Þjóðviljinn - 02.08.1964, Page 1
Sunrradagur 2. ágúst 1964 — 29. árgangur — 172. tölublað.
Fyrstu myndirnar frá Ranger 7
Stórmerk vitneskja
um tunglyfirborðið
ii
Höfin" ó tunglinu eru ekki sandsléttur,
margir smógígar benda á mikil eldgos
PASADENA, Kaliforníu 1/8. — Fyrstu myndirnar sem Ranger 7 'tók af
-firborði tunglsins og sendi ti! jarðar síðdegis í gær voru birtar í dag og
leiðaþær í ljós stórmerka nýja vitneskju um tunglyfirborðið. Myndirnar
benda ekki til þess að neinar ófyrirsj áanlegar hættur bíði fyrstu mannanna
sem lenda á tunglinu og eru þannig merkur áfangi í undirbúningi Banda-
ríkjamanna að því að senda mannað geimfar til tunglsins í lok þessa áratugs.
-«>
SKOTIÐ TOKST
EINS OG BEZT
VARÐ Á KOSIÐ
liili!
ISSIIi
;
Eins og frá var skýrt stuttlega hér
x blaðinu í gær skutu frönsku vís-
indamennirnir á loft fyrri eldflaug-
inni frá Mýrdalssandi laust eftir kl.
1 í fyrrinótt og tókst skotið eins og
bezt varð á kosið að því er Þorsteinn
Sæmundsson stjarnfræðingur hjá
Eðlisfræðistofnuninni tjáði blaðinu í
gær.
Eðlisfræðistofnunin hefur annazt
mælingar á segultruflunum fyrir
Frakkana í sambandi við undirbún-
ing eldflaugarskotsins en samband
er á milli segultruflana og rafagna
þeirra í gufuhvolfinu sem Frakkam-
ir eru að rannsaka með eldflauga-
skotunum her. Er það því skilyrði
fyrir því að tilraunirnar heppnist að
miklar segultruflanir séu þegar eld-
flaugunum er skotið á loft. Frgman
af í fyrrakvöld mældust engar segul- "r v®r nefnd flestir munu
truflamr og voru horfurnar þvr ekki
góðar en úr þessu rættist og var
skotið ekki ákveðið fyrr en á síðustu
stundu er Eðlisfræðistofnunin hafði
tilkynnt Frökkunum að skilyrði
væru fyrir hendi.
Sagði Þorsteinn að Frakkamir hefðu
verið mjög þakklátir fyrir aðstoðina
sem Eðlisfræðistofnunin veitti þeim
og talið að án hennar hefði þeim
verið ókleift að framkvæma þessar
tilraunir sínar.
Endanlegar niðurstöður af tilraun-
þessum liggja að sjálfsögðu ekki
fyrr en eftir nokkum tíma þeg-
búið er að vinna úr þeim upplýs-
ingum sem mælitækin sem eldflaugin
flutti gáfu.
1 Ætlunin er 'að skjóta síðari eldflauginni á loft fyrra
hluta næstu viku, sagði Þorsteinn að lokum, og hafa
Frakkarnir boðið hcnum og fleiri starfsmönnum Eðlis-
fræðistofnunarinnar að vera viðstöddum en hann vissi
ekki hvort hann gæti komið því við, því að fáliðað er
hjá stofnuninni núna og einhverjir verða að framkvæma
þær mælingar á segultruflununum sem eru óhjákvæmi-
le^ur undirhx'mingur þess að hægt sé að framkvæma
tilraunir.
Ein merkasta vitneskjan sem
lesa má af þeim fimm myndum
sem þegar hafa verið birtar er
sú að hinir stóru gígar á tungl-
inu sem flestir töldu áður að
stöfuðu frá . loftsteinum eru í
rauninni eldgígar. Það má því
ætla að tunglið sé enn ekki
„dauður“ himinhnöttur, heldur
lifi þar enn eldur undir yfir-
borði jarðar. Þetta er staðfesting
á tilgátu sovézkra stjörnufræð-
inga fyrir fáeinum árum, sem
töldu sig hafa fundið merki um
eldgos á tunglinu.
Kóperníkusgígurinn
Skýjahafið svonefnda þar sem
Ranger 7 lenti er í næsta ná-
munda um 300 km við stærsta
gíginn á tunglinu, sem heitinn
er eftir Kópemíkusi. Frá jörðu
að sjá er „hafið“ að mestu slétt
og ójafnalaust. Myndirnar sem
Ranger sendi og eru þúsund sinn-
um nákvæmari en myndir sem
áður hafa fengizt af tunglinu
sýna að svo er ekki. Skýjahafið
er ekki marflöt sand- eða ryk-
slétta, heldur eru í því ótal
smágígar, sem greinilega stafa
af steinum sem Kópemíkus
hefur spúð Úr sér í eldgosum.
Einnig loftsteinar
Það hafa lengi verið uppi tvær
kenningar um uppruna gíganna
á tunglinu; auk þeirrar sem áð-
amir stöfuðu einvörðungu frá
loftsteinum, hafa aðrir stjömu-
fræðingar þótzt þess fullvissir
að gígamir væru eldgigar. Sú
uppgötvun sovézkra stjömufræð-
inga, sem áður var að vikið, að
ÞJÖÐVILJINN
kemur næst út á miðvikudag
Mynd af hálfmána og snýr norðurpóll tunglsins niður eins og
venja er á slíkum myndum. Ilyíti depillinn rétt fyrir ncðan miðju
myndarinnar er Kóperníkusgígurinn sem er staðfest að sé eldgígur.
Vattarnesið
fékk sjé í
lestina
Neskaupstað, 1/8 — Vattames-
ið frá Eskifirði lenti í erfiðleik-
um á leiðinni í land í gær með
mikinn afla. Skipið var statt um
17 sjómílur út af Dalatanga um
klukkan 17.00 í gær er skipverj-
ar veittu því eftirtekt að tals-
verður sjór var kominn saman
við síldina í lestinni. Voru þeir
með síld á dekki og tóku það
til bragðs að kasta henni útbyrð-
is. Þeir héldu samt áfram og
tókst að komast hjálparlaust til
Neskaupstaðar um klukkan 22.30
í gærkvöld þar sem skipið land-
aði 862 málum í bræðslu.
Butler farinn
frá Moskvu
MOSKVU 1/8. — Sovétríkin
og Bretland lýstu í gær yfir
stuðningi sínum við hugmynd-
ina um alþjóðlega samninga er
banni frekari útbreiðslu kjarn-
orkuvopna.
Þetta kom fram í yfirlýsingu,
sem birt var í Moskvu á laug-
atdag að lokinni opinberri heim-
sókn Butlers utanríkisráðherra
til Moskvu. Hann átti viðræður
við Krústjoff, Grqmiko og aðra
forystumenn í Sovétríkjúnum.
í. yfirlýsingunni segir, að bæði
löndin hafi enn á ný staðfest að
þau séu þess fullviss, að trygg-
ing friðarins á atómöld sé þýð-
ingarmesta verkefni allra þjóða
í heiminum án tillits til stjóm-
mála- eða þjóðfélagskerfa.
Því hljóti sameiginlegt tak-
mark beggja þjóða að vera já-
kvæðar samningaumleitanir til
að finna friðsamlega lausn á
alþjóðlegum deilumálum.
rauð glóð sást um tíma inni í
einum gígnum (qg var fest á
Ijósmynd) þótti staðfesta kenn-
inguna um eldgíga, en þó þótti
óvarlegt að draga þá ályktun
. af henni. Myndir Rangers eru
hins vegar alger staðfesting á
henni.
Þetta þýðir þó ekki að kenn-
ingin um loftsteina sé alröng,
því að myndir Rangers sýna
einnig að nokkrir gíganna stafa
frá loftsteinum eða loftögnum
sem borizt hafa utan úr geimn-
um.
Þá leiða myndirnar í ljós að a
yfirborði tunglsins eru engar
djúpar sprungur eða gjár. Dr.
Kuiper sem stjórnar Rangertil-
raununum segir að sér hafi kom-
ið þetta mjög á óvart.
Þær myndir sem enn hafa ver-
ið birtar benda ekki til þess að
fyrstu geimfaranna bíði nokkrar
sérstakar ófyrirsjáanlegar hætt-
Framhald á 9. síðu.
Bræðslan er orðin
160 þúsund mál
Neskaupstað. 1/8 — Sjö þús-
und mál og tunraur af síld bár-
uæt hingað sl. sólarhring og
veiddist hún öll út af Langanesi.
og Eldey með 1000 tunnur. Síld-
in er feit en mjög blönduð.
mundsdóttir 1600, Jón Oddsson
700 og Sigurbjörg GK 600.
Vitað er um nokkra báta á
leiðinni hingað með söltunar-
síld; Glófaxi NK 850, Guðrún
Jónsdóttir 400, Gunnhildur 400
I bræðslu hafa landað síðan
í gærmorgun þessi skip: Skaga-
röst 500 mál, Hafþór 195, Lóm-
ur 836 og Vattames 862. Sild-
arverksmiðjan hefur gengið á
Talsverðar skemmdir af
eldi að Grettisgötu tvö
Klukkan 10.20 í gærmorgun var slökkviliðið kvaitt að húsinu
Grettisgötu 2 sem er gamalt timburhús með steyptum kjallara
en timburloft yfir kjallaranum. Lr á staðinn kom var talsverður
eldur á Iagerherbergí í suðurenda kjallarans en þarna er ti9 húsa
fatagerðin LYRA h.f., eiganði Gísli Gíslason.
Slökkviliðinu tókst f I jótlega að i áða nirirlögum eldsins en
miklar skemmdir urðr. ú Jager af unnum vörum, aðallega barna-
og unglingafatnaði og blússum ca skemmdir urðu ekki á vélum
í sjálfri saumastofunni. Ókunnugt var um eldsupptök í gær er
blrðið átti tal v;ð slökkviliðið.
síðustu málunum síðan um há-
degi í gær. Er hún nú búin
að bræða um 160 þúsund mál.
Þessir bátar lögðu upp til sölt-
unar: Stefán Ben. NK 500 tunn-
ur, Þráinn NK 300, Guðbjörg
GK 300, Friðbert Guðmundsson
350, Húni II. 200, Helga Guð-1
Sunnudagur
í Sunnudegi er m.a. að
finna frásögn Dr. Sturlu
Friðrikssonar af gras-
sáningu á íslandi. Þá
segir Halldór Þorsteins-
son frá Hítarvatni þar
sem hann hefur dvalið
lengur eða skemur síð-
astliðin tuttugu ár á
hverju sumri.
I Ennfremur er að finna
smásöguna Niður með
braskið eftir Míkhæíl
Sosjenko sem er í senn
snjöll og stutt. Þá er
sagt í stuttri klausu £rá
tugumáli íbúanna á
eyjunni Gomera í Kan-
aríeyjaklasanum en það
er fólgið í blístri. Árni
Bergmann skrifar grein
um Mannlega viðleitni
og annað líf.
I Ýmislegt fleira er í
Sunnudagsblaðinu svo
sem verðlaunagetraun,
krossgáta, Óskastundin
Q.fl.
Forsetinn var settur inn í
embættií fjórða sinn í gær
I gær var forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, settur
inn í embætti i f jórða sinn við
háitiðlega athöfn.
Athöfnin hófst með því að
forseti, frú hans, forsætisráð-
herra, forseti sameinaðs Alþing-
is, forseti Hæstaréttar og fleiri
embættismenn gengu fylktu liði
úr þinghúsinu í dómkirkjuna þar
sem flutt var messa.
Að guðsþjónustunni lokinni
gengú forseti og fylgdarlið hans
ásamt boðsgestum til Alþingis-
hússins. Þar afhenti forseti
Hæstaréttar forseta kjörbréf og
síðan undirritaði hann eiðstaf að
stjómarskránni. Forseti flutti og
ávarp við athöfnina en að henni
lokinni gengu hann og forseta-
frúim út á svalir Alþingishúss-
irs.
Dómkirkjukórinn söng við at-
höfnina í Alþingishúsinu fýrir og
eftir innsetninguna.