Þjóðviljinn - 07.08.1964, Síða 1
Fóstudagur 7. ágúst 1964 — 29. árgangur -— 175. tölublað.
Mikffl viðbúnaður á Kyrrahafí
Öllum herafla Bandaríkja-
manna á Kyrrah'afi hefur
verið skipað að vera til taks
ef á þarf að halda. Mynd-
irnar eru af flugvélaskipun-
um sem árásimar á N.Viet-
nam voru gerðar frá, t.h. Con-
stellation. t.v. Ticonderoga.
BANDARIKJAMENN VARADIR VID
FREKARI ÁRÁSUM Á N-VIETNAM
Árás á Norður- Víetnam jafngildir árás á Kinar segir kínverska alþýðustjórnin,
en þá er ekkiljóst hvort hán hyggst svara loftárásunum á hafnarbæina fjóra
PEKING, MOSKVU og LONDON 6/8 — Leiðtogar Kínverja sátu á fundi
í nótt til að ræða árásir Bandaríkjamanna á Norður-Vietnam og gáfu út
að honum loknum yfirlýsingu þar sem Bandaríkin eru vöruð við því að
árásir á Norður-Vietnam jafngildi árás á Kína. Þó er ekki talið að Kín-
verjar hafi í hyggju að svara fyrir loftárásirnar á hafnárbæina við Tonk-
inflóa á miðvikudag, en þeir áskilja sér rétt til að koma Norður-Vietnam
til aðstoðar ef árásunum verður haldið áfram. Bandaríkjastjórn hefur
víða sætt þungri gagnrýni fyrir framferði sitt, en þó virðast menn víðast,
hvar gera sér vonir um að ekki hljótist verra af því. Ástandið er þó sagt
mjög ískyggilegt á landamærum Norður- og Suður-Vietnams og er þar
mikill liðssafnaður.
í yfirlýsingu Kínverja segir
að loftárásirnar við Tonkinflóa
hafi verið fyrsta skref Banda-
ríkjanna til að færa út stríðið
í Indókína og lögð er áherzla á
að Kínverjar geti ekki horft á
það aðgerðarlausir að ráðizt sé
8 eða 2?
HANOI 6/8 — Herstjórnin
í Norður-Vietnam sagði í
dag að átta bandarískar
flugvélar hefðu verið skotn-
ar niður þegar þær réðust
á hafnarbæina við Tonkin-
flóa í gær, en þrjár aðrar
hefðu orðið fyrir skotum
úr loftvarnabyssum. Flug-
maður sá sem komst lífs
af og er nú fangi í Norð-
ur-Vietnam heitir Alvarez
og er úr flugsveitinni á
flugvélaskipinu Constell-
ation. ... Bandaríkjamenn
segja að aðeins tvær flug-
vélar hafi verið skotnar
niðúr og var Alvarez í
annarri þeirra.
á nágranna þeirra og banda-
menn í Norður-Vietnam.
Ekki verður ráðið af yfirlýs-
ingunni hvað kínverska stjórnin
hefur í hyggju og ekki er í
henni minnzt á neinar gagn-
árásir á Bandaríkjamenn. En
tekið er skýrt fram að Banda-
ríkin verði að hætta frekari ögr-
unarárásum á Norður-Vietnam.
Geri þau það ekki, verði þau
að taka á sig alla ábyrgð á af-
leiðingunum.
Fréttamenn Iíta svo á að með
þessyl vilji kínverska stjórnin
áskilja sér rétt til gagnaðgerða
gegn Bandaríkjamönnum, en
hún muni halda að sér hönd-
um, ef Bandaríkin láta sér segj-
ast við aðvörunina.
Erlendum sendimönnum í
Peking var afhent yfirlýsingin
i kínverska utanríkisráðuneyt-
inu, en fengu enga nánari skýr-
ingu á þeim kafla þar sem seg-
ir að árásirnar á Norður-Viet-
naua, iafngildi árásum á Kína.
Upploírin átylla
/
Kínverska stjómin tekur und-
ir þá staðhæfingu stjórnar Norð-
ur-Vietnams að enginn fótur sé
fyrir því að tundurskeytabátar
hafi gert aðra árás á bandarísk
herskip á Tonkinflóa á þriðju-
daginn, en þá árás höfðu Banda-
ríkin að átyllu fyrir loftárásun-
um á hafnarbæina.
— Framferði Bandaríkjanna
er slíkt að Norður-Víetnam hef-
ur fullan rétt til að verjast árás
og öll ríki sem stóðu að Genf-
arsáttmálanum um Indókína
hafa rétt til að koma því til að-
stoðar. Norður-Vietnam er sósí-
alistískt riki og ekkert annað
sósíalistaríki getur horft aðgerða-
laust á, þegar á það er ráðizt,
segir í yfirlýsingunni.
„Isvestía", málgagn sovét-
stjórnarinnar, birti í dag kín-
versku yfirlýsinguna, en sleppir
þessum síðustu ummælum Kín-
verja.
Rólegt í Moskvu
Fréttirnar frá Vietnam virð-
ast ekki hafa komið miklu róti
á hugi manna í Moskvu, segir
fréttaritari Reuters. Krústjoff
for;»etisráðherra heldur áfram
ferðalagi sínu um landbúnaðar-
héruð og er ekki vitað til þess
að hann sé væntanlegur til
Tc B T n i
■ ' 'txv&wu
fari allt í bál og brand, segir
fréttastofan.
Glæfraspil
Flest blöð á vesturlöndum
telja sem vænta mátti að Banda-
ríkin hafi haft rétt til að ráð-
ast á stöðvar tundurskeytgbát-
anna eftir árásimar á herskip
þeirra, en mörg láta í ljós ótta
við afleiðingarnar.
Brezka blaðið „The Guardian"
bendir á að atburðirnir á Tonk-
inflóa hafi styrkt aðstöðu stjóm-
þeirrar skoðunar að ákvörðun
Johnsons forseta að fyrirskipa
loftárásir á hafnarbæina í Norð-
ur-Vietnam eigi fremur rætur
sínar að rekja til kosningabar-
áttunnar sem nú er um það bil
að hefjast í Bandaríkjunum en
hernaðarlegri nauðsyn. Þannig
hælir útbreiddasta blað Frakk-
lands, „France-Soir“, Johnson
fyrir að hafa með árásunum
slegið vopn úr höndum Barry
Goldwater, sem nú geti ekki
lengur sakað forsetann um „und-
anlátssemi við kommúnista“.
Kort af Vietnam
Moskvu. Sendiherra Bandaríkj-
anna þar, Foy Kohler, fór það-
an í dag í orlof til Vestur-
Þýzkalands.
En víða um heim hafa tiðind-
in frá Tonkinflóa vakið mönn-
um ugg, svo að helzt er sam-
bærilegt við þá skelfingu sem
gagntók fólk um al'lan heim þeg-
ar átökin urðu á Karíbahafi fyr-
ir tæpum tveimur árum.
í Vietnam sjálfu eru horfum-
ar ískyggilegastar. Bandaríska
fréttastofan AP hefur það eftir
góðum heimildum að mikill liðs-
safnaður sé beggja vegna landa-
mæpa Norður- og Suður-Viet-
nams og megi búast við mikl-
um tíðindum þaðan. Ljóst er
að ekki má miklu muna að þar
I fið verndum friðinn með
loftárásum, segir Johnson
WASHINGTON 6/8 — Allt sem við aðhöfumst er gert í því
skyni að koma í veg fyrir stríð og hindra að aðrir kveiki
ófriðarbál, sagði Johnson forseti þegar hann tók í dag á móti
Ú Þant, framkvæmdastjóra SÞ, í Hvíta húsinu í Washington.
Að loknum fundi Ú Þants með Johnson og Rusk utanrikis-
ráðherra kvaðst hann hafa fært þeim nýjar tillögur til lausn-
ar vandamálum Suðaustur-Asíu. Hann var ófús að skýra
fréttamönnum frá því hverjar tillögur hans væru.
arinnar í Saigon og hafi ekki
veitt af því. Blaðið segir hins
vegar að með jafn stórfelldum
hernaðaraðgerðum og loftárás-
unum á Norður-Vietnam tefli
Bandaríkjastjórn áliti sínu í tví-
sýnu. Þær séu glæfraspil sem
hljóti að mistakast, segir blað-
ið.
Kosningabragð
Jafnvelþau blöð sem lýsa sam-
þykki sínu við aðgerðir Banda-
ríkjanna í Vietnam eru mörg
Mótmælafundir
Fréttir hafa borizt víða að um
mótmæli við sendiráð og ræðis-
mannaskrifstofur Bandaríkjanna
vegna árásarinnar á Norður-
Vietnam, m.a. frá Melbourne í
Ástralíu og Nýju Delhi á Ind-
landi.
Fidel Castro fordæmdi í dag
árásina og sagði að öll sósíal-
istísk ríki yrðu að standa ein-
huga saman gegn glæpsamlegu
ofbeldi og yfirgangi Bandaríkj-
anna.
Útsvörin 1958 og 1964 borin saman:
Hækkanirnar koma allar á almenning
en stórlækkanir á fyrirtækjum
1958 1964 Lækkun
Marz h.f. 384.060 204.800 179.260
Eimskipafél. Reykjavíkur h.f. 384.060 3.000 381.060
Litir & Lökk h.f. 381,980 40.100 341.880
J. Þorlákss. & Norðmann h.r. 311.400 128.100 183.300
Sænsk ísl. frystihúsið h.f. 311.400 128.900 182.700
H. Benediktsson h.f. 303.090 70.900 232.190
I dag birtum við samanburð á útsvörum fyrirtækja, sem
báru yfir 300 þúsund kr. 1958 og því sem lagt er á þau í ár.
Árið 1958 voru það 28 fyrirtæki, sem báru yfir 300 þús. króna
útsvar, en eins og vera ber vegna hinna „hagstæðu breytinga
stjórnarflokkanra á útsvars- og skattalögunum hefur fyrir-
tækjum, sem eru raeö svona há útsvör fækkað nokkuð. Þau
voru víst eitthvað um tutrugu talsins, sem komust yfir fyrr-
greinda upphæð í ár. Og hér kemur svo samanburðurinn:
Samband ísl. samvinnufélaga
Eimskipafélag Isl^nds h.f.
Olíufélagið h.f.
1958
2.750.700
1.557.000
1.505.100
1964
Ekkert
Ekkert
882.100
Lækkun
2.750.700
1.557.000
623.000
1958 1964 Lækkun
Olíufélagið Skeljungur h.f. 1.266.360 12.800 1.253.560
Olíuverzlun lslands h.f. 1.214.460 309.300 905.160
Sölumiðst. hraðfrystihúsanna 1.038.000 Ekkert 1.038.000
O. Johnson & Kaabcr h.f. 861.540 136.100 725.440
Sameinaðir verktakar h.f. 851.160 10.800 840.360
Sláturfélag Suðurlands h.f. 716.220 105.700 610.520
Júpíter h.f. 602.040 Ekkert 602.040
Harpa h.f. 583.350 49.700 533.650
Isbjörninn h.f. 471.250 196.000 275.250
Hið isl. steinolíuhlutafélag 435.960 75.000 360 ~«0
Garffar Gíslason h.f. 425.580 274.600 150.950
Vélsmiðjan Héðinn h.f. 425.580. 391.900 33.630
Ölg. Egill Skallagrímsson h.f. 396.510 276.900 119.610
Þessi 22 fyrirtaeki, sem tal-
in eru hér að framan hafa öll
fengið allverulegar útsvars-
lækkanir, eins og sjá má. Að-
eins fjögur fyrirtæki áf þeim
sem báru yfir 300 þúsund
1958 eru með hærri útsvör
núna,.en þau eru: Slippfélag-
ið hafði kr. 539.730, núna
920.800, hækkun 381.040, Egg-
ert Kristjánsson & Co h.f.
hafði kr. 430.770, nú 1.024.600,
hækkun 593.830, Kassagerð
Reykjavíkur hafði 417.270,
núna 1.890.800, hækkun
1.473 530, og svo Loftleiðir
h.f., sem höfðu 363.300 en
bera nú 16.535,300 og nemur
hækkunin 16.172.000 krónum.
Það skal tekið fram að hér
er einungis um útsvör álögð
í Reykjavík að ræða. Nokkur
fyrirtæki, sem reka starfsemi
víðsvegar um landið, greiða
landsútsvör. Aðstöðugjöld eru
lögð á eftir veltu viðkomandi
fyrirtækja á svipaðan hátt og
almennur söluskattur er
lagður á.
Og nú geta skattgreiðendur
i Reykjavík borið breyting-
arnar á útsvörum þessara fyr-
irtækja saman við upphæð-
irnar, sem þeim hefur verið
gert að greiða þessi ár. Þann-
ig fá menn skýrasta mynd af
því, í hverra þágu „útsvars-
og skattalækkanir“ stjómar-
flokkanna hafa verið að und-
anförnu.