Þjóðviljinn - 02.08.1964, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 02.08.1964, Qupperneq 7
r'unnudagur 2. ágúst 1964 ..................... ........................... ----------- ÞJÚÐVILIINN ---------------------------------------------------------------------------------------SÍÐA J Hljéð úr iðrum iarðar Fyrsti tandskjálftamælirinn Á atómöld er vert að minnast frumherjanna í vísindarannsókn- um og til dæmis jíess að það var hinn mikli kínverski náttáru- skoðari Chang Heng sem fyrstur setti saman nothæfan jarð- skjálftamæli — og það fyrir 1800 árum. Þetta áhald Hengs var ekkert líkt þeim jarðskjáíftamælum sem nú eru notaðir en gerði þó sitt gagn. A kínverska vísu var áhaldinu komið fyrir í fag- urlega skreyttum bronsvasa, en áhald þetta var pendúll sem tengdur var 8 hreyfanlegum örum, en þær voru svo tengdar kjálkunum í 8 drekahausum. Við Iandskjálfta hreyfðist dingull- inn og þá opnaðist kjafturinn á drekahöfðinu sem sneri í sðmu átt og stefna landskjálftans var. Þegar drekakjafturinn opnaðist féll kúla út úr honum og á þann hátt varð séð þegar landskjálfti hafði orðið og hver stefna hans var. Um páskaleytið í ár týndu hundruð manna lífi í Alaska af völdum jarðskjálfta og stór- felldar skemmdir urðu á mann- virkjum. Þessi hörmulegi at- burður varð til þess, að menn tóku enn á ný að íhuga, hvort ekki væri hægt að sjá fyrír jarðskjálfta, og gera aðvart um þá eins og veðurfræðingar gera aðvart um fellibylji. Ný aðferð hefur verið fund- in til þess að komast að leynd- ardómum þeim, sem huldir eru undir yfirborði jarðar. Þessi aðferð, sem fólgin er í því að hlusta eftir „hinni þöglu tónlist“ jarðar, getur ef til vill fært okkur nær því marki að sjá fyrir jarðskjálfta. Venjulegur skilningur á crrðinu hljóð er að það sé allt það, sem við skynjum með hjálp eyrans. En í eðlisfræð- inni er hljóð miklu víðtæk- ara orð; þar eru þreytingar á loftþrýstingi (eða þrýstingi í vökva) og hinar fíngerðu sveiflur eða hljóðbylgjur. sem myndast við þær og hafa svo lága tiðni að einungis er hægt að greina þær með örsmáum tækum er starfa líkt og loft- vogir, einnig kallaðar þljóð. Ultra-hljóð Hljóð úr jörðu eru alls ekki óþekkt fyrirbrigði, t.d. hefur svokallað ultra-hljóð, sem hef- ur svo háa' tíðni, að mannlegt eyra greinir það ekki. verið notað um áraraðir í iðnaði til þess að dauðhreinsa mat og mjólk. En það er fyrst hin síðari ár, sem vísindamenn hafa byrjað að nota þessi hljóð til þess að rannsaka hvað fari fram .undir yfirborði jarðar. Bylgjuhreyfingar sem mynd- ast við jarðskjálfta, hafa ver- ið rannsakaðar í um það bil 75 ár og hafa veitt vísinda- mönnum nokkrar upplýsingar um samsetningu jarðarinnar, um þykkt og þanþol jarð- skorpunnar og hinna dýpri jarðlaga. En nokkrir visinda- menn álitu, að jörðin hefði sínar eigin hreyfingar, sem væru óháðar þeim, sem mynd- uðust við jarðskjálfta. og þeir álitu að í sambandi við þess- ar bylgjur myndaðist ákveðin „tónlist", sem hæ-gt væri að „heyra“, ef aðeins rétt tæki væru fyrir hendi. Vísindamennirnir tóku nú til við að rannsaka þessar bylgj- ur eða sveiflur og notuðu til þess ný rafeindatæki. sem þeir kðlluðu extensometer og gravi- meter. Extensometer er mjög viðkvæmur jarðskjálftamaelir, sem getur mælt allar breyting- ar á jarðskorpunni, hve smá- vægilegar sem þær eru. Jarðskjálftamælingar hafa þegar veitt okkur upplýsingar um innri lög jarðar, en rriargt er þó enn óupplýst. Meðal annars, hve mikið af jörðinni er bráðin leðja og hve mikið er fast berg, og fyrst og fremst þó, hvemig hægt er að sjá fyrir jarðskjálfta. ,Þögul tónlist' Hinir áðumefndu vísinda- menn töldu. að ef hægt væri að skynjá „hina þöglu tónlist" og skýra hana, myndi vera hægt að fá gleggri upplýsingar um marga þessara hluta. Þess- vegna var extensometer settur upp í Kalifomíu og tveir aðr- ir í Perú. Svo átti sér stað hinn hræðilegi jarðskjálfti í Chile árið 1960. Það var eins og voldugur kólfur hefði sleg- izt utan í jarðklukkuna. og svo hátt var „hljóðið“,. að hin nýju tæki skynjuðu það. Loks- ins var hægt að .,heyra“ hljóð, sem ekki var hljóð. Enginn veit..: Það, sem visindamennimir komust nú að var það, að jörð- in hefur tvær irumsveiflur. önnur hefur sveiflutiðnina 53,1 á mínútu, hin '54,7. Orsök hinna tveggja frumsveifla er snúningur jarðar um öxul sinn, að öðrum kosti hefði hún að- eins haft eina sveiflu. Þannig sýndi jarðskjálftinn í Chile fram á. að jörðin hefur sina sérstöku „tónlist“, þó að ekki sé hægt að greina þessa „tónlist", þar sem tíðni henn- ar liggur sextán áttundum neð- ar en hið lægsta hljóð. sem mannlegt eyra getur greint. En hvað sem því líður er þessi „tónlist" til og hún gerði vís- indamönnum kleift að kveða upp úrskurð um að jarðskjálft- inn í Chile átti upptök sín ná- lægt bænum Concepcion. Enn eru það aðeins stærstu jarðskjálftar, sem valda svo stórum sveiflum á jarðklukk- unni að þær greinast. En eng- inn veit, hvað framtíðin kann að bera í skauti sér. Ef til vill mun „hin þögla tónlist“ jarðar gera okkur kleift að sjá fyrir jarðskjálfta. Miklar hreyfingar geta átt sér stað á jarðskorp unni undir yfirborði sjávar. Jarðskjálftamir íChile árið 1960 urðu þegar mikil gjá myndaðist á botni Kyrrahafs. Á teikningunni sjást cinnig neðan- jarðar eldstöðvar og eru sumar þeirra útdauðar, aðrar enn i fullu fjöri. 27. DAGUR i Magnús konungur leggur sínum skipum í lægið. Þá er hvorirtveggju höfðum búizt, gekk Haraldur konungur með nokkra menn á skip Magnúss konungs. Konungur fagnaði vel, baö hann vel kominn. Þá svarar Haraldur konungur: „Það hugði ég, að vér værum með vinum komnir, en nokk- uð grunaði mig um hríð, hvort þér munduð svo vilja vera láta; en það er satt, er mælt er, að bemska er bráðgeð. Vil ég virða eigi á aðra lund. en þetta væri æskubragð". Þá segir Magnús ltonungur: „Það var ættarbragð en eigi æsku, þótt ég mætti muna, hvað ég gaf eða hvað ég vam- aði. Ef þessi liilí hlutur væri nú tekinn fyrir vort ráð, þá myndi brátt vera annar. En alla sætt viljum vér halda, þá er gör er, en það sama viljum vér af yður hafa, sem vér eigum skilt“. Þá svarar Haraldur konungur: „Það er og íom siður, að inn vitrari vægi"; gekk þá aftur á skip sitt. 1 þvflíkum viðskiptum konunganna fannst það, að vant var að gæta til. Töldu menn Magnúss konungs, að hann hefði rétt að mæla, en þeir, er óvitrir voru, töldu þaó, að Haraldur væri nokkuö svívirður. En Haralds konungs menn sögðu það að eigi væri á aðra lund skilt en Magnús kon- ungur skyldi lægi hafa, ef þeir kæmu jafnsnemma, en Har- aldur væri eigi skyldur að leggja úr læginu, ef hann lægi fyrir, töldu Harald hafa viturlega og vel gjört. En þeir er verr vildu um ræða, töldu, að Magnús konungur vildi rjúfa sætt, cg töldu, að hann hefði gjört rangt og ósæmd Harakfi kanungi. Við slíkar greinir gerðist brátt umræða óvitra manna til þess, að konungum varð varð sundurþykki að. Margt fannst þá til þess, er konungunum þótti sinn veg hvor- um, þótt hér sé fátt ritað.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.