- stæðar bifreiðar og búfénað, en húsdýr hafa og greiðan að- gang að flestum þjóðvegum okkar; af því hafa hlotiztmörg hvimleið slys og þörf er meiri varkárni í þessum efnum. Stöðug aðgæzla Alvarleg slys, jafnvel hjá á- gætum ökumönnum, geta hlot- izt ef maður lítur sem snöggv- ast út um hliðarrúðu bifreiðar- innar, í aftursætið eða á gólf hennar. Sjón, eftirtekt og við- bragðsflýtir er 'sú þrenning, sem öruggur akstur byggist öðru fremur á. Margt getur sljóvgað eftirtekt og viðbragðs- flýti, en það algengasta mun vera áfengi og ofþreyta. Allir vita að áfengi og akstur, er ólöglegt og hættulegt að sam- eina. Þreyttur ökumaður get- ur einnig verið hættulegur um- ferðinni. Með öruggum og á- byrgum akstri komið þið í veg fyrir mikið tjón verðmæta og afstýrið alvarlegum slysum. Ábýrgur og öruggur akstui bjargar mannslífum og eitt aj þeim getur verið yðar gigið. ' Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.